Morgunblaðið - 09.02.2004, Blaðsíða 4
arnir segja, þjálfa heimamenn
meira og fara fram yfir þær kröfur
sem gerðar eru. Þeir eru að skila
frábæru starfi á skömmum tíma.
Þegar þeir tóku við slökkviliðinu
var enginn tækjabúnaður, þeir
komu að tómum kofunum og þurftu
því að útvega allan búnað í upp-
hafi,“ segir Guðmundur.
„Ég er ekki í neinum vafa að þeir
eru fullfærir um að taka við því
slökkvistarfi sem þarna þarf, því
þetta virstist vera úrvalsmann-
skapur sem þarna er,“ segir Guð-
mundur. Einnig hafa flugumferð-
arstjórar unnið við að þjálfa
heimafólk og eru Íslendingarnir í
Kosovo nú að gera handbækur fyrir
flugumferðarstjóra og leiðbein-
ingar fyrir flugmenn sem hafa fast-
ar ferðir um flugvöllinn. „Það er
mjög jákvæður andi í garð Íslend-
inga þarna í Kosovo. Fólkið gerir
sér grein fyrir því að það er verið
að byggja það upp,“ segir Guð-
mundur.
„ÍSLENDINGAR hafa lyft grett-
istaki þarna í Kosovo,“ segir Guð-
mundur Haraldsson, fyrrverandi
skólastjóri Brunamálaskólans og
starfsmaður Brunamálastofnunar,
sem fór nýlega til Pristina í Kosovo
til að gera úttekt á þeirri fræðslu
og þjálfun sem heimamenn hafa
fengið í slökkviliðsstarfi. Íslenska
friðargæslan fer með stjórn flug-
vallarins og starfa íslenskir slökkvi-
liðsmenn og flugumferðarstjórar á
vellinum við þjálfun heimamanna.
Stefnt er að því að heimamenn taki
við flugvellinum sem alþjóða-
flugvelli 1. apríl næstkomandi.
Sex íslenskir slökkviliðsmenn
hafa starfað á flugvellinum í
Pristina fyrir hönd Íslands. Alls eru
50 manns í slökkviliði flugvallarins,
16 á vakt hverju sinni. Hafa heima-
menn, sem flestir eru Albanar,
fengið þjálfun og kennslu frá Ís-
lendingunum. Guðmundur fór á
Balkanskagann til að taka kennsl-
una út og fylgjast með því að námið
hafi verið samkvæmt stöðlum Okla-
homa State University, en Ísland
hefur samninga við háskólann um
að hann megi nýta námsefni þaðan.
„Ég myndi segja að þetta hafi
verið eins gott og það getur verið.
Að mínu mati unnu þeir frábært
starf, þeir gerðu meira en staðl-
Íslendingar hafa lyft
grettistaki í Kosovo
Georg Arnar Þorsteinsson, Fróði Jónsson, Guðmundur Haraldsson og Jón
Emil Árnason fara vandlega yfir árangur nemenda í Pristina.
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sérflug Heimsferða
Ótrúlegt tækifæri á síðustu sætunum til þessarar fegurstu eyju Karíbahafsins. Þú bókar
síðustu sætin og tryggir þér 2 sæti á verði eins. Að auki getur þú valið um úrval hótela
hjá Heimsferðum. Jamaica hefur ekki aðeins að bjóða stórkostlega náttúrufegurð og
veðurfar, heldur einnig andrúmsloft og menningu sem á sér fáa líka í Karíbahafinu. Hér
eru drifhvítar sandstrendur með þeim fegurstu í heimi. Má þar nefna strendurnar við
Ocho Rios og Negril. Náttúruperlur eins og Dunn's fossana, sem hlutu heimsfrægð í
James Bond myndunum - og allir ferðamenn verða að klífa a.m.k einu sinni. Þá er
fegurð Blue Mountains fjallanna einstök með stórkostlegu útsýni yfir eyjuna, YS
fossarnir í hjarta Jamaica og Port Antonio eða Discovery Bay, sem hlaut nafn sitt frá
landnámi Kolumbusar árið 1494. Og reggie tónlistin ómar allsstaðar, taktur Bob
Marleys frægasta sonar Jamaica.
Síðustu 18 sætin
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.950
M.v. 2 fyrir einn. Flugsæti kr. 72.000/2
= 36.000. Flugvallarskattur kr. 3.950.
Netverð.
2 fyrir 1 til
Jamaica
22. febrúar
frá 39.950
Munið Mastercard
ferðaávísunina
MIKILL ferðahugur er í Íslending-
um fyrir komandi sumar, að mati
forsvarsmanna ferðaskrifstofanna,
sem keppast nú við að kynna sum-
arbæklinga sína og höfðu söluskrif-
stofur opnar um helgina. Þannig
hafa 45% fleiri bókanir verið gerðar
hjá Heimsferðum nú en á sama tíma
í fyrra og bókuðu 2.000 manns ferð
hjá Úrvali-Útsýn um helgina, þar af
helmingurinn á Netinu.
Andri Már Ingólfsson, forstjóri
Heimsferða, segir að viðtökur hafi
verið ótrúlegar, en sumarbæklingur
fyrirtækisins var kynntur á laugar-
dag. „Það er miklu meiri ferðahugur
núna en fyrir ári. Við erum ákaflega
kát með það. Það er greinilegt að í
fyrra voru margir sem ákváðu að slá
ferðalögum á frest, en það er breytt.
Við höfum fundið það alveg frá ára-
mótum vegna þess að það er búið að
bóka núna 45% meira en á sama
tíma í fyrra. Það er ansi hressileg
aukning.“
Andri Már segir að 1.200 sæti hafi
verið bókuð um helgina. „Ég held að
það hjálpi auðvitað líka að við erum
að kynna lægra verð núna en nokk-
urn tímann áður, það hefur aldrei
verið jafn ódýrt að ferðast til út-
landa frá Íslandi og núna,“ segir
Andri Már.
Sífellt fleiri bóka ferð á Netinu
„Netbókun er að sækja mjög í sig
veðrið. Þrátt fyrir að það hafi bara
verið opið í [gær] og bæklingurinn
kom út í [gær] er búið að bóka mikið
á Netinu. Það er alveg ljóst að þessi
markaður er mikið að færa sig þang-
að. Um helgina höfum við bókað um
2.500 manns, þar af um helminginn á
Netinu,“ segir Helgi Eysteinsson,
sölu- og markaðsstjóri Úrvals-Út-
sýnar.
Mikið óveður gekk yfir landið um
helgina og komst fólk sumstaðar á
Norður- og Austurlandi ekki út úr
húsi. Aðspurður hvort hann telji að
stórhríðin hafi átt hlut að máli og
menn pantað ferð á tölvunni á með-
an vindurinn gnauðaði úti segir
Helgi að það geti vel verið. „Það er
aldrei að vita, fólk komst ekki ann-
að,“ segir hann.
Helgi segir að sala sumarferða
hafi breyst mikið, áður hafi alltaf
verið röð út úr dyrum þegar ferða-
bæklingarnir voru gefnir út. Nú sé
þeim dreift í hús og neytendur séu
mjög vel upplýstir og viti hvað þeir
vilja þegar þeir koma til að bóka
ferðina. „Við erum afskaplega
ánægð með helgina og sjáum að það
er vel tekið í þær ferðir sem við bjóð-
um á þessu verði og við lítum björt-
um augum til þessa ferðasumars.“
Fjölmargir bókuðu
sumarleyfisferð um ný-
afstaðna óveðurshelgi
Nú hafa 45% fleiri en á sama tíma í fyrra bókað ferð hjá Heimsferðum fyrir
komandi sumar en 1.200 flugsæti voru í boði hjá skrifstofunni um helgina.
Morgunblaðið/Þorkell
Í nógu var að snúast í höfuðstöðvum Úrvals-Útsýnar um helgina en þá bók-
uðu um 2.500 manns flugsæti, þar af helmingurinn á Netinu.
Sífellt fleiri bóka
í gegnum Netið
„ÞETTA er ekkert sem háir okkur
hérna, maður verður ekkert var við
þetta,“ segir Kjartan L. Pálsson, far-
arstjóri Úrvals-
Útsýnar í Taí-
landi, þar sem
fuglaflensa hefur
geisað. Alls er á
fjórða tug Íslend-
inga í Taílandi að
spila golf. „Ég
fann svona aðeins
á fólkinu sem
kom í dag [gær]
að það var að
spyrja svolítið, en málið er ósköp
einfalt. Ef maður er hræddur við
þetta lætur maður kjúklinga og egg
vera og er ekkert að flækjast innan
um fiðurfé, enda er kannski lítil
hætta á því. Við erum náttúrulega
ekkert á slíkum stöðum,“ segir
Kjartan.
Hann segir að enginn hafi hætt við
að fara í ferð til Taílands vegna veik-
innar og vestrænar ferðaskrifstofur
hafi ekki hætt við ferðir. Veikin hafi
ekki haft áhrif á ferðaiðnaðinn nema
Asíubúar ferðist minna á milli landa.
Kjartan segir að kjúklingur og
egg séu ekki á boðstólum á hótelinu
þar sem Íslendingarnir búa en þó
séu erlendar skyndibitakeðjur sem
selja kjúklinga með opið. „Það eru
náttúrulega hundruð íbúa hérna þar
sem engin sýking hefur komið fram
og það er bara í nokkrum sýslum þar
sem hafa komið fram sýktir kjúk-
lingar.“
Hann segir að áróður til að hvetja
fólk til að halda áfram að borða kjúk-
linga sé mikill. „Maður sér varla
mynd af forsætisráðherranum án
þess að hann sé að éta kjúkling.
Hann ætlar að borga aðstandendum
þeirra sem deyja úr þessari veiki 6
milljónir í slenskra króna í skaða-
bætur.“
Kjartan segir að menn vonist til
að hættan líði hjá eftir því sem hita-
stigið hækkar, en nú sé kaldasta
tímabil ársins á Taílandi og um 30
stiga hiti.
Á fjórða tug Íslendinga í
golfferð í Taílandi þar
sem fuglaflensa geisar
„Þetta er
ekkert sem
háir okkur“
Kjartan L. Pálsson
ÍSLENSK erfðagreining hefur
einangrað erfðavísi sem tengist
algengustu gerð hjartaáfalls og
tengist einnig hættu á heila-
blóðfalli. Skýra vísindamenn
fyrirtækisins frá þessum niður-
stöðum í grein í vísindatímarit-
inu Nature genetics sem vænt-
anlegt er í marsmánuði. Frá
þessu er sagt á heimasíðu fyr-
irtækisins. Þar segir að um sé
að ræða einangrun fyrsta erfða-
vísisins sem sýnt hafi verið
fram á að tengist algengustu
gerð hjartaáfalls, en þetta er
niðurstaða umfangsmikilla
erfðafræðirannsókna á orsök-
um hjartaáfalls. Sýna niður-
stöðurnar að ákveðinn breyti-
leiki í erfðavísi sem segi til um
gerð ákveðins prótíns (FLAP)
tengist um það bil tvöfaldri
hættu á hjartaáfalli og álíka
aukinni hættu á heilablóðfalli.
Hópur vísindamanna undir
stjórn Önnu Helgadóttur hefur
starfað að þessum rannsóknum
í samvinnu við lækna og annað
starfsfólk á Landspítala og
Hjartavernd.
Geta valdið bólgum
og rofi æða
„Rannsóknir vísindamanna
Íslenskrar erfðagreiningar á
virkni erfðavísisins og fyrri
rannsóknir sem gerðar hafa
verið á FLAP og 5-lípóoxýgen-
asa-ferlinu gefa til kynna að
aukin virkni FLAP geti valdið
bólgum og rofi æða við fituút-
fellingar (e. athersclerotic plaq-
ues) sem er vitað að er algeng
orsök bæði hjartaáfalls og
heilablóðfalls. Þessar niður-
stöður benda því til þess að með
því að hemja virkni FLAP-prót-
ínsins sé mögulegt að minnka
bólgur í æðum og minnka þann-
ig líkur á hjartaáfalli og heila-
blóðfalli,“ segir meðal annars á
vef Íslenskrar erfðagreiningar.
Erfðavísir
sem teng-
ist hjarta-
áfalli ein-
angraður