Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 44

Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 44
MINNINGAR 44 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ ÞorsteinnBjarnason var fæddur í Sælings- dalstungu í Dala- sýslu 21. júlí 1917. Hann lést á Dvalar- heimili aldraðra í Borgarnesi 22. des- ember síðastliðinn. Þorsteinn var sonur hjónanna Kristínar Sæmundsdóttur, f. 16. sept. 1880, d. 1. júní 1968, og Bjarna Guðbrandssonar, f. 9. febrúar 1879, d. 3. júní 1955, þau bjuggu á Fjósum í Laxárdal í Dalasýslu. Eftirlifandi eiginkona Þorsteins er Sigríður Helga Aðalsteinsdótt- ir, f. á Vígholtsstöðum í Laxárdal í Dalasýslu 16. febrúar 1927. For- eldrar hennar voru Steinunn V. 3) Bjarni Kristinn, f. 14. júní 1959, kona hans er Guðrún Kristjáns- dóttir frá Hrísdal, dætur þeirra eru Unnur Helga, f. 20. mars 1988, d. 14. ágúst 2002, og Þorgerður Erla, f. 11. júlí 1990. 4) Unnsteinn, f. 17. desember 1965, sambýlis- kona hans er Guðbjörg Guðjóns- dóttir frá Rauðanesi, synir þeirra eru Jón Steinar, f. 15. maí 2002, og Þorsteinn Unnar, f. 8. október 2003, stjúpbörn Unnsteins eru Oddný Björk, Björn Viggó og Kristjana Erla Björnsbörn. Þorsteinn var í almennri vinnu- mennsku á unglingsárum, auk vegavinnu á Holtavörðuheiði. Ár- ið 1946 hóf hann störf hjá Versl- unarfélagi Borgarfjarðar við akstur og skrifstofustörf. Réðst til Olís í Borgarnesi í kringum 1970 og vann þar til 1992 er hann lét af störfum sökum aldurs. Þorsteinn stundaði fjárbúskap alla tíð með vinnu sinni og var fjárflesti bóndi í sinni sveit (Borgarnesi) eins og hann hafði dreymt um sem barn. Útför Þorsteins verður gerð frá Borgarneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Sigurðardóttir, f. 11. maí 1884, d. 21. sept- ember 1973, og Aðal- steinn Guðmundsson, f. 10. apríl 1890, d. 14. apríl 1961, þau bjuggu á Vígholts- stöðum í Laxárdal og seinna í Búðardal. Sigríður og Þorsteinn eiga fjóra syni, þeir eru: 1) Unnsteinn, f. 5. október 1945, d. 11.desember 1965. 2) Sigurður, f. 25. júní 1949, kona hans er Steinunn Pálsdóttir frá Álftártungu, synir þeirra eru: Þórður, f. 21. mars 1976, sam- býliskona hans er María Júlía Jónsdóttir, dóttir þeirra er Þór- unn Birta, og Sigursteinn, f. 16. mars 1982, sambýliskona hans er Anna Sigríður Guðbrandsdóttir. Kæri pabbi. Þegar þú laukst lífsgöngu þinni að kvöldi 22. des. sl. sem náði yfir 86 ár þá þakkaði ég og eflaust fleiri þér ná- komnir, skaparanum fyrir að þú fékkst hvíldina, sem þú þráðir orðið svo mjög. Eftir mjög erfið veikindi sem þú þurftir að ganga í gegnum, seinni part ársins 2003. Oft talaðir þú um að þig langaði til að losna frá þessum veikindum og komast til Unnsteins þíns sem þú misstir af slysförum árið 1965 en hann var þá 20 ára og Unnar Helgu sonardóttur þinnar sem lést úr krabbameini í ágúst 2002 aðeins 14 ára að aldri. Eftir það áfall fannst mér sem þér færi mikið aftur og eins og þú sagðir við mig einhvern tíma. ,,Því þarf skaparinn alltaf að höggva í sama knérunn.“ Þú varst alls ekki sáttur við það sem Guð hafði gert þér. Þó svo að ég hafi ekki kynnst kristnari manneskju en þér. Það er svo margt sem við getum ekki skýrt í lífinu, meira er lagt á suma en aðra og vil ég trúa því að einhver tilgangur sé með því þó svo að ég komi ekki auga á það. Minningar hrannast upp frá barn- æsku minni, ferðalög í Dalina, sem voru þér mjög kærir. Saga á bak við hverja þúfu og stein. Veiðiferðir í Laxá í Dölum og Haukadalsvatn á haustin þá er við dvöldum á Litla- Vatnshorni, þá varst þú í essinu þínu, mikil ógrynni af sögum um menn og málefni sem þú kunnir. Sögusviðið var oft barnæska þín á Skarfsstöðum og seinna á Svalhöfða í Laxárdal, þar sem þú mættir góðu atlæti sem barn. En ungur varst þú látinn til vanda- lausra eins og þá var alsiða hér á landi, foreldrar börðust oft í bökkum og engin skipti sér af lítilmagnanum í þá daga, ekki hefur það verið þeim auðvelt að láta barn sitt frá sér. Á Svalhöfða áttir þú góða æsku eins og þú sagðir mér einhvern tíma og barst alla tíð hlýjan hug til þess fólks sem fóstraði þig þar. Hafi það þökk þó gengið sé. Ungur maður varst þú við vegavinnu á Holtavörðuheiði og margar sögur voru því tengdar og fjölmarga góða vini eignaðist þú á „heiðinni“, einn þeirra var Kristján Sigurðsson frá Hrísdal sem var þar kúskur hjá móðurbróður sínum, Jó- hanni vegaverkstjóra. Seinna hög- uðu örlögin því þannig að undirrit- aður sonur þinn og Guðrún dóttir Kristjáns urðu hjón, en Kristján lést árið 1987 mikill öndvegismaður, sem syrgður er af öllum sem til þekktu. Gunnu þína þótti þér afskaplega vænt um og oft sagðir þú við mig: Þú ert ekki gæfulaus maður hvað kon- una þína varðar, drengur minn. Alla tíð eftir að þú fluttir í Borg- arnes 1946, þar sem þú starfaðir lengst af við akstur, hafðir þú kindur þér til skemmtunar og búdrýginda og fengum við bræðurnir að kynnast sveitastörfum þó svo að við byggjum í þéttbýli. Smalamennskur í Hvammi í Norðurárdal, heyskapur á Hamri og Hamarsengjum og stúss í kring- um gegningar og sauðburð, allt eru þetta fallegar minningar sem við eig- um frá þessum tíma. Þú varst staðfastur og heiðarlegur maður sem mast vinnusemi og dugn- að mikils í fari hvers manns og lagðir mikla áherslu á að eins væri með af- komendur þína. Mikla áherslu lagðir þú á að rækta frændsemi við skyld- fólk okkar og snemma kenndir þú mér að meta ljóð og kveðskap frænda okkar Jóhannesar úr Kötl- um. Eins og þú komst svo vel að orði: Taktu eftir því, Bjarni minn, að hvert orð er meitlað og ekkert fær því grandað. Eins og áður er greint frá misstuð þið mamma frumburð ykkar, Unn- stein árið 1965. Það var ykkur mikill harmur og vel man ég, þá 6 ára gam- all, eftir því þegar þú sagðir mér frá því sem komið hafði fyrir og baðst mig að minnast bróður míns alla tíð. Sex dögum eftir lát yndislegs bróður, sem var mér svo mikið, fæddi mamma dreng sem skírður var Unn- steinn og afskaplega þótti mér og þykir enn, vænt um hann. Hann var ykkur mikil guðs gjöf á erfiðum tím- um. Þessi lífsreynsla setti mark sitt á ykkur og þið áttuð hana fyrir ykkur og báruð ekki tilfinningar á torg. Sömu lífsreynslu höfum við Guðrún mín upplifað fyrir skömmu síðan, eitthvað sem ekkert foreldri ætti að þurfa að upplifa. Eftir að þú fékkst blóðtappa í höf- uðið í haust, þá var heilsa þín öll nið- ur á við og mjög ósáttur varstu með það hlutskipti í lífinu. Síðustu mán- uðina dvaldir þú á dvalarheimili aldr- aðra í Borgarnesi og naust þar frá- bærrar umönnunar alls starfsfólks, sem seint verður hægt að þakka fyr- ir. Hjartans þakkir okkar bræðranna fær móðir okkar fyrir fádæma natni og umhyggju við þig, og aldrei vék hún frá sjúkrabeði þínum og var hjá þér uns yfir lauk. Guð blessi minningu þína. Hafðu þökk fyrir allt sem þú gerð- ir fyrir mig frá fæðingu og fram á þennan dag. Þinn sonur Bjarni Kristinn. Ég kynntist Steina í júlí 1979, þeg- ar leiðir okkar Bjarna sonar hans lágu saman. Þegar ég horfi yfir þessi rúmu tuttugu ár sem ég hef þekkt Steina þá er margs að minnast. Ætíð var hann mér góður og þau bæði. Hann sagði oft við okkur, í dag er veður til að ferðast, þá langaði hann í bíltúr. Oftar en ekki fórum við þá eitthvað út að keyra, upp í Borgar- fjarðarhérað, niður á Mýrar eða inn í Dali. Hann var hafsjór af fróðleik um þá staði sem fyrir augu bar, hafði oft- ast sögu eða vísu að segja frá. Þor- gerði og Unni þótti afi oft vita mikið og segja skrítnar sögur. Steini hafði kindur, ég reyndi eftir megni að hjálpa honum við umhirðu kindanna, bæði við gegningar og sauðburð og svo auðvitað heyskap. Eitt sinn þegar Steini var búin að slá engjarnar fyrir ofan Hamar, og var að snúa heyinu þá fórum við Sigga með kaffi og með því til hans og strákana, þá var Steini 79 ára gamall, ég hjálpaði honum við að setjast þeg- ar hann fékk sér hressinguna og svo að standa upp þegar hann var búinn að drekka. Þá segir hann við mig þegar hann er að rísa upp: Ég finn að mér er hætt að fara fram. Svona voru oft tilsvör Steina. Ég er afskaplega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Steina og tel mig hafa lært ýmislegt af honum. Kæri Steini, takk fyrir allt. Þín tengdadóttir Guðrún. Ég var umkringdur ókunnugu fólki með bróður mínum og kærustu. Áfallið var mildað í hjörtum okkar með létti og maður komst ekki hjá því að hugsa ,,loksins, loksins fékk hann að sjá ljósið.“ Ég man ekki eftir að hafa kynnst afa. Hann hefur bara einfaldlega alltaf verið til. Afi var líka þannig maður að maður getur ekki annað en brosað og oft á tíðum hlegið þegar maður hugsar um gömlu góðu minningarnar. Hann var gamansam- ur, hafði gaman af að hlæja, fara með vísur og var með endemum stríðinn. Röddin hans bar vott um kímni þrátt fyrir að sál hans hafi mátt þola sorg og erfiðleika á sinni löngu ævi. Marg- ir eiga líka eftir að muna eftir afa sem góðhjörtuðum manni, aldrei sást hann vera vondur við nokkurn mann eða skepnu. Dýrin voru honum hug- leikin og ég á reyndar margar minn- ingar með honum tengdum dýrum. Eitt sinn vorum við tveir að draga net og afi tók eftir sér til mikillar skelfingar að lómur hafði flækt sig í netinu. Hann var lifandi en var farinn að þreytast. Afi baslaðist við að losa greyið, og róaði fuglinn með rödd sinni. Eitthvað misskildi lómurinn hvað um var að vera og beit frá sér. ,,Ég er að reyna að hjálpa þér, skömmin þín!“ skammaði afi fuglinn sem um síðir var laus. Þá var eins og hann áttaði sig og leit við til afa frá vatninu, með þakklæti. Ekki voru aðrir fuglar svo heppnir að hafa bjargvætt og afi tók það afskaplega nærri sér. Einmitt svona var afi. Hugsaði um skepnurnar eins og þær væru fólk. Í fjárhúsunum gekk hann á milli rollnanna, þekkti þær með nafni og talaði við þær um leið og hann otaði til þeirra góðgæti. Enda komu þær allar á harðahlaupum þeg- ar þær sáu hann koma. Kindurnar og kisa upp í fjárhúsum voru honum efst í huga og hann talaði oft um þær allt til hinstu stundar á dánarbeði. Hann sinnti sínum skepnum af kostgæfni og ræktaði land sitt vel. Fullkomn- unarárátta hans var ótrúleg og við, börnin hans, urðum að fara að ýms- um reglum svo sem stika kartöflu- garðinn á verkfræðilegan hátt. Þá langaði okkur helst að drífa þetta af en hann vildi gera hlutina vel. Eins og afi ræktaði sitt land og sínar skepnur ræktaði hann sálir okkar sem hann þekktum á sama hátt. Fróðleikur og minningar sem hann gaf mér er eitthvað sem aldrei á eftir að vera metið til fjár. Ég man sög- urnar um Búkollu og Gilitrutt, í hol- unni hjá ömmu seint á kvöldin og sögur af öllu á milli himins og jarðar, til að mynda um Titanic, skip sem hann sagði mér frá fyrir langa löngu og sveipaði svo miklum ævintýrablæ. ÞORSTEINN BJARNASON Elskulegur eiginmaður minn, ÁSGEIR BJARNASON í Ásgarði, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 29. desember sl. Ingibjörg Sigurðardóttir. Ástkær eiginkona mín, STEFANÍA SIGURJÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Skúlagötu 70, lést á hjúkrunardeild elliheimilisins Grundar miðvikudaginn 31. desem- ber, gamlársdag. Fyrir hönd aðstandenda, Rafnkell Olgeirsson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, lést á á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu að morgni gamlársdags. Útförin auglýst síðar. Benedikt Björgvinsson, Erna Gísladóttir, Sigurður Björgvinsson, Jenný Jóhannsdóttir, Björgvin Rúnar Björgvinsson, Kristjana Ingibjörg Jacobsen, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞORBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstu- daginn 2. janúar 2004. Stefán Ásgrímsson, Sif Knudsen, Konráð Ásgrímsson, Elín Siggeirsdóttir og barnabörn. Móðursystir mín, SIGURLAUG JÓNASDÓTTIR húsmæðrakennari og listmálari frá Öxney, Hjarðarhaga 32, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 30. desember. Fyrir hönd vandamanna, Alda María Birgisdóttir og fjölskylda. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐFINNA SIGURDÓRSDÓTTIR, Álftarima 3, Selfossi, lést á Landspítalanum á gamlársdag. Karl Eiríksson, Valdimar Karlsson, Sigurdór Karlsson, Helga R. Einarsdóttir, Sigríður Karlsdóttir, Gunnar Jónsson, Katrín I. Karlsdóttir, Karl Björnsson, Hrafnhildur Karlsdóttir, Þröstur Hafsteinsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.