Morgunblaðið - 05.04.2004, Síða 14

Morgunblaðið - 05.04.2004, Síða 14
DAGLEGT LÍF 14 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Nú eru CONFETTI dagar í Rollingum Mánud., þriðjud., og miðvikud. 25% afsláttur VEGGI veitingastaðarins Við fjöru- borðið á Stokkseyri, sem þekktur er fyrir grillaðan humar og göldróttar súpur, prýða gjarnan verk eftir lista- menn á staðnum eða í nágrenni. Núna stendur yfir sýning á verkum Þórdísar Þórðardóttur, en hún hefur undanfarin ár málað pastelmyndir á Celestial Seasonings tepoka. Þegar blaðamaður snæddi nýlega á veitingastaðnum greip þessi óvenjulega list athygli hans og ákvað hann að spyrja Þórdísi síðar um verkin. Á tepokana voru málaðar myndir af gömlum húsum, t.d. nokkrum sem eru á Eyrarbakka. Á höld tepokans voru rituð spakmæli eftir þekkta spekinga, t.d. „Beauty is not in the face, beauty is a light in the heart“ sem merkir í hrárri þýð- ingu: „Fegurðin er ekki í andlitinu, fegurðin er ljósið í hjartanu“. „Spakmælin skipta miklu máli,“ segir Þórdís, „oft velur fólk mynd, sem það ætlar að gefa, eftir því hvaða spakmæli fylgir. Það vill að spakmælið hafi merkingu fyrir þann sem á að fá gjöfina.“ Óvænt notkun tepokanna Þórdís málar líka myndir eftir óskum hvers og eins, og fær sendar ljósmyndir af gömlum húsum með beiðni um að mála það á tepoka. Þórdís er fædd á Stokkseyri, en býr nú á Eyrarbakka. Myndefnið sækir hún aðallega í umhverfi sitt og hafa gömlu húsin á Eyrarbakka gjarnan orðið fyrir valinu. Þórdís segist hafa valið Celestial Seasonings tepokana vegna þess hversu fyrirtækið er umhverf- issinnað. Allar umbúðir utan um teið eru úr endurunnum pappír og tepok- arnir úr óbleiktum pappír. Segja má að hún haldi áfram að endurvinna efnið, því ekki fer það í ruslið. Tepokar með spakmælum fást á veitingahúsum en ekki í búðum, og fær Þórdís þá þar eftir notkun og forvinnur þá fyrir málun. Þórdís læt- ur annaðhvort ramma málaða tepok- ana inn eða límir þá á gjafakort. Hún hefur nýlega opnað vinnu- stofu í Hólmaröst á Stokkseyri og eru verk hennar til sölu þar, einnig í Rauða húsinu á Eyrarbakka, Ála- fossi Mosfellsbæ, Litla jólahúsinu við Grundarstíg 7 í Reykjavík og stundum á handverksmörkuðum á sumrin. Verk í ramma kostar 4.000 krónur en gjafakort með húsum 950 krónur. Hún vinnur einnig verk í leir. Vitar á tepokum „Vinkona mín gaf mér frum- hugmyndina að þessu og þá teiknaði ég blóm á afmæliskort,“ segir Þórdís og bætir við að þetta hafi þróast hjá henni frá árinu 1999. Hún segir að gaman væri að hafa íslensk spakmæli á pokunum, þótt ólíklegt sé að slíkt fari í framleiðslu. Þó hafði hún samband við heildsöl- una Karl K. Karlsson sem flytur þetta te inn – og þaðan voru verk Þórdísar send til stjórnenda Celesti- al Seasonings sem hrifust mjög af. Verk Þórdísar hafs spurst vel út um byggðir landsins og segist hún nú hafa teiknað og málað gömul hús frá öllum landshornum á tepokana. „Þetta er skemmtileg vinna sem gefur mér mikið,“ segir hún og að hún vinni nú að því að teikna alla vita landsins á tepoka. Aðalhjálpartæki hennar er bókin Vitar á Íslandi – leiðarljós á landsins ströndum 1878– 2002 (Siglingastofnun, 2002). Þórdís segir að sennilega hafi hún oftast málað húsin á Eyrarbakka og þá helst Akbraut, Rauða húsið, Laugabúð, Sjónarhól, Garðshús og Frímannshús. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gjafakort: Með spakmælum og húsamyndum á tepokum.  LIST Gömul hús á tepokum Morgunblaðið/Árni Sæberg Myndir: Fólk sendir Þórdísi ljósmyndir af gömlum húsum til að fá á tepoka. Þórdís Þórðardóttir fer ekki troðnar slóðir í list sinni. Hún málar gömul hús á tepoka, rammar þá inn eða festir á gjafakort. guhe@mbl.is TENGLAR .............................................. http://www.fjorubordid.is/ www.eyrarbakki.is www.karlsson.is BÖRNUM yngri en 16 ára ætti að vera bannaður aðgangur að ljósa- bekkjum. Ástæðan er að böð á ljósabekkjum auka verulega lík- urnar á sortuæxli síðar á ævinni, en það er algengasta krabbamein- ið meðal ungra kvenna. Þetta kemur fram í ályktun sem rannsóknarstofa í krabba- meinsfræðum í Bretlandi (Cancer Research UK) og Samtök sólbaðs- stofa (TSA) hafa komið sér saman um. Þar kemur ennfremur fram að æskilegt sé að sólbaðsstofur upplýsi fólk um áhættuna af notk- un ljósabekkja. Löggilding- arstofum víða í Evrópu hefur ver- ið sent álitið – með þeim tilmælum að notendur ljósabekkja þurfi að fá skýrar upplýsingar um áhættuna. Rannsóknarniðurstöður hafa oft bent til þess að það skaði húð- frumur og valdi krabbameini að leggjast á ljósabekk. Í Bretlandi eru um 70 þúsund einstaklingar árlega greindir með húð- krabbamein. Á Íslandi eykst tíðni sortuæxla hraðar en nokkurs annars krabbameins. Það hefur verið skýrt af Landlæknisembætt- inu sem óskynsamleg brúnku- dýrkun, ásamt tíðum sólar- landaferðum og meti í ljósabekkjanotkun. Sara Hiom, talsmaður CR (Cancer Research UK), vill að á ljósabekki verði settar aðvaranir um mögulegan skaða – líkt og er á sígarettupökkum. Hún vill að Evrópusambandið setji slíkar reglur og að þar komi fram hvaða hópar séu í mestri hættu til að skaðast. Ályktun TSA og CR er í fullu samræmi við ályktanir Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar og félaga hér á landi sem hafa varað ungmenni við óhóflegri notkun ljósabekkja. Aldurstakmark á ljósabekki!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.