Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 45

Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 45 ✝ Ingvar Þórðar-son fæddist 29. september 1921. Hann lést á Selfossi 27. desember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Þórður Þorsteinsson, f. á Reykjum 9.7. 1877, d. 26.3. 1961, bóndi Reykjum á Skeiðum og kona hans, Guð- rún Jónsdóttir, f. í Sandlækjarkoti 19.2. 1879, d. 15.11. 1980, húsfreyja á Reykjum. Systkini Ingvars: Margrét, f. 1907, látin, maki Einar Ásgeirsson; Jón, f. 1909, látinn, maki Laufey Stefánsdóttir; Þor- steinn, f. 1910, látinn, maki Unnur Jóhannsdóttir; Ingigerður, f. 1912, maki Þorsteinn Bjarnason; Sigríður, f. 1913; Bjarni, f. 1914, látinn, maki Sigurlaug Sigurjóns- dóttir; Laufey, f. 1915, d. 1916; Vil- borg, f. 1916, d. 1919; Laufey Ása, f. 1917, látin; Eysteinn, f. 1918, d. 1919; Hjalti, f. 1920, maki Ingi- björg Jónsdóttir; Vilhjálmur, f. 1923, maki Ingibjörg Guðmunds- dóttir. Eftirlifandi maki Ingvars er Sveinfríður Hersilía Sveinsdóttir, f. 27.8.1924 á Mælifellsá í Lýtings- staðahreppi, húsfreyja í Reykja- hlíð. Foreldrar hennar voru Sveinn Andrés Sveinbjörnsson, bóndi á Mælifellsá, og kona hans, Steinunn Ingunn Sveinsdóttir, húsfreyja s.st. Börn Ingvars og Sveinfríðar eru: 1) Sveinn, f. 8.8. 1946, maki Katrín Helga Andrés- dóttir. Börn þeirra eru Sigríður Sóley og Ingvar Hersir. 2) Dreng- ur, f. andvana 27.1. 1948. 3) Guð- rún, f. 26.9. 1949, maki Magnús Gunnarsson. Börn þeirra eru Ingvar, maki Ásthildur Ingibjörg Ragnarsdóttir, Ragnheiður og Hjalti, maki Thelma Dröfn Ásmundsdótt- ir.4) Steinunn, f. 8.6. 1952. Fyrri maki Sigurður Guðmunds- son, barn þeirra Atli, maki Kattie Pauline Nielsen. Seinni maki Steinunnar er Ólafur Hjaltason, barn þeirra Snæfríður. Börn Ólafs og stjúp- börn Steinunnar eru: Sólveig, maki Her- mann Þór Karlsson, þeirra barn Sigurlína Margrét. Hjalti, fyrri maki Guðrún Ólafs- dóttir, þeirra barn Ólafur. Seinni maki Ragnheiður Líney Pálsdótt- ir, þeirra barn Páll Helgi. María Karen, maki Valdimar Bjarnason, þeirra börn Bjarni Ófeigur og Breki Hrafn. 5) Erna, f. 2.1.1960, maki Þorsteinn Hjartarson. Börn þeirra eru Álfhildur, Fríða Mar- grét, Hjalti Valur og Gígja Marín. 6) Hjalti, f. 23.6. 1962, d. 31.3.1983. Ingvar fór tvo vetur á héraðsskól- ann á Laugarvatni. Stundaði smíð- ar í Reykjavík og bifreiðarakstur á Selfossi áður en hann og Fríða settu bú sitt í Reykjahlíð 1947. Meðfram búskap sinnti hann ýms- um störfum, keyrði vikur og möl og var um árabil héraðslögreglu- maður, gegndi mörgum trúnaðar- störfum, sat í hreppsnefnd, sýslu- nefnd og afréttarmálafélagi Flóa og Skeiða. Hann var formaður sauðfjárræktarfélags Skeiða- manna frá upphafi til 1988. Ingvar var söngmaður mikill og starfaði með fjölda kóra, lengi forsöngvari í Skálholti. Útför Ingvars verður gerð frá Skálholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Það var ást við fyrstu sýn þegar ég hitti Ingvar í Reykjahlíð. Hann hafði pata af því að von væri á nýj- um dýralækni í vitjun „vestrí“, snaraðist þar inn í mjólkurhúsið bjartur og háleitur; hvort ég vissi um eitthvað gott í hana Stássu gömlu, svo hún fyljaðist nú örugg- lega í girðingunni. Já, þetta var upphafið að hartnær tveggja áratuga samveru. Ég taldi mannsefninu það mjög til tekna að fá svona góðan tengdaföður. Sveinn valdi húsi okkar stað við snúru- staura móður sinnar þannig að stutt var á milli, Ingvar kom yfir oft á dag, gjarna á kaffitímum svo hann gæti bætt sér upp skynsemi Fríðu. Við ræddum málin niður í kjölinn, vorum iðulega ekki sammála, en aldrei slettist upp á vinskapinn. Reyndar reiddist ég honum að- eins einu sinni, það var líka í upp- hafi vistar minnar hér í Reykjahlíð. Ég átti glóblesóttan hest sem hafði, fyrir utan litinn, prúðleika sem helsta kost, ég hafði lagt mikla rækt við faxið, þvegið og kembt svo prýði var að. Svo kom að járna þurfti klárinn fyrir réttir, hann var þá teymdur inn í geymslu og rekið undir hann. Auðvitað þurftum við að spjalla meðan á athöfninni stóð, en allt í einu tek ég eftir því að Ingvar er eitthvað að bjástra hinum megin við hestinn. Þá hafði hann skellt hartnær metra neðan af fax- inu – með hófjárninu! Ingvar var mikill verkmaður, vildi alltaf vera að bardúsa eitthvað. Ef eitthvað bilaði var hann fljótur að gera við, vandaði sig kannski ekki alltaf, en það sakaði ekki því honum var svo létt um að gera við aftur. Þegar búskap lauk opinberlega fór hann á námskeið í leðurvinnu, hætti ekki fyrr en búið var að gera við öll beisli og ólar hér á stóru svæði. Þá keypti hann rennibekk og renndi margt. Til er mikið af lömp- um, skálum, borðum og viðlíka munum úr smiðju hans. Reyndar gekk oft á ýmsu, ófáar ferðirnar kom hann til mín með blóðslóðina á eftir sér: Bittu um þetta, Katrín mín, ég hruflaði mig aðeins. Stundum þurfti að fara upp í Laugarás, eitt sinn var talin sprunga í sköflungi. Hann kom heim með umbúðir og hækju, en hafði sem fyrr litla þolinmæði fyrir eitthvert veikindastand. Rauk af stað og notaði hækjuna til að gata fyrir kartöfluniðursetningu og að mæla olíuna á Massanum. Massinn var hans uppáhaldsverk- færi síðustu árin, á honum sótti hann kýrnar og múgaði heyið. Einu sinni sem oftar lá við að illa færi, þá var hann í huganum kominn austur í heiði, en var í raun á Skálholtsveg- inum og múgaði mölinni inn á mal- bikið. Ingvar var mikil félagsvera, vildi hitta fólk og frétta. Stundaði sund- laugina þar sem fólkið hittist í heita pottinum, fór víða og heimsótti vini og vandamenn. Honum fannst jafn áhugavert að spjalla við aldna sem unga, þess naut sérstaklega eldra fólkið sem ekki átti auðvelt með ferðalög. Ekki taldi hann heldur eftir sér að skreppa með börnin milli bæja og hitta unga fólkið í sveitinni. Þótt hann væri fróðleiksfús var hann ekki fyrir slúður, lagði flestum gott til, það var rétt einn og einn sem honum fannst vera „frekar óefnilegur“ og þar með var það út- rætt. INGVAR ÞÓRÐARSON SJÁ SÍÐU 46 Með sínum einskæðu frásagnahæfi- leikum gat hann tekið mann á flug og þannig greypt minningarnar fastar í huga manns. Þetta gerði hann við okkur öll, líka Önnu Siggu mína sem hann tók opnum örmum og bauð vel- komna í fjölskylduna. Hún á eftir að vera ævinlega þakklát þeim góðu stundum sem þau áttu saman. Árið 2001 misstum við elsku Unni okkar og við það eltist afi um marga áratugi. Hann hugsaði meir og meir að senn færi tíminn að styttast. Í nóvember síðast liðnum hrakaði heilsunni enn frekar, og kallið kom rétt fyrir jól. Langþráðir endufundir urðu á stað svo fögrum að enginn getur ímyndað sér hann. Við hin styðjumst við minningar þeirra og samgleðjumst þeim klökk. Sigursteinn og Anna Sigríður. Elsku afi, nú hefur þú sofnað svefninum langa. Það eru margar góðar minningar sem við eigum um þig. Minningar um snilling, mann sem átti engan sinn líkan. Þú varst hafsjór af fróðleik og varla er til sú vísa eða kvæði sem þú ekki kunnir. Því er við hæfi að kveðja þig á þann hátt. Með ljóði sem lýsir þér best. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, þú varst einstakur maður. Guð geymi þig elsku afi. Við söknum þín Þórður, Júlía og Þórunn Birta. Er hinsta loks ég leita að samastað og lífsins rödd er hljóðnuð, kýs ég það að mega að lokum leggja hin þreyttu bein í lambagrastó við heitan stein. Um eilífð geymd og gleymd við rætur þér ég gæti ei betri legstað kosið mér né aðra þrái upprisu að fá en ilm, er stígur grösum dalsins frá (Halldóra B. Björnsson.) Vinur minn til margra ára, hefur nú kvatt þetta jarðneska líf, á áttug- asta og sjöunda aldursári. Þorsteinn Bjarnason eða Steini Bjarna eins og hann var ætíð kallaður. Steini Bjarna var maður traustur, vinur vina sinna, vinur þeirra sem minna máttu sín. Glettinn mjög og tilsvör hans í minn- um höfð. Ekki ætla ég hér að skrifa um ætt né uppruna Steina Bjarna, vinar míns, það verða aðrir til þess. Hann unni landinu og öllu sem nátt- úran hefur uppá að bjóða. Alla sína ævi átti hann kindur. Í gamla daga máttu menn hafa kindur sínar á lóð- um við hús sín í Borgarnesi og var hann einn þeirra, en svo var lokað á það. Þá var hann svo heppinn að vinafólk hans á Bjargi leigði honum land úr jörð sinni, þar byggði hann sér fjárhús og ágæta aðstöðu. Þar á hann mörg sporin og handtökin, snú- ast í kringum ærnar, gefandi braut á báðar hendur. Sauði átti hann helst mislita, vaninhyrnda og ekki þótti honum verra að heyra að sauðirnir hefðu verið erfiðir leitarmönnum við smalamennsku að haustinu. Um miðjan október í haust hitt- umst við sem oftar, þá segir hann við mig, aðspurður um heilsuna, ég á nú ekki langt eftir Maggi minn. Af hverju segir þú það? Ég finn að það er eitthvað að koma yfir höfuðið á mér, segir hann. Í nóvember fékk hann aðsvif, að kveldi 22. desember er hann allur, er hægt að fara nær um sitt ævikvöld? Ég kveð þennan vin minn með söknuði og þakka honum velvild og vináttu við mig og fjölskyldu mína. Elsku Sigríður Helga, Sigurður, Bjarni, Unnsteinn og fjölskyldur. Innilegar samúðarkveðjur. Magnús Kristjánsson.  Fleiri minningargreinar um Þor- stein Bjarnason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ERLING ÖRN PÉTURSSON frá Sauðárkróki, lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 24. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 5. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á minningarkort MND-félagsins. Þórður Erlingsson, Guðbjörg Rósa Ísólfsdóttir, Pétur Örn Erlingsson, Valgerður Erlingsdóttir, Guðmundur Örn Gylfason, Áslaug María, Ingibjörg Móa og Hafþór Bjarki. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, ÞÓRHILDUR ÞORSTEINSDÓTTIR, verður jarðsett frá Breiðabólsstaðarkirkju í Fljótshlíð í dag, laugardaginn 3. janúar, kl. 14.00. Rútuferð verður frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 12.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar. Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, Jón Kristinsson, Sváfnir Sveinbjarnarson, Ingibjörg Halldórsdóttir, Elínborg Sveinbjarnardóttir, Guðmundur Sæmundsson, Ásta Sveinbjarnardóttir, Garðar Steinarsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÓLÖF ÓSKARSDÓTTIR, lést á Landspítalanum við Hringbraut að morgni föstudagsins 2. janúar. Útför hennar verður auglýst síðar. Óli Björgvinsson, Erlendur Ólason, Þórey Dögg Jónsdóttir, Kristín Óladóttir, Ingólfur Guðni Einarsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MAGNEA DÓRA MAGNÚSDÓTTIR, Grandavegi 47, áður Tjarnargötu 9, Sandgerði, lést á gamlársdag á Landspítalanum Fossvogi. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 9. janúar kl. 13.30. Ingunn Guðlaug Jónsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Elín Sigrún Jónsdóttir, Sigurður Árni Þórðarson, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær sonur okkar, faðir, sambýlismaður, fósturfaðir, bróðir og mágur, INGVAR ÞÓR HALLDÓRSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 7. janúar kl. 10.30. Inga Ingvadóttir, Már Björgvinsson, Halldór Kristinsson, Tinna Ingvarsdóttir, Sunna Ingvarsdóttir, Sif Ingvarsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Daníel Örn Gíslason, Karen Björg Gísladóttir, Berglind Másdóttir, Kristinn Valur Harðarson, Dagrún Másdóttir, Guðmundur Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.