Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 58
EINN þekktasti tökumaður Evrópu, sem einkum hefur orðið brautryðjandi í þróun staf- rænu tökutækninnar er væntanlegur til Ís- lands undir lok mánaðarins og mun halda nám- skeið með íslenskum kvikmyndagerðarmönn- um. Hann heitir Anthony Dod Mantle, er breskur en hefur unnið mikið í Danmörku með dogmaleikstjórunum við myndir á borð við Festen, Mifunes sidste sang og nú síðast tók hann m.a. Dogville von Triers, It’s All About Love Winterbergs og ekki síst breska smellinn og framtíðarhrollinn 28 Days Later eftir Danny Boyle. Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvik- myndamiðstöðvar Íslands, segir að námskeiðið verði haldið síðustu helgina í febrúar og þetta sé mikill fengur fyrir íslenskt kvikmyndagerð- arfólk. Laufey segir að heimsókn hans sé að miklu leyti til komin fyrir tilstilli Valdísar Óskarsdóttur klippara, sem hefur unnið með honum að gerð nokk- urra áðurnefndra mynda. „Þessi töku- maður er fremstur í álfunni í dag og kannski víðar. Hann fékk verðlaun, sem besti tökumaður hjá Evrópsku kvikmyndaakademíunni í desember. Hann hefur nýtt sér stafræna upptökutækni mjög meðvitað og markvisst,“ segir Laufey um Mantle. Hún segir að námskeiðið byrji föstudaginn 27. febrúar með myndum sem hann hafi tekið. „Þær verða sýndar þátttakendum og verða grunnur að umfjöllun,“ segir hún og verður dagskránni síðan haldið áfram um helgina. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær verða fjölmargir Ís- lendingar með framlag á Kvik- myndahátíðinni í Berlín, sem hefst í dag. Ber þar hæst Kaldaljós, sem valin hefur verið til þátttöku á sér- stakan Panorama-hluta. Laufey seg- ir þetta ánægjulegt en hún sækir sjálf hátíðina og fylgist náið með. „Það eru óvenjumargir sem eru þarna í dagskrá sem er skipulögð af Berlínarhátíðinni og sérstaklega val- ið inn á hátíðina. Það er ekki hver sem er sem kemst þarna inn.“ Laufey bætir að lokum við tvennu sem ekki kom fram í gær. Sólveig Arnarsdóttir fer með eitt aðalhlutverkanna í þýsku myndinni á Milli nætur og dags (Zwischen Nacht und Tag) og María Sólrún Sigurðardóttir, sem hefur verið búsett í Berlín lengi vel, leikstýrir unglinga- myndinni Jargo. Hátíðinni lýkur 15. febrúar. Verður með námskeið Brandon Hickman/WireImage.com Anthony Dod Mantle er breskur en hefur unnið mikið í Danmörku með dogma- leikstjórum. Þessi mynd er úr It’s All About Love eftir Thomas Vinterberg með Joaquin Phoenix og Claire Danes í aðalhlutverkum. Anthony Dod Mantle Hinn þekkti kvikmyndatökumaður Anthony Dod Mantle til landsins Námskeiðið verður haldið síðustu helgina í febrúar. Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á valdis@kvikmyndamidstod.is. 58 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 Sýnd kl. 6. Síðasta sýning! Kvikmyndir.com Tilnefning til óskarsverðlauna1 Sannkölluð kvikmyndaperla í anda Forrest Gump. Í leikstjórn Tim Burtons. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. SV Mbl. HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 3.45 og 5.50. Stórskemmtileg gamanmynd með Brittany Murphy (8 Mile og Just Married) sem fer að passa ríka litla stelpu eftir að hún stendur uppi peningalaus. Með hinni frábæru Dakotu Fanning.  Kvikmyndir.com Tilnefning til óskarsverðlauna1 Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 4, 6 og 8. B.i. 12. kl. 5 og 9. Yfir 90.000 gestir TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE-VERÐLAUNA. M.A. SEM BESTA MYNDIN OG BESTI AUKALEIKARI 11 Tilnefningar til óskarsverðlauna Sýnd kl. 4. Með ísl. tali. Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. Sannkölluð kvikmyndaperla í anda Forrest Gump. Í leikstjórn Tim Burtons. „Glæsilegt ævintýri. Hreinn unaður frá upphafi til enda.“ Fréttablaðið SV Mbl. Á DÖGUNUM fékk söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu sína Óður til Ellyj- ar, hljómleikaplötu sem tekin var upp í Salnum í Kópavogi. Guðrún mun flytja lög af plötunni í kvöld á Hótel Borg í Gyllta salnum og einnig næsta fimmtudag. Sérstakur gestur verð- ur Stefán Hilmarsson en hljómsveit Guðrúnar skipa Eyþór Gunnars- son, píanó, Sigurður Flosason, saxófónar, klarinett, þverflauta og slagverk, Birgir Bragason, kontrabassi, Erik Qvick, trommur og Eyjólfur Kristjánsson, gítar. Platan Óður til Ellyj- ar var tekin upp í Saln- um, Kópavogi, hinn 14. nóvember 2002. Platan kom hins vegar út í fyrrasumar. Hún fékk lofsamlega dóma en þar heiðrar Guðrún minn- ingu söngkonunnar Ell- yjar Vilhjálms. Platan er fyrsta sólóplata Guðrúnar. Guðrún Gunnarsdóttir á Hótel Borg Óðurinn endurtekinn Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00. Forsala er hafin á Hótel Borg. Guðrún Gunnars- dóttir. BANDARÍSKA rokksveitin Korn mun leika í Laug- ardalshöll 30. maí næstkomandi. Korn, sem stofnuð var í Kaliforníu árið 1992, reyndist áhrifamesta rokksveit tíunda áratugarins. Hún er forvígissveit í hinu svokallaða ný-þungarokki (nu-metal, hip-hop massive) þar sem hipp-hoppi og þungarokki er blandað saman með djúpstæðum textum. Korn mun hefja Evrópuferð sína vegna nýútkominnar plötu sem ber nafnið Take a Look In the Mirror í Reykjavík. Platan kom út í nóvember síðastliðnum. Korn hefur gefið út sex breið- skífur sem hafa selst í tugum milljóna eintaka um allan heim. Korn (’94), Life Is Peachy (’96) og Follow the Leader (’98) þykja allt skotheldar smíðar. Sveitin brást svo við æ meiri vinsældum ný- þungarokksins (og útvötnun) með hinni innhverfu en níðþungu Issu- es árið 1999 og sýndu þar og sönnuðu hverjir væru leiðtogarnir. Plata þeirra Untouchables, frá 2002, er þá talin dýrasta rokk- plata sem gerð hefur verið, en þeir félagar lágu yfir smíðinni í þrjú ár. Take a Look In the Mirror hef- ur þá verið að fá mjög góða dóma og segja rokkspekingar að Korn hafi enn og aftur náð að end- urskapa sig án þess þó að tapa niður því sem gerir Korn að Korn. Upphitunaratriði á tónleikunum verða kynnt er nær dregur. Korn í Laugardalshöll 30. maí 2004 Áhrifamesta rokksveit síðustu ára Miðasala hefst í verslunum Skíf- unnar á Laugavegi 26, Smára- lind og Kringlunni sunnudaginn 29. febrúar klukkan 21.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.