Morgunblaðið - 05.04.2004, Side 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FLUGVÉL SKEMMDIST
Betur fór en á horfðist þegar lítilli
einkaflugvél hlekktist á í flugtaki
skammt vestan við Hvolsvöll síðdeg-
is í gær. Fernt var í vélinni en engin
alvarleg meiðsl urðu á fólki. Vélin er
mikið skemmd ef ekki ónýt. Rann-
sóknarnefnd flugslysa rannsakar til-
drög slyssins.
Samheitalyf ekki síðri
Forstjóri Lyfjastofnunar segir
samheitalyf á markaði vera fyllilega
sambærileg við frumlyf hvað varðar
gæði og virkni lyfjanna. Lyfin séu
skráð á þeim forsendum að rann-
sóknir á þeim liggi fyrir og þau hafi
verið borin saman við frumlyfin. Vel
sé fylgst með bæði samheitalyfjum
og frumlyfjum.
Yfirverð húsbréfa 3–7%
Ávöxtunarkrafa húsbréfa er
óvenju lág sem stendur og er yf-
irverð á bréfunum um 3–7%. Ástæð-
an fyrir lækkuninni er að mati sér-
fræðings Landsbankans aukinn
áhugi erlendra fjárfesta á hús-
bréfum.
Sex féllu á Spáni
Spænsk yfirvöld sögðu í gær að
kjarni hópsins sem stóð að hryðju-
verkunum í Madríd í síðasta mánuði
sé nú allur annaðhvort fallinn í val-
inn eða á bak við lás og slá. Fimm
hryðjuverkamenn, þ.á m. höfuðpaur
þeirra, sprengdu sig í loft upp er lög-
regla sótti að þeim á laugardags-
kvöldið. Einn lögreglumaður féll.
Mannskæð átök í Írak
Sex bandarískir hermenn féllu í
átökum í Bagdad í gær og fyrr um
daginn féllu um 20 manns, þ. á m.
tveir hermenn úr liði bandamanna,
er til átaka kom í borginni Najaf.
Loksins reynt á Einstein
Bandaríska geimvísindastofnunin
ætlar nú eftir margra áratuga tafir
loks að fara að senda á loft gervi-
tungl með búnað sem á að nota til að
láta reyna á almennu afstæðiskenn-
ingu Alberts Einsteins.
Bush hygli ríkum
Sífellt fleiri Bandaríkjamenn telja
að stefna George W. Bush forseta sé
hallkvæm efnafólki, samkvæmt nið-
urstöðum skoðanakönnunar. Frétta-
skýrendur segja að baráttan vegna
forsetakosninganna í nóvember snú-
ist í auknum mæli um efnahags- og
atvinnumál, og geti vel farið svo að
þessir málaflokkar ráði úrslitum í
kosningunum.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 48
Vesturland 11 Krossgáta 35
Erlent 12/13 Dagbók 36/37
Daglegt líf 14/15 Kirkjustarf 37
Listir 16/18 Þjónusta 37
Umræðan 19/21 Fólk 38/41
Forystugrein 22 Bíó 38/41
Minningar 24/28 Ljósvakar 42
Hestar 29 Veður 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
MÁL OG MENNING – Heimskringla, sem á tæp-
lega þriðjungshlut í Eddu útgáfu, greiddi Ólafs-
felli ehf., sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar,
mismun bráðabirgðauppgjörs og endanlegs upp-
gjörs fyrir árið 2001 skömmu eftir að Ólafsfell
keypti sig inn í Eddu vorið 2002. Að sögn stjórn-
arformanns Máls og menningar, Þrastar Ólafs-
sonar, var aldrei þrætt fyrir þennan mismun en
Ólafsfelli greiddir nokkrir tugir milljóna í bætur.
Þar með hafi Mál og menning talið að búið væri að
leiðrétta fortíðina.
„Rétt eftir að við gengum frá kaupum Ólafsfells
á hlut í Eddu kom fram ákveðinn mismunur á því
bráðabirgðauppgjöri sem við höfðum gengið út frá
í samningum við Ólafsfell sem okkar bestu þekk-
ingu á fyrirtækinu og endanlegu uppgjöri. Bráða-
birgðauppgjörið var það uppgjör sem endurskoð-
endur höfðu farið höndum um. Þegar upp komst
um mismuninn leiðrétti Mál og menning það. Þar
með litum við svo á að þessum fortíðarmálum væri
lokið,“ segir Þröstur, sem einnig er stjórnarmaður
í Eddu útgáfu.
Þröstur sat í stjórn Eddu – miðlunar og útgáfu
áður en Ólafsfell eignaðist meirihluta í félaginu
fyrir tveimur árum. Mál og menning átti þá helm-
ingshlut í Eddu, Íslandsbanki átti fjórðung og
Ólafur Ragnarsson, þá stjórnarformaður Eddu,
og fjölskylda áttu fjórðungshlut.
Halldór Guðmundsson var forstjóri Eddu þegar
Ólafsfell keypti. Í samtali Morgunblaðsins við Pál
Braga Kristjónsson sem birtist í Morgunblaðinu á
laugardag kemur fram að stjórn og stjórnendum
hafi verið kunnugt um óreiðu í bókhaldi félagsins
sem leiddi til ofmats á eignum félagsins.
„Ég hef alltaf unnið mitt starf af heilindum og
meira hef ég ekki að segja um þetta að svo
stöddu,“ segir Halldór.
Morgunblaðið hafði samband við Ólaf Ragnars-
son, fyrrverandi stjórnarformann Eddu, og Guð-
finnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi stjórnarmann í
félaginu. Hvorugt þeirra vildi tjá sig um málið að
svo stöddu.
Mál og menning leiðrétti
mismun — töldu málinu lokið
Stjórnarformaður Máls og menningar segir félagið hafa greitt Ólafsfelli nokkra
tugi milljóna vegna misræmis í bráðabirgðauppgjöri Eddu útgáfu fyrir árið 2001
PÁLMASUNNUDAG bar upp á 4.
apríl að þessu sinni og mörg ferm-
ingarbörn munu hafa viljað sjá
dagsetninguna 04.04. 04 ritaða á
sína sálmabók eða servíettur í ár.
Íris Kristjánsdóttir, sókn-
arprestur í Hjallasókn, fermdi
tæpan helming sinna ferming-
arbarna á pálmasunnudag, hinn
04.04. 04. Hún segist ekki hafa
tekið eftir óvenjulega miklum
áhuga meðal fermingarbarna á
þessum degi til að byrja með en
þegar leið á veturinn hafi hins
vegar æ fleiri beðið um að skipta
yfir á pálmasunnudag. Í Hjalla-
sókn sé sá hátturinn hafður á að
fermingarbörn og fjölskyldur geta
valið fermingardaginn, en eru
ekki bundin af bekkjarfélögum
eins og víða tíðkast.
„Við erum með sex fermingar í
Hjallakirkju og tvær fjölmennustu
fermingarnar eru á þessum degi.
Það var svolítið um það að fólk
vildi breyta og færa ferminguna á
þennan dag. Það tók enginn fram
að það væri vegna dagsetning-
arinnar, en ég veit svo sem ekki
um ástæðuna. Pálmasunnudagur
hefur yfirleitt verið vinsælastur,
hvenær sem hann hittir á,“ segir
Íris.
Um 6.600 sóknarbörn tilheyra
Hjallasókn. Fermingarbörn voru
110 og kusu 47 þeirra að fermast
á pálmasunnudag.
Séra Vigfús Þór Árnason, sókn-
arprestur í Grafarvogssókn,
fermdi, skírði og gifti í gær,
pálmasunnudag. Hann sagði við
fermingarbörnin í hugleiðingu
sinni til þeirra að þegar þau yrðu
spurð eftir 50 ár hvaða dag þau
fermdust myndu þau eflaust muna
dagsetninguna auðveldlega þá en
ekki þurfa að fletta því upp eins
og margir.
Vigfús Þór skírði barn í heima-
húsi í gær, en foreldrarnir búa í
Danmörku og komu sérstaklega til
landsins vegna skírnarinnar. Hann
segir foreldrana hafa verið sér-
lega ánægða með þessa hentugu
dagsetningu.
Giftu sig 04.04. 04 til að
gleyma ekki deginum
Brúðhjónin sem Vigfús Þór
vígði í gær ákváðu að ganga í það
heilaga á pálmasunnudag til að
eiga það ekki á hættu að gleyma
brúðkaupsdeginum. „Ég gifti fólk
sem er búið að þekkjast mjög
lengi og búa saman í nokkur ár.
Þau voru búin að vera að hugsa
um þetta lengi en ákváðu að
demba sér í þetta af því að það
var þessi dagur. Vildu muna eftir
brúðkaupsdeginum,“ segir Vigfús
Þór.
Morgunblaðið/ÞÖK
Pálmasunnudagur
vinsæll fermingardagur
Stórmeist-
arar og Bragi
í undanúrslit
STÓRMEISTARARNIR Hannes
Hlífar Stefánsson, Helgi Áss Grét-
arsson og Þröstur Þórhallsson og
alþjóðlegi meistarinn Bragi Þor-
finnsson eru komnir í undanúrslit
landsliðsflokks Skákþings Íslands
en allir unnu þeir sín einvígi 1,5–
0,5.
Undanúrslit hefjast á morgun og
mætast þá Hannes og Þröstur og
Helgi Áss og Bragi.
Anna Björg Þorgrímsdóttir er
efst, með fullt hús, að lokinni 2. um-
ferð Íslandsmóts kvenna, eftir sig-
ur á Sigurlaugu R. Friðþjófsdóttur.
Harpa Ingólfsdóttir og Guðlaug
Þorsteinsdóttir, eru í 2.–3. sæti með
1,5 vinninga eftir jafntefli í inn-
byrðis viðureign.
Keppni hafin/33
Morgunblaðið/Ómar
Júlía Rós Hafþórsdóttir 11 ára og
Anna Björg Þorgrímsdóttir á Ís-
landsmóti kvenna í skák sem hófst
á laugardaginn og haldið er í húsi
Orkuveitu Reykjavíkur.