Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 51
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert tilfinningarík/ur og
ábyggileg/ur og fólk veit að það
getur treyst á þig. Þú býrð
einnig yfir skarpskyggni og
þokka. Leggðu hart að þér á
komandi ári því þú munt upp-
skera árið 2005.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér gæti fundist einhver vera
að senda þér misvísandi skila-
boð í dag. Vertu við öllu búin/n
en reyndu á sama tíma að láta
hinn aðilann njóta vafans.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú gætir freistast til að segja
ósatt til að forðast óþægilega
aðstöðu í dag. Reyndu að
halda þig við sannleikann.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagdraumar sækja á huga
þinn í dag og trufla einbeitinu
þína. Ekki láta þetta ergja þig
um of. Einstein sagði að dag-
draumar væru fyrirheit fram-
tíðarinnar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er ekki rétti dagurinn til
að eyða peningum. Þú ert ekki
viss um hvað þú vilt og átt auk
þess á hættu að eyða um efni
fram.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Reyndu að vera sérstaklega
skýr í öllum samskiptum í
dag. Þetta á þó sérstaklega
við um maka þinn og nána
vini. Það er hætt við misskiln-
ingi og jafnvel svikum eða
blekkingum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér hættir til að efast um eigið
ágæti í dag. Reyndu að ýta
þessum tilfinningum frá þér.
Þær verða að öllum líkindum
horfnar um helgina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ef þér finnst þú ekki ráða við
aðstæður reyndu þá að fresta
því að takast á við þær. Þér
mun líða betur um helgina.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það eru miklar líkur á því að
einhver reyni að slá ryki í aug-
un á þér í dag. Þetta gæti jafn-
vel átt við um áhrifamikinn
einstakling. Vendu þig á að
dæma hlutina sjálf/ur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ekki efast um gáfur þínar eða
hæfni til að taka eigin ákvarð-
anir. Ef efasemdir um eigið
ágæti sækja á þig ýttu þeim
þá frá þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fjármálin eru eitthvað rugl-
ingsleg og því er þetta ekki
rétti dagurinn til að taka mik-
ilvægar ákvarðanir. Frestaðu
því ef þú getur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að leggja þig alla/n
fram í samskiptum þínum við
aðra í dag. Tunglið er beint á
móti merkinu þínu og því áttu
í raun ekki um annað að velja.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ef þú færð á tilfinninguna að
einhver sé að leyna þig ein-
hverju , er það sennilega rétt
hjá þér. Treystu innsæi þínu.
Líkami þinn les líkamstján-
ingu annarra mun betur en
hugur þinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra stað-
reynda.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 51
DAGBÓK
Laugavegi 20b, sími 552 2515
NÝJAR VÖRUR Á ÚTSÖLU
ALLT Á AÐ SELJAST
Kistlar, húsgögn, gjafavara.
Skólavörðustig 10, s. 511 2100
HÁR & HEILSA
Dóróthea Magnúsdóttir, gsm 892 5941.
Hugrún Stefánsdóttir, gsm 861 2100.
Nýjung
Ekta hárkollur með
örþunnum botni
sem líkist húðinni.
Formaðar eftir
óskum hvers og eins.
Pantið tíma.
Útsölulok
7. febrúar
Langur laugardagur
Opið frá kl. 11-17
gjafavöruverslun,
Frakkastíg 12, sími 511 2760.
HUGLEIÐSLUNÁMSKEIÐ Í LJÓSHEIMUM
Brautarholti 8, Reykjavík
7. febrúar n.k. kl. 14.00 til 18.00 og 12. febrúar kl. 19.30-21.30.
Hljóður hugur og innri friður er eitt það dýrmætasta fyrir andlega og líkamlega heilsu.
Á námskeiðinu verða kenndar aðgengilegar aðferðir sem með æfingu veita færni til að
öðlast hljóðan huga og innri frið.
Upplýsingar og skráning hjá Elínu Jakobsdóttur, jógakennara, í síma 898 3767.
VEÐURHLJÓÐ
Veinar í skörðum vindurinn.
Var hann á mig að kalla?
Eiga eg vildi annað sinn
útkomuleið til fjalla.
Horfinn er þangað hugurinn,
hvenær sem stormar gjalla.
Horfinn er þangað hugurinn.
Hlæjandi minning lokkar,
þegar fjörlega fákurinn
fiðrar við taum og brokkar.
Horfinn er þangað hugurinn,
hestur er fram hjá skokkar.
Horfinn er þangað hugurinn.
Hrakningar, leitir, villa
ónáða byggðamanninn minn,
mögnuðum kitlum fylla.
Horfinn er þangað hugurinn,
hvenær sem gengur illa.
Sigurður Jónsson frá Brún.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
Eins og skýrt var frá í
þætti gærdagsins stendur
nú yfir prófraun fyrir les-
endur, þar sem glímt er við
10 þrautir, eina á dag. Í gær
var það úrspilsþraut, nú er
það vörnin:
Þraut tvö:
Norður
♠83
♥K62
♦ÁD6
♣ÁDG76
Austur
♠ÁK4
♥Á8753
♦KG5
♣K2
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf Dobl 4 spaðar
Pass Pass Dobl Allir pass
Lesandinn er í austur og
hefur doblað fjóra spaða.
Makker kemur út með
hjartadrottningu, sem er
gott, en útlitið dökknar
verulega þegar sagnhafi
trompar fyrsta slaginn.
Hann spilar svo spaða-
drottningu og þú tekur með
kóng (makker fylgir lit).
Hver er áætlunin?
_
Norður
♠83
♥K62
♦ÁD6
♣ÁDG76
Vestur Austur
♠7 ♠ÁK4
♥DG1094 ♥Á8753
♦9732 ♦KG5
♣853 ♣K2
Suður
♠DG109652
♥--
♦1084
♣1094
Lausn:
Úr því slagur fæst ekki á
hjarta verður að sækja þann
fjórða á tígul (þú reiknar
með slag á laufkóng). Og
það er ekki eftir neinu að
bíða í þeim efnum – þú verð-
ur að spila tígli strax. Ef
vestur á tíuna í tígli, vinnst
tími til að fría slag á litinn
áður en sagnhafi getur náð
af þér trompinu og fríað
lauflitinn. Í því tilfelli skiptir
ekki máli hvaða tígli þú spil-
ar, en ef makker á tígulníu
og suður 108x er sjálfsagt að
láta sagnhafa giska og spila
tígulfimmu. Kannski lætur
suður áttuna og þá hefur
vörnin betur.
Stig:
Þú færð 10 stig fyrir að
spila tígulfimmu, en 7 fyrir
gosann eða kónginn.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 e5 2. d3 Rc6 3. f4 Bc5
4. Rf3 d6 5. Rc3 Bg4 6. Be2
Rf6 7. h3 Bxf3 8. Bxf3
Staðan kom upp í Skák-
þingi Reykjavíkur sem Tafl-
félag Reykjavíkur stóð að.
Mót þetta hefur langa sögu
og hafa margar þekktar
kempur hampað titlinum
Skákmeistari
Reykjavíkur. Hin
síðari ári hefur þátt-
takendum fækkað og
iðulega eru það sömu
andlitin sem koma
sér fyrir í efstu sæt-
um. Það væri æski-
legt að breiddin væri
meiri og vonandi
verður hún það í kjöl-
far skákvorsins sem
viðrað hefur síðustu
misseri. Einn af
yngri keppendum
mótsins, Arnar Sig-
urðsson (1435), svart,
kom auga á snjalla hugmynd
til að nýta sér veikleika hvíts
á svörtu reitunum gegn
Hjalta Björnssyni (1225). 8...
Rh5! 9. Bxh5?? Leiðir rak-
leiðis til máts. Hvorki gekk
upp heldur að leika 9. fxe5
Rg3 10. Hh2 Bg1 né heldur
9. Re2 Dh4+ 10. Kd2 Rg3 en
hinsvegar hefði 9. h4! getað
haldið taflinu gangandi. 9...
Dh4+ 10. Kd2 Dxf4+ 11.
Ke1 Df2#.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
BRÚÐKAUP. Hinn 9. ágúst sl. voru gefin saman í hjóna-
band í Lágafellskirkju þau Hildur Rúnarsdóttir og Finn-
bogi Sumarliðason.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Konan þín
er búin að
taki inn og
mikið af
járntöflum.
Hún nær
sér, en
næstu vik-
urnar mun
hún vísa í
norður.