Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 46

Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 46
MINNINGAR 46 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ingvar var formaður sauðfjár- ræktarfélags Skeiðamanna um ára- bil og þekktur fyrir sauðfjárrækt sína. Ekki þótti honum áhugi minn á sauðkindum alltaf til góða, ein- hverju sinni lýsti hann ástandinu svo að nú væru í Reykjahlíð þrettán kindur kollóttar eða mislitar- og sumar jafnvel hvort tveggja. Síð- asta samtalið sem við áttum var um val á sæðingarhrútum, þá lifnaði yf- ir honum og hann dæsti yfir þessum kollóttu. Tímarnir marka mennina. Ingvar var bráðgreindur og átti auðvelt með nám, hann hafði ánægju af verslun, þótti gaman að selja og var mjög létt um að rukka. Eflaust hefði hann getað skapað sér ver- aldleg auðæfi á mölinni. En heimþráin var sterkust, hér vildi hann vera. Hann unni jörð sinni, umhverfi og samfélagi, hér ól hann upp sín börn og barnabörnin að stórum hluta líka. Lán mitt og barna minna var að eiga glaðan og traustan tengdaföður og afa sem setti lit á líf okkar. Ég þakka samfylgdina, minningin mun lifa áfram með okkur. Katrín. Ingvar Þórðarson, tengdafaðir minn, er fallinn frá eftir rúmlega eins árs erfið veikindi. Minningar mínar um hann eru góðar enda var Ingvar litríkur og skemmtilegur tengdafaðir sem reyndist mér og fjölskyldu minni vel. Jafnframt var hann bóndi af lífi og sál sem var umhugað um jörð sína og skepnur. Strax eftir fyrstu kynni náðum við vel saman enda voru áhugamálin svipuð, einkum þau sem tengdust ræktun búfjár og öðrum sveitastörf- um, sem hafa ætíð heillað mig, þrátt fyrir að ég hafi valið allt annað starf en tengdafaðir minn gerði á sínum tíma. Við fórum saman nokkrar ógleymanlegar ferðir austur í Gunn- arsholt á vorin til að líta á unga og efnilega stóðhesta og til að hitta aðra bændur og hestamenn. Það kom alls ekki á óvart að þar skyldi Ingvar alltaf þekkja fólk á öllum aldri sem gladdist yfir nærveru hans. Nokkru fyrir þann tíma hafði ég staðist óvenjulegt próf sem hann lagði fyrir mig skömmu eftir fyrstu heimsókn mína í Reykjahlíð með Ernu. Prófið var í raun ógleym- anleg ökuferð á vordegi frá Arakoti að Reykjum. Þá stóð ég á opinni kerru, sem hékk aftan í grænum LandRover sem var á góðri siglingu upp Skeið með Ingvar bónda undir stýri. Ég var ekki einn á kerrunni því hann hafði falið mér að halda þar í kvígu sem hann hafði nýlega fest kaup á. Ég lét ekki segja mér þetta tvisvar og ákvað að halda fast. Enda var ég dasaður og lerkaður eftir ökuferðina sem vakti furðu hjá tengdapabba. Síðar átti ég eftir að fá mikið út úr því að vinna með honum að því að breyta gamla fjósinu í Reykja- hlíð í hesthús og þar var ekki slegið slöku við. Við áttum það sameig- inlegt að vilja láta hlutina ganga hratt og vel enda þoldum við alls ekki löt hross. Í því sambandi kem- ur upp í hugann smölun Reykja- engja á haustdegi fyrir nokkrum ár- um þar sem Ingvar reið fram og aftur á bleikblesóttri hryssu sem var öskrandi viljug. Þrátt fyrir að smölunin væri nokkuð krefjandi gat ég ekki stillt mig um að fylgjast með honum og Blesu og hafði gam- an af. Fleiri ógleymanleg atvik sem tengjast tengdaföður mínum væri hægt að nefna en þau fá ekki frek- ari umfjöllun hér. Ingvar Þórðarson var lánsamur maður sem gat unnið nánast allt sitt líf við störf sem hann hafði yndi af. Hann átti einnig því láni að fagna að eignast góðan og skilningsríkan lífsförunaut og stór- an hóp barna og barnabarna. Ég hef verið heppinn að fá Ingvar og Fríðu fyrir tengdaforeldra, en með þeim og afkomendum þeirra hef ég átt margar eftirminnilegar sam- verustundir. Að lokum er rétt að þakka starfs- fólki Ljósheima á Selfossi fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót við Ingvar og alla aðstandendur hans. Blessuð sé minning Ingvars Þórð- arsonar. Þorsteinn Hjartarson. „Ég er svo kaldur karl,“ sagði afi einu sinni þegar ég spurði hann hvort hann ætlaði ekki í bílbelti, en eins og allir vita sem þekktu afa, átti hann það til að gleyma því. Hann hló svo að mér þegar ég hneykslaðist og spennti á hann belt- ið. Það voru allnokkrar ferðirnar sem ég keyrði afa í sjúkraþjálfunina sl. sumar og mér þykir ótrúlega vænt um það núna. Ég var vön að ná í afa og ömmu og afi vildi alltaf leggja alltof snemma af stað. Hann beið úti í bíl liggjandi á flautunni því amma þurfti sinn tíma til að finna sig til. ,,Hvað er konan eiginlega að gera,“ var hann þá van- ur að segja, svo komum við líka allt- af of snemma á Selfoss. Afi var nefnilega alla tíð að drífa sig. Við lentum nú í ýmsu í þessum ferðum og ég held að afa hafi stundum þótt ég svolítið fyndin. Til dæmis þegar ég var alveg viss um að sjúkraþjálf- unin væri á Eyraveginum var hann alveg viss um að hún væri uppi í Styrk. Ég ætlaði nú ekki að gefa mig enda álíka þrjósk og hann. Afi harðneitaði að fara út úr bílnum, ég fór miður mín upp og sagði sjúkra- þjálfaranum að afi minn vildi ekki að koma upp. Hún sagði mér þá að enginn Ingvar ætti tíma þar en það gæti verið að hann væri uppi í Styrk! Ég fór með skottið á milli lappanna út í bíl og varð að við- urkenna vitleysuna í mér. Afa fannst þetta mjög fyndið, sem það líka var. Ég man einnig þegar ég var lítil og afi lá inni í Austra að leggja sig. Ég var þá vön að koma með bók og brúnu greiðuna. Hann las fyrir mig á meðan ég greiddi honum en það fannst honum ótrú- lega þægilegt. Afi var líka vanur að skoða puttana á mér mikið, ég er víst svo hnúaber! Hann strauk á mér hendurnar og fannst þetta ,,al- veg stórmerkilegt“. Þetta fannst mér nú bara frekar fyndið enda var afi alltaf mjög hreinskilinn og skóf ekki utan af hlutunum. Afi skamm- aði mann aldrei og hló bara ef mað- ur gerði eitthvað vitlaust. Ég man einu sinni þegar ég fór með honum í fjósið, var alveg skíthrædd við belj- urnar og gat ekki látið mjaltatækin á af hræðslu við að þær spörkuðu í mig. Afi hjálpaði mér bara og hló svo þegar ein þeirra setti úr sér kúamykjuna beint fyrir framan mig. Ég man þó einu sinni eftir því að afi hafi byrst sig við mig, hann þoldi nefnilega ekki þegar fólk svaf fram eftir og hefur mamma erft það frá honum! Við Ragnheiður sváfum á okkar græna eyra inni á Grilli. Ég vaknaði við það að ég heyrði afa segja niðri: ,,Eru stelpurnar ennþá sofandi?“ Hann æddi upp stigann, hratt upp hurðinni og sagði: ,,Drrrrattist á lappir!!“ Okkur dauðbrá en gátum svo varla varist hlátri. Afi var ekki mjög tæknilega sinnaður enda ekki af þeirri kyn- slóð. Honum fannst ótrúlegt að sjá mann pikka á tölvu, hraðbankar voru undarlegir hlutir og gemsar al- ger vitleysa. Fjarstýringuna vildi afi þó alltaf hafa enda húsbóndi á sínu heimili og kallaði hana ávallt ,,apparatið“. Ég sé hann fyrir mér í græna sófanum með köttinn Nebba og fölsku tennurnar á maganum: ,,Komiði með apparatið, krakkar!“ Nú ertu kominn til Guðs, alheil- brigður og eflaust að keyra traktor á eftir rollum. Þú hittir Hjalta son þinn aftur og þá verða nú fagn- aðarfundir. Vertu sæll, elsku afi, og takk fyr- ir allt, það er ómetanlegt að hafa fengið að kynnast þér. Álfhildur E. Þorsteinsdóttir. Það er skrítið að hugsa það að afi Ingvar sé farinn frá okkur. Frá því INGVAR ÞÓRÐARSON Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns, BENEDIKTS ÓLAFSSONAR, Hvassaleiti 58. Fyrir hönd aðstandenda, Þórunn Sigurjónsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, KRISTJÖNU BENEDIKTSDÓTTUR, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík, fimmtudaginnn 11. desember sl. Óskum ykkur gleði og farsældar á nýju ári. Sören Einarsson og aðrir vandamenn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA AGNARSDÓTTIR frá Ísafirði, síðan Kirkjuteigi 7, Keflavík, andaðist á hjúkrunarheimili aldraðra, Víðihlíð, Grindavík, þriðjudaginn 30. desember. Oddur Gunnarsson, Erna Bergmann, Agnes Margrét Gunnarsdóttir, Tomas Henkle, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Guðmundur Sigurbergsson, barnabörn og barnabarnabörn. Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, INGVARS ÞÓRÐARSONAR, Reykjahlíð á Skeiðum, fer fram frá Skálholtskirkju í dag, laugar- daginn 3. janúar, kl. 13.30. Jarðsett verður í Ólafsvallakirkjugarði. Sveinfríður Sveinsdóttir, Sveinn Ingvarsson, Katrín Andrésdóttir, Guðrún Ingvarsdóttir, Magnús Gunnarsson, Steinunn Ingvarsdóttir, Ólafur Hjaltason, Erna Ingvarsdóttir, Þorsteinn Hjartarson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. Alúðarþakkir sendum við öllum, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts SIGRÍÐAR PÉTURSDÓTTUR frá Laugum í Súgandafirði, er andaðist á heimili sínu, Nönnugötu 8 í Reykjavík, sunnudaginn 14. desember. Sérstakar þakkir færum við hér hinu góða starfsfólki Félagsþjónustunnar í Reykjavík og Heimahjúkrunar fyrir lið- sinnið, svo og sjúkraþjálfurunum sem einnig veittu henni dýrmæta hjálp. Kjartan Ólafsson, Pétur Jónasson, Friðbert Jónasson, Sigríður Jónasdóttir, Kristmundur Jónasson og aðrir vandamenn hinnar látnu. Útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR SOFFÍU GÍSLADÓTTUR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Sundlaugavegi 24, Reykjavík, fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 6. janúar kl. 13.30. Friðgeir Grímsson, Bergþóra Bachmann Friðgeirsdóttir, Baldur Magnús Stefánsson, Gísli Halldór Friðgeirsson, Lilja Sigurðardóttir, Grímur Rúnar Friðgeirsson, Halldóra Björnsdóttir, Sigríður Sólveig Friðgeirsdóttir, Leifur Þorsteinsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and- lát og útför elskulegrar eiginkonu, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁSDÍSAR ÞÓRARINSDÓTTUR, Hjallabrekku 25, Kópavogi. Ásdís lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 17. desember og fór útförin fram mánudaginn 30. desember í kyrrþey að ósk hennar. Bjarni Björgvinsson, Þórunn Lína Bjarnadóttir, Sigurður Hauksson, Arna Lind, Sigríður Anna og Sigurður Bjarni, Björgvin Bjarnason, Halla Þórisdóttir, Katrín Þóra, Guðmundur Bjarni, Jón Atli og Ásdís, Þórarinn Bjarnason, Anna Björg Hjartardóttir og Þórarinn Dagur. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur vinarhug og samúð við andlát, minning- arathöfn og jarðarför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR frá Ási, Breiðdalsvík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki elli- heimilisins Grundar fyrir góða umönnun, vinum og vandamönnum hér syðra ásamt sveitungum og vinum austur í Breiðdal. Megi guð gefa ykkur öllum gæfuríkt komandi ár. Jón Einarsson, Ellen Svavarsdóttir, Lúðvík Einarsson, Þóra Björk Benediktsdóttir, Eyþór Einarsson, Eygló Einarsdóttir, Rúnar Hannesson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.