Vísir - 27.06.1981, Side 25
Laugardagur 27. júní 1981
VÍSIR
Matthias Jóhannessen:
TVEGGJA BAKKA
VEÐUR — ljóð.
Almenna bókafélagið
1981.
Matthías Jóhannessen er
mikilvirkt ljóðskáid. Þetta er
11. ljóðabók hans — og maður-
inn ekki nema á miðjum aldri.
Og þetta er svo sem ekki eina
orðasafn hans á prenti — f jöldi
lausmálsbóka að auki — að
maður gleymi nti ekki sjáifu
Morgunblaðinu. Maðurinn er
hamhleypa og ekkert minna.
Þess vegna kemur á mann
sauðarbros við að lesa eink-
unnarorðin frá Hamsun sem
hann velur nýrri og stórri ljóða-
bók sinni og setur yfir dyr
hennar rétt eins og það sé gullið
augnablik eða einhending að
hann „detti ofan á eina eða tvær
góðar setningar f pistil eða
neðanmál sgrein, ljómandi
happdrætti að máli til”. Ég sé
ekki betur en þetta hljóti alitaf
að vera að gerast hjá Matthfasi
— meira segja oft á dag. Slikt er
auðvitað órækur vitnisburður
um ferskleikann, skáldhrifning-
una sem er lifið og sálin I öllum
skáldskap, uppnámið sem þessi
slnýja uppgötvun gamals sann-
leika veldur og verður ekki
hamið fyrr en þvi hefur verið
komið í ljóð — gott eöa vont eftir
atvikum eða heppni. Hitt er
annað mál, hvort Matthias er
nógu mikill slátrari. Sum skáld
eru best I sláturhúsinu — önnur
vilja helst aldrei koma þangað
heldur hafa sauðburö allt árið.
Slíkur Ijóðbóndi er Matthlas.
Hann er lika blaðamaður og
skáldskapur hans og blaða-
mennska veröa vart sundur
skiBn. Það sem menn skrifa I
dagblöð verður hvorki snyrt né
til slátrunar leitt af höfundi
sjálfum — heldur af öðrum —
bakkarnir yrðu tveir — oftast
dekkri sá efri — en stundum var
sem undir honum myn^aöist
annar bakki, tiðum heldur ljós-
ari. Þá var ivændum fúlviðri en
áður en það stytti upp rann önn-
ur hrina i slóöina, oftast kaldari
jafnvel með frostiog hrið. Þetta
var i minni fávisku tveggja
bakka veður — tvieflt og tviþætt
illviðri. I „bakka” fólst aldrei
tvisýna i augum veðurglöggra
manna fyrir norðan. Bakkanum
var óhætt að trúa til ills — ekki
sist ef hann var tviefldur. Ekki
finnst mér þetta eiga við um
hina nýju ljóðabók Matthiasar,
og ég felli mig ekki heldur við
nafngiftina „tvisýna” á hana.
Ég kýs þvi helst að lita á nafnið
sem slys, sem fallið hafi á káp-
una fyrir mistök. Það skiptir
ekki heldur neinu — þaö sem er
innan spjaldanna er mergurinn
málsins, svo að nóg er fjasaö
um þetta.
Matthias hefur bókina með
„hólmgönguljóði” en eigi að lita
á þetta sem vegvisi á þá braut,
að hér sé um samferðabók
Hólmgönguljóða hans frá 1960
að ræöa, þá er sagt rangt til
vegar, enda er hann ekki að
yrkja sjálfan sig upp. Það má
Matthias eiga, að hann er mjög
ferskur og nýr i hverri bók og
sinnir kalli dagsins, þótt hann
eigi si'na stuðla núoröið.
Matthias Jóhannesson skáld og
ritstjóri
ur aðeins undirstrikun og út-
færsla þessa kjarna málsins.
Það getur hver og einn raunar
leyst af hendi nógu vel fyrir
sjálfan sig og af eigin reynslu.
Ef til vill er þessu framhaldi of-
aukiö.
Það er aðeins eitt orð þarna
sem ég felli mig ekki við —
„takmörk” — þaö er svo tvi-
bent i merkingu. Hefði „landa-
mæri” ekki fariö betur og staö-
ið þarna ef Matthias gæfi sér
tima til að velja liflömb?
Gaman væri að tina margt
fleira til sem mér finnst bæði
skýrlega hugsað og fallega sagt
I þessari ljóðabók, en til þess
gefst ekki rúm eða tlmi núna.
En þarna er margt sem lyftir
huga við lesturinn.
Tilfinningin er afar ráðrik I
ljóðagerð Matthíasar og hann
segist sjálfur sveiflast þar „frá
einni tilfinningu til annarrar”.
Og hvað er ljóð án tilfinningar?
Er tilfinning og list ekki tvær
hliöar á sama hlut — ef til vill
teningi? Er ekki neisti skáld-
skapar fólginn i hrifningunni?
Og hvaö er það sem hrifur
skáldið til Ijóöa i þessari bók?
Það er hið sama og hjá flestum
öörum ljóöskáldum — náttúran,
nýjar sýnir, ástin, minningar,
fólk og faraldur. Minningar um
menn — einkum orösins snill-
inga — eru honum æriö oft ljóö-
kveikja. Og vel á minnst —
Matthias er skáld sjónmynd-
anna en siður hljóma — eins og
Einar. Hann sér og finnur til en
heyrir færra.
Líklega erég orðinn of gamall
til þess aö geta hrópað „Ó,
Lennon” meö honum. Það verð-
ur að hafa þaö. Ég kann þvi bet-
ur aö meta það sem hann segir
um ýmsa aöra. Ég bendi á
kvæðin um séra Matthias og Pál
ísólfsson. Það er kveðskapur
sem ég held aö margir sextugir
kunni vel aö meta. Þar eru
.hvorki orð né tilfinningar hand-
járnuð.
Skáld, semekki
handjárnar ord
og tilfinningar
gleymnum lesendum. Blaða-
maöurinn veröur aö láta það
gossa jafnskjótt og hann hefur
hripað siðasta (X'ðiö, getur varla
lesið það yfir. Ljóðaskáldskapur
Matthiasarlýtur að nokkru leyti
sömu örlögum. Þaö verða aðrir
en hann sjálfur sem velja líf-
lömbinúr honum. Það hefur að
visu aldrei þótt félegur búskap-
ur, en látum svo vera. Þaö er
ekki með öllu ill aöferö — að
minnsta kosti góð frjálshyggja,
úr nógu að velja. Þessi oröglöðu
skáld velja ekki úr skáldskap
sinum fyrir lesandann, fleygja
helmingi eða þremur fjórðung-
um, setja hitt i smákver og
segja: — Þetta er gott hjá mér,
ég hef valið fyrir þig, lesandi,
sagt þér hvaö er góður skáld-
skapur og hvaö ekki. Þó aö
maður sé stundum þreyttur á
vaðli held ég að ég kunni þessari
aðferð betur þegar alls er gáð.
Matthias kallar þessa ljóða-
bók si'na Tveggja bakka veður.
Hvað er nú það? A það að gefa i
skyn, að tvisýnt veöur sé i þess-
um ljóðum? Að hér geti brugöiö
til beggja.vona? Það er aö
minnsta kosti vinsamleg og
heiðvirð ábending til lesandans
um að fara með gát, gleypa ekki
allt, hans sé að velja og hafna.
Gott, ef það er þetta sem nafnið
á aö segja, eöa þaö sé fyrirvari
ljóöanna og timans tákn.
Samkvæmt orðabók þýðir
Tveggja bakka veður aðeins tvi-
sýnt veður og ekki annaö. Mér
er þessi veðurlýsing að visu ekki
heimatöm og veit ekki gerla
hvarisveithún er málvenja.En
mér hefur jafnan fundist að
annaö fælist i þessum orðum.
Ég hélt, að „tveggja bakka
veöur” þýddi tvieflt illviðri.
Bakki við hafsbrún boðaöi mér
aöeins illviðri en aldrei neina
tvisýnu. Stundum var sem
Andrés Krist-
jánsson skrif-
ar
I kvæðinu Landið er brugðið
upp þessum hnitorðaöa og mér
liggur viö að segja fagra sólar-
hring:
Sólin fikrar sig
eftir sjdndeildarhringnum
uns hún siglir þöndum seglum
úti hafsauga,
kemur næsta morgun
með nýjan farm
af hrauni fjöllum og hafi
I gagnsærri skikkju
kemur gamall himinn til jarðar
og gengur við sólstaf
yfir hraunið.
Maður staldrar við og hugsar
ósjálfrátt: Er annars hægt aö
segja þetta betur? Jú, auövitað
er hægt að segja allt betur. En
samt er þetta gott— mjög gott.
Við biðum eftir næstu útgáfu
þessarar daglegu en siungu
skynjunar.
Mann er alltaf að dreyma allt
millihimins og jarðar og margt
fleira. En hver hefur sagt manni
það merkilegasta við drauma
betur en Matthias i þessum orð-
um:
1 draumi eru ailir dánir,
I draumi eru allir lifandi.
Milli dauðra og lifandi
eru engin takmörk i draumi.
Þarna blasir við manni sem
uppgötvun það sem ætti þó að
vera hversdagslegasta hugsun á
hverjum morgni. Þetta er
skáldskapur. Aeftir fylgir langt
kvæðijimdraumana en þaðverö-
En Matthias kann lika að
segja mikiö i örfáum oröum. Ég
bendi á örstutt ljóð i kaflanum
„Smákvæði hiö næsta okkur”,
til að mynda A Vatnsskarði:
Gamli vegurinn er gróinn upp
en sjálfur hef ég misst hárið.
og Kirkjuna aö Keldum:
Fólkið liggur I garðinum
en flugurnar I gluggakist-
unni.
Liklega er Steinn Steinarr
aöalmeistari Matthiasar, þótt
aðföngin séu úr mörgum stað.
Og þótt hann hafi sveigt ljóðlist
sina æ meir I stakk persónulegs
stlls meö árunum, er hann
Steini mjög trúr, en þaö er langt
frá þvi að hann veröi kallaður
api hans. Hann er miklu meiri
mælskumaöur en Steinn, og svið
hans er stærra. Þessi nýja
ljóðabók flytur aö minum dómi
ýmislegt hið besta sem Matthi-
as hefur ort, og ég held að hon-
um hafi aldrei tekist eins velog i
einstökum ljóðlinum þar. Þar
eru hendingar sem munu lifa,
og hann nær þessum áfanga
fyrir það að hann þorir að láta
orö sin tala og skina, takmarkar
sig ekki um of og hikar ekki við
að láta fjölina fljóta.
Mér finnst þessi ljóöabók vera
skýrari vitnisburöur um það en
flest annað, sem Matthias Jó-
hannessen hefur látið frá sér
fara, að hann er kominn I
fremstu röð ljóöskálda eftir-
striösáranna og túlkar gerjun,
hrynjandi og sviptingar þess
timabils betur en önnur ljóð-
skáldá Islandi. Þess vegna mun
hann njóta athygli næstu kyn-
slóða sem telja hann forvitni-
legan fulltrúa þessa merkilega
timabils en ekki aöeins ljóö-
skáld i krafti þess besta sem
hann hefur ort.
w
Laugardalsvöllur II. delld
I dag kl. 17
Þróttur
Völsungur
Halda Þróttarar áfram
sigurgöngu sinni?
Hvað skeður í hálfleik?-
✓
Sveinlaugur verður
á vellinum
áhorfendum
til trausts
og halds /y^ v' ^
Múlar
Ármúli
Síðumúli
Suðurlandsbraut
Fálkagata
Aragata
Hörpugata
Þjósárgata
BLAÐBURtm
FÓLKÓSKASPj
®cl a§6u
Afleysingar
Nes II frá 1-15/7
Barðaströnd
Látraströnd
Vesturströnd
Víðimelur júlí og ágúst
Víðimelur
Reynimelur
Nes III frá 6/22/7
Selbraut
Skerjabraut
Sæbraut
íslandsmethafinn í kvartmílu
til sölu
Til sýnis og sölu á bílasölunni
Bílatorg Borgartúni 24 Simi 13630