Morgunblaðið - 05.04.2004, Síða 9
GRÁSLEPPUTRILLA, með
einum manni innanborðs
strandaði á skeri fyrir utan Ný-
lendu sem er skammt sunnan
við Sandgerði, síðdegis á laug-
ardag. Manninn sakaði ekki og
tókst björgunarsveitarmönn-
um að ná trillunni af skerinu.
Björgunarsveitin Sigurvon í
Sandgerði, ásamt björgunar-
skipinu Hannesi Þ. Hafstein,
var kölluð út kl. 18.03 á laug-
ardag vegna strandsins. Björg-
unarsveitarmenn fóru með
léttan slöngubát á vettvang og
gátu tekið trilluna í tog þannig
að hún losnaði af skerinu.
Björgunarskipið Hannes Þ.
Hafstein beið átekta en ekki
reyndist þörf fyrir aðstoð þess.
Lítil hætta var á ferðum
samkvæmt upplýsingum frá
Slysavarnafélaginu Lands-
björgu, enda blíðskapar veður
á þessum slóðum og enginn leki
kom að trillunni.
STUTT
Trilla
strandaði
fyrir utan
Nýlendu
Ljósmynd/N. Ravlo.
„Ég lít á það sem mikinn heiður
sem íslenskur ríkisborgari að fá að
þjóna norska kónginum,“ segir
Ágúst Snæbjörnsson um lífvarð-
arstarfið.
ÁGÚST Snæbjörnsson, liðsfor-
ingjaefni í konunglega norska líf-
verðinum í Ósló, er einn örfárra Ís-
lendinga sem gegnt hafa því starfi.
Ágúst starfaði hjá lögreglunni um
nokkurra ára skeið en fluttist til
Noregs fyrir tæpum tveimur árum
og leggur stund á tveggja ára her-
skólanám í vörnum gegn gjöreyð-
ingarvopnum, þ.m.t. efna-, sýkla-
og kjarnorkuvopnum.
Náminu er skipt upp í bóknám
og starfsþjálfun og hyggur hann á
frekara nám í herstjórnun.
Æfir hernað í borgum
og skógum
„Ég lít á það sem mikinn heiður
sem íslenskur ríkisborgari að fá að
þjóna norska kónginum,“ segir
Ágúst um lífvarðarstarfið. Um
1.200 manns eru í sveitinni. Helm-
ingur af tíma hans fer í þjálfun og
vaktir við hallir og aðra staði þar
sem konungsfjölskyldan dvelur en
þess utan æfir sveitin sérstaklega
hernað í borgum og skógum.
Ágúst hefur sótt um í frekara nám
við herstjórnun, sem fyrr segir, og
eru framundan margþætt inntöku-
próf þar sem reynir á líkamlegt og
andlegt þol.
Ágústi stendur til að boða að
starfa áfram við lífvarðarsveit-
irnar í eitt til tvö ár til viðbótar en
segir óljóst hvað tekur við að loknu
frekara námi. Þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann fyrir
Ljósmynd/N. Ravlo.
Ágúst Snæbjörnsson í fullum skrúða á vakt í norska lífverðinum.
nokkru var hann á leið til fjalla í
Mið-Noregi til æfinga á hernaði við
vetraraðstæður. Þar ætlaði hann
að dvelja með lágmarksvistir í um
vikutíma. Ágúst er í stuttu fríi á Ís-
landi sem stendur.
Íslenskur liðsforingi í konunglega
norska lífverðinum
„Mikill heiður
að fá að þjóna
norska kónginum“
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 9
Kringlunni, s. 588 1680
iðunn
tískuverslun
Nýtt - Nýtt
sandalar
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Mikið úrval af
DOMINIQUE vörum
www.ropeyoga.com
Bermúdabuxur
- kvartbuxur
- bolir
Í fríið
Vildi fara í
sund um nótt
SAUTJÁN ára piltur sem
hugðist fá sér sundsprett í einni
af laugum borgarinnar um
þrjúleytið aðfaranótt sunnu-
dagsins varð heldur óhress
þegar honum var meinað um
inngöngu af öryggisverði. Til
átaka kom milli mannanna og
þegar lögreglu bar að réðst
hinn áhugasami sundmaður á
lögregluþjón.
Hann var handtekinn og gisti
fangageymslur. Pilturinn er
talinn hafa verið undir áhrifum
áfengis.
BÍLL valt út af Reykjanes-
braut við Kúagerði á fjórða tím-
anum í fyrrinótt en ökumaður
er grunaður um ölvun, skv.
upplýsingum lögreglu. Þrennt
var í bílnum og voru þau flutt á
slysadeild. Reyndist annar far-
þeginn nokkuð slasaður.
Bílvelta við
Kúagerði
GÍSLI Tryggvason, framkvæmda-
stjóri Bandalags háskólamanna,
BHM, andmælir því að sjálfseign-
arstofnanir séu gallað rekstrar-
form, eins og Þór Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs
Íslands, segir í pistli á vefsíðu
ráðsins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu.
Þór sagði hlutafélagsformið hafa
sýnt yfirburði sína. Gísli segir hins
vegar að sjálfseignarstofnanir
henti vel til rekstrar í almanna-
þágu fyrir opinbert fé, t.d. há-
skóla, Orlofssjóða og sjúkrastofn-
ana, sem ekki eiga að greiða út
arð. Hann segir góða reynslu af
sjálfseignarstofnunum í opinberum
og hálfopinberum rekstri. „Þá er
ég t.d. að tala um Háskólann í
Reykjavík sem Verslunarráð Ís-
lands setti einmitt á stofn sem
sjálfseignarstofnun. Svo mér
finnst það mikil mótsögn að fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs sé að
andmæla því rekstarformi sem
myndi aldrei vera liðið ef það væri
hlutafélag sem gæti greitt arð,“
segir Gísli.
Eina formið sem
gæfist fyrir háskóla
„Það kæmi ekki til greina að ég
talaði af hálfu almennings og
stjórnmálamanna. Því þarna
greiða nemendur sem fá lán úr
Lánasjóði íslenskra námsmanna
skólagjöld. Sjálfseignarstofnunar-
formið er því sennilega hið eina
sem gæfist fyrir háskóla.“
Gísli nefnir einnig sem dæmi að
umdeilt hafi verið að fela Öldungi
að reka Sóltún sem hlutafélag.
Hann segir það hafa sett lífeyr-
ismál starfsmanna í uppnám um
tíma.
Gísli bendir á að hlutafélög gef-
ist hins vegar vel þegar arðsem-
ismarkmið eru fyrst og fremst
höfð að leiðarljósi og tekur undir
með Þór um að þegar stofnun eða
félag starfi á samkeppnismarkaði,
líkt og SPRON, komi kostir hluta-
félagsformsins í ljós.
Gísli Tryggvason, framkvæmdastjóri BHM
Sjálfseignarstofnanir henta
til rekstrar í almannaþágu
Sina brann
í hálfan
sólarhring
REYKJARMÖKK lagði yfir
Akureyrarbæ síðdegis á laug-
ardag og hringdi fjöldi fólks til
lögreglunnar á Akureyri til að
kvarta og spyrjast fyrir um or-
sakir. Reykjarmökkurinn kom
frá sinubruna við bæinn Þverá,
sem er rétt sunnan við Akur-
eyri. Að sögn lögreglu var
bóndinn með öll tilskilin leyfi til
að brenna sinuna á landi sínu
en skömmu eftir að kveikt hafði
verið í sinunni snerist vindáttin
með þeim afleiðingum að reyk-
inn lagði yfir Akureyrarbæ.
Kveikt var í sinunni um
fimmleytið á laugardag og um
sexleytið í gærmorgun, þegar
loks fór að rigna, logaði enn í
glæðunum.
Tugir hektara lands brunnu,
en svæðið er á flatlendi niðri við
bakka Eyjafjarðarár. Að sögn
lögreglu var slökkvilið í við-
bragðsstöðu ef eldurinn færi úr
böndunum en engin þörf reynd-
ist vera á aðstoð þess, rigningin
sá um að slökkva eldinn.
Úrslitin úr
spænska boltanum
beint í
símann þinn