Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 4
4 B FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI mætis félaganna sem Baugur stýrir
er hins vegar meira eða yfir 50
milljarðar króna.
Fyrir utan þær eignir erlendis
sem hér hafa verið nefndar eiga
Hagar eina Debenhams-verslun og
fimm TopShop-verslanir í Svíþjóð.
Félagið hefur einnig rekið fjórar
Miss Selfridge-verslanir í Svíþjóð,
en þeim var lokað um síðustu mán-
aðamót þar sem vaxtarmöguleikar
þóttu litlir og reksturinn hafði
gengið misjafnlega. Tvær þessara
verslana voru notaðar til að stækka
Debenhams-verslanir fyrirtækisins,
en allar fjórar verslanirnar voru
litlar. Félagið hefur sérleyfi fyrir
bresku verslanakeðjuna Deben-
hams á Norðurlöndum og ætlar að
opna nýja verslun í Kaupmanna-
höfn 9. mars næstkomandi. Hagar
starfrækja verslanir undir öllum
þessum þremur merkjum hér á
landi.
Fengur kominn inn í Haga
Allar þessar verslanir eru hluti af
Högum, áður Baugi Íslandi, sem
eru að 32% í eigu Baugs, 26% í eigu
Stoða og 12% í eigu Gaums. Félög
á vegum Pálma Haraldssonar,
Fengur og Fons, eignuðust nýlega
20% í Högum, og nokkrir aðrir eiga
mun minna, svo sem félagið Vor.
Hagar eiga auk fyrrnefndra
verslana meðal annars verslanirnar
Hagkaup, Bónus, 10-11, Útilíf,
Lyfju og Zara. Samtals eiga Hagar
83 verslanir, auk þess að eiga vöru-
hótelið Hýsingu og innkaupafyrir-
tækið Aðföng. Velta Haga rekstr-
arárið sem lauk 28. febrúar í fyrra
var 35 milljarðar króna og veltan á
fyrstu sex mánuðum þessa reikn-
ingsárs var 18 milljarðar króna.
Gera verður ráð fyrir að veltan sé
meiri á seinni helmingi rekstrarárs-
ins og veltan hefur því aukist nokk-
uð milli ára. Bókfærðar eignir
Haga námu um 20 milljörðum
króna í lok ágústs síðastliðins.
Hagar eru eins og áður segir
uppistaðan í innlendum hluta
Baugsveldisins og voru það enn
frekar þegar Baugur var keyptur
af markaði í fyrrasumar. Fyrirtæk-
ið var metið á 26 milljarða króna í
yfirtökutilboðinu, en stór hluti
eigna þess var erlendis. Félaginu
var síðan skipt upp með því að
Hagar, sem áður hétu Baugur Ís-
land og eiga innlenda og sænska
verslunarhlutann, voru gerðir að
sjálfstæðu félagi. Kaupandi Baugs
af markaði var félagið Mundur,
sem var í eigu Gaums, Kaupþings,
Vors, og Ingibjargar Pálmadóttur
og félags í hennar eigu.
Baugur á fjölda annarra inn-
lendra fjárfestinga, ýmist að fullu
eða að hluta til. Félagið á tæpan
helming Fasteignafélagsins Stoða,
sem varð til í núverandi mynd við
samruna Þyrpingar og Stoða haust-
ið 2002. Baugsveldið, þ.e. Baugur
og tengdir aðilar, eiga um 2⁄3 hluta
Stoða, en þá er litið á Ingibjörgu S.
Pálmadóttur og félag í hennar eigu
sem tengda aðila. Aðrir eigendur
Stoða eru KB banki sem á 21,5%,
auk SPRON og Kaldbaks sem eiga
vel innan við 10% hvort félag. Stoð-
ir eiga svo aftur ríflega fjórðung í
Högum eins og sjá má á meðfylgj-
andi korti. Fasteignafélagið Stoðir
er sem fyrr segir stærsta fasteigna-
félag landsins með 56 sjálfstæðar
byggingar og heildareignir að fjár-
hæð um 30 milljarða króna. Margar
bygginganna eru mjög stórar og
áberandi, svo sem Kringlan, Holta-
garðar, Nordica Hótel, Hótel Loft-
leiðir, Glæsibær og Spöngin, svo
nokkrar séu nefndar.
Fjórðungur í Kaldbaki
Baugur á rúmlega 21% hlut í Flug-
leiðum og þar á Fengur nálægt 6%.
Samanlagður hlutur þessara
tveggja aðila er um 27%.
Markaðsverð eignarhlutar Baugs
í Flugleiðum er um 3,4 milljarðar
króna og eignarhlutar Fengs rúm-
lega 900 milljónir króna. Eftir ný-
leg kaup af Straumi, Íslandsbanka
og Sjóvá-Almennum er Oddaflug
orðið stærsti hluthafi Flugleiða
með 38,5%, en eigendur þess félags
eru Hannes Smárason, aðstoðarfor-
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
og tengdafaðir hans, Jón Helgi
Guðmundsson, eigandi BYKO.
Húsasmiðjan var keypt af hluta-
bréfamarkaði á haustmánuðum árið
2002 og síðan hefur Baugur átt 45%
hlut í því félagi, en meirihluti er í
eigu félaganna Árna Haukssonar,
forstjóra Húsasmiðjunnar, og Hall-
björns Karlssonar, fjármálastjóra
hennar. Húsasmiðjan var keypt af
markaði á tæpa 5,4 milljarða króna
og hlutur Baugs var því um 2,4
milljarðar króna, en þar sem félag-
ið er ekki lengur á markaði er erfitt
að segja til um verðmæti þess nú.
Auk þess að vera verulega umsvifa-
mikið á byggingavörumarkaði á fé-
lagið aðrar eignir, svo sem fjórð-
ungshlut í Steinullarverksmiðjunni
og Blómaval að fullu.
Í þessu sambandi má einnig
nefna að Baugur keypti seint á síð-
asta ári helmingshlut í Blómaverk-
stæði Binna, sem rekur verslanir
við Skólavörðustíg, í Kringlunni og
í Smáralind. Félag Pálma Haralds-
sonar, Fons, á helming á móti
Baugi.
Baugur er einnig í trygginga-
starfsemi í gegnum 100% eign í
Hrafnabjörgum sem eiga 65% í
Hring. Annar helsti eigandi Hrings
er Sparisjóður Kópavogs, sem á
fimmtungshlut, auk nokkurra
smærri hluthafa. Hringur á trygg-
ingafélagið Allianz á Íslandi að
fullu og keypti auk þess helmings-
hlut í Verði Vátryggingarfélagi á
Akureyri síðastliðið haust. Hinn
helmingur Varðar er í eigu 2–3.000
viðskiptavina félagsins, en Vörður
var áður gagnkvæmt trygginga-
félag. Baugur greiddi um 300 millj-
ónir króna fyrir hlutinn í Verði og
forsvarsmenn félagsins hafa sagt
að þeir telji mikla möguleika á
vexti í starfsemi þess. Þann fyr-
irvara verður þó að setja hér að
Fjármálaeftirlitið á eftir að sam-
þykkja þessi kaup Baugs.
Baugur og Fengur eiga 42% í
Tæknivali hvort félag, en 16% eru í
eigu Fludir Holding, sem er félag í
eigu Ragnars Kristins Kristjáns-
sonar á Flúðum. Þessi eign í
Tæknivali er í gegnum félagið
Grjóta, sem keypti AcoTæknival,
eins og fyrirtækið hét þá, af mark-
aði. Þetta gerðist seint á síðasta
ári, en félögin höfðu keypt sig inn í
félagið ári áður.
Tæknival hefur um langt skeið
átt í rekstrarerfiðleikum og gengið
í yfirtökutilboðinu var 0,4 og verð-
mæti félagsins miðað við það gengi
var 175 milljónir króna. Fyrir fá-
einum dögum, í lok janúar, var
verslunarsvið félagsins, sem sam-
anstóð af BT, Office 1 og Sony setr-
inu, selt inn í Norðurljós í tengslum
við endurskipulagningu þess félags
og erfitt er að segja til um verð-
mæti Tæknivals í dag, en ljóst er
að það er lítið miðað við flestar aðr-
ar eignir Baugsveldisins. Norður-
ljós eru, líkt og Tæknival, að
stærstum hluta í eigu Baugs og
Fengs.
Baugur á tæp 15% í fjárfesting-
arfélaginu Kaldbaki, og er hlutur-
inn um 11⁄2 milljarðs króna virði
miðað við núverandi gengi. Fengur
á tæplega 10% í félaginu, sem er
um 1 milljarðs króna virði, en þessi
eign er tvískipt. Annars vegar er
beinn 6% hlutur og hins vegar tæp-
lega 4% með framvirkum samningi
sem skráður er hjá Arion verð-
bréfavörslu, dótturfélagi KB banka.
Samanlagður hlutur Baugs og
Fengs er því tæplega 25%.
Aðrir helstu hluthafar eru Kaup-
félag Eyfirðinga með 27% og Sam-
herji með 25%. Kaldbakur á 18% í
Samherja og aðrar helstu eignir
Kaldbaks eru Tryggingamiðstöðin,
33%, og Íslandsbanki, rúm 4%.
Nýja fjölmiðlaveldið
Norðurljós hafa verið mikið í frétt-
um á síðustu mánuðum og miss-
erum vegna alvarlegra fjárhagserf-
iðleika, en nú hafa nýir eigendur
komið að félaginu, endurskipulagt
fjárhag þess og telja að erfiðleikar
þess séu að baki. Eftir eignabreyt-
ingar síðustu vikna er meirihluti
Norðurljósa í höndum Baugsveld-
isins. Stærstu eigendur eru Baugur
og Fengur bæði beint og í gegnum
önnur félög, en samtals er hluti
þeirra félaga sem þessir tveir aðilar
ráða rúmlega 58% og þar af á
Baugur rúmlega 30% beint og
meira óbeint í gegnum Grjóta. Aðr-
ir eigendur eru Hömlur, fullnustu-
félag Landsbankans, og Kaldbakur.
Minni hluthafar eiga samtals 18%
og óseld hlutabréf eru 11%.
Norðurljós tóku miklum breyt-
ingum í lok síðasta mánaðar þegar
tilkynnt var að Frétt, útgáfufélag
Fréttablaðsins og DV, auk fyrr-
nefndra þriggja verslana Tæknivals
hefðu verið sameinuð félaginu. Eft-
ir sameininguna eru Norðurljós það
fjölmiðlafyrirtæki landsins sem
nær eyrum og augum flestra lands-
manna, en það er með fimm sjón-
varpsstöðvar auk erlendu sjón-
varpsstöðvanna á Fjölvarpinu, tíu
útvarpsrásir, þar á meðal Bylgjuna,
og tvö dagblöð.
En Norðurljós eru ekki aðeins
hefðbundið fjölmiðlafyrirtæki, held-
ur líka allsherjar afþreyingarfyr-
irtæki. Meðal annarra eigna þess
er Skífan, sem gefur út tæpan
þriðjung tónlistar í landinu og er
auk þess með um 85% markaðs-
hlutdeild í sölu tónlistar og tölvu-
leikja eftir að verslunarsviði
Tæknivals hefur verið bætt við fyr-
irtækið. Skífan á líka tvö kvik-
myndahús, Smárabíó og Regnbog-
ann.
Áætluð velta Norðurljósa í ár er
10 milljarðar króna og heildareign-
ir eru um 11 milljarðar króna.
Stefnt er að því að skrá hlutabréf
Norðurljósa í Kauphöll Íslands á
næsta ári, en núverandi verðmæti
félagsins er nokkuð óljóst. Hlutafé
þess er rúmir þrír milljarðar króna,
en skiptar skoðanir hafa verið um
hvort gengi bréfa þess ætti að vera
nær einum eða tveimur og þar með
hvar á bilinu þrír til sex milljarðar
króna verðmæti félagsins ætti að
liggja.
120 milljarða króna eignir
Eins og áður sagði eru eignir sem
Baugur og tengd fyrirtæki ráða yf-
ir í Bretlandi yfir 50 milljarða
króna virði og eignirnar sem Baug-
ur og tengd félög eiga eða stýra
hér á landi eru líklega um 70 millj-
arða króna virði. Samtals eru þetta
um 120 milljarða króna eignir sem
Baugsveldið ræður yfir hér á landi
og erlendis, en rétt er að taka
tvennt fram. Annars vegar að hér
er um nokkuð grófa nálgun að ræða
og skekkjan getur verið talsverð,
og hins vegar að heildarverðmæti
eigna fyrirtækja er ekki sami hlut-
urinn og verðmæti fyrirtækjanna
sjálfra eða hrein eign eigenda
þeirra sem er líklega umtalsvert
minni. Eignirnar sem Baugsveldið
stýrir gefa hins vegar ákveðna hug-
mynd um umsvifin. Eins og sagði
hér í upphafi eru umsvifin í tilviki
Baugs og tengdra félaga reyndar
mun sýnilegri en hjá flestum öðrum
stórum fyrirtækjum í viðskiptalíf-
inu vegna eðlis starfsemi fyrir-
tækja Baugsveldisins.
haraldurj@mbl.is
! "
#
#
"$ %$&
'()*(+,)-./0/102%
*1314))0+"055& ( (&
'()*(+,4+(2675/4("02&&&
#&