Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 26
DAGLEGT LÍF 26 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s BÓNUS Gildir 5.–8. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Núðlur, 85 g ........................................ 17 25 200 kr. kg Myllu maltbrauð, 300 g ........................ 79 139 263 kr. kg Myllu normalbrauð, 300 g .................... 79 139 263 kr. kg Ali ferskar svínakótilettur ...................... 698 898 698 kr. kg Ali ferskt svínahakk .............................. 279 359 279 kr. kg Merrild kaffi special, 400 g ................... 159 195 398 kr. kg Neskaffi gull, 200 g ............................. 599 699 2.995 kr. kg Colgate tannkrem, 5 teg. 232 g ............ 299 399 1.289 kr. kg Harðfiskur, ýsa, 400 g .......................... 1.399 Nýtt 3.498 kr. kg Nýmjólk .............................................. 75 76 75 kr. ltr Léttmjólk ............................................. 75 76 75 kr. ltr 11–11 Gildir 5.–11. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Búrfells nautahakk............................... 596 828 596 kr. kg Jöklasalat ........................................... 299 369 299 kr. kg Tómatar .............................................. 179 259 179 kr. kg Casa Fiesta Tortillur 8" með tómat eða hvítlauksbragði .................................... 189 Nýtt 189 kr. pk. Casa Fiesta Taco sósa, 225 ml.............. 146 208 649 kr. ltr Casa Fiesta salsa piparsósa, 300 ml ..... 173 247 577 kr. ltr Pepsi, 2 lítrar....................................... 169 215 85 pr. ltr Góu hraunbitar, 200 g.......................... 189 239 945 kr. kg FJARÐARKAUP Gildir 5.–7. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Kjúklingur, ferskur ................................ 389 525 389 kr. st. Lambalæri .......................................... 699 898 699 kr. kg Samsölu samlokubrauð ........................ 99 219 99 kr. kg Kjúklingabringur .................................. 1.399 1.998 1.399 kr. kg Nautahakk, magnpakkning, 1. fl. .......... 598 958 598 kr. kg Ýsa með roði ....................................... 298 nýtt 298 kr. kg Andrex wc pappír, 9 rl........................... 499 629 55 kr. rl. Lambahryggur ..................................... 699 898 699 kr. kg Cheerios twinpack, 992 g..................... 587 Nýtt 590 kr. kg Skólaostur, kílópakkning ...................... 798 997 798 kr. kg Finish töflur, Power ball, 44 st. .............. 648 733 15 kr. st. HAGKAUP Gildir 5.–8. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Svínagúllas ......................................... 889 1.269 889 kr. kg Svínasnitsel ........................................ 889 1.269 889 kr. kg Svínahnakkasneiðar m/beini ................ 699 998 699 kr. kg Svínakótilettur m/beini......................... 699 1.198 699 kr. kg Svínalundir vac. ................................... 1.499 2.098 1.499 kr. kg Svínabógur.......................................... 399 499 399 kr. kg Svínalæri ............................................ 399 499 399 kr. kg Svínasíða m/puru................................ 249 398 249 kr. kg Svínaskankar ...................................... 99 149 99 kr. kg Kjötborð hrefnusteik............................. 768 1.098 768 kr. kg Kjötborð hrefnugúllas ........................... 698 998 698 kr. kg Kjötborð hrefnusnitsel .......................... 698 998 698 kr. kg Freschette pitsur .................................. 299 499 299 kr. st. KRÓNAN Gildir 5.–11. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Goða grísalundir, pakkaðar ................... 1.399 1.998 1.399 kr. kg Bautab. ofnsteik .................................. 935 1.438 935 kr. kg Náttúra túnfiskur í olíu/vatni, 185 g....... 65 79 351 kr. kg Myllu Fitty bollur, 4 st. .......................... 139 179 35 kr. st. Myllu beyglur fínar, 6 st. ....................... 189 229 32 kr. kg Pagens pruður, fínar eða grófar, 400 g ... 149 179 372 kr. kg Vítamín par, 32 skammtar .................... 499 599 499 kr. pk. NETTÓ Gildir 5.–8. feb. m. birgðir endast nú kr. áður kr. mælie. verð Nautainnanlæri kryddað BB.................. 819 1.997 819 kr. kg Goða gourmet lambalæri...................... 1.199 1.499 1.199 kr. kg Goða pitsahleifur ................................. 499 665 499 kr. kg Gevalia kaffi rauður, 500 g ................... 269 309 538 kr. kg Festival wc-pappír hvítur, 9 rl. ............... 299 399 299 kr. pk. FDB rauðkál, 580 g.............................. 69 99 119 kr. kg Lýsi heilsutvenna ................................. 699 799 699 kr. pk. Lýsi profibri trefjar, 12 skammtar........... 799 998 799 kr. pk. UB pokagrjón, 224 g ............................ 99 125 442 kr. kg NÓATÚN Gildir 5.–11. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Kjúklingur, frosinn ................................ 295 599 295 kr. kg Maggi kartöflumús, 125 g .................... 89 109 712 kr. kg ISO4 D-vítamínbætt olía....................... 299 Nýtt 299 kr. ltr Ömmu kleinur, 210 g ........................... 149 249 709 kr. kg Maxwell House kaffi, 500 g................... 299 379 598 kr. kg Daim terta, 400 g ................................ 599 699 1.497 kr. kg Ora fiskbúðingur, 400 g........................ 159 199 397 kr. kg Pipp súkkulaði, 3 í pk........................... 149 219 50 kr. st. SAMKAUP/ÚRVAL Gildir 5.–9. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Ísfugl kjúklingur, frosinn 1/1 ................. 249 349 249 kr. kg Ísl.fugl kjúklingabitar, magnbakki .......... 429 780 429 kr. kg Ísl.fugl kjúklingaleggir, magnbakki ......... 434 790 434 kr. kg Bautab. léttr. sparn.skinka .................... 785 1.047 785 kr. kg Hangilæri úrbein. soðið, KEA................. 2.256 2.820 2.256 kr. kg Kjarnagr. jarðarb. ................................. 199 239 199 kr. ltr Kjarnagr. bl. ávextir .............................. 199 236 199 kr. ltr BKI kaffi extra, 400 g ........................... 229 259 572 kr. kg Frón kremkex, 250 g ............................ 119 165 476 kr. kg Frón Café Noir, 200 g........................... 129 175 645 kr. kg Ora síld, marin., 375 g ......................... 189 241 504 kr. kg Ora síld, tómat, 370 g.......................... 219 269 591 kr. kg Ora rófustappa, 285 g.......................... 89 99 312 kr. kg Oetker kartöflumús, 330 g .................... 259 339 784 kr. kg SPAR Bæjarlind Gildir til 9. feb. nú kr. áður mælie.verð Ýsuflök m/roði frosin............................ 379 598 379 kr. kg Ýsuflök roð- og beinlaus, frosin ............. 499 874 499 kr. kg Vaasan kanelsnúðar, 240 g .................. 156 179 650 kr. kg Kjúlli Tex Mex kjúklingavængir ............... 298 398 298 kr. kg Kjúlli BBQ kjúklingaleggir...................... 398 498 398 kr. kg 100% appelsínusafi m/aldinkjöti, 2 ltr .. 179 347 90 kr. ltr McCain kartöflumús, 400 g .................. 198 228 495 kr. kg Wasa appetit hrökkbrauð, 200 g ........... 149 168 745 kr. kg ÞÍN VERSLUN Gildir 5.–11. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Bacon búðingur ................................... 477 636 477 kr. kg Pepperoni búðingur.............................. 477 636 477 kr. kg Knorr bollasúpur .................................. 139 159 139 kr. pk Toro ítölsk grýta ................................... 189 247 189 kr. pk. Hatting smábrauð, 12 st....................... 239 289 20 kr. st. Grazia kex, 3 teg. 150 g ....................... 109 139 719 kr. kg Vanillu kremkex, 500 g ......................... 198 259 396 kr. kg Prince Polo XXL, 4 st. í pk...................... 269 299 67 kr. st. KJÖT af ýmsu tagi er áberandi í helgartilboðum mat- vöruverslana. Hagkaup bjóða margar gerðir svínakjöts með afslætti, Krónan hefur lækkað verð á grísalundum og Bónus er með tilboð á svínahakki og -snitseli. Einnig er Bónus með tilboð á nýmjólk og léttmjólk, 75 krónur lítrann. Hjá 11-11 er 30% afsláttur af Casa Fiesta vörum. Kjúklingur, lamb og nautahakk er á lækkuðu verði í Fjarðarkaupum. Nautainnra- læri er á lækkuðu verði í Nettó og frosinn kjúklingur í Nóa- túni, í síðarnefndu versluninni er líka tilboðsverð á nýju D- vítamínbættu ISIO4 matarolíunni. Samkaup kynna tilboðs- verð á frosnum kjúklingi og síld, frosin ýsuflök eru á lækkuðu verði í Spar og kjötbúðingur á lækkuðu verði hjá Þinni versl- un. Loks eru bætiefni með afslætti í Krónunni og Nettó. Morgunblaðið/Sverrir Svínakjöt með afslætti Hrefnusteik, -gúllas og -snitsel, alls kyns svínakjöt, lamb, kjúklingur og nautakjöt er á lækk- uðu verði í verslunum um þessar mundir. Einnig má finna tilboð á frosinni ýsu, mjólk og osti. Alls kyns kjöttegundir á tilboðsverði  HELGARTILBOÐIN |neytendur@mbl.is SKYNDIBITAKEÐJAN Burger King hefur sett á markað hamborg- ara í skál til þess að koma til móts við þá sem vilja sneiða hjá kolvetn- um í mataræði sínu. Bandaríska dagblaðið Miami Herald greinir frá þessu og segir að „Whopper“ í skál innihaldi einungis 5 grömm af kol- vetnum. Hnífur og gaffall fylgja máltíðinni. Fyrir þá sem telja hitaeiningar er „Whopper“ yngri annar möguleiki, en hann inniheldur 320 kaloríur ef sinnep er valið í staðinn fyrir majónes. Skyndibitakeðjur á borð við Bur- ger King, McDonald’s og Wendy’s vilja nú í æ ríkara mæli höfða til þeirra sem ekki vilja hamborgara og franskar. Blaðið segir að McDonald’s hyggist upplýsa hversu mikil fita og kolvetni séu í mál- tíðum sínum og einnig hefur Subway byrjað markaðssetning- arherferð þar sem léttfæði er í fyr- irrúmi. Tíðni offitu eykst sífellt á Vest- urlöndum og reyna fyrrgreindir matsölustaðir að bregðast við þeirri þróun og líka auknum fjölda málshöfðana viðskiptavina í yf- irþyngd sem vilja varpa ábyrgðinni á seljendur skyndibita. Næring- arfræðingar eru ánægðir með þessa nýbreytni en segja enn langt í land. „Þeir sem vilja borða óhollan mat, hafa ennþá úr nógu að moða, en þeim sem vilja heilsusamlegt fæði er þröngur stakkur sniðinn,“ er haft eftir Margo Wootan, yf- irmanni næringarráðgjafar á Mið- stöð vísinda í almannaþágu. Salöt hafa notið mikillar hylli meðal viðskiptavina keppinauta og nú hyggst Burger King bæta um betur með valkosti þar sem boðið er upp á rækju og sirloin-steikur, auk hins sígilda kjúklings. Þá verður hægt að fá grillað grænmeti, dverg- gulrætur og parmesan-flygsur sem meðlæti. Annars vegar er heitt kjöt- eða fiskmeti í lokuðum um- búðum og hins vegar kalt, ferskt grænmeti að eigin vali sem hægt er að blanda saman eftir smekk. Bjóða hamborgara í skál í stað brauðs Hamborgari án brauðs er nýjasta útspilið í markaðssetningu á heilsu- samlegum skyndibita. JÓLAFASTAN er löngu hætt að standa undir nafni. Samkvæmt út- reikningum á heimasíðu sænsku mat- vælastofnunarinnar (www.slv.se) fyr- ir jól er meðaltal hitaeininga í því sem fólk leggur sér til munns á jólahlað- borði um það bil 2.500 hitaeiningar. Það er 114% af ráðlagðri dagsþörf kvenna (2.200 he) og 93% af ráðlagðri dagsþörf karla (2.700 he), samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun. Aðrar máltíðir dagsins eru ekki tekn- ar með í reikninginn. Umhverfisstofnun og heilbrigð- iseftirlit sveitarfélaga tóku sýni af heitum og köldum réttum á jólahlað- borðum í desember síðastliðnum. Lagt var mat á örveruástand og tóku þrjú sveitarfélög á Suður- og Suð- vesturlandi þátt í verkefninu. Aðeins bárust 27 sýni frá átta veit- ingahúsum, en úrtakið þykir samt sem áður gefa einhverja mynd af ör- veruástandi réttanna. Tvö sýni af 27 voru ófullnægjandi og var það vegna of hárrar líftölu við 30°C. Annað sýnið var af eftirrétti og hitt var pastasalat með túnfiski. Bæði sýnin voru tekin af Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Almennt var örveru- ástand hlaðborðanna gott þó sýni hefðu verið ófullnægjandi vegna of hárrar líftölu við 30°C, segir Um- hverfisstofnun. Auk líftölu var fjöldi saurkólígerla athugaður og magn ýmissa örvera sem gefa vísbendingar um geymslu- ástand og geymsluþol vöru, hreinlæti við framleiðslu og hvort sjúkdóms- valdandi gerlar séu til staðar. Jólahlaðborð ör- verusnauð en fitandi  MATVÆLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.