Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 57
Grensásvegi 7, sími 517 3535
Frítt inn til kl. 24.00
Opið 9.00-01.00 virka daga og 9.00-05.30 um helgar
Nýi tölvu- og viðskiptaskól-inn í Kópavogi stendurfyrir námskeiði í frum-hönnun tölvuleikja sem
hefst 13. febrúar. Það eru þeir James
Brace (frá breska tölvuleikjafyrirtæk-
inu Climax Development), Haraldur
Björnsson (frá hugbúnaðarfyrirtæk-
inu Cadai Ltd.) og Óli Haukur Valtýs-
son frá NTV sem stýra námskeiðinu.
Brace og Haraldur hafa haldið svipuð
námskeið víða um Evrópu. Rætt var
við þá Harald og Óla um námskeiðið
en einnig um tölvuleikjamenninguna á
breiðari grundvelli.
Hvað er raunverulegt?
Haraldur segir að á sínum tíma hafi
hann farið utan til náms til að læra
arkitektúr. Þetta var fyrir átta árum.
Hann sótti um vinnu hjá leikjafyr-
irtæki eftir námið og fékk það verk-
efni að hanna leik byggðan á Formúlu
1 kappakstrinum.
„Ég vissi ekki neitt um Formúlu
1!,“ segir Haraldur og hlær. „En þetta
gekk mjög vel og leikurinn seldi vel
fyrir Sony Playstation. Þetta eru þeir
leikir sem ég hef mest unnið við.“
Haraldur segist hafa verið heppinn
á þessum tíma því að leikjagerðin hafi
þá verið á ákveðnu frumstigi. Hann
segir að í dag hafi þröskuldurinn í
bransanum nefnilega hækkað tölu-
vert.
Haraldur segir að á Íslandi sé alveg
ábyggilega fullt af fólki sem þætti
tölvuleikjagerð vænlegur starfsvett-
vangur. Hins vegar hafi þetta lítið ver-
ið kynnt. Óli Haukur segir að með
námskeiði sem þessu verði vonandi
hægt að koma af stað þó ekki væri
nema umræðugrundvelli um þessi
mál.
Hvað tölvuleiki varðar er ofbeldi í
ákveðnum leikjum sígilt deilumál.
Haraldur er þeirrar skoðunar aðþað
þurfi að sýna ábyrgð í framleiðslu
slíkra leikja.
„Það þarf að fylgjast með þessu.
Þegar fram í sækir verða leikir til
muna raunverulegri og fólk er farið að
eyða sífellt meiri tíma í þá. Þetta er
því umhugsunarvert. Hinn sálræni
hvati á bak við leiki er að þar ert þú að
byggja upp ákveðna hæfni. Þetta á
einkum við í fjölspilunarleikjum
(„multiplayer“). Skynjun á því hvað er
raunverulegt og hvað ekki er í hættu
og fólk á ekki að vera feimið við að
banna ákveðna leiki.“
Óli Haukur segir að ef einhver
fremji voðaverk vegna tölvuleikjaspil-
unar þurfi hann sannarlega að vera
veikur fyrir.En því miður sé auðvitað
nóg til af slíku fólki.
Samskiptatækið tölva
Vinsældir skotleikja eins og Count-
er-Strike eru gríðarlegar og hérlendis
eru reglulega haldin keppnismót í
þannig leikjum. Bestu Counter-Strike
spilararnir lifa t.a.m. á því að spila
leikinn og ferðast um heimsins höf og
sækja þess háttar mót!
Haraldur segir að það sé ákaflega
mismunandi með tilliti til menningar-
heima hvaða leikjategundir séu vin-
sælastar.
„Á Vesturlöndum er mikið verið að
skjóta og sprengja og meirihluti not-
enda er karlmenn. Í Japan skiptast
leikirnir hins vegar jafnar á milli
kynja.“
Haraldur nefnir þá að vinsælustu
leikirnir séu leikir sem eru spilaðir í
„console“ tölvum eða stjórnborðs-
leikjatölvum eins og SonyPlaystation
o.s.frv.
„Það er oft talað um að fólk ein-
angrist við að spila tölvuleiki en „con-
sole“ menningin er mikið til þannig að
þú deilir upplifuninni með félögun-
um,“ segir hann. „Leikir eins og
brettaleikirnir hans Tony Hawk verða
að eiginlegum félagsmiðstöðvum og
ákveðnu samskiptatæki.“
Siðferðileg réttlæting þess að þú
leikir þér, segir Haraldur, er sögð sú
að leikurinn muni nýtast þér í lífinu.
„Það er erfitt að réttlæta slíkt gagn-
vart tölvuleikjum. Að það að skjóta og
drepa muni nýtast þér. En t.d. í Bret-
landi, sem er hernaðarveldi, er hern-
aður og her partur af menningunni
þar. Menn þar fara í stríð og það þykir
sjálfsagt að þú eigir að geta hoppað og
hlaupið yfir skurði og stíflur eða hvað
það er.“
Að lokum er Haraldur spurður að
því hvers konar leikir eigi eftir að
verða vinsælir í framtíðinni. Hann
segir að það sé ómögulegt að svara
því.
„Ég sé þó fyrir mér að þetta verði
margir leikir í einum. Við erum farin
að sjá þetta gerast í leikjum byggðum
á kvikmyndum eins og Star Wars og
Hringadróttinssögu þar sem þú getur
valið hvort þú vilt hraða og spennu eða
frekar áætlanagerð – allt innan sama
leiksins. Ég sé fyrir mér að í framtíð-
inni getir þú drepið drekann, safnað
peningum og að lokum sest niður og
heklað – kjósir þú það! (hlær).“
NTV stendur fyrir námskeiði í frumhönnun tölvuleikja
Eru tölvuleikir
menning?
Morgunblaðið/Jim Smart
Tölvuleikir hafa hrundið af stað viðamikilli
undirmenningu í vestrænu samfélagi.
Arnar Eggert Thoroddsen fræddist um
þessi mál í tengslum við væntanlegt nám-
skeið í tölvuleikjagerð hér á landi.
Allar nánari upplýsingar vegna
námskeiðsins eru á www.ntv.is
Frá vinstri: Sigurður S.
Pálsson, skólastjóri NTV,
Óli Haukur Valtýsson,
Haraldur Björnsson.