Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 12
MIKIL tengsl eru á milli Sam-
herja hf. á Akureyri, eins öflugasta
sjávarútvegsfyrirtækis Íslands, og
fjárfestingafélagsins Kaldbaks, sem
einnig hefur aðsetur í höfuðstað
Norðurlands. Kaldbakur er nú, eftir
að Straumur varð að fjárfestingar-
banka, stærsta skráða félag landsins
á sviði fjárfestinga. Kaldbakur á
17,21% í Samherja hf. sem á svo aft-
ur 25% hlut í Kaldbaki. Í stjórn
Kaldbaks sitja m.a. Kristján Vil-
helmsson, einn eigenda Samherja,
og frændi hans, Þorsteinn Már Bald-
vinsson, einn eigenda og forstjóri
Samherja, er annar tveggja í vara-
stjórn. Þá er Eiríkur S. Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Kaldbaks, annar
tveggja varamanna í stjórn Sam-
herja.
Markaðsverð Kaldbaks í dag er
um 10 milljarðar króna en markaðs-
virði Samherja 16,6 milljarðar.
20 ára ævintýri
Samherji fagnaði stórafmæli á síð-
asta ári; þá voru tuttugu ár síðan
frændurnir Þorsteinn Már Baldvins-
son og Kristján og Þorsteinn Vil-
helmssynir keyptu fyrirtækið og
fluttu aðsetur þess til Akureyrar. Þá
má segja að Samherjaævintýrið hafi
hafist og stendur það enn. Starfsemi
fyrirtækisins teygir anga sína víða
um lönd.
Saga Kaldbaks er ekki jafn löng,
en grunnur félagsins þó mun eldri en
stofndagurinn segir til um. Félagið
var stofnað 1. janúar 2002 þegar
Kaupfélagi Eyfirðinga var skipt í
annars vegar samvinnufélag með á
áttunda þúsund félagsmenn og hins
vegar umrætt fjárfestingarfélag,
sem heldur utan um eignir KEA svf.
Kaupfélag Eyfirðinga hafði það að
markmiði á sínum tíma að fjárfesta
einungis í Eyjafirði en sú er alls ekki
raunin með Kaldbak; þar er landið
allt undir og útlönd einnig, ef svo ber
undir. Kaldbakur var í upphafi
byggður að talsverðu leyti upp í
kringum óskráð bréf en eignarhlutir
félagsins í litlum fyrirtækjum voru
síðan settir inn í Sjöfn á Akureyri
sem sinnir þeim nú.
Arðsemi og áhætta
Kaldbakur er skilgreindur sem arð-
semis- og áhættufjárfestir. Markmið
félagsins er „hámarka arð hluthafa
með kaupum og sölu hluta- og
skuldabréfa. Fjárfestingastefna fé-
lagsins tekur mið af þróun einstakra
atvinnugreina og aðstæðum á inn-
lendum og erlendum fjármálamörk-
uðum hverju sinni,“ eins og segir á
vef félagsins.
Þar segir einnig: „Kaldbakur er
arðsemisfjárfestir og stefnir að
áhrifum í þeim félögum sem fjárfest
er í hverju sinni eitt og sér eða í sam-
starfi við aðra aðila til að hafa áhrif á
stefnumótun og stjórnun fyrirtækja.
Áhrifum þessum nær félagið með
því að eiga virka eignarhluti og þar
með fulltrúa í stjórn viðkomandi fé-
laga. Fjárfest verður jöfnum hönd-
um í skráðum sem óskráðum hluta-
bréfum allt eftir fjárfestingatæki-
færum hverju sinni. Kaldbakur
hyggst einnig fjárfesta í skráðum
skuldabréfum allt eftir aðstæðum
hverju sinni. Það er stefna Kaldbaks
að fjárfesta í félögum í þroskuðum
atvinnugreinum þar sem vara eða
þjónusta viðkomandi fyrirtækis er
þekkt og á sér sögu. Kaldbakur fjár-
festir ekki í framtaks- eða nýsköp-
unarverkefnum.“ Helstu eignir
Kaldbaks eru tæplega 18% hlutur í
Samherja, 32,84% hlutur í Trygg-
ingamiðstöðinni og um 4,2% hlutur í
Íslandsbanka, en Kaldbakur er
stærsti einstaki eigandi Samherja og
meðal stærstu einstakra hluthafa í
tveimur hinum síðarnefndu.
Þá má geta þess að Kaldbakur á
nú 5,6% í Norðurljósum.
Rétt er að rifja upp að Kaldbakur
gerði atlögu að ríkisbönkunum í
hittifyrra, eins og frægt varð. Bauð í
en fékk ekki.
KEA og félagsmenn þess voru í
fyrstu einu eigendur Kaldbaks eftir
að eignir KEA voru færðar í hið nýja
félag. Það var hins vegar aldrei
markmið að KEA yrði eini eigand-
inn; frá upphafi var ljóst að efla ætti
félagið og fleiri fjárfestar yrðu
fengnir til liðs við það. Þeir fyrstu
bættust við snemma árs 2002, Sam-
herji og Lífeyrissjóður Norðurlands,
sem keyptu hluti fyrir 370 milljónir
króna að nafnvirði – sem er að mark-
aðsvirði nálega einn og hálfur millj-
arður. Á hluthafafundi félagsins í
árslok 2002 var svo samþykktur
samruni við Hlutabréfasjóð Íslands
hf. og tók hann gildi 1. júlí sama ár.
Við það jókst eigið fé Kaldbaks um
450 milljónir. Í fyrra var hlutafé svo
aukið um 266 milljónir að nafnverði
og var sú aukning m.a. notuð í því
skyni að greiða fyrir kaup félagsins á
11% eignarhlut í Tryggingamiðstöð-
inni. Við þá aðgerð jókst eigið fé fé-
lagsins um ríflega einn milljarð
króna.
Baugur eignast 15%
Nokkrar breytingar hafa síðar orðið
á eignarhaldi Kaldbaks, KEA hefur
t.d. selt hluta af sínum bréfum en er
þó enn stærsti einstaki eigandi í fé-
laginu með 27,01% hlut, Samherji
kemur næstur með 25% og Lands-
banki Íslands er nú skráður sem
þriðji stærsti eigandi Kaldbaks með
10,09% og Arion, félag í eigu KB
banka, fylgir í kjölfarið með 9,32%.
Fjárfestingarfélagið Baugur Gro-
up kveðst á vef sínum eiga 15% hlut í
Kaldbaki og mun þar um að ræða
þau rúmlega 10% sem skv. hluthafa-
lista eru skráð á Landsbanka Íslands
og um það bil helming bréfa sem
skráð eru í nafni Arion. Afgangurinn
af bréfum Arion í Kaldbaki munu,
eftir því sem Morgunblaðið kemst
næst, í eigu Fengs, eignarhalds-
félags Pálma Haraldssonar sem
gjarnan var kenndur við Sölufélag
garðyrkjumanna, og Jóhannesar
Kristinssonar, sem er búsettur í
Lúxemborg.
Fengur er í fimmta sæti yfir
stærstu hluthafa í Kaldbak með 6%
hlut – sem það eignaðist þegar KEA
seldi í fyrra – þannig að félagið á í
raun um 10% hlut í Kaldbak.
Það er því ljóst að breytingar
verða á stjórn Kaldbaks á næsta að-
alfundi en í aðalstjórn félagsins eru
nú Tryggvi Þór Haraldsson, formað-
ur, Kristján Vilhelmsson, varafor-
maður, Andri Teitsson, fram-
kvæmdastjóri KEA, Sigfús R.
Sigfússon, oft kenndur við Heklu í
Reykjavík, og Kári Arnór Kárason,
framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs
Norðurlands. Varamenn eru Þor-
steinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samherja, og Valdi-
mar Bragason á Dalvík.
Lífeyrissjóður Norðurlands er
sjötti stærsti hluthafi í Kaldbak, með
5,90%, Tryggingamiðstöðin kemur
næst með 3,89% og KB banki, sem
eignaðist bréf í Kaldbaki í síðustu
vikum, á nú 0,40% hlut í félaginu að
nafnvirði 6,9 milljónir króna. Eign-
arhaldsfélag Samvinnutrygginga og
Eignarhaldsfélagið Andvaka eiga
hvort um sig 0,38% og Úrvalsvísi-
tölusjóður BÍ litlu minna, 0,34%
rúmar 6 milljónir að nafnvirði. Kald-
bakur seldi í fyrra eignarhluti sína í
Íslenskum aðalverktökum hf., Bú-
stólpa ehf., Akva ehf., Fjárstoð ehf.
og Nýju kaffibrennslunni ehf. Á
sama tímabili keypti félagið eignar-
hluti í Tryggingamiðstöðinni hf.,
Síldarvinnslunni hf. og Sjöfn hf.
Síðari hluta ársins í fyrra seldi
Kaldbakur 50,4% óskráðan eignar-
hlut sinn í Samkaupum hf. og þar
með má segja að „Kaupfélag Eyfirð-
inga“ hafi endanlega hætt afskiptum
af verslunarrekstri. Kaupandi var
Kaupfélag Suðurnesja og áætlaður
bókfærður söluhagnaður Kaldbaks
hf. af sölunni er rúmlega 1.100 millj-
ónir króna.
Kaldbakur seldi einnig hlut sinn í
Lyfjum og heilsu, en félagið átti 46%
hlut. Félag í eigu Karls Wernersson-
ar, Ingunnar Wernersdóttur og
Steingríms Wernerssonar keypti og
var söluhagnaður Kaldbaks áætlað-
ur um 570 milljónir króna.
Þá seldi Kaldbakur Kaupfélagi
Eyfirðinga allan eignarhlut sinn í
Norðlenska matborðinu. Síðari hluta
árs í fyrra seldi Kaldbakur einnig
Hafnarstræti 83–85 ehf. og Hafnar-
stræti 87–89 hf . Um er að ræða hús-
eignir Hótels KEA og var áætlaður
bókfærður söluhagnaður Kaldbaks
hf. af sölunni er rúmlega 30 milljónir
króna. Kaupandi var Eignarhalds-
félagið Greifinn, sem rekur hótelið.
Fasteignafélagið Stoðir vildi
kaupa umrætt húsnæði, en fékk
ekki, en Klettar, sem voru í eigu
Kaldbaks, seldi hins vegar Stoðum
Hafnarstræti 91–95 – en m.a. er um
að ræða höfuðstöðvar Kaupfélags
Eyfirðinga á horni Hafnarstræti og
Kaupvangsstrætis á Akureyri síð-
ustu áratugi. Við þau viðskipti runnu
Klettar inn í fasteignafélagið Stoðir,
en Baugur á 49,6% í Stoðum, KB
banki á 20,4% og Ingibjörg Pálma-
dóttir og félag hennar eiga 18,4%.
Hröð uppbygging
Samherji hf. var stofnaður í Grinda-
vík um útgerð togara árið 1972 en
1983 keyptu Samherjafrændurnir,
sem gjarnan eru kallaðir svo, Þor-
steinn Már, Kristján og Þorsteinn,
fyrirtækið og fluttu það til Akureyr-
ar sem fyrr segir og breyttu Guð-
steini GK í frystiskip sem nefnt var
Akureyrin.
Stefna Samherja er að vera í for-
ystu í veiðum, vinnslu og markaðs-
setningu sjávarafurða úr Norður-
Atlantshafi og hafa þannig stjórn á
sem stærstum hluta virðiskeðju fyr-
irtækisins, eins og segir á vef þess.
Það er einnig stefna félagsins „að
reka öflugt fyrirtæki sem skilar eig-
endum sínum arði og starfsmönnum
áhugaverðu starfsumhverfi“. Á vefn-
um segir að þrátt fyrir ungan aldur
KALDBAKUR | SAMHERJI
12 B FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI FRÆNDURNIR Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson
eignuðust Samherja, sem þá var lítil útgerð, fyrir rúmum 20 árum
ásamt Þorsteini, bróður Kristjáns. Þorsteinn Már, sem er skipaverk-
fræðingur að mennt, hefur frá upphafi verið forstjóri Samherja og
Kristján, sem er vélstjóri, er framkvæmdastjóri útgerðarsviðs. Krist-
ján á persónulega 16,05% í fyrirtækinu og Þorsteinn Már 15,69%.
Kristján situr í stjórn Kaldbaks fyrir hönd Samherja og Þorsteinn
Már er þar í varastjórn. Feður þeirra frænda, tvíburarnir Vilhelm og
Baldvin Þorsteinssynir voru báðir skipstjórar hjá Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa og Vilhelm síðan lengi annar framkvæmdastjóra félagsins.
Eiríkur S. Jóhannsson er hagfræðingur að mennt og á auk þess að
baki framhaldsnám á sviði fjármála og alþjóðahagfræði. Hann starf-
aði um tíma sem útibússtjóri Landsbanka Íslands á Akureyri, varð
kaupfélagsstjóri KEA 1998 og framkvæmdastjóri Kaldbaks frá stofn-
un félagsins 2002. Eiríkur er varamaður í stjórn Samherja hf.
Þorsteinn Már
Baldvinsson
Eiríkur S.
Jóhannsson
Kristján
Vilhelmsson
Stjórna Samherja og Kaldbak
Öflugir samherjar
á norðurslóð
Kaldbakur á Akureyri – sem stofnað var utan um eigur Kaupfélags Eyfirðinga – er nú stærsta fjárfestingafélag landsins
og Samherji er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtækið. Skapti Hallgrímsson kynnti sér sögu félaganna og tengsl þeirra.