Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 1
Samherji og Kaldbakur
Öflugir samherjar á
norðurslóð | 12–13
S-hópurinn
Skiptist í tvær blokkir | 6–7
Jón Helgi Guðmundsson
Byggir veldi upp á
eigin spýtur | 5
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
Miklar sviptingar hafa átt sér stað í íslensku
viðskiptalífi undanfarin ár. Stórveldi hafa komið
og farið. Ef litið er yfir íslenskt viðskiptalíf í byrj-
un ársins 2004 má sjá að sjö viðskiptastórveldi
eiga stóran hluta af þeim fyrirtækjum sem hinn al-
menni borgari á samskipti við. Í blaðinu eru sýnd
umsvif þeirra án þess þó að um tæmandi lista sé að
ræða. Félögunum er ekki raðað á síður eftir neinni
ákveðinn forskrift, hvorki eftirstærð né umfangi.
Eignir sem Baugur Group og tengd félög eiga
eða stýra í Bretlandi eru yfir 50 milljarða króna
virði. Eignir Baugs hér á landi eru enn meiri en
vöxturinn er mun hraðari erlendis. Eigendur
Baugs Group eru Gaumur, sem er í eigu Jóhann-
esar Jónssonar og fjölskyldu. Gaumur á meirihlut-
ann í Baugi. Aðrir hluthafar eru KB-banki, Ingi-
björg Pálmadóttir og Vor, sem er í eigu Péturs
Björnssonar, fyrrverandi eiganda Vífilfells.
Baugur og eignarhaldsfélög í eigu Pálma Har-
aldssonar hafa víða fjárfest saman, meðal annars í
Norðurljósum og Högum.
KB banki stór í VÍS
KB-banki er stærsti banki landsins og næstverð-
mætasta félagið sem skráð er í Kauphöll Íslands
en markaðsvirði bankans er tæpir 111 milljarðar
króna. Meðal eigna KB-banka er tæplega 30%
hlutur í Vátryggingafélagi Íslands. VÍS er einnig
hluthafi í KB-banka, bæði í eigin nafni og í gegn-
um Eglu.
Félögin sem teljast til S-hópsins og keyptu hlut
ríkisins í Búnaðarbankanum eru VÍS, Ker, Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn og Eignarhaldsfélagið
Samvinnutryggingar. Félögin hafa um árabil
tengst þéttum böndum og sömu einstaklingar
gjarnan skipað stjórnir þeirra.
Ýmis önnur félög hafa einnig tengst þessum
hópi eignalega og stjórnunarlega séð. Á síðustu
árum hafa tengslin hins vegar verið að rofna þó
svo að enn sé að finna tengingar t.d. í gegnum KB
banka, SÍF og Samskip.
Samson er ein umsvifamesta viðskiptasam-
steypa landsins með áhrif í fjármálum, flutning-
um, lyfjaframleiðslu og bókaútgáfu. Á öllum þess-
um sviðum eru áhrif þeirra Björgólfs
Guðmundsonar, Björgólfs Thors Björgólfssonar
og Magnúsar Þorsteinssonar umtalsverð, saman
eða hvers í sínu lagi, umtalsverð.
Næsta víst er að kaup Samsonar á hlut ríkisins í
Landsbanka Íslands á sinn þátt í þeim breytingum
sem orðið hafa í viðskiptalífinu undanfarna mán-
uði.
5 stærstu í SH með 95%
Íslandsbanki hefur vaxið umtalsvert á síðustu ár-
um og þá ekki síst á síðasta ári. Munar þar mikið
um kaupin á Sjóvá-Almennum. Íslandsbanki er
eini íslenski viðskiptabankinn þar sem enginn einn
hluthafi á yfir 10% hlut. Aftur á móti er staðan
öðruvísi ef litið er til Straums fjárfestingarbanka.
Þar er Íslandsbanki ásamt Sjóvá-Almennum með
31,4% hlut og langstærsti hluthafinn. Íslands-
banki, Sjóvá-Almennar og Straumur ráða síðan
yfir 41,4% hlut í SH en Burðarás og Landsbankinn
eiga samanlagt 53,42% hlut í SH. Samanlagt eiga
því fimm stærstu hluthafar SH tæplega 95%
hlutafjár.
Jón Helgi Guðmundsson, eigandi Byko, hefur
ekki farið hátt í opinberri umræðu en viðskipta-
veldi hans hefur vaxið mjög á undanförnum miss-
erum. Má þar nefna kaup hans á Kaupási, næst-
stærstu verslunarkeðju landsins, og kaup á um
38% hlut í Flugleiðum með tengdasyni sínum
Hannesi Smárasyni.
Kaldbakur og Samherji eru öflugir samherjar á
norðurslóð. Samherji er eitt öflugasta sjávarút-
vegsfyrirtæki landsins og á yfirstandandi fisk-
veiðiári fékk félagið stærstu einstöku úthlutunina
eða um 8% heildarkvótans. Ein helsta eign Kald-
baks ef horft er fram hjá eign í Samherja, er tæp-
lega þriðjungshlutur í Tryggingamiðstöðinni.
Sjö umsvifamiklir í
íslensku viðskiptalífi
Úttekt á umsvifum sjö viðskiptavelda í íslensku athafna- og viðskiptalífi
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Peningabréf – Góð og örugg skammtímaávöxtun
6,0%*
Kynntu þér ótvíræða kosti
Peningabréfa hjá ráðgjöfum í útibúum
Landsbankans eða í síma 560 6000.
Peningabréf Landsbankans gefa einstaklingum, fyrirtækjum,
sveitarfélögum og öðrum fjárfestum tækifæri til að ná góðri og öruggri
ávöxtun þó að fjárfest sé til mjög skamms tíma.
* Nafnávöxtun frá 01.01.2004–31.01.2004 á ársgrundvelli. ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
32
63
0
2/
20
04
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
32
63
0
2/
20
04
www.landsbanki.is
Baugur
Umsvifamesta
viðskiptaveldið | 2- 4
Samson
Í miðju mikilla breytinga
í viðskiptalífinu | 8–9
Íslandsbanki og
Straumur
Ekki ein heild en
sterk tengsl | 10–11
KB banki
Stór og umsvifamikill | 14–15