Morgunblaðið - 05.04.2004, Side 23

Morgunblaðið - 05.04.2004, Side 23
                   400 milljónir kr. Flutn- ga út frá því, að undir orðurveg verði staðið m. i verður farið sunnan sunnan Mælifells niður í yfir Héraðsvötn í Norð- ru 57 km og kosta um 2 Undir þeim kostnaði yrði m sparnaði, sem hlýst af ing hringvegar Norðurvegur hefur unnið tillögur um, sé að stytta hringveginn r og Reykjavíkur. Þar nni aðeins tvennt til a lagi að reisa nýja brú n til þess að sneiða fram sem stytti leiðina um taði 540 millj. kr. Í öðru krókinn til Blönduóss a yfir Blöndu hjá Mó- bergi í Langadal, sem stytti leiðina um 14 km en kostaði 940 milljónir kr. Þessir 17,5 km kostuðu m.ö.o. 1,5 millj- arða kr., sem slagar hátt upp í kostn- aðinn við að leggja veg úr Norðurárdal að Blöndulóni. Þessir kostir hljóta að verða íbúum á Blönduósi umhugsunarefni. Því fylgja ótvíræðir kostir að hringvegurinn liggi áfram um Blönduós, ef hugsað er til þeirrar þjónustustarfsemi, sem þar hef- ur byggst upp. Með Norðurvegi opnast nýr hringur, sem á eftir að verða vin- sæll hjá ferðamönnum vegna þeirra mörgu möguleika, sem hann gefur. Óhjákvæmilegt er að árétta, að á síð- ustu árum hefur veginum milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur verið lítið sinnt. Hann er beinlínis hættulegur á löngum köflum eins og í Norðurárdal í Skagafirði og um Stafholtstungur. Það er Guðs mildi, að ekki hefur stórslys hlotist af. Þetta segi ég vegna þeirrar þungu umferðar, sem um hann liggur, vaxandi gámaflutninga og mikils fjölda hópferðabíla. Á öðrum stöðum er veg- urinn of mjór og veikur fyrir þá um- ferð, sem um hann fer. Mér er ekki kunnugt, að raunhæf kostnaðaráætlun hafi verið unnin yfir nauðsynlegar endurbætur á hringveg- inum milli Akureyrar og Reykjavíkur. Við vitum, að umferðarþunginn hefur farið fram úr því, sem vegurinn er byggður fyrir. Slíkar endurbætur munu kosta marga milljarða kr., þótt ekki sé farið í þá styttingu hringvegarins, sem áður er getið – nema Norðurvegur verði lagður. Sjálfsagt er að ýta út af borðinu hug- myndum um jarðgöng úr Hörgárdal í Hjaltadal með það fyrir augum að þungaflutningar fari um Sauðárkrók og Þverárfjall til Blönduóss og þaðan til Reykjavíkur. Nýtum kosti einkafram- kvæmdar og veggjalda Í þessum tillögum er lögð áhersla á, að hagkvæmni Norðurvegar verði könnuð til hlítar, áður en ráðist verður í milljarða kostnað við endurbætur á hringveginum, sem síðar reyndust óþarfar. Slíkar rannsóknir ásamt mati á umhverfisáhrifum taka fjögur til fimm ár, svo að engan tíma má missa. Framkvæmdir við Norðurveg kæmu síðan í eðlilegu framhaldi af vegagerð um Norðurárdal nyrðra. Reynslan af Hvalfjarðargöngum kennir okkur, að við eigum ekki að hika við að fela einkaaðilum kostnaðarsamar framkvæmdir, þar sem hægt er að koma veggjöldum við. Hinn kosturinn er, að nauðsynlegar vegabætur dragist úr hömlu öllum til tjóns. Ef féð er til reiðu þarf ekki að taka nema tvö til þrjú ár að leggja veginn úr Skagafirði suður í Borgarfjörð. Ef vel er að verki staðið yrði Norðurvegur tilbúinn eftir átta ár eða svo. Með því sparaði Vega- sjóður milljarða króna og veitir ekki af í önnur verkefni. Leiðin um Norðurveg yrði mjög fal- leg og gæfi margvíslega möguleika til útivistar og fyrir ferðafólk. Ég sé fyrir mér fjallahótel við Réttarvatn eða á þeim slóðum. Þessu fylgdi líka sá ótví- ræði kostur, að ágangur ferðafólks dreifðist um landið, en sums staðar er það farið að láta á sjá vegna örtraðar ferðafólks. Um Stórasand og suður heiðar við sjáum bráðum leiðir greiðar. Nærtækt er mér nafns að leita: Norðurvegur skal hann heita. leiða Höfundur er 2. þingmaður Norðausturkjördæmis. r, að ágangur ums staðar er r ferðafólks.‘ MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 23 ðurkenna nna nema með að erandi ússar líti ússnesku tsríkj- eskur essa dags ekki úti- það kæmi löndum eskum leyma því órn- til hægri engi ínum. núast um sig undir a. Margt m saman ði og rétta átt. tíma það mörg ljón spá fyrir um framvindu í Rússlandi til fjög- urra ára, hvað þá til lengri tíma. Með aðild Eystrasaltsríkjanna að NATO hafa Vesturlönd gefið skýrt til kynna að þau myndu ekki líða hernaðaríhlutun Rússa í þessum löndum undir nokkrum kring- umstæðum. Ljóst er að Eystrasalts- ríkin gætu ekki með nokkru móti varið sig sjálf væri þeim ógnað af Rússum. Ólíklegt er að NATO komi upp föstu varnarliði í þessum ríkjum á næstunni, ekki síst vegna þess að Rússar myndu líta á það sem alvar- lega ögrun. Það er einnig ljóst að NATO gæti ekki varið Eystrasalts- ríkin fyrir innrás Rússa með venju- legum herafla. Hægt er að velta því fyrir sér hvort ráðamenn á Vest- urlöndum hafi almennt gert sér grein fyrir því að með aðild Eystra- saltsríkjanna að NATO fælist í raun yfirlýsing um að ef allt færi á versta veg, væri bandalagið reiðubúið til að heyja kjarnorkustyrjöld til að verja sjálfstæði þessara landa, landa þar sem grunnt er á pólitískum óróa. Bætt samskipti við Rússa Sem stendur er þó friðvænlegt í Eystrasaltsríkjunum og margt bend- ir til að smám saman sé að slakna á þeirri spennu sem þar ríkir milli þjóðarbrota. NATO og Evrópu- bandalagið fylgjast grannt með gangi mála og leggja hart að ráða- mönnum Eystrasaltsríkjanna að tryggja rússnesku minnihlutahóp- unum full mannréttindi. Vonandi verður NATO-aðild ný- frjálsu ríkjanna í austri til þess að bæta og efla samstarf Vesturlanda við Rússland, jafnt á sviði viðskipta, menningar og öryggismála. Eftir lok Kalda stríðsins hefur Vesturlöndum tekist að byggja upp góð samskipti við rússnesk stjórnvöld þrátt fyrir allt. Þar hafa mörg pólitísk og dipló- matísk afrek verið unnin og auðvitað hafa lánsfé og efnahagsaðstoð einnig komið við sögu. Mikilvægt er að áfram verði byggt á því trausti sem fyrir er og Vesturveldunum takist að sannfæra Rússa um að stækkun NATO sé á engan hátt stefnt gegn öryggishagsmunum þeirra. Vonandi bera Rússar gæfu til að sjá að örygg- is- og viðskiptahagsmunir þjóða fara saman og leggja grunn að velferð þeirra eins og þjóðir Vestur-Evrópu hafa borið gæfu til undanfarin 55 ár. Að þessu leyti geta Íslendingar haft hlutverki að gegna og eiga að vera í fararbroddi þeirra ríkja innan NATO sem hvetja til þess að stutt verði með ráðum og dáð við lýðræð- isþróunina í Rússlandi og gott sam- starf átt við Rússa í öryggis- og al- þjóðamálum. hreyfingin gi sögunnar Reuters s, NATO, gengu fylktu liði við athöfn sem kkun bandalagsins úr 19 ríkjum í 26. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. L ÝÐRÆÐI er eitt þeirra orða sem allir nota í sífellu sem eitthvað jákvætt, óbreytanlegt og óum- deilt fyrirbæri. En er lýðræðið fast í hendi? Getum við verið viss um að með því að nefna lýðræðið nógu oft á nafn sé það virkt í samfélaginu? Hér á landi ríkir fulltrúalýðræði og allir flokkar starfa sem lýðræðislegir flokkar sem stefna að því að móta eða breyta stefnu ríkisins með lýð- ræðislegum leiðum, þ.e. í þing- og sveitarstjórnarkosningum. En er lýðræði bara fulltrúa- lýðræði? Eða á að stuðla að virk- ara lýðræði í samfélaginu? Og með hvaða leiðum? Ef horft er á sögu lýðræðisins má sjá að fé- lagshyggjumenn hafa um aldir barist fyrir lýðræðislegum breyt- ingum, s.s. almennum kosninga- rétti, jafnrétti kynjanna og vax- andi íbúalýðræði. Félagsleg öfl börðust þarna á móti þeim sem vildu binda kosn- ingarétt við eignarétt sem voru þó öfl sem kenndu sig við frjáls- lyndi. Flokki sem kennir sig við fé- lagshyggju er því skylt að styrkja lýðræðið svo ekki sé minnst á flokk sem kennir sig við umhverfisstefnu sem er hug- myndafræði sem hvílir á virkni einstaklingsins, ábyrgð og skyld- um í samfélaginu og virku lýð- ræði. Vinstri-grænum er því skylt og ljúft að skoða leiðir til efla lýðræðið í samfélaginu. Ég tel æskilegt að lýðræðið sé eflt og hugtakið sé útvíkkað frá hefðbundnum skilningi orðsins. En áður en það er gert er nauð- synlegt að velta fyrir sér inni- haldi orðsins lýðræði. Það fyrsta sem skiptir máli er að lýðræðið kemur ekki að ofan. Það hlýtur ávallt að koma að neðan og virka upp á við. Og þar af leiðandi á valdið að koma að neðan en ekki ofan. Kosningar eru eitt form lýðræðis en þar segir almenn- ingur hug sinn um menn og mál- efni. Hins vegar getur lýðræðið ekki þrifist ef framkvæmdavaldið beit- ir ofríki. Lýðræðisskipulag í ríki dugir ekki til ef æ fleiri þættir þjóð- félagsins færast í hendur ólýð- ræðislegra aðila sem einungis taka mið af hagsmunum fjár- magnseigenda. Þess vegna skiptir gríðarlegu máli að berjast fyrir atvinnu- rekstri sem er í höndum venju- legs fólks og standa vörð um op- inberan rekstur. Það dugir ekki að hér ráði örfáir aðilar öllum rekstri, hvort sem er bankastofn- unum eða almennum fyrirtækja- rekstri. Því að þannig fyr- irkomulag er ólýðræðislegt. Allt í einu hefur almenningur ekkert að segja um þær stofnanir sem við áttum áður, heldur örfáir stórir hluthafar. Okkur er sagt að við sem viðskiptavinir höfum valdið – en er það lýðræðislegt? Á mark- aði þar sem fákeppni er allsráð- andi á flestum sviðum leggst lítið fyrir vald viðskiptavinarins. Og að sama skapi hlýtur vald við- skiptavinarins ávallt að tengjast umsvifum viðskipta hans. Þeim mun fjársterkari viðskiptavinur, þeim mun voldugri. Og það er ekki lýðræði heldur pen- ingaræði. Að sama skapi verður að berjast fyrir því að innan hins opinbera sé valdinu dreift. Miðstýring- arárátta hins opinbera nú virðist aldrei hafa verið meiri, þrátt fyrir allt tal um frelsi og lýðræði. Eft- irlit með öllum sköpuðum hlutum fer vaxandi, eins og sést á aukn- um kröfum um lífsýnatökur við ótrúlegustu tækifæri. Miðstýring- aráráttu framkvæmdavaldsins má sjá alls staðar og þar með minnk- andi lýðræði því að um leið fækk- ar möguleikum fólks á að hafa áhrif. Lýðræði felst ekki aðeins í því að velja stjórnarmeirihluta sem síðan framselur völdin til ráð- herra og þeir miðstýra öllu rík- isbákninu með lögum, reglugerð- um og eftirliti í stað þess að dreifa valdinu. Valddreifing er óaðskiljanlegur hluti lýðræðisins – ákvarðanataka á að liggja nálægt einstaklingum en ekki hjá fjarlægu og óper- sónulegu valdi. Og það má að sama skapi spyrja hvort þessi einkenni minnkandi lýðræðis megi sjá víð- ar, s.s. í fyrirtækjum, verkalýðs- félögum og opinberum stofn- unum. Við sem teljum okkur vera vinstrimenn og umhverfisvernd- arsinna hljótum að trúa því að lýðræðið eigi við alls staðar, hvort sem það er á þingi, í atvinnu- rekstri, í verkalýðsfélögum eða á sveitarstjórnarstigi. Við eigum að láta okkur það varða að áhrif almennings virðast fara æ minnkandi og við eigum að velta fyrir okkur nýjum leiðum í þessu samhengi. Til að mynda skiptir þar máli að börn og unglingar séu alin upp í lýðræðislegum vinnubrögðum og hugarfari. Þetta kann að hljóma eins og sjálfsagt mál en svo er ekki. Til að mynda er ekki skylda að hafa nemendaráð í grunn- skólum samkvæmt grunn- skólalögum, einungis heimild. Ef skólastjórnendur kjósa að nýta sér ekki heimildina má segja að nemendur geti engin lýðræðisleg áhrif haft á skólastarfið. Nemendaráð ættu að vera í öll- um skólum. Íslendingar eru langt á eftir öðrum Norðurlandaþjóðum í þessum efnum en þar eru víða starfandi nemendaráð á öllum stigum grunnskólans; yngsta stigi, miðstigi og elsta stigi. Þar fylgja aukin réttindi og auknar skyldur hærri aldri. Nemendur venjast því að geta haft áhrif á skólastarfið en um leið að rétt- indum fylgir ábyrgð. Nemendur ættu að geta haft áhrif í grunnskólum, framhalds- skólum og háskólum. Það er hins vegar oft erfitt að tryggja lýð- ræðisleg vinnubrögð. Einveldi er að miklu leyti mun auðveldara í framkvæmd. Það þarf þá ekki að vera að tala við alla og eyða tíma í það. En viljum við slíkt stjórnarfar? Lýðræðið er viðkvæmt en það er líka fjöregg frjórrar hugsunar og betra sam- félags. Þess vegna er tímans virði að sinna því. Og það þarf að byrja strax á unga aldri að ala börn upp í lýðræðislegum vinnubrögð- um til að þau verði síðar meir virkir þegnar í samfélaginu. Skól- inn er góður staður til að hefja lýðræðislegt uppeldi og það kann að smita út frá sér síðar meir um samfélagið allt. Lýðræði frá unga aldri Eftir Katrínu Jakobsdóttur Höfundur er varaformaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs. ’Lýðræðið er viðkvæmt enþað er líka fjöregg frjórrar hugsunar og betra sam- félags. Þess vegna er tím- ans virði að sinna því. ‘ ’Vonandi verðurNATO-aðild nýfrjálsu ríkjanna í austri til þess að bæta og efla samstarf Vest- urlanda við Rússland, jafnt á sviði við- skipta, menningar og öryggismála. ‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.