Morgunblaðið - 03.01.2004, Side 43

Morgunblaðið - 03.01.2004, Side 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 43 eins og þegar Eygló slysaðist til þess eins og Guja föðursystir Ingu sagði „að koma alla leið sunnan úr Reykja- vík til að brjóta hlöðugluggann“. Það var nú fljótt fyrirgefið – enda var hann svo lítill að það þurfti ná- kvæmnismanneskju til. Inga var heimasætan á bænum og þegar Guðrún fékk fyrst að dvelja þar viku að vetrarlagi, þá barn að aldri, var það mikið aðdáunarefni að fylgjast með Ingu búa sig á ball. Þá var í tísku að túbera og lakka á sér hárið, og þótti þeirri stuttu það merkileg athöfn sem vert væri að fylgjast nákvæmlega með. Líf og störf Ingu voru alla tíð að hlúa að öðrum, enda hafa marghátt- uð veikindi og slys steðjað að hennar nánustu og nú síðast henni sjálfri. Einkenni hennar voru æðruleysi og sérstök hlýja, jafnvel er hún barðist við sjúkdóminn síðustu tæp tvö árin. Það er lán okkar systra að hafa kynnst Ingu og mannkostum hennar sem voru einstakir. Samband okkar hefur ætíð verið náið og erum við þakklátar fyrir að Eygló gat borið Ingu bestu kveðjur okkar systra er hún flaug vestur fyr- ir jól og kvaddi vinkonu sína á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Innilegar samúðarkveðjur send- um við Sveinbirni, Sveinbjörgu, Skúla, eiginkonu hans og barni. Jafnframt bræðrum hennar Braga, Björgvin, Heiðari og fjölskyldum þeirra. Eygló, Ingibjörg, Guðrún og Bil. Ingibjörg Skúladóttir er látin. Hún var dóttir Þuríðar og Skúla Guðjónssonar á Ljótunnarstöðum í Hrútafirði og þangað kom ég í sveit til frændfólksins fyrst þegar hún var aðeins fjögurra ára. Þar vorum við bræður á víxl og í heimsóknum með foreldrum okkar, þeim Pétri Sum- arliðasyni og Guðrúnu Gísladóttur. Þá voru frændgötur ferskar þótt síð- ar hafi þær orðið að nokkru grasi vaxnar. Vissulega er langt síðan en samt er fráfall Ingu langt um aldur fram. Við, móðir okkar, systkinin og fjöl- skyldur okkar, sendum Sveinbirni og þeim Skúla og Sveinbjörgu okkar innilegustu samúðarkveðjur svo og bræðrum Ingu og þeirra fjölskyld- um. Gísli Ólafur Pétursson. Á jóladaginn barst sú frétt, að Ingibjörg Skúladóttir, fyrrum sveit- ungi okkar og nágranni, væri látin. Ekki kom það á óvart, við vorum bú- in að fylgjast með hetjulegri baráttu hennar við grimm örlög. Ingibjörg átti uppruna sinn í Ljót- unnarstöðum í Hrútafirði. Eftir að hún gekk að eiga mannsefni sitt, Sveinbjörn Sveinbjörnsson frá Litlu-Ávík í Árneshreppi hófu þau sjálfstæðan búskap á æskuheimili hennar. Skömmu síðar brugðu þau búi og keyptu jörðina Norðurfjörð í Árneshreppi. Móðir hennar lést þegar hún var nítján ára, og kom þá í hennar hlut að taka við húsmóðurstörfum. Faðir hennar varð blindur fjörutíu og þriggja ára gamall, hann lét samt ekki deigan síga, gaf út bækur, skrif- aði blaðagreinar og varð þjóðþekkt- ur fyrir þátttöku í þjóðmálaumræðu síns tíma, ásamt því að halda áfram búskap. Ekki fer hjá því að þetta hefur aukið á ábyrgð ungu húsmóð- urinnar. Eftir að til Norðurfjarðar kom var faðir hennar einnig hjá henni meðan heilsan leyfði. Þau komu til Norðurfjarðar með von í hjarta, hófust handa við upp- byggingu á jörðinni, voru samhent og lífið blasti við. Skömmu eftir að til Norðurfjarðar kom dró ský fyrir sólu, Sveinbjörn greindist með sjúkdóm, Parkinson- veiki, sem ljóst varð að mundi ganga nærri vinnuþreki hans. Það fór líka svo, þó harðgerr væri og ósérhlífinn. Ingibjörg lét ekki deigan síga. Aðdá- unarverð var þrautseigja hennar, hún lagði sig alla fram við að halda í horfi. Svo kom þó, að þau sáu, að ekki þýddi að glíma við ofureflið. Árið 1996 létu þau af búskap og fluttu til Ísafjarðar. Á Ísafirði undu þau sér vel, og Ingibjörg fór að vinna utan heimilis, eftir því sem aðstæður leyfðu. Það var eftirsjá að þessum góðu nágrönnum. Fólk á besta aldri að flytja burt úr sveitinni gegn vilja sín- um. Hún sagði einhvern tímann við þann er þetta ritar: „Kannske höfum við gert skakkt í því að vera ekki fyr- ir löngu farin.“ Þetta sýndi, að ákvörðunin hafði verið dregin í lengstu lög. Ingibjörg var félagslynd kona og vildi fylgjast með fólki, óvildarmenn átti hún ekki, hún var ekki þeirrar gerðar. Hún var ávallt glaðvær og tilbúin að slá á létta strengi. Allt lífs- hlaup þessarar konu mótaðist af því að vera trú því hlutverki, sem hún var kölluð til. Fyrir tæpum þremur árum kenndi hún þess sjúkdóms, sem lík- legur var til að sigra, sem nú hefur orðið. Andlát Ingibjargar er fjöl- skyldunni mikið áfall. Eiginmaður- inn og dóttirin höfðu sannarlega þörf fyrir umhyggju hennar áfram. Hún var búin að ljúka því, sem lífið krafð- ist af henni, meira er ekki hægt. Hún stóð styrk meðan stætt var. Sveinbjörn minn, þú og börnin þín standið á erfiðum tímamótum. Minn- ingin um trúfastan lífsförunaut verð- ur þó ekki frá ykkur tekin, það er líka gott veganesti. Þessi fátæklegu orð eiga að vera kveðja úr sveitinni. Við hjónin, börnin okkar og fjöl- skyldur þeirra, sendum aðstandend- um Ingibjargar innilegar samúðar- kveðjur. Gunnsteinn Gíslason. Kæra skólasystir. Haustið 1964 mætti 41 námsmey á Kvennaskólann á Blönduósi. Þú ert önnur í röðinni sem kveður þennan hóp. Við dvöld- um saman þennan vetur í skólanum og áttum þar skemmtilegar stundir saman. Þar var ýmislegt brallað eins og gengur á unglingsárum, sem við nú í seinni tíð getum endalaust rifjað upp og glaðst yfir. Eftir að við kvöddumst við Kvennaskólann vorið 1965 höfum við hist reglulega og hef- ur þú mætt ef þú hefur haft tök á. Það eru ógleymanlegar stundir. Síð- ustu ár hefur þú átt við mikil veik- indi að stríða, en þú hafðir sterkan lífsvilja og kraft og ætlaðir þér að sigra, en varðst að lokum að lúta fyr- ir hinum slæma vágesti sem krabba- meinið er. Að leiðarlokum biðjum við henni blessunar og sendum fjölskyldu hennar samúðarkveðjur á sorgar- stundu. Skólasystur Kvennaskólanum á Blönduósi.  Fleiri minningargreinar um Ingi- björgu Skúladóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. hestum var oft komið við á Ár- bakka á leið í kaupstaðinn. Var því oft gestkvæmt. Eru mér þessar minningar góðar og minna á hraða nútímans sem veldur því að mann- leg samskipti eru mun sjaldgæfari í dag. Móðir mín var félagsvera og hafði gaman af því að hitta fólk. Ung gekk hún í Kvenfélagið Ein- ingu í Holtahreppi og var í því til dauðadags, síðustu árin sem heið- ursfélagi. Langri ævi er lokið. Vinnusamri ævi þar sem gengið var í verkin af dugnaði og eljusemi. Ævi sem bar kærleik til okkar systkinanna og fjölskyldna okkar. Starfsfólki Lundar á Hellu vil ég flytja mínar bestu þakkir fyrir all- an þann mannkærleik og ástúð sem það sýndi móður minni þann tíma er hún dvaldi á Lundi. Við Valur kveðjum elskulega móður og tengdamóður og biðjum henni guðsblessunar á ókunnum slóðum sem við vitum að faðir minn mun leiða hana um. Blessuð sé minning þín. Sigrún Bjarnadóttir. Nú hefur fengið hvíldina hún Ella amma. Hún var búin að sjá tímana tvenna og lifa margar breytingar í heiminum frá því að hún fæddist á fyrsta tug síðustu aldar. Ég þekkti ömmu frá því ég man fyrst eftir mér. Ég fæddist á heim- ili hennar og afa og fjölskylda mín hélt alltaf miklum tengslum við þau. Í minningunni er það þannig að ég var oft í sveitinni hjá þeim, ýmist með eða án foreldra minna. Það virtist enginn viðburður ger- ast, heyskapur, smölun eða rúning án þess að við krakkarnir og mamma og pabbi færum og hjálp- uðum til. Þegar ég varð stálpuð fór ég svo í sveit til þeirra á Árbakka og var þar frá því skóla lauk, þar til hann byrjaði aftur. Fyrsta sumarið mitt var ég bara níu ára og samtals urðu sumrin sjö. Amma var dugnaðarforkur og sinnti sínum störfum af mikilli elju og natni. Hún sinnti heimilisstörf- unum og gekk í útistörfin með afa. Hún hafði samt tíma til að sinna áhugamálum sínum sem voru hann- yrðir og bóklestur. Amma prjónaði óhemju mikið og hafði alltaf eitt- hvað á prjónunum í orðsins fyllstu merkingu. Hún átti mikið af bókum og einhvern veginn fann hún tím- ann til að lesa þær allar. Einnig og ekki síst hafði hún tíma til að spila við okkur krakkana. Á sjónvarps- lausum fimmtudagskvöldum og löngum rigningardögum sátum við krakkarnir og amma, og stundum líka afi, og spiluðum, ýmist Kana eða Hornafjarðarmanna, eftir því hvort við vorum þrjú eða fjögur sem spiluðum. Amma tók spila- mennskuna alvarlega svo það var betra að taka eftir hvaða spil voru komin í borðið og vita hvaða tromp var eftir. Amma tók mikinn þátt í útiverk- um með afa. Hún sinnti búfénaði með honum og gekk í það af sama dugnaði og elju eins og heimilis- störfin. Yfirleitt gerði hún ekki upp á milli dýranna en hún átti sína uppáhalds kind. Það var hún Gibba. Gibba var gamall heimalningur og var hænd að mönnum. Oft bankaði hún upp á hjá ömmu, gekk inn í eldhús og fékk matarkex eða kleinu. Amma talaði oft um sóða- skapinn sem hlaust af því þegar hún kom en alltaf fékk Gibba samt eitthvað gott fyrir heimsóknina. Þegar hún óð hins vegar alla leið inn í stofu, ef hún fann engan í eld- húsinu, þá var amma ekki hrifin. Gibba var þá rekin út, og fékk síð- an góðgætið sitt þar. Ömmu fannst gaman að hæna að sér féð og ég man að eitt vorið þegar ég kom í sveitina var heill árgangur af gems- um orðinn hændur að henni og þáði gælur og klapp. Nú þegar ég kveð nöfnu mína í síðast sinn veit ég að ég er ríkari eftir kynnin við hana og að ég er heppin að hafa kynnst hluta af gamalli hefð og viðhorfum sem hverfa með Ellu ömmu á Árbakka. Elínborg Valsdóttir. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. (V. Briem.) Blessuð sé minning Elínborgar Sigurðardóttur. Magnea Tómasdóttir. HINSTA KVEÐJA Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT J. FREDERIKSEN, f. 1. mars 1917, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánu- daginn 5. janúar kl. 15.00. Ólafur Frederiksen, Guðrún Frederiksen, Halldór Hróarr Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, ERNA HAFDÍS JÓHANNSDÓTTIR, Asparfelli 6, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 30. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Sigurbjörn Ármannsson, Guðlaug Ósk Sigurjónsdóttir, Jóhann Sigurjónsson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ERMENREKSDÓTTIR, Grýtubakka 22, Reykjavík, lést í Danmörku mánudaginn 29. desember. Hrafnhildur Vera Rodgers, Arnór Sveinsson, Ingunn Olsen, Eric Olsen, barnabörn og fjölskyldur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, REGÍNA BENEDIKTSDÓTTIR, Hraunbæ 192, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn 29. desember sl. Útförin auglýst síðar. Baldur Jónsson, Jón Ingi Baldursson, Helga Gunnarsdóttir, Óskar Baldursson, Sigþrúður Stefánsdóttir, Sigrún Hulda Baldursdóttir, Guðmundur Óskarsson, Helga Hrönn Sigurbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA DAVÍÐSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, miðvikudaginn 31. desember. Útförin verður auglýst síðar. Sigrún Guðnadóttir, Tyrfingur Sigurðsson, Guðni Tyrfingsson, Auður Alfreðsdóttir, Sigurður Tyrfingsson, Þórunn Tyrfingsdóttir, Jóhann Dalberg Sverrisson og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, INGIBJÖRG KRISTJANA KRISTJÁNSDÓTTIR, Tjarnarbraut 5, Hafnarfirði, lést á Sólvangi í Hafnarfirði fimmtudaginn 1. janúar. Högni Sigurðsson, Hermann Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.