Morgunblaðið - 03.01.2004, Side 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 51
Leiðbeinendur: Unnur Jónsdóttir og Árný Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og íþróttaþjálfari.
Skráning og upplýsingar í síma 899 8199 eða 561 8199 mánudaginn 5. janúar frá kl. 9–12
og þriðjudaginn 6. janúar frá kl. 9–12. Netfang: kraft@isl.is.
• Frískt loft eykur ferskleika
• Útivera eykur þol
Boðið verður upp á þrenns konar tíma:
A — tími fyrir byrjendur og lítt þjálfaða.
B — tími fyrir þá sem komnir eru af stað í þjálfun.
C — tími fyrir þá sem vanir eru líkamsþjálfun.
KRAFTGANGA Í ÖSKJUHLÍÐ
Alhliða líkamsþjálfun jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna
Dagskrá göngugarpa ÍT ferða í
janúar 2004:
4. janúar: Genginn Elliðaárdal-
urinn upp að Elliðavatni og niður á
Geirsnef. 2ja til 3ja tíma ganga.
Mæting við Pizza Hut (Sprengi-
sand) kl.11.
11. janúar: Gengið frá Nauthólsvík
að Gróttu og til baka. 2ja - 3ja
tíma ganga. Mæting við Nauthól
kl.11.
18. janúar: Reykjalundur - Korp-
úlsstaðir. Þægilega 2ja - 3ja tíma
ganga. Mæting við Vetnisstöðina
(Skalla/Skeljung) við Vesturlands-
veg kl. 11.
25. janúar: Gengið í kringum El-
liðavatn, 3ja tíma ganga. Mæting
við Vetnisstöðina (Skalla/Skeljung)
við Vesturlandsveg kl. 11.
ÍT ferðir verða með kynningu á
gönguferðum ársins 2004 erlendis
og innanlands laugardaginn 24.
janúar kl. 11 í Laugardalnum.
Upplýsingar á heimasíðu ÍT ferða
www.itferdir.is og á skrifstofunni í
Laugardalnum.
Á NÆSTUNNI
Landsmönnum boðið til fjöl-
skylduhátíðar í Laugum.
Í tilefni af opnun Lauga, nýrrar
heilsu- og sundmiðstöðvar í Laug-
ardalnum, er landsmönnum boðið
til fjölskylduhátíðar sunnudaginn
4. janúar kl. 10-20.
Á fjölskylduhátíðinni er fjölbreytt
skemmtun í boði fyrir alla fjöl-
skylduna. Lína langsokkur og
Dýrin í Hálsaskógi koma í heim-
sókn og þau Hera Hjartardóttir,
Jónsi og Hrafnkell í Svörtum föt-
um syngja fyrir gesti. Leiktæki,
þrautir, andlitsmálning og blöðrur
fyrir börnin á meðan birgðir end-
ast. Ókeypis aðgangur í Laug-
ardalslaugina úr búnings-
herbergjum World Class.
Í Laugum er 200 fermetra
Barnaparadís þar sem er m.a. að
finna leikfimisal, bíósal og leik-
herbergi. Við hönnun Lauga var
lögð rík áhersla á að börnin fengju
mikið rými og fullkomna aðstöðu
til leikja og íþróttaiðkunar. Börnin
geta bæði sótt tíma í jóga og dansi
eða notið alls þess sem er í boði í
Barnaparadísinni og á meðan geta
foreldrarnir notið alls þess sem er
í boði í Laugum.
Á MORGUN
PÉTUR Jónasson ljósmyndari hefur
rekið Ljósmyndastofu Péturs á Húsa-
vík í rúm 40 ár. Á þeim tíma hefur
margt breyst í slíkri starfsemi en Pét-
ur hefur þó ávallt kappkostað að vera
í takt við tímann hvað tæknibúnað
varðar. Þegar Pétur opnaði stofu sína
voru myndirnar svarthvítar og al-
gengustu myndatökurnar voru passa-
myndatökur, fjölskyldumyndatökur
og myndatökur vegna viðburða eins
og ferminga og brúðkaupa.
Fréttaritari Morgunblaðsins leit á
dögunum inn hjá Pétri sem var önn-
um kafinn við framköllun mynda,
enda jólakortavertíðin í hámarki. Pét-
ur segir að sú tíð sé liðin að ljósmynd-
arar eyði mestum tíma í myrkrarher-
berginu, nú til dags fer vinnan meira
og minna fram í tölvum. „Fólk kemur
áfram í myndatökur á stofu en ár frá
ári hefur starfsemin verið að breyt-
ast, t.d. er stafræn myndvinnsla sífellt
að aukast og þar sem gæðin skipta
fólk máli er áralöng reynsla af mynd-
vinnslu mikilvæg í þessu samhengi,“
segir hann. Í mörg ár hefur Pétur
þjónustað viðskiptavini sína með
klukkustundarframköllun á filmum
en undanfarin ár hefur færst í aukana
að fólk myndi líka á stafrænar
myndavélar. Þá kemur fólkið með
kort, myndavél eða diska og lætur
setja myndirnar á pappír. Til að svara
enn betur kalli tímans lét Pétur hanna
fyrir sig myndpöntunarforrit og býð-
ur nú viðskiptavinum sínum upp á þá
nýjung sem felst í því að fólk getur
setið heima við tölvuna og pantað
framköllun á stafrænu myndunum
sínum yfir Netið. „Það eina sem þarf
að gera er að fara inn á heimasíðu
ljósmyndastofunnar á slóðinni
www.picture-peter.com og hlaða nið-
ur myndapöntunarforritinu. Að því
loknu er hægt að panta framköllun á
myndunum sínum hvar sem maður er
á landinu eða jafnvel í heiminum ef
því er að skipta. Það er þetta sem er
galdurinn við tilkomu Netsins,“ segir
Pétur.
„Við höfum reynt að fylgjast vel
með tæknimálunum í þessum bransa í
gegnum tíðina og sem dæmi þar um
þá nýtti Morgunblaðið sér stafræna
þjónustu Ljósmyndastofu Péturs fyr-
ir tilkomu Netsins með því að fá
skannaðar og símsendar myndir frá
Húsavík,“ sagði Pétur ljósmyndari að
lokum.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Pétur ljósmyndari og starfsmenn hans, Emilía Aðalsteinsdóttir og Þórdís
Pétursdóttir, fylgja tækniþróuninni og bjóða upp á stafræna framköllun.
Stafræn net-
framköllun í
boði á Húsavík
Húsavík. Morgunblaðið
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra og Björn Karlsson bruna-
málastjóri undirrituðu síðdegis í
gær samning sem felur í sér að ár-
angur af starfi Brunamálastofnun-
ar verður mældur samkvæmt skil-
greindum mælikvörðum með
notkun matskorts. Fram kom í
máli umhverfisráðherra við und-
irritunina að Brunamálastofnun er
með allra fyrstu stofnunum rík-
isins til þess að gera slíkan samn-
ing en að baki liggur mikil vinna
við stefnumótun og endurskoðun á
innra starfi stofnunarinnar.
Samningurinn gildir fyrir árin
2004 til 2007 og er gert ráð fyrir
að umhverfisráðuneytið fari árlega
yfir árangur af starfi stofnunar-
innar.
Mælikvarðar sem birtast í mats-
korti Brunamálastofnunar byggj-
ast á tveimur stefnumarkandi
skjölum. Annars vegar stefnu
Brunamálastofnunar til 2007 og
hins vegar lögum um brunavarnir
sem tóku gildi í ársbyrjun 2001.
Hvort tveggja kveður á um það
meginhlutverk Brunamálastofnun-
ar að vernda líf og heilsu fólks,
umhverfi og eignir. Lögin ásamt
auknum kröfum um skilvirkni í
ríkisrekstri hafa valdið talsverðum
breytingum á starfsumhverfi
Brunamálastofnunar. Þess vegna
hefur á undanförnum misserum
verið lögð mikil vinna í stefnumót-
un og endurskoðun á innra starfi
stofnunarinnar. Þessi vinna hefur
gert kleift að setja upp árangurs-
stjórnunarkerfi sem formlega var
komið á með undirritun samnings-
ins.
Við mælingu á árangri í starfi
stofnunarinnar verður einkum litið
til fjögurra þátta; þjónustu við við-
skiptamenn, fjármálastjórnunar,
starfsmannamála og innri verk-
ferla. Áhersla er meðal annars
lögð á að stofnunin veiti hags-
munaaðilum góða þjónustu, standi
vel að forvarnastarfi og upplýs-
ingamiðlun og tryggi öfluga og
fjölbreytta starfsemi Brunamála-
skólans. Ennfremur verður lagt til
grundvallar við mat á árangri
hvort reksturinn verði í samræmi
við fjárheimildir og áætlanir.
Brunamálastjóri og umhverfisráð-
herra semja um árangursstjórnun
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Björn Karlsson brunamálastjóri
fagna undirritun samnings um árangursstjórnun Brunamálastofnunar.
ÞEGAR snjórinn kemur gleðjast
krakkar yfirleitt og fara út að leika
sér. Hvolpar eru ekkert ósvipaðir
börnum að þessu leyti. Hvolparnir
Fókus og Gerpla, sem eru af border
collie-kyni og tilvonandi smala-
hundar, skemmtu sér konunglega
við að leika sér í sköflunum og urðu
eins og tveir snjóboltar eftir velt-
inginn í snjónum. Það voru því tveir
þreyttir hvolpar sem komu inn til
að hlýja sér að leik loknum.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Gerpla og Fókus skemmtu sér hið besta í nýföllnum snjónum um helgina.
Gaman í snjónum
Fagridalur. Morgunblaðið
NÝ verslun með tölvuvörur hefur tekið til starfa í
Stykkishólmi. Verslunin hefur fengið nafnið Netvirki
og standa að versluninni Sumarliði Ásgeirsson og Þor-
grímur Vilbergsson. Auk þess að bjóða upp á sölu á
tölvum og tölvuvörum verða þeir félagar með alhliða
þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki á tölvusviði.
Þeir annast tölvuviðgerðir og þjónusta fyrirtæki í
netuppsetningu og þráðlásum nettengingum. Versl-
unin Netvirki er með umboð fyrir Landssímann og sel-
ur síma og símbúnað ásamt annarri símatengdri þjón-
ustu.
Verslunin Netvirki deilir húsnæði með VÍS við Að-
algötu í Stykkishólmi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Það þarf stælta og kraftmikla unga menn til að ráðast í
það verkefni að fara af stað með nýja verslun á lands-
byggðinni og slíka hæfileika hafa eigendur Netvirkis,
þeir Sumarliði Ásgeirsson og Þorgrímur Vilbergsson.
Ný tölvu- og
þjónustuverslun
í Stykkishólmi
Stykkishólmur. Morgunblaðið