Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 28
LISTIR 28 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Um hva› snúast stjórnmál? Kynntu flér máli› í Stjórnmálaskóla Sjálfstæ›isflokksins í Valhöll mánudags-, flri›judags- og fimmtudagskvöld frá 9. til 25. febrúar. Dagskráin er á heimasí›u Sjálfstæ›isflokksins, www.xd.is Skráning og nánari uppl‡singar í síma 515 1700/515 1777 og á netfangi disa@xd.is - borgarmálin - listina a› hafa áhrif - flokksstarfi› - menntun og menningarmál - heilbrig›isfljónustu - umhverfismál - listina a› vera lei›togi - efnahagsmál - utanríkismál - sjávarútvegsmál Fyrirlestrar og umræ›ur, m.a. um Sjálfstæ›isflokkurinn Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík sími 515 1700 www.xd.is Í SÍÐASTA mánuði var gerður kostunarsamningur um einn stærsta styrk einkaaðila til ein- staks menningarverkefnis hér á landi þegar Björgólfur Thor Björg- ólfsson og Listasafn Reykjavíkur undirrituðu samkomulag um fjár- stuðning Björgólfs Thors og eign- arhaldsfélagsins Samsonar við uppsetningu á sýningu Ólafs Elías- sonar, Frost Activity, sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu. Styrk- upphæðin skiptir milljónum. En kostunarsamningurinn er ekki einhliða, því á móti styrk Björgólfs Thors og Samsonar kem- ur veglegt framlag Ólafs Elíasson- ar fyrir milligöngu listasafnsins til Landsbanka Íslands. Í mótframlag- inu felst, að Ólafur Elíasson lánar Landsbankanum verk eftir sjálfan sig til allt að þriggja ára sam- kvæmt samkomulagi. Því má segja að Ólafur Elíasson hafi með fram- lagi sínu greitt fyrir því að samn- ingurinn milli Listasafns Reykja- víkur og Björgólfs Thors yrði að veruleika. Þá vildu Björgólfur Thor og Samson, sem er leiðandi fjárfestir í Landsbankanum, leyfa bankananum að njóta ávinnings samningsins, þar sem Samson hefði ekki aðstöðu til að hýsa slíkt verk. Óvenjulegt mun einnig þykja hve lánstími verksins er langur, en algengt er að listamenn geri slíka samninga til eins árs. Ólafur Elíasson mun sjálfur verða með í ráðum um hvaða verk hans verður sett upp í Landsbank- anum, og ákvæði mun vera um, að útfærsla verksins samræmist hans listrænu kröfum. Landsbankinn mun sjá um kostnaðarhliðina á uppsetningu verksins fyrir milli- göngu Björgólfs Thors og Sam- sonar. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hafa ýmsar hugmyndir verið ræddar í þessu sambandi, meðal annars sú, að Landsbankinn fái Ólaf til að skapa nýtt verk fyrir nýjar aðalstöðvar bankans, sem rætt er um að verði byggðar innan tíðar, en gert var ráð fyrir að verk Ólafs yrði þar. Fari svo, að Ólafur skapi nýtt verk sérstaklega fyrir rými í fyrirhugaðri byggingu, er ólíklegt annað en að það verði þar áfram. Í samkomulaginu mun vera ákvæði um það, að eftir þriggja ára lánstíma verði lánsfyr- irkomulagið endurskoðað og samið um greiðslur. Listasafn Reykjavík- ur hefur lýst því yfir hversu mik- ilvægt það er þegar ný kynslóð kaupsýslumanna, sem Björgólfur Thor fer fyrir, tekur forystuna í stuðningi við lista- og menningarlíf á Íslandi og að rætt sé um þessi mál með jákvæðu hugarfari, svo gjörningur sem þessi verði fremur öðrum til eftirbreytni en úrtölusök. Verk eftir Ólaf Elíasson í nýjum Landsbanka Morgunblaðið/Jim Smart Björgólfur Thor Björgólfsson, Ólafur Elíasson og Eiríkur Þorláksson, for- stöðumaður Listasafns Reykjavíkur, við undirritun kostunarsamningsins. TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld eru haldnir í samvinnu við Myrka mús- íkdaga. Leikin verða fjögur íslensk verk, þar af verða tvö frumflutt, og eitt hefur ekki heyrst á Ís- landi fyrr. Fyrsta verkið er Flow and Fusion eftir Þuríði Jónsdóttur, en það var pantað hjá henni eftir að hún hafði borið sigur úr býtum í tónsmíðakeppni Zucchelli á Ítalíu, þar sem hún býr. Verkið var frumflutt í Bologna, samið fyrir meðalstóra hljóm- sveit og þrjá slagverksleikara, sem hún segir hafa mikið að gera, og tvo saxófóna. „Ég reyni að afmá hefðbundna stefjanotkun í verkinu, – og stefjaúr- vinnslu, og þessa hefðbundnu retorík eða samtal hljóðfæra. Ég leita frekar eftir ákveðnu litaflæði til að skapa ákveðna hljóðmynd. Litirnir hafa ólíka áferð, renna saman úr ólíkum áttum, mynda nýtt hljóð og gefa eitthvað nýtt af sér í framhaldi af því. Ég ímyndaði mér þetta eins og hraun- tungur sem flæða saman úr ólíkum áttum, storkna og verða að kletti. Þetta ferli sjáum við bæði í náttúrunni, í líkama okkar og svo til dæmis þegar málmar eru bræddir saman.“ Þuríður var mjög ánægð eftir að hafa heyrt hljómsveitina renna í gegnum verkið. „Ég er ánægð með það og held að það sé nokkuð lýsandi fyrir þá hljóðmynd sem ég hafði í maganum og vil koma á framfæri. Ég held að það sé réttlátt að dæma mig sem tónsmið út frá þessu verki.“ Þetta er í fyrsta sinn sem Sinfóníuhljómsveitin leikur verk eftir Þuríði, og segir hún það mikinn heiður fyrir sig og ánægju að fá að njóta svo fram- úrskarandi hljómsveitar. Samið í verbúð númer fimm Baulurif er undirtitill sjöttu sinfóníu Finns Torfa Stefánssonar, en Baulurif eru mið á miðjum Faxaflóa sem tónskáldið þekkir vel. „Sumarið áð- ur en ég byrjaði á verkinu átti ég trillu og reri frá Akranesi út á Baulurif, þar sem ég lagði mín net og dró. Baulurif eru vel staðsett fyrir miðjum fló- anum, þó nokkuð innarlega, og í góðu veðri sér maður allan fjallahringinn. Svo er það auðvitað sjórinn og fuglarnir, múkkinn og svartfuglinn og hvalurinn. Þegar svo þokan kemur eða sólin leikur í duggunni er þetta alveg eins og að vera í töf- raævintýri.“ Finnur Torfi segir að þrátt fyrir nafngiftina sé verkið engin náttúrulýsing, heldur bara abstrakt tónlist. „Þó vildi svo til, að þegar ég fór að semja verkið hafði ég aðstöðu í verbúð núm- er 5 við Suðurbugtina – ódýrasta plássið sem ég gat fengið í bænum – og var innan um trillukarl- ana og trilluna mína, þá fannst mér eins og það hlyti að síast einhvern veginn inn í músíkina. En hún er þó fullkomlega abstrakt.“ Finnur Torfi segir sinfóníur sínar, sem nú eru orðnar sjö, verða einfaldari með tímanum. „Þetta er sennilega síðasta flókna sinfónían; – ég sé það þegar hljómsveitin er að æfa, að verkið gerir mikl- ar kröfur til spilaranna. En það er alveg rosalega gaman að heyra þetta lifna við – ég er nú hræddur um það – og gaman að vera hér innan um þessa músíkanta.“ Þriðja verkið á efnisskránni er Endurskin úr norðri op. 40 eftir Jón Leifs, samið 1952, á erfiðum tímum í lífi tónskáldsins. Í verkinu má vel greina áhrif íslensks tónlistararfs; rímnalaga og tví- söngs, en þó með þeim persónulega blæ sem ein- kennir verk Jóns. Lokaverkið á tónleikunum er nýtt, – Sinfóníetta eftir Þórð Magnússon. Þórður segir verk sitt fremur hefðbundið en framúrstefnulegt. „Ég spila með mismunandi litbrigði hljómsveitarinnar til að kalla fram mismunandi stemmningar,“ segir Þórður um verk sitt. „Mér finnst verkið segja ein- hverja sögu, þótt ég viti í rauninni ekki hver sú saga er. Það er söguþráður í því.“ Þórður segir það hafa verið mjög gaman að fylgjast með æfingum hljómsveitarinnar og heyra verkið lifna við, en þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveitin leikur verk eftir hann. „Þetta er ein- hver besti skóli sem maður getur komist í, að fylgjast með hljómsveit æfa verkið sitt. Auðvitað sér maður alltaf eitthvað sem manni finnst hefði getað farið betur, en það er líka gott að sjá hvað það er sem skotliggur.“ Ánægð að heyra verkin lifna við Morgunblaðið/Ásdís Tónskáldin Þórður Magnússon, Þuríður Jóns- dóttir og Finnur Torfi Stefánsson á æfingu SÍ. SÝNING Ólafs Elíassonar í Astrup Fearnley-safninu í Ósló fær góðar viðtökur hjá almenn- ingi þar í landi að því er net- miðill hins norska Dagsavisen hefur eftir Gunnari Kvaran, stjórnanda safnsins. En um 13.000 gestir hafa heimsótt safnið frá byrjun janúarmán- aðar, er stjórnendur Astrup Fearnley hættu að rukka sýn- ingargesti um aðgangseyri. Að sögn Gunnars er ókeypis aðgangur þó langt í frá eina ástæða þessa mikla gesta- fjölda, en þess má geta að um 40.000 sýningargestir heim- sóttu Astrup Fearnley-safnið allt síðasta sýningarár, og tel- ur hann sýningar Ólafs og norsku listakonunnar Vibeke Tandberg eiga stóran þátt í þessari miklu aðsókn. „Við lít- um svo á að þessar tvær sýn- ingar séu mikilvæg kynning á þessari nýju skipan,“ sagði Gunnar og vísar til gríðarlegra vinsælda Ólafs um þessar mundir, m.a. á sýningu hans í Tate Modern sem talið er að í kringum ein milljón manna hafi heimsótt. Sýning Ólafs í Astr- up Fearnley vel sótt Lögberg nefnist safnrit sem geymir greinar um rannsóknarverkefni kenn- ara við lagadeild Háskóla Íslands. Rit- ið er tileinkað Sigurði Líndal, sem var prófessor við lagadeild Háskóla Ís- lands frá 1972 til 2001 og for- stöðumaður Lagastofnunar í 25 ár. Greinarnar fjalla um fjölbreytileg efni á mörgum mikilvægum sviðum lögfræðinnar og byggjast á rann- sóknum greinarhöfunda og gefa til kynna hvað rannsóknarverkefni í lög- fræði eru í raun margvísleg. Má nefna greinar um grundvallarreglur stjórn- sýsluréttarins, þ.e. meðalhófsregluna og andmælaregluna. Greinar um tölvupóst starfsmanna og einkalífs- vernd, notkun söluveðs í viðskiptum birgja, réttaröryggi fatlaðra á Íslandi og alþjóðlegar skuldbindingar um loftslagsbreytingar og íslenskur rétt- ur. Gerð er gerð grein fyrir jafnræð- isreglunni og áhrifum hennar á frjálsa för fólks innan EES og vanda smá- þjóða í evrópsku samstarfi. Þá er í rit- inu að finna greinar á sviði stjórnskip- unarréttar, eignaréttar, kröfuréttar, refsiréttar, réttarfars, vörumerkjarétt- ar og réttarsögu auk umfjöllunar um Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðavinnumálastofnunina. Útgefandi er Lagastofnun HÍ. Safnrit Morgunblaðið/Þorkell Viðar Már Matthíasson prófessor, formaður stjórnar Lagastofnunar, af- hendir Sigurði Líndal eintak af bókinni. Með þeim er Páll Skúlason rektor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.