Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Clifton - Kóbrukossinn © DARGAUD framhald ... ... EF ÞÚ VILT KOMA Á STEFNUMÓTIÐ Á RÉTTUM TÍMA ... ÉG DÁIST AÐ GLÖGG- SKYGGNI YÐAR! MAMMA SEGIR AÐ ÉG LÍKIST ÞÉR OG AÐ EINHVERN DAGINN VERÐI ÉG EINS OG ÞÚ, MIKILL EINKASPÆJARI! ... NÚ? EHEM ... SVO, EF SVO VILL NÚ TIL AÐ ÞÚ ÞURFIR Á AÐSTOÐARMANNI AÐ HALDA ... NOKKUÐ KLÓKUM ... FREKAR DJÖRFUM OG SEM ER FJÓTUR AÐ HUGSA ! VEEEEL Á MINNST, ÓLIVER ... HVERNIG GENGUR NÁMIÐ? HMMM ... SEGIÐ MÉR NÚ FRÁ NÁMI YÐAR ... HMM ... NEI! FRÆNDI SJÁÐU! ÞARNA! ... MAÐUR SÉR Í "SACRE COEUR"! .... ... SEM SAGT, RÉTT FYRIR KL 15 ... ÉG VERÐ EKKI LENGI ÓLIVER ... HÉRNA, HÉR HAFIÐ ÞÉR ÞAÐ SEM ÞARF TIL AÐ VEITA YÐUR RJÓMAÍS ... VEISTU HVAÐ FERMETER- INN KOSTAR Í PARÍS? ... OG ... TÍU Í VIÐBÓT, NÆGIR ÞAÐ YÐUR? ... ?! ... TÍU FRANKA? ÞETTA ER GEGGJAÐ! MEÐ ÞENNAN PENING GET ÉG MEIRA AÐ SEGJA VALIÐ UM LIT! ... FYRST SVO ER VELJIÐ ÞÁ BRESKU, SÉ ÞESS NOKKUR KOSTUR ... - ... STUNDVÍS, SÉ ÉG! ... RÉTT EINS OG þÉR, FULL- TRÚI! GLEÐUR MIG ... ÞÉR SÖGÐUST HAFA ÝMISLEGT FYRIR MIG ... OG MÉR SÝNIST ÞAÐ SKRAMBI ÁHUGAVERT! UPP Á SÍÐKASTIÐ HEFUR VERIÐ MIKIÐ TALAÐ UM EINHVERN "KÓBRA" Í EITURLYFJAHEIMINUM ... ALLT SEM VIÐ VITUM UM HANN ER AÐ HANN STENDUR Í STÓRHREINGERNINGU Í KRINGUM SIG OG ÞAÐ Á HRAÐA SÚPERHRAÐLESTAR! ... MMMJÁ! ALMENNT MEÐ MIÐA AÐRA LEIÐ! EINMITT! ÖLL FÓRNARLÖMBIN HAFA FUNDIST MEÐ KÚLU Í HAUSNUM ... 9 MILLIMETRA, ALLAR ÚR SAMA VOPNI! ... COLT "KÓBRA" 38 KALÍBER, SÉR- STÖK ÚTGÁFA! ... 9 MILLIMETRAR! ... FÍN STÆRÐ Á "KÓBRUKOSSI" FINNST YÐUR EKKI? EINMITT ÞAÐ SEM ÉG HUGSAÐI ... BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. LAUGAR ný og glæsileg heilsumið- stöð verður formlega opnuð í dag. Loksins, loksins gætu margir sagt, sem beðið hafa eftir að í Laugardaln- um rísi líkamsræktarstöð. Það eru mörg ár síðan Björn Leifsson kom fram með hugmynd sína um að reisa líkamsræktarstöð í tengslum við sundlaugarnar í Laug- ardalnum. Ekki þótti þáverandi borgaryfirvöldum hugmyndin fýsi- leg og báru við að byggingin „myndi skyggja á laugina“ eins og Björn seg- ir í kynningarriti Lauga, sem fylgdi Morgunblaðinu sl. laugardag. Það var svo fyrrverandi borgar- stjóri Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem var tilbúin að skoða hugmynd- ina í tengslum við byggingu inni- sundlaugar við Laugardalslaugina, eftir að Björn hafði lagt fram sínar tillögur að byggingu líkamsræktar- stöðvar var honum veitt leyfið. Afraksturinn sjáum við svo í dag; glæsileg bygging, sem fellur mjög vel inn í umhverfið, hefur risið við laugarnar, sem er enn ein perlan í þetta annars yndislega útivistar- svæði borgarbúa. Það sem vakti áhuga minn á þessu verkefni var það að eiga val. Hvort heldur að fara í sund eða stunda lík- amsrækt innan- sem utandyra í fal- legu umhverfi, án þess þó að þurfa að fara á milli borgarhverfa eða jafnvel bæjarfélaga. Það var löngu tímabært að alhliða aðstaða til heilsuræktar risi í Laugardalnum og er því á eng- an hallað þegar ég hrósa þeim Birni og Dísu fyrir þá dirfsku, þor og áræði að fylgja eftir þeirri sýn sem þau höfðu og trúðu á. Ég fékk tækifæri til að skoða hús- næði Lauga 13. desember sl. þegar eigendum var afhent það. Ég verð að segja að það kom mér verulega á óvart, og langt umfram væntingar. Aðstaðan er í alla staði hin glæsi- legasta, ekkert til sparað, og þægindi í fyrirrúmi án þess þó að eytt hafi verið í óþarfa prjál, ef svo má að orði komast. Evrópsk baðmenning Það er óhætt að fullyrða að Bað- stofan er og verður helsta skraut- fjöður heilsumiðstöðvarinnar. Bað- stofan er sú eina sinnar tegundar hérlendis og með henni færir World Class okkur evrópska baðmenningu. Ég hreifst sérstaklega af verkum Sigurðar Guðmundssonar lista- manns, sem skreyta baðstofuna og gefa henni erótískt yfirbragð, þó þótti mér reyndar brjóstin í gólfinu helst til of flöt, hvort það hefur eitt- hvað með aldur listamannsins að gera, þori ég ekki að segja um, en þau hefðu mátt vera aðeins þrýstnari að mínum smekk. Toppurinn er svo kaldi fossinn, 6 metra hár, sem hægt verður að baða sig í. Það verður til- hlökkun að prófa baðstofuna og njóta þeirrar þjónustu sem þar er að fá. Ég er ekki í nokkrum vafa um að Laugar eiga eftir að verða aðdrátt- arafl fyrir erlenda ferðamenn og eru góð viðbót við það sem við höfum nú þegar. Það er gaman að heilsa nýju ári í nýrri og glæsilegri líkamsræktar- stöð, og hafa alla þjónustu sem heilsurækt viðkemur innan seilingar. Ég hvet alla sem eiga þess nokkurn kost að þiggja boð þeirra Björns og Dísu að fara í sund og skoða hús- næðið, því sjón er sögu ríkari. Við ykkur hin sem enn sitjið í sófanum og hafið bara hugsað um að fara í rækt- ina vil ég segja, nú er tækifærið. Því hvað er betra en æfa í góðu umhverfi með fallegt útsýni, í skemmtilegri stöð? Jú, heilbrigð sál í hraustum lík- ama. Það fáum við í Laugum. Til hamingju, Björn og Dísa, þið hafið náð langþráðu takmarki. GUÐNÝ ARADÓTTIR, Úthlíð 6, Reykjavík. World Class í Laugardalinn Frá Guðnýju Aradóttur: FRÁBÆRT skref fyrir jafnréttis- baráttu kvenna! Heyrðist æði oft í síðustu kosningabaráttu frá allra flokka fólki er rætt var um rétt feðra til fæðingarorlofs. Vissulega skref í rétta átt þó svo ég sjái ekki endilega tenginguna við jafnrétti kvenna með þessum feðrarétti. En spurningin sem brennur á mér þessa dagana er ekki sú hvort kvenmenn fái nú löngu þráð og verðskulduð betri laun og stöður heldur hver sé réttur barnanna? Fyrir hvern er fæðingarorlofið? Er það fyrir mæðurnar, feðurna eða er það kannski barnið sem er í aðal- hlutverki og ætti því að vera sá aðili sem allt snýst um? Ef svo er, ættu þá ekki öll börn að eiga rétt á for- eldri heima á launum í fulla níu mánuði án tillits til fjölskylduað- stæðna? Er ekki verið að mismuna börnum þegar börn óábyrgra og fjarstaddra feðra hafa aðeins rétt á 6 mánaða dagumönnun foreldris en þau sem búa við betri aðstöðu og eiga tvo ábyrga foreldra geta fengið heilsdags foreldraumönnun í 9 mán- uði? Er eitthvert réttlæti í því að mismuna börnum strax á fyrstu mánuðum og láta þau gjalda gjörða feðranna? Nógu slæmt er að eiga afskiptalausa foreldra eða fáránlega fjölskyldu sem hvítvoðungar bera enga ábyrgð á – en á þjóðfélagið að auka þessa mismunun enn frekar? Ég bara spyr. Fróðlegt væri að fá svör og ein- hver viðbrögð frá ungum foreldrum í stjórnmálum, félagsmálaráðherra og öðrum sem láta sig réttindi og jafnræði varða. VIGDÍS ARNA JÓNSDÓTTIR, Mjóuhlíð 14, Reykjavík. Til þeirra er láta sig réttindi barna varða Frá Vigdísi Örnu Jónsdóttur:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.