Morgunblaðið - 03.01.2004, Síða 53

Morgunblaðið - 03.01.2004, Síða 53
Gjaldtaka verði miðuð við notkun STJÓRN Landverndar vill að horf- ið verði frá núverandi kerfi þunga- skatts á ökutæki en þess í stað verði gjaldtaka alfarið miðuð við notkun, eins og hugmyndir um ol- íugjald feli í sér. Jafnframt verði að tryggja að dísilknúin ökutæki uppfylli ströngustu kröfur um tækni sem takmarki losun heilsu- spillandi og mengandi efna. Þetta kemur fram í bréfi stjórn- arinnar til fjármálaráðherra, en í því eru stjórnvöld hvött til að end- urskoða gjaldtöku á eldsneyti fyrir ökutæki þannig að tekið verði meira tillit til umhverfissjónarmiða og mengunarbótareglunnar. Stjórnin telur að með því að leggja skatta og gjöld á eldsneyti með markvissari hætti en nú sé gert megi ná hagkvæmum ávinningi í umhverfismálum. „Stjórn Landverndar telur nauð- synlegt að við álagningu gjalda á eldsneyti sé tekið ríkt tillit til um- hverfissjónarmiða“ segir í tilkynn- ingu frá Landvernd. „Gjöldin eiga að hvetja til notkunar á samgöngu- tækjum sem valda sem minnstu álagi á umhverfið. Jafnframt eiga gjöldin að endurspegla raunveru- legan kostnað við notkun eldsneyt- is og áhrif brennslu þess á um- hverfið. Núverandi gjaldtaka á bensíni miðast við notkun og því má líta á hana sem virkan um- hverfisskatt. Öðru máli gegnir um gjaldtöku á díselbílum. Þungaskattur miðar aðeins að hluta til við notkun. Frá sjónarhóli umhverfisverndar væri því skyn- samlegt að hverfa frá núverandi kerfi þungaskatts til gjaldtöku þar sem miðað verði við notkun, eins og hugmyndir um olíugjald fela í sér. Losun köfnunarefnisoxíðs (NOx) og sótagna er almennt meiri í dís- elbílum en bensínbílum. Með nýj- ustu tækni má draga verulega mik- ið úr losun þessara heiluspillandi efna. Því verður að tryggja að nýir díselbílar uppfylli ströngustu kröf- ur um tækni sem takmarki losun heilsuspillandi og mengandi efna. Hér á landi eru afar fáir smábílar með díselvél vegna fyrirkomulags gjaldtöku. Hins vegar eru stóru jepparnir oft og iðulega með dís- elvél. Olíugjald myndi jafna sam- keppnisstöðu smábíla með díselvél og það út af fyrir sig myndi draga úr losun gróðurhúsaloftegunda. Árleg losun gróðurhúsaloftteg- unda frá samgöngum jókst um 18% frá 1990 til 2000. Samkvæmt spá umhverfisráðuneytisins er gert ráð fyrir að þessi losun haldi áfram að vaxa og verði liðlega 40% meiri ár- ið 2020 en árið 1990, sem er við- miðunarár Kyotóbókunarinnar. Með markvissari beitingu skatts og gjalda má draga úr eða koma í veg fyrir þessa neikvæðu þróun. Það felur ekki nauðsynlega í sér að auka þurfi álögur.“ Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Þorsteinn Ragnarsson hjálparsveit- armaður tekur við gjöfinni úr hendi Friðriks Sigurðssonar fram- kvæmdastjóra BÞS. HJÁLPARSVEIT skáta í Aðaldal fékk fyrir skemmstu að gjöf Mag- ellan GPS-tæki frá Bókabúð Þór- arins Stefánssonar á Húsavík. Um er að ræða Magellan SporTrack pro, handtæki með innbyggðu Ís- landskorti. Hefur tæki þetta hlotið mjög góða dóma hjá notendum þess og kemur væntanlega til með að nýtast vel í starfi sveitarinnar. Gáfu Hjálpar- sveit skáta í Að- aldal GPS-tæki Húsavík. Morgunblaðið. 50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 3. jan- úar, er fimmtugur Guðjón Sverrir Agnarsson, Ara- gerði 16, Vogum, Vatns- leysuströnd. Kona hans er Eyrún Antonsdóttir. Guð- jón er að heiman í dag. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 53 DAGBÓK 1. e4 c6 2. d4 d5 3. f3 e6 4. Rc3 Rd7 5. Be3 Bb4 6. Rge2 dxe4 7. fxe4 e5 8. a3 Ba5 9. Rg3 Rgf6 10. Be2 0-0 11. Dd2 Bb6 12. d5 Bxe3 13. Dxe3 Db6 14. Dxb6 Rxb6 15. 0-0-0 Bd7 16. Hhf1 Had8 17. b3 a5 18. a4 Hc8 19. Kb2 Hfd8 20. h3 Kf8 21. Hd3 Be8 22. Hfd1 g6 23. Rf1 Rfd7 24. dxc6 bxc6 25. Re3 Ke7 26. Ka3 Ha8 27. Bg4 h5 28. Bxd7 Bxd7 29. Hd6 Hdc8 30. Re2 Be6 31. Rg1 Staðan kom upp á at- skákmóti sem fram fór í Kansas í Banda- ríkjunum fyrir skömmu. Anatoly Karpov (2.693), fyrrverandi heims- meistari, sýndi í sér vígtennurnar og lagði stórmeistarann Yuri Shulman (2.564) að velli. 31. – Bd5! 32. H6xd5 cxd5 33. exd5 Hc3! Svart- ur stendur nú til vinnings enda skiptamun yfir. 34. He1 Hac8 35. Rf3 f6 SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik 36. Kb2 Kd6 37. Rd2 f5 38. Rec4+ H3xc4 39. bxc4 Rxc4+ 40. Rxc4+ Hxc4 41. c3 Kxd5 42. Hd1+ Kc5 43. Hd8 Hf4 44. Kb3 Hf2 45. Ha8 Kb6 46. He8 e4 47. He6+ Kc5 48. Hxg6 h4 49. Ha6 e3 50. Hxa5+ Kd6 51. Ha6+ Ke5 52. Ha8 Hxg2 53. a5 Kf4 54. He8 Kf3 55. a6 Hg7 56. Kb4 f4 57. c4 Ke2 58. Hf8 f3 59. c5 f2 60. c6 f1=D 61. Hxf1 Kxf1 og hvít- ur gafst upp. Íslandsmót barna hefst í dag í húsakynnum Tafl- félags Reykjavíkur í Faxa- feni 12. Nánari upplýsingar er að finna á www.ruv/ skak.is. Söfnunarsíminn er 907 2020 Rauði kross Íslands til styrktar fórnarlömbum jarðskjálftans í íran Harmonikudansleikur í Glæsibæ Félag harmonikuunnenda í Reykjavík heldur nýársdansleik í kvöld kl. 21:30 Hljómsveit Þorsteins R. Þorsteinssonar og Ingvars Hólmgeirssonar ásamt Villa Guðmunds. Fögnum nýju ári á gömludansaskónum! F.H.U.R Miðaverð aðeins kr. 1200.- Hættu öllum bygging- arframkvæmdum, ég fann eggjabakka ... STJÖRNUSPÁ Frances Drake STEINGEIT Afmælisbörn dagsins: Þú ert vandvirk/ur og stór- huga og lætur fátt vaxa þér í augum. Þú átt einnig auðvelt með að telja aðra á þitt band. Það verða nýjungar í lífi þínu á þessu ári. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er aðeins að hægjast um í vinnunni. Þú þarft þó ekki að hafa áhyggjur því breyting- arnar verða þér í hag. Mundu að allt bendir til þess að heilsa þín og vinnuaðstæður batni á árinu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú þarft að endurskoða ferða- áætlanir þínar og áætlanir sem tengjast listsköpun og vinnu með börnum. Samkvæmt stjörnunum eiga þessi málefni að ganga vel á árinu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það lítur út fyrir að áætlanir þínar um breytingar á heim- ilinu muni tefjast eitthvað. Heimilisaðstæður þínar munu þó örugglega batna á árinu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Bjartsýni þín mun vaxa og sjálfsímynd þín batna á þessu ári. Þú ferð smám saman að vænta þess besta bæði frá sjálfri/sjálfum þér og öðrum. Á sama tíma ertu að verða fé- lagslyndari. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú mátt búast við auknum tekjum á árinu. Líf þitt mun örugglega breytist til batnaðar á einhvern hátt. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú hefur vindinn í bakið á þessu ári. Hinn heppni Júpíter er í merkinu þínu og mun verða þar fram í september. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Sýndu foreldrum þínum og nánum vinum sérstaka þol- inmæði í dag. Velgengni þín virðist ógna fólki á einhvern hátt. Farðu varlega á heimilinu og innan fjölskyldunnar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Notaðu daginn til að útrétta, fara í stutt ferðalag eða í heim- sókn til vina þinna. Þú hefur þörf fyrir að vera á ferðinni bæði í dag og á morgun. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Dagurinn hentar vel til að njóta samvista við börn og til að njóta einhvers konar sviðs- listar. Ástarmálin ættu einnig að ganga vel um helgina. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það eru tvær plánetur í merk- inu þínu og það veitir þér mikla orku. Hikaðu ekki við að segja hug þinn. Fólk er tilbúið til að hlusta á þig. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Venus gerir þig sam- vinnufúsa/n á sama tíma og mars fyllir þig sannfæring- arkrafti. Þér ætti því að ganga sérstaklega vel í öllum samn- ingum og samskiptum í dag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nánasta samband þitt er loks farið að breytast til batnaðar. Ef þið komust í gegnum síðasta ár þá komist þið í gegnum allt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SVEITAVÍSUR Kvíði ég fyrir að koma í Fljót, kvíði ég fyrir Sléttuhlíð, kvíði ég ríða kulda mót. Kvíðvænleg er þessi tíð. * Öllu er stolið ár og síð, eins þó banni Kristur. Þelamörk og Þjófahlíð, það eru gamlar systur. * Stirð er jafnan stjúpu hönd, stendur upp með þjósti. Svei því, ef hún Svalbarðsströnd á sínu elur mig brjósti. Björg Einarsdóttir. LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA MEGINSTYRKUR mannshugans liggur í get- unni til að greina kjarnann frá hisminu. En í þeim eig- inleika er líka mesti veikleik- inn fólginn: til að sjá heild- armyndina þarf hugurinn að horfa framhjá sérkennum hins smáa – „hismið“ missir auðkenni sitt og rennur sam- an í eina herdeild af jafn- gildum x-um. Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠7642 ♥82 ♦ÁD63 ♣KD9 Vestur Austur ♠D8 ♠ÁKG105 ♥1076543 ♥KD9 ♦1085 ♦G4 ♣42 ♣753 Suður ♠93 ♥ÁG ♦K972 ♣ÁG1086 Vestur Norður Austur Suður – – 1 spaði 2 lauf Pass 2 spaðar * Pass 3 lauf Pass 4 lauf Pass 5 lauf Pass Pass Pass Fimm lauf er harður samn- ingur, sem ætti með réttu að tapast. Vörnin á tvo strax tvo slagi á spaða og virðist hljóta að fá þriðja slaginn á hjarta í fyllingu tímans. En austur þarf að halda vöku sinni. Vestur kemur út með spaða- drottningu, sem austur yf- irdrepur og tekur annan slag á spaða. Nú má alls ekki spila þriðja spaðanum: Suður trompar þá hátt, tekur öll laufin og tíglana, og þvingar austur í hálitunum í lokin. Austur verður að skipta yfir í hjartakóng í þriðja slag til að brjóta upp samganginn fyrir kastþröngina. Sjái austur þennan kjarna málsins hefur hann gert vel, en hann er ekki þar með sloppinn. Sagnhafi tekur alla slagina á láglitina og endar í borði í þessari stöðu til að spila síðasta tíglinum: Norður ♠7 ♥– ♦3 ♣– Vestur Austur ♠– ♠G ♥107 ♥D ♦– ♦– ♣– ♣– Suður ♠– ♥G ♦2 ♣– Þótt austur hafi séð þving- unina fyrir, er ekki þar með sagt að hann hafi áttað sig á þeirri „þykjustuþvingun“ sem núh efur runnið upp. Eða hvort á hann að henda hæsta spaða eða hjarta? Til að vita það fyrir víst, hefði austur þurft að fylgjast gaumgæfilega með smáspil- unum í tígli, litlu x-unum, sem oftast nær skipta engu máli. Hafi hann ekki gert það, mun hann sennilega henda spaða í þeirri trú að suður eigi hærri tígul en tvistinn. Og þá fær sagnhafi úrslitaslaginn á spaðasjöuna. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 3. jan- úar, er níræður Karl Helga- son, fyrrverandi kennari á Akranesi, nú til heimilis að Gullsmára 9, Kópavogi. Sambýliskona hans er Sól- veig Kristjánsdóttir. Karl býður ættingjum og vinum að þiggja veitingar á afmæl- isdaginn kl. 16 til 18 að Gull- smára 9, salnum á 14.hæð. 80 ÁRA afmæli. Guð-laug Hinriksdóttir, Gnoðarvogi 75 Reykjavík, verður 80 ára á morgun, sunnudaginn 4. janúar. Hún tekur á móti gestum í Fram- sóknarhúsinu á Akranesi sem er á horni Sunnubraut- ar og Skagabrautar (Sunnu- braut 21) frá kl. 14 til 17. Guðlaug vonast til að sjá sem flesta vini og ættingja. FRÉTTIR Heyrnar- og talmeinastöð Íslands Samið um sjúkraskrár- kerfið Sögu HEYRNAR- og talmeinastöð Ís- lands (HTÍ) og eMR hugbúnaður hf. hafa gert samning um innleið- ingu á sjúkraskrárkerfinu Sögu. Sjúkraskrárkerfið Saga felur í sér bókunarkerfi, reikningskerfi og almenna sjúkraskráreiningu en útbúa þurfti átta nýjar skráning- areiningar sem sérsniðnar voru að mismunandi þörfum sérfræðinga innan Heyrnar– og talmeinastöðv- arinnar. Útbúnar voru tengingar við heyrnarmælingarforrit en með Sögu er haldið utan um allar heyrnarmælingar og heyrnartæki sem afgreidd eru á stofnuninni. Biðlisti heldur utan um þá ein- staklinga sem bíða tækja, skráir þá sem bíða móttöku og heldur ut- an um þá einstaklinga sem kallaðir eru inn til eftirlits. Vinnulisti birtir síðan fyrirhugaðar viðgerðir tækja, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.