Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 64

Morgunblaðið - 03.01.2004, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Næring ekki refsing 23 EINSTAKLINGAR létust í 20 umferðarslysum hérlendis á síð- asta ári, samkvæmt bráðabirgða- tölum Umferðarstofu, eða sex færri en árið 2002. Þá létust 29 manns í umferðarslysum en árið 2001 létust 24 og 32 árið 2000. Sautján létust í dreifbýli Af þeim 23 sem létust í fyrra voru þrettán karlmenn, átta kon- ur og tvö börn. Ellefu þeirra sem létust voru ökumenn bifreiða, níu voru farþegar og þrír gangandi vegfarendur. Níu manns létust í árekstrum, en í tíu tilvikum var um að ræða útafakstur og í einu tilviki var ek- ið á mannvirki. Sautján hinna látnu létust í dreifbýli en sex manns í þéttbýli. Flestir hinna látnu, eða níu manns, voru á aldrinum 25–64 ára, en sjö voru eldri en 64 ára. Í aldursflokknum 7–13 ára létust tveir og jafnmargir í aldurs- flokknum 17–20 ára. Þá létust þrír á aldrinum 21–24 ára. Sigurður Helgason, upplýsinga- fulltrúi Umferðarstofu, segir það vekja athygli hvaða breytingar hafa orðið á aldri fórnarlamba banaslysa. „Eldra fólk er orðið hærra hlut- fall þeirra sem látast,“ segir hann. „Það er einnig sláandi hversu mörg banaslys verða á þriðja fjórðungi ársins, þ.e. á tímabilinu júlí til september, þeg- ar akstursskilyrðin eru hvað best. Umferðin er reyndar meiri um sumarmánuðina og það ætti að hafa í för með sér minni ökuhraða en sú er þó ekki raunin að því er virðist,“ segir Sigurður. Menn aka allt of hratt úti á þjóðvegunum Sigurður segir að brýnt sé að auka umferðareftirlit, ekki síst á sumrin þegar ökuhraðinn er meiri en á öðrum tímum. „Það er mjög áberandi hvað ökuhraðinn úti á þjóðvegunum er langt yfir því sem gæti talist eðli- legt og siðlegt. Við höfum nú orð- ið aðstöðu til að fylgjast vel með ástandi mála á þjóðvegunum með svokölluðum umferðargreinum Vegagerðarinnar. Það er sláandi að eftir því sem lengra dregur frá höfuðborginni aka þeim mun fleiri hratt. Oft er hraðakstur stund- aður á vegum langt frá stærri byggðarlögum og þar með langt frá björgunaraðilum sem hugsan- lega gætu breytt miklu ef slys ber að höndum. Áhættan er því mest á þessum stöðum og líkurnar á því að fólk lifi af slysin minni en nær þéttbýlisstöðum,“ segir Sig- urður. Tuttugu og þrír létust í tuttugu slysum í umferðinni hér á landi á síðasta ári Brýnt að auka umferðareftirlit á þjóðvegunum            !!!  "  "  "  "  !!!      " # & " STARFSMENN fyrirtækisins Logoflex í Reykjavík hafa haft nóg að gera síðan á þriðja degi jóla en þá fengu þeir það verk- efni að skipta um skilti á öllu húsnæði Búnaðarbankans um land allt. Sem kunnugt er breyttist nafn Kaupþings Bún- aðarbanka í KB banka nú um áramótin. Þeir Logoflex-menn þurfa að hafa lokið verkinu fyr- ir sjötta janúar. Heiðar Ferdin- andsson stóð galvaskur í háloft- unum og studdi við Búnaðarbankamerkið þegar verið var að taka það niður af útibúi bankans í Vík í Mýrdal og setja nýtt KB-merki. Að sögn Sævars Sverrissonar hjá Logoflex er nú búið að skipta um merkingar á öllum KB bönkum í Reykjavík og einnig á Norðurlandi. Hann segist reikna með að takast muni að ljúka verkinu á til- settum tíma en alls rekur KB bankinn 36 útibú vítt og breitt um landið. Búnaðar- banka- skiltin að víkja Fagradal. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson ALLS voru 75 mál, flugatvik og flugslys, tekin til meðferðar hjá Rannsóknar- nefnd flugslysa á síðasta ári og af þeim voru 39 mál rannsökuð formlega. Árið 2002 voru málin 93 og formlegar rannsóknir 38. Þormóður Þormóðsson, formaður Rann- sóknarnefndarinnar, tjáði Morgunblaðinu að málum hefði fækkað lítillega frá árunum 2000 og 2001. Árið 2000 hefðu 96 mál komið til skoðunar hjá nefndinni og 49 fengið formlega rannsókn en 2001 voru málin 89 og 26 tekin í rannsókn. Árið 1999 voru alls 26 rannsóknir á vegum RNF. Þormóður sagði árið 2000 hafa verið slæmt í flugsögunni, þá hefðu slysin verið mörg og alvarleg en slysunum hefði fækkað nokkuð síðan. Nefndi hann sem dæmi að ekki hefði verið banaslys í flugi hér frá árinu 2001 en það ár fórust tvær bandarísk- ar flugkonur við suðurströndina, skammt frá Vestmannaeyjum. 39 flugslys og atvik rann- sökuð í fyrra SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðisins var í gærkvöldi kallað að höfuðstöðvum bifreiða- umboðsins B&L við Hestháls í Reykjavík. Þar logaði í neyðarútgangsskilti á einum stað í húsinu. Húsnæðið var reykræst en tjón hlaust ekki af skiltisbrunanum. Að sögn stöðvarstjóra hjá slökkviliðinu hefur það gerst áður að ljósaskilti fyrir neyðar- útganga brenni. Neyðarútgangs- skilti brann anum verða til þess að vextir á lánunum hækki. Breytingarnar koma ASÍ al- gjörlega í opna skjöldu að sögn Gylfa Arnbjörnssonar fram- kvæmdastjóra. Hann segir ASÍ hafa talið mikilvægara að end- urreisa félagslega húsnæðiskerfið í stað þess að leggja það end- anlega af. Vextir af félagslegu húsnæði hafi verið hækkaðir í 3,5% og stór hópur fólks búi við þann vanda að eiga ekki fyrir húsaleigu í félagslega húsnæðis- kerfinu. Ekkert sé gert til að taka á vanda þessa fólks. Þá gagnrýnir Gylfi að ekkert samráð hafi verið haft við ASÍ vegna þessa máls. lánakerfi. Hún er þeirrar skoð- unar að breytingar séu undanfari þess að færa eigi íbúðalánakerfið til bankanna sem muni á end- ekki skilja hvað búi að baki þess- um breytingum, sátt hafi ríkt um húsbréfakerfið og sér komi því á óvart að taka eigi upp peninga- SÉRFRÆÐINGAR í greiningar- deildum bankanna taka almennt mjög vel í fyrirhugaðar breyt- ingar á fyrirkomulagi húsnæðis- lána þótt hækkun hámarkslána geti hugsanlega haft áhrif á verð- lag á fasteignamarkaði. Með þess- um breytingum sé verið að svara breyttum kröfum markaðarins og færa sig nær því sem tíðkast á al- þjóðlegum mörkuðum. Breytingin muni þýða stærri og færri skulda- bréfaflokka sem eigi að geta greitt fyrir lækkun langtímavaxta þegar fram í sækir; þetta muni styrkja íslenskan skuldabréfa- markað og gera hann gegnsærri og skilvirkari. Jóhanna Sigurðardóttir, Sam- fylkingunni, segist á hinn bóginn Sérfræðingar bankanna segja breytingarnar jákvæðar Húsnæðislánin á leið til bankanna segir Jóhanna Sigurðardóttir Morgunblaðið/Sverrir  Aðrar/6  Skiptar/10 ♦♦♦ ÖLVAÐUR maður á þrítugsaldri réðst á mann á fimmtugsaldri á áramótadansleik í Ólafsvík um fjögurleytið á nýársnótt, skallaði og beit í eyrað svo brjósk aftan til á eyranu rifnaði. Hékk stór hluti eyrans naumlega á, en hinn bitni lá á skurðarborðinu í þrjá tíma á meðan læknar festu hinn afbitna hluta aftur á með tuttugu og tveimur sporum. Árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að, en hann náðist skömmu síðar og játaði brot sitt við yfir- heyrslur í gær. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins var árásin bæði tilefnis- og fyr- irvaralaus og var árásarmaðurinn lögregl- unni ekki ókunnugur, þótt hann sé ekki þekktur fyrir líkamsárásir. Bitinn í eyrað á áramótadansleik ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.