Vísir - 27.06.1981, Side 3

Vísir - 27.06.1981, Side 3
Laugardagur 27. júní 1981 ..frændum verstir (Jtvarpsstjóri hefur nú tekið þá skynsamlegu ákvörðun, að ráða Bolla Héðinsson i stöðu fréttamanns hjá sjónvarpinu. t Háskóianum var Bolli framar- lega í röðum vinstri fylkingar- innarog formaður stúdentaráðs um eins árs skeið. Á þeim tima var hann jafnan talinn framsóknarmaður og gott ef hann taldi sig ekki sjálfur tii þess þjóðflokks. Það vekur hins vegar athygli að við atkvæða- greiðsluna i útvarpsráði um frétt amannsstöðuna snérust" framsóknarmennirnir tveir Há- kon Sigurgrimsson og Markús Á. Einarsson öndverðir gegn Bolla og greiddu Árnþrúði at- kvæði sitt... Jón Bald- vin fram- kvæmda- stjóri Jón BALDINN Hannibalsson er nú orðinn framkvæmdastjóri eða einhvers konar erindreki Álþýðuflokksins. Hefur Jón flutt bækistöð sina úr Siðumúlanum og hreiðrað um sig við Hverfis- götuna. Jafnhliða þessu virðist hafa dregið ur ritstjórastörfum hans hjá Alþýðubandalaginu litla og sæta og hafa þar tekið við leiðaraskrifum að einhvérju leyti Vilmundur nokkur Gylfa- son, Helgi Már Artúrsson og fleiri. Útlitid skapar manninn Það litur út fyrir að það borgi sig að vera fallegur! Lifiðkuganga beturh.iá þeim en hinum ljótu segja erlendir vis- indamenn, sem hafa kannað málið inn að merg. í nýútkominni bók sálfræðinganna Glenn Wilson og David Nias, halda þeir þvi fram að jafnvel i verslun og viðskiptum nái þeir karlar lengra sem hafa útlitið með sér. Hvernig eiga karlar að vera? Meðal þess, sem kemur fram i bókinni, er hvernig konur vilji hafa karlana. Þar er sagt frá skoðanakönnun, sem New York blaðið Village Voice gerði um málið. 100 karlar voru spurðir hvernig þeir héldu að konur kysu þá helst— hvaða hlutar likamans hefðu mest aðdráttarafl? Þeir svöruðu þvi til, að konum litist best á vöðvastælta brjóst- kassa og handleggi og aö stór kynfæri, undirstrikuð af þröngum buxum kæmu næst i röðinni. En þegar 100 konur voru spurð- ar álits, voru þær aldeilis ekki sammála hugmyndum karlanna. 1 fyrsta lagi kom þeim öllum samem um að þröngar buxur og klesst kynfæri væru beinlinis frá- hrindandi. „Það sem við sjáum fyrst er rassinn — og hann þarf að vera lftill og keikur” 39% allra spurðra kvenna settu litinn rass efst á listann! Perurnar verstar Sams konar skoðanakönnun vargerð viðháskólann i Chicago. Niðurstaðan var sú, að konur kjósi karla sem eru eins og V I laginu öðrum fremur. Grannir fætur, mjóar mjaðmir, breiðar axlir. „Karlmenn sem eru eins og perur i laginu, þ.e. niöurbreiðir, þeir eru verstir.” Ýmis frávik koma fram. T.d. hafa opnar, hressar konur smdík fyrir vöðvastæltum körlum. Þessar konur sýndu sig einnig að hafa rika siöferðiskennd. Tauga- veiklaðar, róttækar konur sem reykja og drekka mikið eru hrifn- ari af grennri körlum. Og þrosk- aöar konur vilja hafa karlana breiða og viðamikla. Spurning um hæð Hæð karlanna skiptir miklu máli — ekki aðeins i augum kvenna, heldur I atvinnulifinu lika. „Hann má ekki vera meira en 15 cm hærri en ég, annars fyndist mér ég verða að engu við hliðina á honum” var algengt svar kvenna. Fylgni stærðar og frama er ótviræð. Það kom fram i könnun, sem gerð var á einum árgangi frá Pittsburg-háskólanum, sem sýndi að þeir piltar, sem voru 185 cm eða hærri höfðu aö jafnaði 12.5% meiri tekjur. I sömu könnun voru 140 forst jórar beðnir um að velja á milli tveggja karla I sölustarf. Annar var 150 cm, hinn 182 cm en báðir höfðu sömu menntun og starfsreynslu. 72% vildu ráða þann stóra, 1% þann sem minni var og 27% neituðu að taka af- stöðu. 1 þessu sambandi má lika benda á, að allir þeir forseta- frambjóðendur, sem náð hafa kjöri i Bandarikjunum frá 1900 hafa veriö hærri en mótframbjóð- andinn. Hreysti Bæði kopum og körlum likar betur við hraust fólk. Sá, sem einatt kvartar undan veikindum sinum,erekkitalinn til stórræða i bólinu og þvi ekki sexy. Sú verndartilfinning eða umhyggja, sem slikt tal kann aö vekja, hefur ekkert að segja þegar kvöldar. Það er lfklega af þessum sök- um, sem húðin er svo oft á listan- um yfir hvaö sé mest aðlaðandi. Litarhátturinn er örugg visbend- ing um hreysti. Þá er lífsgleöi og gott skap einnig ofarlega á listanum og það sem kallaö er „eðlilegar hvatir” svo sem metnaðargimd, sköp- unargleði, forvitni og áhugi á hinu kyninu. Séu þessar tilfinningar látnar i' ljósi, eykur þaö að- dráttaraflið. Að vita af sér Vitneskjan um að lita vel út hefur mikla þýöingu. Það hefur nefnilega komið i ljós að full vissa um það, endurspeglast i allri framkomunni. Vitneskjan um hitt, aftur á móti, að maður sé miöur aölaðandi, hefur enn frem- ur mikil áhrif á sálarlífið. Þegar 95 námsstúlkur i Englandi voru látnar ganga undir próf sál- fræðinga, kom í ljós að lifsviðhorf þeirra miðaðist mjög af vel- gengni hjá hinu kyninu. Eitt af þvi sem þær voru látnar gera, var að meta 42 djarfar teikningar, sem aliar voru i skrýtluformi. Sú tilhneiging sýndi sig, að ljótari stúlkurnar voru trúaðri, tepru- legri, draumórakenndari og neik- kvæðar gagnvart frjálsum ást- um. Þessar stúlkur völdu fremur myndir með sexy stelpum, sem voru umsetnar flottgæjum. Ljótu stúlkurnar höföu tileinkað sér teprulegri afstööu, og áhugaleysi á samneyti við drengi, sögðu sál- fræðingarnir. Þettageröu þær til að réttlæta stöðu sina sem hallær- ispi'ur fyrir sjálfum sér. öryggis- ventill á snauðu ástarlifi! En samtimis dreymdi þær um karl- menn og settu sjálfar sig i spor glæsilegu stúlknanna á myndun- um. Þetta, segja sálfræðingarnir, er það sama og gerist þegar væskilslegir karlar horfa af að- dáun upp til persóna á borö við James Bond. Aðlaðandi stúlkur, á hinn bóg- inn, eiga það fremur til að vera verstu fjendur male-chauvinista og brandaranna þeirra, liklega vegna þess aö þær fá sig fullsadd- ar af athugasemdum þeirra hvunndags. Þessar stúlkur mátu hæst skritlur á kostnað karla, þar sem af^erandi konur ögruöu. Oft var á myndunum gert grin að kynfærum eöa kyngetu. Þessar stúlkur voru opinskáari og lausar við tepruskap. Þannig sýndist sálfræöingunum ljóst, að Utlit stúlknanna, vel- gengni þeirra hjá hinu kyninu, hefði úrsíitavald um þaö, hvaða skapgeröareiginleikar bæri hæst i fari þeirra. Sem sagt, útlitiö skapar mann- inn! gílASALv Sími 81666 Bifröst BORGARFIRÐI FERÐAFOLK NJÓTIÐ GÓÐRA OG ODÝRRA VEITINGA í FÖGRU UMHVERFI BORGARFJARÐAR. VEITINGASALURINN ÖLLUM OPINN FRÁ MORGNI TIL KVÖLDS. FARÞEGAFLUG ISCARGO TIL AMSTERDAM verðið... Kr.: 2.098.- (báðar leiðir) Þetta er lægsta flugfargjald sem boðið er upp á héðan og til Evrópu. Okkar lága Apex flugfargjald til Amsterdam er þinn lykill að samgöngumiðstöð Evrópu. Þaðan liggja allar leiðir opnar/ Fyrstu ferðirnar eru á sérstöku kynningarverði: Kr.: 1.750.- (báðar leiðir) LANGI ÞIG TIL MEGINLANDSINS í SUMAR ÞÁ ER OKKAR TILBOÐ ÞITT HAPP! AMSTERDAM Glaðvær borg með fjölbreytt mannlíf og miðstöð lista ISCARGO Félag, sem tryggir samkeppni i flugi! SKRIFSTOFA: AUSTURSTR/ETI 3. S 12125 og 10542.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.