Vísir - 04.06.1981, Blaðsíða 17
17
Fimmtudagur 4. júni 1981
vísm
SKÁKSKOLINN AÐl
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
1 mailok ár hvert leggja ungir
og efnilegir skákmenn frá öllum
landsfjdröungum land undir fót
og dvelja vikutima viö skákiök-
anir og lítileiki aö Kirkjubæjar-
klaustri. Jón Hjartarson skóla-
stjórihefur skipulagt þar þrótt-
mikiö æskulýösstarf sem eykst
og dafnar m eð hverju árinu sem
líður. Jón á miklar þakkir
skiliö fyrir að hrinda þessu
unglingastarfi I framkvæmd, en
það sem ööru fremur ýtti á
hann, var atvik sem skeði fyrir
rúmum þrem árum aö Klaustri.
Þar var þá haldin Urslita-
keppnini skólaskákinni, og voru
mættir til leiks sigurvegarar
hinna ýmsu skóla landsins. Frá
Reykjavík komu Jóhann
Hjartarson og Jóhannes Gisli
Jónsson sem höföu þegar getiö
sér gottorö á skáksviöinu, þrátt
fyrir ungan aldur. Aörir kepp-
endur litu upp til þeirra með
óttablandinni virðingu, eins og
eftirfarandi dæmi sýnir. í skák
sinni gegn einum keppanda utan
af landsbyggöinni, varö Jóhanni
Hjartarsyni heldur betur á i
messunni, er hann lék af sér
drottningu fyrir riddara. Ekki
urðu svipbrigöi merkt á andliti
Jóhanns, en andstæðingi hans
varö hinsvegar svo mikiö um,
aö i staö þess aö vinna léttan
sigur, tókst honum aö klUöra
skákinni á óskiljanlegan hátt.
Þetta blöskraði Jóni Hjartar-
syni, og hann ákvað aö freista
þess aö brúa aðstöðubilið sem
skákmenn landsbyggöarinnar
og höfuöstaöarins byggju viö,
með því aö stofna til námskeiða
þar sem efnilegum skákmönn-
um utan af landi yröi gert kleift
að helga sig skákinni ’l-2 vikur,
undirleiösögn reyndra kennara.
Þessi hugmynd Jóns hefur hlot-
iðsérlega jákvæöar undirtektir
skákmanna. Þannig kom Friö-
rik ólafsson og tefldi fjöltefli
fyrsta áriö, og þeir sem leitað
hefur veriö til, hafa jafnan verið
boönir og bUnir til að hjálpa
eftirfremsta megni. lár kenndu
viö skólann Guömundur Sigur-
jónsson, stórmeistari, Helgi
Olafsson, Islandsmeistari og
Bragi Kristjánsson og Jóhann
öm Sigurjónsson. Einnig lagöi
Guömundur Arnlaugsson hönd á
plóginn, er hann dvaldist á
Klaustri í tvo daga og veitti
nemaidum innsýn i töfraheima
endatafla og skákþrauta, á
þann hátt sem honum einum er
lagið.
Jafnhliöa kennslunni, tefldu
nemendur i fjölteflum, og
kepptu innbyröis i kappskák og
hraöskák. t ár var baráttan um
efsta sætið sérlega hörö, þvi á
helgarskákmótum Jóhanns Þ.
Jónssonar, höföu efstu
unglingarnir veriö verölaunaöir
með vikudvöl aö Klaustri, þeim
að kostnaöarlausu.
1 upphafi aöalmótsins gat Jón
Hjartarson þess, aö Skáksam-
band tslands heföi ákveðiö aö
gefa einum nemanda skákskól-
ans kost á skákferö til Banda-
rikjanna á fund Collins-hópsins,
sem tefla mun við islenskt
unglingaliö siöar i þessum mán-
uöi.
Jón kvaðst vilja verölauna
einn þeirra tiu nemenda sem
sótt hefðu skákskólann öll þau
þrjú skipti sem hann heföi starf-
að, og draga eitt nafn úr þeirra
hópi. Fljótlega heyrðust and-
mælaraddir þeirra sem vildu
láta Collins-feröina veröa 1.
verðlaun aðalmótsins, og voru
nú góö ráö dýr. Stjórn Skák-
sambandsins bjargaöi málinu
með þvi að gefa aöra ferö og
gátu menn nú sest glaðir og
hressir að tafli.
t aöalmótinu varö fljótlega
ljóst, aö baráttan um 1. sætið
myndi standa milli Arnórs
Björnssonar, Reykjavik og
Guömundar Gislasonar frá Isa-
firöi. Báöir lögöu þeir Halldór
G. Einarsson frá Bolungarvik
aö velli, þann keppanda sem
Jóhann örn
Sigurjónsson
fyrirfram var talinn sigur-
stranglegastur. Fyrir siðustu
umferö höföu þeir Guömundur
og Arnór 5 1/2 vinning af 6
mögulegum. Amór vann and-
stæöing sinnsnarlega, e',. ekkert
gekk né rak hjá
Guðmundi og Jóhannesi Agústs
syni. Skák þeirra var allan tim-
ann i jafnvægi og jafntefli rétt-
lát Urslit. Röð efstu manna i
mótinu varö þessi:
1. Amór Björnsson 6 l/2v.af7
2. Guömundur Gislason 6
3. StefánÞ.Sigurjónss. 5
4. Halldór G.Einarss. 5
5. Jóhannes Agústsson 5
6. Þröstur Þórhallss. 5
7. Guðmundur Sigurj.son 5
8. Ingimundur Sigurm.s. 4 1/2
9. Clfhéöinn Sigurm.s. 4 1/2
10. Björn S. Björnsson 4 1/2
11. ÆgirP. Friöbertsson 4 1/2
12. Snorri Bergsson 4 1/2
13. GrétarB.Guðmundss. 4 1/2
14. Arinbjörn Gunnarss. 4
15. Sveinn Gylfason 4
Alls vom keppendur 54 tals-
ins.
í hraöskákkeppninni varð
Amór Björnsson einnig hlut-
skarpastur.
En nú var komiö að þvi er hin
Collins-ferðin skyldi dregin Ut,
og var Guömundur Arnlaugsson
fenginn til þess. Mikil uröu
fagnaöarlætin þegar upp kom
nafn Guðmundar Gislasonar, og
var samdóma álit allra, aö ekki
heföi betur getaö til tekist.
Undir stjóm Birgis Einars-
sonar iþróttakennara, stunduðu
nemendur Utivistina af miklum
krafti. I lokin fór fram viöa-
vangshlaup og þar varö Grétar
B. Guömundsson haröastur á
spretdnum, i2. sæti varöBjarni
Sæmundsson og Guömundur
Gislason I 3. sæti.
Við skulum þá aö lokum sjá
skák frá aöalmótinu.
Timamörk voru 30 leikir á 1 1/2
klukkustund, og siöan 1/2
klukkustund til aö ljUka skák-
inni.
Hvitur: Arnór Björnsson 15
ára.
Svartur: Halldór G. Einarsson
15 ára Sikileyjarvörn.
1. e4 c5
2. Rf3 Rc6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 e6
6. Rd-b5 d6
7. Bf4 e5
8. Bg5 a6
9. Ra3 b5
10. Rd5 Be7
11. Bxf6 (Baráttan stendur um hvort
þyngra verði á vetunum,
biskupar svarts, eöa sterk
tök hvits á d5-reitnum.)
11. . . . Bxf6
12. c3 0-0
13. Rc2 Bg5
14. a4 bxa4
15. Be2 Be6
16. 0-0 Kh8
17. Hxa4 a5
18. Rc-e3 Bxe3
19. Rxe3 Hb8
20. Dd2 Dc7?
21. Rd5 Dd7
(Eftir 21. . . Bxd5 22. exd5 nær
hvitur öflugum þrýstingi á a5-
peöið.)
22. Hf-al f5
23. exf5 Bxd5
24. Dxd5 Hxb2
25. Bg4 Hf-b8
26. h3 H2-b5
27. Dd2 Dc7
28. Hdl Hd8
29. f6!
(Meö þessum leik opnar hvitur
sér leið aö svörtu kóngsstöö-
unni.)
29. . . .
30. Bf5
(NU liggur Hh4 I loftinu.)
30. . . Re7
gxf6
11 I •
« 4 i
i i
IX t a A
i i
# i i
S &
A B C D E 1 31. Bxh7! F G H Kxh7
32. Dd3 + Rg6
33 Dxb5 Dxc3
34. Dxa5 Dc2
35. Hel Hg8
36. Hg4 Dc6
37. Da4?
(Gefur svörtum óþarfa mót-
spil.)
37. . . . Dxa4
38. Hxa4 Rf4
39. Khl
(Hvitur verður nú aö treysta á
fripeð sitt á h-linunni.)
39. . . . Rxg2
40. Hgl Rf4
41. Ha7 + Kh8
42. Hxg8 + Kxg8
43. Kh2 Kf8
44. Kg3 d5
45. Kg4 d4
46. h4 d3
47. Kf3 Ke8
48. Ke3 Kf8
49. Ha4 Kg7
50. Hxf4
(Hvitur verður aö fórna áður ai
svarti kóngurinn kemst á vett-
vang.)
50. . . . exf4+
51. Kxd3 f5?
(Hér leikur svartur af sér skák-
inni i timahraki. Rétta leiðin
var 51. . . Kg6 52. Ke4 Kh5 53.
Kxf4 Kxh4 54. Kf5 Kh3 55. Kxf6
Kg4, jafntefli.)
52. Ke2 Kg6
53. Kf3 og svartur gafst upp.
Boðsmót
Taflfélags Reykjavíkur 1981
Hefst að Grensásvegi 46, miðvikudag 10.
júni kl.20.00.
Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad
kerfi þannig:
1. umferö miövikudag 10. júni kl.20
. 2. umferð föstudag 12. júni kl.20
3. umferö mánudag. 15. júni kl.20
4. umferð föstudag 19. júni kl.20
5. umferö mánudag 22. júni kl.20
6. umferð miövikudag 24. júni kl.20
7. umferö mánudag 29. júni ki.20
Öllum er heimil þátttaka i boðsmótinu.
Skráning þátttakenda fer fram i sima
Taflfélagsins á kvöldin kl.20-22.
Lokaskráning verður þriðjudag 9. júni
kl.20-23.
Taflfélag Reykjavíkur
Grensásvegi 44-46
Reykjavik
Simar: 83540 - 81690
Tilkynning
til dísilbifreiðaeigenda
Frá og með 1. júli n.k. fellur niður heimild
til þess að miða ákvörðun þungaskatts
(kiiómetragjalds) við þann fjölda ekinna
kilómetra sem ökuriti skráir, nema þvi
aðeins að þannig sé frá ökuritanum gengið
að hann verði ekki opnaður án þess að inn-
sigli séu rofin, sbr. reglugerð nr. 264/1981.
Af þessum sökum skulu eigendur þeirra
bifreiða, sem búnar eru ökuritum, fyrir 1.
júli n.k. snúa sér til einhvers þeirra verk-
stæða, sem heimild hafa til isetningar
ökumæla og láta innsigla ökuritana á þann
hátt sem greinir i nefndri reglugerð. Að
öðrum kosti skulu þeir láta útbúa bifreiðar
sinar ökumælum, sem sérstaklega hafa
verið viðurkenndir af fjármálaráðuneyt-
inu til skráningar á þungaskattsskyldum
akstri.
Fjármálaráðuneytið, 1. júni 1981.
Sandalar
Teg: 70
Litur: dökkbrúnt leður
Stærðir: 41-45
Verð kr.154.-
POSTSENDVM
STJÖRNUSKÓBÚÐIN
J Laugavegi 96 (viö hliöina á Stjörnubiói). $
* Simi 23795. J
Urval af
bílaáklæöum
(coverum)
Sendum
i póstkrofu
Ajtikabúðin
Hverfisgotu 72 S 22677