Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 52
DAGBÓK 52 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Nuka Arctica kemur og fer í dag. Vædde- ren og Árni Frið- riksson fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Remöy fer í dag. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Fé- lagsheimilið Hraun- selverður opnað mánudaginn 5. janúar 2004 Lífeyrisþegadeild Landssambands lög- reglumanna, sunnu- dagsfundurinn verður á morgun, sunnudag- inn 4. janúar kl. 10 í Félagsheimili LR að Brautarholti 30. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Gigtarfélagið. Hóp- þjálfun Gigtarfélagsins fer af stað aftur eftir jólafrí miðvikudaginn 7. janúar. Hádeg- isleikfimi, létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Leikfimi fyrir gigtarfólk og aðra fullorðna sem vilja góða, styrkjandi og liðkandi leikfimi. Einn ókeypis prufu- tími fyrir þá sem vilja. Skráning og nánari upplýsingar á skrif- stofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla, Fundarskrá: Þriðjud.: Kl.18.15, Sel- tjarnarneskirkja, Sel- tjarnarnesi. Miðvikud.: Kl. 18, Digranesvegur 12, Kópavogi og Egils- staðakirkja, Egils- stöðum. Fimmtud.: Kl. 20.30, Síðumúla 3–5, Reykjavík. Föstud.: Kl. 20, Víðistaðakirkja, Hafnarfirði. Laugard.: Kl.10.30, Kirkja Óháða safnaðarins, Reykjavík og Glerárkirkja, Ak- ureyri. Kl.19.15 Selja- vegur 2, Reykjavík. Neyðarsími: 698 3888 Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. OA-samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 genga að Katt- holti. Fífan Dalsmára 5 í Kópavogi, tart- anbrautir eru opnar almennu göngufólki og gönguhópum frá kl.10– 11.30 alla virka daga. Blóðbankabílinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blod- bankinn.is. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Skóverslun Axel Ó. Lárussonar, Vest- mannabraut 23, Vest- mannaeyjum, s. 481 1826. Mosfell sf., Þrúðvangi 6, Hellu, s. 487 5828. Sólveig Ólafsdóttir, Verslunin Grund, Flúðum, s. 486 6633. Sjúkrahús Suðurlands og Heilsu- gæslustöð, Árvegi, Selfossi, s. 482 1300. Verslunin Íris, Aust- urvegi 4, Selfossi, s. 482 1468. Blómabúðin hjá Jóhönnu, Una- bakka 4, 815 Þorláks- höfn, s. 483 3794. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga, fást á eftirtöldum stöðum á Reykjanesi. Bókabúð Grindavíkur, Víkurbraut 62, Grinda- vík, s. 426 8787. Penn- inn – Bókabúð Kefla- víkur, Sólvallagötu 2, Keflavík, s. 421 1102. Íslandspóstur hf., Hafnargötu 89, Kefla- vík, s. 421 5000. Ís- landspóstur hf., c/o Kristjana Vilhjálms- dóttir, Garðbraut 69, Garður, s. 422 7000. Dagmar Árnadóttir, Skiphóli, Skagabraut 64, Garður, s. 422 7059. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást í Reykjavík, Hafnarfirði og Sel- tjarnarnesi á Skrif- stofu L.H.S. Síðumúla 6, Reykjavík, s. 552 5744, fax 562 5744, Hjá Hirti, Bónushús- inu, Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi, s. 561 4256, Bókabúð Böðvars, Reykjavík- urvegi 66, Hafnarfirði, s. 565 1630. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Penninn Bókabúð Andrésar, Kirkjubraut 54 Akranesi, s. 431 1855. Dalbrún ehf., Brákarbraut 3, Borg- arnesi, s. 437 1421. Hrannarbúðin, Hrann- arstíg 5, Grundarfirði, s. 438 6725. Verslunin Heimahornið, Borg- arbraut 1, Stykk- ishólmur, s. 438 1110. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í s. 588 7555 og 588 7559 á skrifstofu- tíma. Í dag er laugardagur 3. janúar, 3. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú. (2. Tím. 3, 15.)     Í ritstjórnarpistli í Deigl-unni er sjónum beint að væntanlegum breytingum á stjórnarsamstarfinu. „Í þingflokki Sjálfstæð- isflokksins nú eru aðeins tveir þingmenn sem setið hafa á þingi án þess að flokkurinn fari með for- ystu í ríkisstjórn, þeir Geir H. Haarde og [Hall- dór] Blöndal,“ skrifar Deiglan. „Þetta þýðir að margir af reyndustu þing- mönnum flokksins verða í nýju og ókunnugu hlut- verki á næsta haustþingi sem þingmenn samstarfs- flokks forsætisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar. Þegar Davíð Oddsson greindi fjölmiðlum frá væntanlegum forsætis- ráðherraskiptum þann 15. september nk. í tengslum við stjórnarmyndunina sl. vor, þá lét hann þess getið að þingflokkur Sjálfstæð- isflokksins hefði átt erf- iðara með að kyngja þeirri staðreynd að flokk- urinn myndi gefa eftir forsætisráðuneytið þegar tæp þrjú ár væru enn eftir af kjörtímabilinu. Ljóst má vera að mjög mun reyna á stjórnarsam- starfið að loknum for- sætisráðherraskiptum. Halldór Ásgrímsson mun þurfa að taka ítrasta tillit til þingmanna Sjálfstæð- isflokksins ætli hann sér að halda stjórnarsam- starfinu gangandi.“     Deiglan segir að hafaverði í huga að sam- starfskostir Framsókn- arflokksins séu mun tak- markaðri en Sjálfstæðisflokksins. „Mikið hefur verið rætt um hugsanlega stjórn Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar ef endir verður á núverandi stjórnarsam- starfi. Margt mælir auð- vitað gegn slíku en slík stjórn myndi engu að síð- ur hafa mjög ríflegan þingmeirihluta á meðan hugsanlegt samstarf Framsóknarflokks og Samfylkingar hvíldi á að- eins eins atkvæðis meiri- hluta. Slíkt samstarf yrði svo veikt að allt eins mætti tala um það væri andvana fætt. Með menn á borð við Kristinn H. Gunnarsson innanborðs er hætt við sú stjórn yrði í stöðugri gísl- ingu. Minna má á fræg ummæli Svavars Gests- sonar sem látin voru falla þegar Kristinn gekk úr Alþýðubandalaginu til liðs við Framsóknarflokkinn: „Nú er Ólafs Ragnars að fullu hefnt!““     En við forsætisráð-herraskiptin mun hið mikla vald sem felst í þingrofsheimildinni fær- ast úr höndum Davíðs Oddssonar til Halldórs Ás- grímssonar. Hin hliðin á þeim krónupeningi er vitaskuld sú, að allt þar til 15. september rennur upp mun þetta vald vera í höndum Davíðs – og í ljósi véfrétta hans um eigin fyrirætlanir má búast við að Framsóknarmenn muni ekki draga andann rólega fyrr en að loknum ríkisráðsfundi þennan sama dag.“ STAKSTEINAR Breyting á stjórnarforystunni Víkverji skrifar... VÍKVERJI fékk end-urskinsmerki að gjöf um daginn. Aldeilis heppinn þar. Víkverja þykir full ástæða til að skreyta sig með slíkum merkjum í skammdeg- inu. Reyndar sér Vík- verji enga góða ástæðu til að vera ekki með endurskinsmerki. Þetta er grundvallaratriði í huga Víkverja. Það er engin ástæða til að gera það ekki. Rétt eins og það er engin ástæða til að vera ekki í bílbelti og engin ástæða til að vera ekki með hjólahjálm. Víkverji þykir reyndar ekki sér- lega töff með hjólahjálm og end- urskinsmerki. Og hann uppsker ekki sérlega mikla kátínu þegar hann skikkar farþega í aftursæti í belti. En hann lætur slíkt sem vind um eyru þjóta. Öryggið er ofar öllu og engin ástæða til að setja það ekki á oddinn. x x x Víkverji fylgdist töluvert meðsjónvarpsdagskrá um hátíð- arnar, á milli þess sem hann tróð í sig mat. Venjan er sú að dagskrá sjónvarpsstöðvanna sé innihaldsrík- ari á þessum árstíma en öðrum. Ekki brást það. Einn siður sjónvarpsstöðva þykir Víkverja þó ekkert sérlega hátíðleg- ur. Sirkusútsendingar. Hvað er það sem fær sjónvarpsstöðvar til að halda að á gamlársdag gerist þjóðin sérstakt áhugafólk um sirkus? Vík- verji horfði á Kryddsíld Stöðvar tvö og skemmti sér ágætlega. Þegar þættinum lauk tók hins vegar við sirkussýning. Hvers vegna dag- skáryfirvöldum stöðvarinnar þótti það góð hugmynd að smella því á skjáinn strax eftir hinn ágæta þátt er Víkverja fyrirmunað að skilja. Hann getur ekki séð að sýning frá fjölleika- húsi sé svo stórgott sjónvarpsefni að ekki dugi verri tími til sýn- inga en sjálfur gaml- ársdagur. Víkverji hef- ur farið í sirkus, hann sá að minnsta kosti tvær sýningar Arena sirkussins sem vandi komur sínar í Laug- ardalinn fyrir nokkrum árum. En sirkus þykir Víkverja alls ekki vera sjónvarpsefni, að minnsta kosti ekki gott sjónvarpsefni. Víkverji man ekki betur en Ríkissjónvarpið hafi líka verið með sirkusútsendingu að lok- inni kveðju frá Ríkisútvarpinu að kvöldi gamlársdags. Víkverji myndi frekar kjósa afsakið hlé. x x x Víkverji strengdi ekki áramótaheití þetta sinn. Árangur fyrri ára- mótaheita gefur einfaldlega ekki til- efni til frekari heitstrenginga. Þó vonar hann, eins og alltaf, að nýja árið verði aðeins betra en það gamla og heldur í vonina um að næsti gamlársdagur verði sirkuslaus. Sirkús er vont sjónvarpsefni. Jólatrjáasala MIG langaði að benda jóla- trjáasölumönnum á að ef þeir eru að selja eitt jólatré þá getur salan heitið jóla- tréssala en ef þeir eru að selja mörg tré ætti salan að heita jólatrjáasala. Því mið- ur eru flestar jólatrjáasölur aðeins að selja eitt tré. Eldri kona á uppleið. Tapað/fundið Yfirhafnir teknar í misgripum á Hótel Sögu YFIRHAFNIR voru tekn- ar í misgripum úr fatahengi Súlnasals eftir ball á annan í jólum. Um er að ræða ljósa kápu með köflóttu fóðri, svartan mittisleðurjakka, svarta peysu og tvo trefla. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 821 7555 eða skili flíkunum í gestamóttöku á Hótel Sögu. Dýrahald Snædís er týnd HEFUR einhver fundið Snædísi okkar? Hún hvarf frá heimili sínu, Vestur- vangi 8, Hafnarfirði, 26. desember sl. Hún er mjög vinaleg og góð kisa, eyrna- merkt og með rauða ól. Hún er hvít með bröndótt skott og eyru og bröndótta skellu á hliðinni. Þeir sem vita um Snædísi eða geta gefið upp- lýsingar eru beðnir að hafa samband í síma 555 4820 eða 869 8810. Læða týnd á Selfossi DIMMA er svört og hvít læða sem týndist fyrir mán- uði á Selfossi. Hún er kett- lingur og er með bleika ól. Þeir sem gætu gefið upplýs- ingar um Dimmu vinsam- lega hafi samband í síma 482 3703. Kettlinga vantar heimili 8 VIKNA gamlir fallegir og vel upp aldir kettlingar eru að leita sér að nýjum heim- ilum. Þeir eru bæði matar- og kassavanir og fást gefins til góðra heimila. Upplýs- ingar í síma 581 4025 eða 869 4863. Læða í óskilum í Seláshverfi ÞESSI fallega kisa er búin að vera í óskilum hjá okkur síðan 19. desember. Hún var ólarlaus og ómerkt. Bú- ið er að hafa samband við Kattholt og senda myndir. Þeir sem sakna hennar geta haft samband í síma 896 6019. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 kveða, 4 svíkja, 7 marg- tyggja, 8 tröll, 9 víð, 11 horað, 13 röskur, 14 gól, 15 ljós, 17 keyrð- um, 20 bókstafur, 22 lítill poki, 23 bárur, 24 sefaði, 25 missa marks. LÓÐRÉTT 1 vermir, 2 málmur, 3 hermir eftir, 4 lögun, 5 veik, 6 peningar, 10 rándýr, 12 guð, 13 af- girt hólf, 15 drekkur, 16 fiskinn, 18 svæfill, 19 kremja, 20 gufusjóði, 21 skökk. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 sýnilegur, 8 Iðunn, 9 gadds, 10 inn, 11 stafn, 13 annar, 15 skens, 18 sakna, 21 kák, 22 tudda, 23 játar, 24 hrakyrðir. Lóðrétt: 2 ýsuna, 3 iðnin, 4 eigna, 5 undin, 6 viss, 7 ásar, 12 fen, 14 nía, 15 sótt, 16 eldir, 17 skark, 18 skjór, 19 kætti, 20 akra. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16  
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.