Morgunblaðið - 05.04.2004, Síða 8

Morgunblaðið - 05.04.2004, Síða 8
FRÉTTIR 8 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þetta er nú gamall pólitískur refur, herra. Málþing um skattlagningu áfengis Íslendingar með heimsmet Hádegisfundur umskattlagningu rík-isins á áfengi verður haldinn í Háskóla Íslands, Odda, stofu 101, hinn 6. apríl nk., nánar til- tekið á morgun, kl. 12.15– 13.15. Morgunblaðið hafði tal af Guðmundu Smára- dóttur, verkefnisstjóra hjá Félagi íslenskra stórkaup- manna, FÍS, sem ásamt fleirum standa að þessum fundi. Guðmunda svaraði nokkrum spurningum sem Morgunblaðins. – Hver er yfirskrift hádegisfundarins og hverj- ir eru það sem halda þenn- an fund? „FÍS og viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Ís- lands standa að þessum sameiginlega hádegisfundi sem haldinn verður í Odda á morgun. Yfirskrift fundarins verður: „Eru skattar á áfengi of háir á Íslandi?““ – Hvert er tilefni þess að blásið er til þessa fundar? „Í stuttu máli að vekja fólk til umhugsunar um ofurskattlagn- ingu áfengis hér á landi. Rök með og á móti háum áfengisgjöldum verða kynnt – þannig að ekki verð- ur um neina „hallelúja-samkomu“ að ræða. Fundurinn er jafnframt liður í átaksverkefni sem FÍS ýtti nýverið úr vör og miðar að því að sannfæra stjórnvöld um að lækka beri áfengisgjöld á Íslandi til jafns við það sem gengur og gerist í ná- grannaríkjum okkar. Með áfeng- isgjöldum er átt við þann skatt sem ríkið leggur á allt áfengi og miðast við áfengisinnihald vökv- ans. Sem dæmi renna allt að 84% af vodkaflösku beint í ríkissjóð að vsk meðtöldum.“ – Hverjar verða helstu áherslur fundarins og hvaða spurningum verður helst leitast við að svara? „Leitast verður við að svara spurningum á borð við hver séu markmið ríkisins með skattlagn- ingu áfengis og hvort ekki sé kom- inn tími á lækkun áfengisgjalda. Sú aðhaldssama áfengisstefna sem rekin er hér á landi á rætur sínar að rekja 69 ár aftur í tímann eða til ársins 1935 þegar áfengis- banninu var aflétt. Menn voru á þeim tíma skiljanlega uggandi yfir framhaldinu og því voru gerðar strangar kröfur til þeirra sem seldu og framleiddu vín s.s. kröfur um takmarkað aðgengi að áfengi, bann við áfengisauglýsingum, há- an áfengiskaupaaldur og hátt áfengisverð. Árið 2004 erum við enn að sjá sömu áherslur! Sambærilegar áfengisstefnur voru lengi reknar á hinum Norð- urlöndunum að Danmörku undan- skilinni. Þetta norræna „áfengis- módel“ hefur þó verið að liðast í sundur á síðustu árum. Skemmst er að minnast þess að Danir lækk- uðu áfengisgjöld um 45% í októ- ber sl. og Finnar fylgdu í kjölfarið 1. mars þegar þeir lækkuðu skatta af létt- víni, sterku áfengi og bjór að meðaltali um 33%. Norðmenn hafa lækkað áfengisskatta um 20% síðan 2002 og Svíar fylgja án efa fljótlega í kjöl- farið þar sem áfengisverslun er að flytjast þar úr landi. Íslendingar sitja eftir með heimsmeistaratit- ilinn í höndum – hér er hæstu áfengisskatta að finna í heimin- um.“ – Hverjir taka til máls á fund- inum og hver verða umræðuefni þeirra? „Frummælendur verða; Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Þór- arinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, og Guðmundur Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands. Erna mun fjalla um mistæka neyslustýringu í þjóðfélaginu og taka fyrir sjónarmið ferðaþjónust- unnar gagnvart háu áfengisverði. Þórarinn ræðir m.a. um há áfeng- isgjöld út frá forvarnarsjónarmið- um og hvort ríkið eigi almennt að vera með sérstaka löggjöf varð- andi skattlagningu áfengis. Guð- mundur verður á hagfræðilegum nótum og fjallar m.a. um hvaða kostnað megi telja eðlilegt að áfengissala beri, hvort verð á áfengi hafi mikil áhrif á skaðsemi þess og hvort ferðamenn varist lönd þar sem hátt áfengisverð rík- ir.“ – Ég geri ráð fyrir að þú eigir von á líflegum umræðum? „Tvímælalaust. Þetta verður án efa málefnalegur en á sama tíma fjörlegur fundur. Býst svo við að margir fundarmanna láti gamm- inn geisa að erindum loknum – og hvet fólk eindregið til þess.“ – Sérð þú fyrir þér breyting- ar í kortunum í þessum efnum í náinni framtíð? „Þeir þingmenn sem rætt hefur verið við varðandi löngu tímabæra lækkun áfengisgjalda hafa verið mjög jákvæðir – spurn- ingin er hins vegar hver hefur hið pólitíska þor til að stíga fram og koma með frumvarp um lækkun áfengis- gjalda … En miðað við þær undirtektir sem við höfum fengið get ég ekki verið annað en bjartsýn á framhaldið.“ – Mega allir taka þátt í fund- inum, er hann lokaður eða ætlaður einhverjum sérstökum hópum öðrum fremur? „Fundurinn er opinn öllum áhugasömum um efnið og fólk er hvatt til að mæta.“ Guðmunda Smáradóttir  Guðmunda Smáradóttir er fædd í Reykjavík þann 2. maí ár- ið 1971. Hún er með MS-gráðu í viðskiptafræði – stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2001, BA í frönsku frá Há- skóla Íslands árið 1998, stúdent frá Verslunarskóla Íslands árið 1991. Starfaði með námi hjá SPRON á árunum 1989–1998. Hefur starfað sem verkefn- isstjóri hjá FÍS, Félagi íslenskra stórkaupmanna, frá árinu 2003. Guðmunda er gift Þorsteini Helga Steinarssyni verkfræðingi og eiga þau þrjú börn; fimm ára stúlku og tveggja ára tvíbura- drengi. Hér er hæstu áfengisskatta að finna í heiminum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.