Morgunblaðið - 09.02.2004, Blaðsíða 26
DAGBÓK
26 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Partnership kemur í
dag. Ontika Ek-0101
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Örvar Hu-2
og Hanseduo koma í
dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, kl. 14 fé-
lagsvist. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10
söngstund, kl. 13-16.30
smíðar, útskurður, kl.
13–16.30 handavinna,
kl. 13.30 félagsvist, kl.
16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–12
bútasaumur, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–11
samverustund, kl. 13–
16 bútasaumur, kl.
13.30 dans.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð kl. 10.
Skrifstofan er opin í
dag kl. 10–11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin,
kl. 11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16.30, félagsvist kl.
13.30.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Stólaleikfimi
kl. 9. 30, kvennaleikfimi
kl. 10.20 og 11.15,
spænska framhald
11.30, glerbræðsla og
pílukast kl. 13, spænska
byrjendur 14.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9. Pútt í Hraunseli
kl. 10–11.30. Biljardsal-
urinn opin til 16.
Tréútskurður kl 13, fé-
lagsvist kl. 13.30, kór-
æfing Gaflarakórsins kl
17.
Gerðuberg, félagsstarf.
Vinnustofur opnar frá
kl. 9–16.30 m.a. tréút-
skurður, kl. 9.30 sund
og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug, frá há-
degi spilasalur opinn,
kl. 15.15 dans.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postulín,
kl. 13 skák, kl. 20 skap-
andi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. kl. 9 vefnaður, kl. 10
ganga, kl. 11 boccia, kl.
13 brids og bútasaum-
ur, kl. 20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulín, keramik og
fótaaðgerð, kl. 10
bænastund, kl. 13.30
skrautskrift, kl. 13 hár-
greiðsla, kl. 13.30
skrautskrift.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
13–16 spilað. Fótaað-
gerðir virka daga, hár-
snyrting þriðju-til
föstudags.
Korpúlfar Grafarvogi,
á morgun þriðjudag,
sundleikfimi Graf-
arvogslaug kl. 9.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–16
fótaaðgerð, kl. 10–11
ganga, kl. 13–16.45 opin
vinnustofa, myndlist.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9–10
boccia, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9.30–
10.30 boccia, kl. 11–12
leikfimi, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 9–16. Kl. 13.30 opið
hús, ma. söngur, fé-
lagsvist.
Þórðarsveigur 1-5
Grafarholti. Kl. 13.30
spiladagur, kaffiveit-
ingar, allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánudags-
kvöld kl. 20.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK Gullsmára
spilar í félagsheimilinu,
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtu. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
Sjálfsbjörg, Hátún 12
kl. 19 brids.
Kvenfélag Breiðholts,
aðalfundurinn verður
þriðjudaginn 10. febr-
úar í safnaðarheimili
Breiðholtskirkju.
Fundurinn hefst með
borðhaldi kl. 20.
Minningarkort
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533 1088 eða í
bréfs. 533 1086.
Í dag er mánudagur 9. febrúar
40. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Og friður Guðs, sem er æðri
öllum skilningi, mun varðveita
hjörtu yðar og hugsanir yðar í
Kristi Jesú.
(Fil. 4, 7.)
Björn Bjarnason dóms-málaráðherra skrifar
pistil í gær á vef sinn,
bjorn.is, um ríkisráðs-
fundinn fræga. „Forset-
inn tók sjálfur ákvörðun
um fjarveru sína frá af-
mæli heimastjórnar. Vilji
menn ræða kjarna þessa
máls eiga þeir að beina at-
hygli sinni að þessari
ákvörðun forseta Íslands
og stjórnskipulegum rétt-
aráhrifum hennar. Til lít-
ils er að kveikja villuljós í
von um, að menn komist
að réttri niðurstöðu með
því að fara eftir þeim,“
segir Björn.
Hann rekur síðan nokk-ur slík „ljós“, m.a.
fullyrðingar um að
hringja hefði átt í forset-
ann, þrátt fyrir að hundr-
uð laga séu staðfest af
handhöfum forsetavalds,
að forsetinn hafi ekki haft
nægilega miklu hlutverki
að gegna á afmælishátíð-
inni, þótt hann hafi iðu-
lega ekki öðru hlutverki
að gegna í atburðum en
að vera viðstaddur þá, að
ekki hefði verið rætt með
nægilegum fyrirvara um
afmælið
við forsetann eða skrif-
stofu hans, að ríkisráðið
sé æðsta stofnun ríkisins
þrátt fyrir að vera skorð-
ur settar af Alþingi í
krafti þingræðisregl-
unnar og ýmislegt fleira.
M.a. bendir Björn á að
forsetinn hafi skrifað
fræðilega ritgerð um
heimastjórnartímabilið og
sé sérfróður um það.
„Forseti Íslands fer víða
og flytur fyrirlestra um
ýmis málefni. Hann getur
hvenær sem er fundið sér
vettvang til að flytja er-
indi um heimastjórnina.
Hann hefði meira að segja
getað sent frá sér yfirlýs-
ingu um hana frá Banda-
ríkjunum í tilefni þessara
tímamóta,“ skrifar Björn.
Engin meginrakanna tilafsökunar á fjarveru
forseta Íslands frá ald-
arafmæli heimastjórnar á
Íslandi standast, Fyrir
fjarvistinni eru hvorki
efnisleg né málefnaleg
rök [...] Heimastjórn-
arafmælið hefur vegna
fjarveru forseta Íslands
ekki aðeins dregið athygli
að eðli forsetaembættisins
heldur einnig að því með
hve veikum rökum er
unnt að halda uppi efn-
islegri vörn fyrir tilvist
embættisins, þegar á
reynir í opinberum um-
ræðum,“ segir Björn.
„Ég fullyrði, að engum
okkar, sem sátum frið-
sælan og stuttan rík-
isráðsfundinn hinn 1.
febrúar 2004 í tilefni af
100 ára afmæli heima-
stjórnar á Íslandi, hafi til
hugar komið, að sú hátíð-
lega og formlega athöfn
mundi valda þeim úlfaþyt,
sem síðan hefur verið
gerður. Síst af öllu hvarfl-
aði að nokkrum, sem
þarna sat, að forseti Ís-
land myndi blása til fjöl-
miðlafárs. Frumskylda
þess, sem situr í forseta-
embættinu hverju sinni,
er nefnilega að hafa þjóð-
arhag, einingu og virð-
ingu embættis síns í fyr-
irrúmi.“
STAKSTEINAR
Erfitt að verja tilvist for-
setaembættisins
Víkverji skrifar...
Vitiði það að lyfjaverð á Íslandi erhæst í veröldinni vegna þess að
við erum með svo háar þjóð-
artekjur? Verð á lyfjum fer eftir
þjóðartekjum í viðkomandi löndum.
Hvaða vit er í þessu?“
Þingkona vinstri-grænna lét þessi
orð falla í Silfri Egils daginn fyrir
ríkisráðsfundinn. Konu Víkverja
þykja þessi orð dæmigerð fyrir um-
ræðuna í fjölmiðlum um heilbrigð-
ismál og aukinn lyfjakostnað. Hún
er með þvílíkum endemum, að þjóðin
hlýtur að falla í þunglyndi og bryðja
gleðipillurnar af enn meiri áfergju,
þannig að lyfjakostnaðurinn fer end-
anlega úr böndunum.
Kona Víkverja, frænka þingkon-
unnar í fimmta lið, vissi ekki að
lyfjaverð á Íslandi væri hæst í ver-
öldinni. Hún undrast að sérfræð-
ingar skuli ekki hafa fjallað um þá
uppljóstrun frænku, hvorki staðfest
orð hennar né rekið ofan í hana.
Í öðru lagi furðar hún sig á þeirri
fullyrðingu frænku sinnar að lyfja-
verð sé hæst á Íslandi vegna þess að
þjóðartekjur okkar séu svo háar.
Samkvæmt þeirri uppljóstrun
frænku að verð á lyfjum fari eftir
þjóðartekjum í viðkomandi löndum
hljóta þjóðartekjur Íslendinga að
vera hæstar í öllum heiminum.
Víkverji sagði reyndar konu sinni
að hann hefði séð lista yfir fimm auð-
ugustu ríki heims (miðað við mann-
fjölda) fyrir nokkrum misserum og
Ísland hefði ekki verið á honum.
Hún svaraði þá að þetta hlyti að hafa
breyst. Hún tryði því ekki að vinstri-
grænir væru farnir að ljúga því upp
á Davíð að hann hefði gert Íslend-
inga að auðugustu þjóð heims.
Kona Víkverja vill auðvitað að Ís-
lendingar greiði sanngjarnt verð
fyrir lyfin, þannig að gróði lyfjafyr-
irtækja sé hæfilegur og þau geti
haldið áfram að þróa ný lyf. Hún er
þó undrandi á því að vinstri-grænir
skuli vera andvígir því að auðug ríki
greiði hærra verð fyrir lyf en fátæk
þróunarlönd.
Í Málefnahandbók vinstri-grænna
er falleg stefnuyfirlýsing sem hljóð-
ar svo: „Íslendingar eiga að stór-
auka framlag sitt til þróunarstarfs
og leggja fátækum þjóðum lið á al-
þjóðavettvangi. Það sæmir ekki
einni ríkustu þjóð í heimi að leggja
minna fram til þróunarsamvinnu en
flestar aðrar þjóðir OECD og deila
þar raunar sæti í skammarkróknum
með Bandaríkjum Norður-
Ameríku.“
Konu Víkverja finnst það skjóta
skökku við að vinstri-grænir skuli nú
snúast á sveif með Bush Bandaríkja-
forseta, sem lagðist gegn því fyrir
nokkrum misserum að bandarískum
lyfjarisum yrði gert að selja þróun-
arlöndum ný lyf gegn alnæmi á
lægra verði en auðugu ríkjunum.
Þróunarlöndin hafa ekki efni á
dýrum lyfjum. Hvaða sanngirni er í
því að fátæk þróunarlönd greiði
jafnhátt verð fyrir lyfin og auðugu
ríkin? Hvaða vit er í þessu?
Reuters
Eiga fátæk þróunarlönd að fá ódýr-
ari lyf en auðugu ríkin?
ÉG eins og flestallir lands-
menn hef fylgst með vinnu
Samkeppnisstofnunar
vegna meints samráðs olíu-
félaganna og finnst undar-
legt ef félögin geta fengið
afslátt af hugsanlegri sekt
sinni. Gæti það ekki leitt til
þess að það yrði beinlínis
hagkvæmt fyrir hin ýmsu
fyrirtæki að brjóta af sér
og ef þau játa strax þá fá
þau svo og svo mikinn af-
slátt af sektinni. Og ef olíu-
félögin sjálf verða sektuð
fer það beint út í verðlagið.
Í venjulegum fjársvikamál-
um þegar sekt er beitt er
undanskotið (þjófnaðurinn)
oft tvöfaldað. Það sem þarf
að gera þegar svona mál
koma upp, sem og önnur
fjársvikamál, er að beita þá
stjórnendur viðurlögum
sem ákváðu hinn ólöglega
gjörning og finna leið til að
láta viðkomandi aðila eða
fyrirtæki skila því til baka
til þeirra sem af var tekið.
Auk þess að greiða fyrir
alla þá vinnu sem rann-
sóknin kostaði ætti í tilviki
olíufélaganna, ef þau verða
sek fundin, að skylda þau til
að lækka verðið á þeim
vörum sem þau oftóku, eins
og bensín og olíu, um helm-
ing í hálft til eitt ár.
Víðir Benediktsson
Völusteinsstræti 12
415 Bolungarvík.
Sakna Fjalars
HVERNIG ætli standi á
því að Fjalar Sigurðarson
var látinn hætta í þættinum
Ísland í bítið en ekki kven-
stjórnandinn? Fjalar var
mjög áheyrilegur og þægi-
legur, en aftur á móti geng-
ur mér oft mjög illa að
heyra hvað kvenstjórnand-
inn segir og ég veit að ég er
ekki ein um það. Ég beið
alltaf eftir að heyra Fjalar
lýsa skoðun sinni á um-
ræðuefninu, til þess að vita
um hvað málið snerist.
Er það kannski stefnan
hjá Íslenska útvarpsfélag-
inu að reka besta fólkið,
samanber Þorstein J. og
Árna Snævarr?
041140-4029.
Sammála
FRÍÐA hafði samband við
Velvakanda og var alveg
sammála Sigrúnu Guð-
mundsdóttur sem skrifaði í
Velvakanda 3. febrúar sl.
um frammíköll í þættinum
Ísland í dag á Stöð 2. Við-
mælendur fá aldrei að klára
það sem um er spurt. Það
er afskaplega leiðinlegt að
horfa upp á þetta.
Tapað/fundið
Hlaupaklukk
a í óskilum
HLAUPAKLUKKA
(skeiðklukka) fannst
fimmtudaginn 5. febrúar sl.
á göngustígnum v/Öldu-
granda. Upplýsingar í
síma 561 7533.
Dýrahald
Kettlinga vantar
heimili
TVÖ tíu vikna fress vantar
góð heimili. Upplýsingar í
síma 661 9891.
Kettlinga vantar
heimili
FJÓRIR kettlingar fást
gefins á góð heimili. Þeir
eru 2ja mánaða.
Upplýsingar í síma 561
7860.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Meint samráð
olíufélaganna
LÁRÉTT
1 spýtubakka, 8 lófinn, 9
seinka, 10 veiðarfæri, 11
kremja, 13 sælu, 15 káta,
18 lítið, 21 setti, 22 háski,
23 erfðafé, 24 pretta.
LÓÐRÉTT
2 fjáður, 3 þekkja, 4 féllu,
5 hefja, 6 draug, 7 aftur-
endi, 12 fóstur, 14 læri,
15 not, 16 stétt, 17 gömul,
18 vinna, 19 huldumaður,
20 lifa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 bugur, 4 skjár, 7 lasin, 8 orkan, 9 náð, 11 reit,
13 eira, 14 útför, 15 flón, 17 rúmt, 20 haf, 22 kræfa, 23
lyfið, 24 neita, 25 taðan.
Lóðrétt: 1 bolur, 2 gesti, 3 rann, 4 stoð, 5 jakki, 6 renna,
10 álfta, 12 tún, 13 err, 15 fíkin, 16 ótæti, 18 úlfúð, 19 tíð-
in, 20 hala, 21 flot.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16