Morgunblaðið - 05.04.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.04.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ icelandair.is/vildarklubbur Tvöfaldir Vildarpunktar til 1. maí ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 24 12 5 0 4/ 20 04 Þú færð Vildarpunkta í Select og Shellverslunum INGVELDUR Gísladóttir fædd- ist 4. apríl árið 1904. Hún fagn- aði aldarafmælinu með ætt- ingjum og vinum laugardaginn 3. apríl, þar sem ómögulegt var að fá sal til veisluhalda á pálma- sunnudag, 04.04.04, að sögn Rögnu dóttur hennar. Hún segir að alls hafi um 130 gestir mætt prúðbúnir til veislu. Ekkert ann- að en stór veislusalur dugði fyr- ir aldarafmælið því tala barna, barnabarna og langömmubarna Ingveldar er komin upp í 102. Ingveldur er fædd á Rauðs- eyjum á Breiðafirði. Hún flutti til Patreksfjarðar um tvítugt og bjó þar ásamt eiginmanni sínum Guðmundi Kristjánssyni versl- unarmanni. Hann lést árið 1959 en Ingveldur fluttist í Kópavog um áratug síðar. Hún starfaði í nokkur ár á sjúkrahúsinu á Pat- reksfirði auk þess sem hún starf- aði við fiskvinnslu hjá Barðanum í Kópavogi í á sjötta ár, allt þar til hún var 75 ára gömul. Ingv- eldur býr nú á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Ingveldur og Guðmundur eignuðust tíu börn og af þeim eru átta á lífi. Aldarafmæli 04.04.04 Morgunblaðið/Sverrir Ingveldur Gísladóttir fagnaði aldarafmæli á laugardag þar sem ómögu- legt var að fá veislusal á sjálfan afmælisdaginn. Ingveldur Gísla- dóttir hélt upp á aldarafmæli með 102 afkomendum á Grand hóteli EÐLILEGT samráð var haft við forystumenn Þingvallahrepps varð- andi stækkun hins friðhelga lands Þingvalla, áður en frumvarp til laga um stækkunina var fyrst lagt fram á Alþingi fyrir fáeinum árum. Þing- legri meðferð málsins var hins veg- ar frestað vegna þjóðlendumála og Björn Bjarnason, formaður Þing- vallanefndar, segir að ekki hafi sér- staklega verið haft samband við sveitarstjórnarmenn nú þegar frumvarpið er lagt fram óbreytt. Þingvallanefnd hafi einfaldlega tal- ið, að samruni Þingvallahrepps í Bláskógabyggð árið 2002 með Bisk- upstungnahreppi og Laugardals- hreppi, breytti engu um afstöðuna til stækkunar hins friðhelga lands. Engin sjónarmið í þá átt hefðu komið fram á samráðsfundum nefndarmanna með forystumönnum Bláskógabyggðar, en oddviti Blá- skógabyggðar gagnrýndi í Morgun- blaðinu í gær að ekkert samráð hefði verið haft við sveitastjórnina varðandi undirbúning frumvarpsins og ekki heldur þegar umsókn til UNESCO um að koma Þingvöllum á heimsminjaskrá var send. Björn segir frumvarpið eiga margra ára aðdraganda en hafa ver- ið rætt ítarlega við viðkomandi sveitarstjórnarmenn og fleiri á sín- um tíma. „Síðan sameinast þarna sveitar- félög. Ég veit ekki hvernig upplýs- ingar berast milli þeirra sem voru í fyrri sveitarstjórn og þeirra sem sitja í stjórn hins sameinaða sveitar- félags, en við fórum yfir þetta með sveitarstjórn á sínum tíma og þetta var ítarlega rætt.“ Aðspurður hvort honum hafi ekki þótt tilefni til að taka málið upp aft- ur við nýja sveitarstjórn segir Björn: „Það var búið að hafa allt það samráð sem var eðlilegt. Sveitar- stjórnarmenn verða síðan að ganga frá því hvernig þeir ræða sín mál. Við höfum auk þess átt samráðs- fundi með hinni nýju sveitarstjórn og það hefur aldrei verið dregin nein dul á áhuga Þingvallanefndar á að þetta frumvarp nái fram að ganga. Ef sveitarfélög eru sameinuð er það ekki okkar viðfangsefni að taka þráðinn upp að nýju. Við gætum al- veg eins sett okkur í þau spor að finna að því, að sameining sveitarfé- laganna hafi ekki verið borin sér- staklega undir Þingvallanefnd, en gerum það að sjálfsögðu ekki. Hver hefur sínu verkefni að sinna og mik- ilvægt er að samstarf sé gott.“ Ráðgjafar hafna nýjum vegi um Gjábakkaland Björn segir að ríkisstjórnin hafi fyrir nokkrum árum ákveðið að sækja um að Þingvellir yrðu skráðir á heimsminjaskrá UNESCO og hefðu miklar opinberar umræður farið fram um málið og sérfræð- inganefnd undir formennsku Mar- grétar Hallgrímsdóttur þjóðminja- varðar unnið að framkvæmd málsins undir forystu menntamála- ráðuneytisins í samstarfi við Þing- vallanefnd. „Ég veit ekki annað en að allir hafi verið mjög sáttir við þessa umsókn, heimamenn ekki síð- ur en aðrir.“ Björn segir að ákvörðun um það, hvort Þingvellir komist á skrána verði tekin á fundi í Kína í byrjun júlí. Unnið hafi verið að því að svara öllum spurningum sérfræðinga fram á síðustu daga. „Það liggur skýrt fyrir núna frá ráðgjöfum UNESCO varðandi umsóknina og formanni íslensku sérfræðinga- nefndarinnar að ekki eru forsendur fyrir því að leggja nýjan vegi innan þess svæðis sem á að setja á heims- minjaskrána,“ en Bláskógabyggð hefur viljað fá heimild til að leggja veg í gegnum Gjábakkaland, sem er samkvæmt umsókn til UNESCO innan þjóðgarðsmarka. Formaður Þingvallanefndar um gagnrýni á vinnubrögð varðandi frumvarp um Þingvelli Samráð haft við sveit- arstjórn á sínum tíma Morgunblaðið/Ómar ELSTI karlmaður landsins, (Oddur) Ágúst Benediktsson, lést sl. föstudag, 103 ára að aldri. Ágúst var fæddur hinn 11. ágúst árið 1900 í Steinadal í Kollafirði. Ágúst var kvæntur Guðrúnu Þóreyju Ein- arsdóttur frá Þóru- stöðum í Bitru, en hún lést árið 2000, þá 93 ára að aldri. Þau hjón voru gift í 71 ár og stunduðu bú- skap að Hvalsá í Kirkjubólshreppi við Steingríms- fjörð í 43 ár, frá árinu 1929. Ágúst stundaði sjómennsku og starfaði sem tré- smiður auk þess sem hann var meðhjálpari í þrjá áratugi á Kolla- fjarðarnesi. Árið 1972 fluttust Ágúst og Guðrún til Reykjavíkur. Ágúst vann lengst af við netagerð og gerði bæði silunga- og laxa- net. Síðustu þrjú ár ævinnar var Ágúst bú- settur á Hrafnistu í Hafnarfirði. Af sjö sonum sem Ágúst og Guðrún eignuðust eru fimm á lífi. Andlát ÁGÚST BENEDIKTSSON SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir, for- maður umhverfisnefndar Alþingis, segist ekki sjá að neitt ætti að verða því til fyrirstöðu að hægt verði að fella umdeilt bráðabirgðaákvæði út úr frumvarpi til laga um verndun Mývatns og Laxár. Frumvarpið er nú til meðferðar á Alþingi. Eins og fram hefur komið hafa Landsvirkjun og stjórn Landeigendafélags Mý- vatns og Laxár orðið sammála um að óska eftir því að bráðabirgðaákvæðið falli brott, en ákvæðið heimilar hækkun á núverandi stíflu við Lax- árvirkjun að undangengnum ákveðnum skilyrðum. Að sögn Sigríðar Önnu hefur bréf með umræddri ósk borist umhverf- isnefndinni. Í bréfinu kemur m.a. fram að báðir aðilar, þ.e. Landsvirkj- un og Landeigendafélagið, muni skipa viðræðunefnd til að leita lausn- ar á rekstrarvanda Laxárvirkjunar jafnskjótt og bráðabirgðaákvæðið fellur brott. „Leiði viðræður aðila til þess að lausn finnist, sem báðir geti sætt sig við, þá munu þeir sameig- inlega óska eftir því við Alþingi að heimilað verði í lögum að láta meta umhverfisáhrif þeirrar lausnar reyn- ist það nauðsynlegt.“ Sigríður Anna segir þetta sýna að menn séu reiðubúnir að ræða þessi mál með það í huga að ná samkomu- lagi. „Ég get ekki séð á þessari stundu að neitt ætti að verða því til fyrirstöðu að bráðabirgðaákvæðið falli brott,“ segir hún, en leggur áherslu á að nefndin hafi ekki enn formlega fjallað um bréfið. Hún bæt- ir því við að ekki sé útilokað að lausn finnist á þessu máli fyrir þinglok tak- ist aðilum að „vinna hratt saman“, eins og hún orðar það. Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður umhverfisnefndar Alþingis Ekkert því til fyrir- stöðu að fella bráða- birgðaákvæðið brott

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.