Morgunblaðið - 05.04.2004, Side 36
DAGBÓK
36 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Hafnarfjarðarhöfn:
Hanseduo kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, kl. 14 fé-
lagsvist. Hársnyrting,
fótaaðgerð. Línudans-
inn hjá Sigvalda byrjar
aftur á morgun kl.11.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10
söngstund, kl. 13–16.30
smíðar, útskurður, kl.
13–16.30 handavinna,
kl. 13.30 félagsvist, kl.
16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 10–
11 samverustund, kl.
13–16 bútasaumur, kl.
13.30 dans.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð kl. 10.
Skrifstofan er opin í
dag kl. 10–11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin,
kl. 11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16.30, félagsvist kl.
13.30.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ, Dval-
arheimilinu, Hlað-
hömrum. Kl. 16
spænskunámskeið.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ, kvenna-
leikfimi kl. 9.30, kl.
10.20 og kl. 11.15, pílu-
kast í Garðabergi kl. 13
og aðstoð við tölvu.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, pútt í Hraunseli
kl. 10–11.30, myndlist
kl. 10, biljardsalurinn
opinn til 16, tréút-
skurður kl. 13, fé-
lagsvist kl. 13.30, kór-
æfing Gaflarakórsins
kl. 17.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids í dag
kl. 13. Handmennt,
spjall og kaffi kl. 13.30.
Línudanskennsla fyrir
byrjendur kl. 18. Dans-
kennsla í samkvæm-
isdönsum, framhald kl.
19 og byrjendur kl.
20.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postu-
lín, kl. 13 skák, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. kl. 9 vefnaður, kl. 10
ganga, kl. 11 boccia, kl.
13 brids og bútasaum-
ur, kl. 20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulín, keramik og
fótaaðgerð, kl. 10
bænastund, kl. 13.30
skrautskrift, kl. 13 hár-
greiðsla, kl. 13.30
skrautskrift.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
13–16 spilað. Fótaað-
gerðir virka daga, hár-
snyrting þriðju-til
föstudags.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun þriðjudag,
sundleikf. Grafarvogs-
laug kl. 9. 30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 10–
11 ganga, kl. 13–16.45
opin vinnustofa, mynd-
list.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9–10
boccia, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9.30–
10.30 boccia, kl. 11–12
leikfimi, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 9–16. Kl. 13.30 opið
hús, ma. söngur, fé-
lagsvist.
Þórðarsveigur 1–5
Grafarholti. Kl. 13.30
spiladagur, félagsvist.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK
Gullsmára spilar í fé-
lagsheimilinu, Gull-
smára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar. Fundur fellur
niður í apríl, næsti
fundur er mánudaginn
5. apríl.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást
nú í Lyf og heilsu
verslunarmiðstöðinni
Firði í Hafnarfirði.
Kortið kostar kr. 500
Í dag er mánudagur 5. apríl, 96.
dagur ársins 2004. Orð dagsins:
Kristur er í gær og í dag hinn
sami og um aldir.
(Hebr. 13, 8.)
Anna Hrefna Ingimund-ardóttir skrifar um
jafnréttismál á heimasíðu
sína, sem er á slóðinni
http://www.hi.is/
~einarod/anna/.
Anna segir: „Ég var ámálfundi um launa-
mun kynjanna og þetta
frumvarp sem Vinstri
grænir eru að leggja
fram. Það felst í aukinni
valdheimild ríkisins til að
krefjast gagna af fyr-
irtækjum til að kanna
hvort nokkuð sé verið að
mismuna konum.
Ég vil byrja á því aðhrósa Eggerti nokkr-
um Ólasyni fyrir ein-
staklega skemmtilegan
fyrirlestur. Á fundinum
voru fjölmargir feministar
sem höfðu gaman af því að
sletta fram hinum ýmsu
hugtökum.
Ég vil varpa fram nokkr-um spurningum í
gamni: Tveir ein-
staklingar eða fyrirtæki
og einstaklingur semja um
laun. Hvorum er frjálst að
samþykkja eða hafna því
tilboði sem berst. Í hverju
felst misréttið? Hvað er
frjáls markaður? Þó að
það ríki ekki fullkomin
samkeppni þar sem allir
einstaklingarnir hafa
sama „verð“, þá er samt
frjáls markaður að verki.
Það getur enginn annaren fyrirtækið sjálft
metið það hvers virði ein-
hver er því fyrirtæki.
Vörur geta verið einsleit-
ar en engir tveir ein-
staklingar eru eins. Getur
verið að konur krefjist
ekki jafnhárra launa og
karlmenn þegar þær fara í
atvinnuviðtöl?
Ef svo er, er þá ábyrgðinekki þeirra? Það er
ekki eins og þeir sem taki
viðtölin séu að segja við
þær: „Nei heyrðu nú mig.
Viltu ekki biðja okkur um
að borga þér aðeins
meira? Við erum meira en
til í það.“ Það er ekki hlut-
verk fyrirtækja. Ein-
staklingurinn þarf sjálfur
að leggja visst mat á sig.
Svo var ein sem sagði:„Það er ekkert hægt
að setja apa og krókódíl
við sama tréð og segja
þeim að klifra upp.“ Nú
geri ég ráð fyrir því að
karlarnir hafi átt að vera
aparnir og konurnar
krókódílarnir sem geta
ekki klifrað upp tréð.
Fyrst við ætlum að setja
þetta upp í svona
skemmtilega dýrasögu þá
segi ég : „Fyrst ég get
ekki klifrað upp eitthvað
asnalegt tré, þá ét ég bara
apann.“ Nei, en að öllu
gamni slepptu held ég að
karlar og konur séu bæði
apar. Það er nú ekki því-
líkur grundvallarmunur á
okkur. Ég tel mig ekki
þurfa „hjólastól ríkisins“.
Að lokum:Er hægt að nota
orðin jákvæð og mis-
munun í sömu setningu?“
STAKSTEINAR
Getur mismunun
verið jákvæð?
Víkverji skrifar...
Áður hefur Víkverjaþessum orðið nöld-
ursamt út af því tillits-
leysi sem honum þykir
hann mega sæta af hálfu
ökumanna bifreiða þegar
hann er á ferð í borg-
arumferðinni á reiðhjól-
inu sínu. En Víkverji
verður þó að ítreka, að
margir ökumenn sýna
hina mestu tillitssemi.
Jafnvel svo mikla að til
vandræða er. Þannig var
að Víkverji kom að gangbraut á
hjólinu og stöðvaði á rauðum kalli.
En þá brá svo við, að ökumaður sem
var á grænu ljósi vildi endilega gefa
rétt sinn eftir og hleypa Víkverja yf-
ir. Ökumenn sem voru á eftir hinum
ofurgreiðvikna lögðust allir sem
einn á flautuna. Þótt Víkverji sé
þakklátur fyrir tillitssemi má nú
öllu ofgera. Maður getur ekki gefið
eftir grænt ljós. Grænt ljós er ekki
heimild til að aka yfir gatnamót, það
er miklu fremur skipun um að aka,
rétt eins og rauða ljósið er skipun
um að stansa. Sérstaklega á þetta
við þegar umferð er mikil.
x x x
En þótt reiðhjól séu uppáhalds far-artæki Víkverja þessa hefur
hann áhuga á bílum og horfir helst
alltaf á Formúlukappaksturinn. En
vandi Víkverja er þó sá, að honum
hefur ekki tekist að fara að halda
með neinum formúlukappa síðan
Mika Hakkinen hætti að keppa. Og
eiginlega er ómögulegt að hafa al-
mennilega gaman af kappakstrinum
nema maður haldi með einhverjum.
Víkverji veltir því fyrir sér,
hvernig maður finni sér „sinn
mann“ í kappakstrinum. Heldur
maður með þeim sem vinnur oftast
(Michael Schumacher)? Eða með
þeim sem er alltaf alveg við það að
slá meistaranum við (Montoya)?
Eða hallokanum sem er að berjast
við að hasla sér sinn eigin völl og
komast úr skugga einhvers annars
(Ralf Schumacher)? Einnig kemur
til greina að halda með
ökumönnum sem eru að
berjast við síbilandi bíla
– á einhverjum róm-
antískum „maður gegn
maskínu“ forsendum –
eins og til dæmis þeir hjá
McLaren. Eða á maður
að spá í eitthvað allt ann-
að en ökuhæfni, til dæm-
is skemmtilega karakt-
era (Coulthard) eða
jafnvel keppandann með
flottasta nafnið (Monto-
ya og Ítalinn Bruni berjast um þann
titil). Víkverja skilst að margir Ís-
lendingar sem líkt og hann héldu
með Hakkinen hafi tekið upp fána
Raikkonens í staðinn, en Víkverji er
orðinn sannfærður um að það verð-
ur aldrei neitt úr þessum nýja
Finna.
Nú, svo kemur til greina að halda
ekki með einum ökumanni heldur
einhverju liði. Til dæmis Toyota af
því að Víkverji á sjálfur Toyotu. Eða
BMW vegna þess að Víkverja
dreymir um að eignast BMW. Eða
Sauber af því að Víkverja finnst það
flottustu Formúlubílarnir.
Þetta er ekki auðvelt mál, um það
getur Víkverji borið. Ef einhver get-
ur ráðið honum heilt væri það vel
þegið.
Reuters
Montoya: Alltaf næstum því bestur.
Strætisvagnaskýli
– svar borgarstjóra
HÉR í Velvakanda var
strætisvagnabiðskýlið við
Laugaveg 178 til umfjöllun-
ar á dögunum. Borgarbúi
með kennitöluna 230626-
4059 telur að skýlið þjóni
illa hlutverki sínu. Þarna
hefur bréfritari nokkuð til
síns máls, því skýlið er
smærra en flest önnur í
borginni.
Í áraraðir var þarna ekk-
ert biðskýli en ástæðan er
sú, að þarna er afar þröngt
um. Um mittishár veggur
er fast við gangstéttina og
skilur hana frá bílastæði
sem stendur talsvert
hærra. Því verður skýlið að
standa á stéttinni sjálfri.
Það er því grynnra en önn-
ur biðskýli og ef sett væri
þil sem lokaði því að hluta
að framan, yrði ekki pláss
nema fyrir eina manneskju
í skjólinu. Það þótti hins-
vegar betra að hafa skýli af
þessu tagi en ekki neitt.
Það er því rétt hjá bréfrit-
ara að skýlið er ekki eins
vel úr garði gert og flest
önnur, en þrengslin sníða
skýli mjög þröngan stakk á
þessum stað, þannig að það
er ekki von á stærra skýli
að óbreyttum aðstæðum.
Þórólfur Árnason
borgarstjóri.
Paris at night
Í VELVAKANDA 1. apríl
sl. er grein þar sem
„frankofíl“ undrast franska
menningu upp á ensku og
er með vangaveltur um
það.
Málið er ofureinfalt, eitt
af ljóðum Prévert heitir
einfaldlega „Paris at night“
á ensku og er óður til Par-
ísar, þar af leiðandi er það
ekki þýtt.
Ég bendi viðkomandi á
íslenska þýðingu „Ljóð í
mæltu máli“ og ef hann les
frönsku „Paroles“ eftir Jac-
ques Prévert.
Petrina Rós.
Tapað/fundið
Handprjónuð húfa
týndist
HÚFAN er fallega blá með
þremur dúskum, rauðum
gulum og grænum og
ísaumað nafnið Alex. Húf-
unnar er sárt saknað.
Finnandi er beðinn að
hafa samband í síma
568 9628 og 860 2811 eða
895 6396.
Kvengleraugu
týndust
KVENGLERAUGU í
brúnni umgjörð týndust
fyrir u.þ.b. 2 vikum, senni-
lega í verslun. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
551 0285.
Dýrahald
Köttur í óskilum
í Hafnarfirði
KÖTTUR er í óskilum á
Hvaleyrarholti í Hafnar-
firði.
Hann er brúngrábrönd-
óttur og líklega hálfpers-
neskur, ómerktur en með
bláröndótta ól. Upplýsing-
ar í síma 567 5169.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 áþekkur, 8 leður, 9 æg-
isnálin, 10 gljúfur, 11
suða, 13 hinn, 15 gleðjast,
18 sussar á, 21 vitrun, 22
drepa, 23 fnykur, 24 lygi.
LÓÐRÉTT
2 ökumaður, 3 prútta, 4
Evrópubúa, 5 ekki gaml-
an, 6 spil, 7 flanar, 12
væg,
14 tangi, 15 vatnsfall, 16
grotta, 17 flýtinn, 18
furðu, 19 tími, 20 vitlaus.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 ósjór, 4 þokki, 7 kerlu, 8 ötull, 9 föl, 11 prik, 13
vinn, 14 eigna, 15 ómar, 17 næmt, 20 Óli, 22 ertur, 23 lú-
ann, 24 akrar, 25 tossi.
Lóðrétt: 1 ósköp, 2 jarfi, 3 rauf, 4 þjöl, 5 kauði, 6 iglan,
10 öngul, 12 ker, 13 van, 15 ópera, 16 aktar, 18 Ævars,
19 tangi, 20 órar, 21 illt.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16