Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ YFIRLÝSING FORSETANS Forseti Íslands segir í yfirlýsingu að hann hafi ályktað að forsæt- isráðuneytið óskaði hvorki eftir beinni framgöngu né sérstakri þátt- töku forseta Íslands í atburðum sem tengdust 100 ára afmæli heima- stjórnar. Hann segir að á und- anförnum áratugum hafi ætíð verið haft náið samráð við forsetaemb- ættið um undirbúning hátíðarhalda sem þessara en að nú hafi verið tek- in upp önnur vinnubrögð. Flestir styðja frumvarp Samþykkt var sérstakt afbrigði á Alþingi í gær svo taka mætti frum- varp um sparisjóði til fyrstu um- ræðu og flýta afgreiðslu þess. Allir þingmenn studdu að það yrði gert nema Pétur Blöndal en hann sat hjá. Uppnám í Ísrael Tillaga Ariels Sharons, forsætis- ráðherra Ísraels, um að flytja alla ísraelska landtökumenn frá Gaza hefur vakið mikinn úlfaþyt meðal harðlínumanna í Ísrael, jafnt innan sem utan ríkisstjórnar og í Lik- udflokki Sharons. Hóta þeir að fella stjórnina en Sharon íhugar aftur að bera málið undir þjóðaratkvæði. Myndi hann vinna það auðveldlega samkvæmt skoðanakönnunum. Þá hefur Verkamannaflokkurinn boðist til að styðja hann í þessu máli. Yfirmenn mun færri Yfirmenn Landspítala eru 252 samkvæmt samantekt spítalans, eða um 6,6% af heildarfjölda starfs- manna, en ekki 1.089 eða 28,7% af starfsmannafjölda eins og fram kom í skýrslu Ríkisendurskoðunar um mat á árangri sameiningar sjúkra- húsanna í Reykjavík er kom út í nóv- ember síðastliðnum. Bensín hækkað Stóru olíufélögin þrjú hafa verið að hækka sjálfsafgreiðsluverð á bensínstöðvum sínum á ný eða lækka þann afslátt sem veittur er. Almennt hefur lítrinn af bensíni þeg- ar menn dæla sjálfir hækkað úr 93,70 í 96,90 krónur eða um 3,20 krónur eða 3,4%. Kerry á sigurbraut Bandaríski öldungadeild- arþingmaðurinn John Kerry virðist vera á góðri leið með að tryggja út- nefningu sem forsetaefni demó- krata. Sigraði hann í fimm ríkjum af sjö í forkosningum þeirra í fyrradag. John Edwards og Wesley Clark héldu velli en svo virðist sem fjarað hafi undan Howard Dean. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Þjónustan 35 Erlent 16/19 Viðhorf 36 Heima 20 Minningar 39/43 Höfuðborgin 21 Kirkjustarf 44 Akureyri 22 Bréf 48 Suðurnes 23 Dagbók 50/51 Austurland 24 Staksteinar 50 Landið 25 Sport 52/54 Daglegt líf 26/27 Fólk 56/61 Listir 28/29 Bíó 58/61 Umræðan 30/38 Ljósvakamiðlar 62 Forystugrein 32 Veður 63 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ ákvað í gær, að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar, að auka heildarloðnukvóta yfirstandandi vertíðar úr 555 þúsund tonnum í 635 þúsund tonn. Loðnukvóti ís- lenskra skipa eykst við þetta um 135 þúsund tonn eða í 497 þúsund tonn en það er nærri 270 þúsund tonnum minni kvóti en á síðustu vertíð. Ákvörðun þessi er tekin að loknum mælingum hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar út af austur- og norðausturmiðum. Alls mældust í leið- angrinum 780 þúsund tonn af kynþroska loðnu. Miðað er við að 400 þúsund tonn af loðnu verði skil- in eftir til hrygningar. Eftir þessa aukningu loðnu- kvótans er hlutur íslenskra loðnuskipa orðinn rúm 497 þúsund tonn á þessari vertíð en upphafsúthlut- un var rúm 362 þúsund tonn. Nú er því bætt 135 þúsund tonnum við fyrra aflamark. Loðnukvóti ís- lenskra skipa á síðustu vertíð var 765 þúsund tonn. Erlendum skipum verður eftir aukningu kvótans heimilt að veiða 138 þúsund tonn af loðnu innan ís- lenskrar landhelgi á vertíðinni. Veiði þau ekki þann kvóta innan tilskilins tíma rennur hann til íslenskra skipa. Hins vegar verður að teljast líklegt að er- lendu skipin muni veiða það sem þeim er heimilt, fjölmörg norsk skip eru nú á miðunum fyrir austan land, enda eru loðnuveiðar í Barentshafi ekki heim- ilar á þessu ári. Kraftur í manneldisvinnslunni Teitur Gylfason, deildarstjóri uppsjávarfisks hjá SÍF, segir að vissulega hefði verið best að auka kvótann sem mest út frá markaðslegum forsend- um, enda séu nú markaðir fyrir frosnar loðnuafurð- ir afar hagstæðir. Hann segir að aukningin í gær muni þó ekki hafa afgerandi áhrif á markaðinn. „Loðnufrystingin fór af stað með talsverðum krafti á vertíðinni og menn virðast vera að nýta kvótann mjög vel til manneldis. Það er jafnvel útlit fyrir að framboðið verði meira en á síðustu vertíð. Það eru góðir markaðir fyrir frosnar loðnuafurðir núna en það er mat okkar að það sé mikilvægt að menn eigi eftir kvóta þegar kemur að hrognatöku. Það felast miklir framtíðarhagsmunir í því að framleiða mikið af hrognum í ár til að sinna þeim mörkuðum sem byggðir hafa verið upp á undanförnum árum,“ segir Teitur. Loðnukvóti íslenskra skipa aukinn um 135 þúsund tonn 270 þúsund tonnum minni kvóti en í fyrra MARON Björnsson, skipstjóri á nóta- og tog- veiðiskipinu Guðmundi Ólafi ÓF, segist ekki hafa skoðun á því hver loðnukvótinn eigi að vera en gagnrýnir aðferðirnar sem notaðar eru til að ákvarða heildarkvótann. „Það er vonlaust að vinna eftir þessu,“ segir Maron. „Ég held að þessi vísindi séu, því miður, svo haldlítil að við getum ekki byggt neitt á þeim. Ég get ekki frekar en vísindamennirnir fullyrt hvað er mikið af fiski í sjónum. Ég veit að við höfum veitt eitthvert meðaltal sl. 20 ár og við höfum farið í gegnum allar mögulegar gerðir af loðnuvertíðum, frá því að veiða ekkert og upp í að veiða milljón tonn þremur árum seinna, en það segir mér ekkert um það hvað hefur verið mikið af fiski í sjónum á þessum tímapunkti. Þessi tonnatala sem kemur núna segir mér held- ur ekki neitt því þeir hafa ekki hugmynd um, frekar en við, hvað er mikið af fiski í sjónum.“ Segir ekki hægt að byggja á mælingunum HESTAMENN þjálfa hesta sína á sléttri gljánni víðsvegar á landinu og sprettu þessir fákar úr spori á ísilögðu Pollenginu skammt frá Fellskoti í Biskupstungum. Heim- ilisfólkið í Fellskoti virtist njóta reiðtúrsins jafnvel og hestarnir, enda veður gott þótt gola biti kinn og gott útsýni yfir snæviþakið Bjarnafellið. Hver veit nema reiðmönnunum hafi dottið í hug orð Bjarna Hall- dórssonar frá Uppsölum í Skaga- firði þegar hann orti: Fjörið blikar augum í, aldrei hik í spori. Lundin mikil, hrein og hlý, hlaðin kviku þori.Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Hestar á hálum ís MATTHÍAS Viðar Sæmundsson, bók- menntafræðingur og dósent í íslensku við Háskóla Íslands, lést þriðjudaginn 3. febr- úar síðastliðinn, 49 ára að aldri. Matthías Viðar fæddist í Reykjavík 23. júní 1954. Foreldrar hans voru Guðrún Árný Guðmundsdóttir húsmóðir og Sæmund- ur Bergmann Eli- mundarson, sjúkraliði og kaupmaður, en fóst- urforeldrar Jóhanna Guðmundsdóttir matráðskona og Sigurður Sigurðsson verkamaður. Að loknu stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð 1974 tók Matthías Viðar BA-próf í almennri bókmenntafræði og íslensku frá Há- skóla Íslands 1979 og cand.mag.-próf í íslenskum bókmenntum 1980 auk þess sem hann stundaði nám í sam- anburðarbókmenntum við háskólann í Montpellier í Frakklandi 1978. Veturinn 1974 til 1975 var Matthías Viðar kennari við Grunnskóla Ólafs- víkur. Hann kenndi við Fjölbrauta- skóla Suðurnesja 1981 til 1982, við Fjölbrautaskóla Suðurlands 1983 til 1985, hann var lektor í ís- lensku við háskólann í Róm á Ítalíu 1983, lektor í íslenskum bókmenntum við HÍ 1985 til 1991 og dósent frá 1991. Auk þess var hann umsjónarmaður menningarþátta í Sjón- varpinu 1982 til 1984, bókmenntagagnrýnandi 1981 til 1986 og flutti vikulega pistla um menn- ingarmál í Ríkisútvarp- inu 1990 til 1991. Eftir Matthías Viðar liggja nokkrar frum- samdar bækur og hann sá um útgáfu á öðrum og ritstýrði. Hann gerði nokkrar heimildamyndir fyrir sjónvarp og hélt fjölda erinda, meðal annars um íslenska bókmenntasögu, hrollvekjur, galdra, heimspeki og ým- is íslensk skáld. Þá hefur birst eftir hann fjöldi greina og ritgerða í blöð- um, tímaritum og bókum frá 1980. Matthías Viðar var stofnandi og formaður Kistunnar, vefrits um listir og fræði, frá 1999 og formaður ís- lenskuskorar við heimspekideild HÍ 2000 til 2002. Eftirlifandi eiginkona Matthíasar Viðars er Steinunn Ólafsdóttir leik- kona. Hann lætur einnig eftir sig dótt- ur þeirra og stjúpdóttur. Andlát MATTHÍAS VIÐAR SÆMUNDSSONEKIÐ var á 7 ára gamla stúlku þar sem hún gekk yfir Miklubraut- ina á gatnamótum Lönguhlíðar og Miklubrautar um kl. 11 í gær- morgun. Stúlkan dróst með bílnum um 13 metra en reyndist þrátt fyr- ir það lítið slösuð. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild en meiðsli hennar eru ekki talin al- varleg. Ekið á 7 ára stúlku á Miklubraut
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.