Morgunblaðið - 05.04.2004, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 39
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára.
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
„Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 4.30. Íslenskt tal.
Páskamynd
fjölskyldunnar
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15.
Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA!
Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust!
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Besta
frumsamda
handrit
www .regnboginn.is
Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Sýnd kl. 6.
Með íslensku tali Sýnd kl. 10.10.
Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA!
Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust!
Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10.40.
Páskamynd
fjölskyldunnar
MENNTASKÓLINN við Hamrahlíð
vann í gærkvöld söngkeppni fram-
haldsskólanna, sem fór fram í Kapla-
krika í Hafnarfirði. Sigurvegararnir,
þær Sunna Ingólfsdóttir og Sigurlaug
Gísladóttir, sungu lagið „Ég er svo
græn,“ við góðar undirtektir áhorf-
enda, en lagið er eftir Erikah Badou og
heitir upprunalega „Green eyes“.
Verkmenntaskólinn á Akureyri varð
í öðru sæti, en fyrir skólann söng
Heimir Bjarni Ingimarsson lagið „Næt-
urnar án þín,“ við lag bandarísku sveit-
arinnar the Moody Blues, Knights in
white satin. Menntaskólinn á Ísafirði
lenti í þriðja sæti, en keppandi skólans,
Birgir Olgeirsson, söng lagið „Ég væri
til í að taka þig“ við lag bresku sveit-
arinnar The Darkness „I believe in a
thing called love.“ Það þótti ljóst að Ís-
firðingar höfðu fjölmennt lið stuðn-
ingsmanna á staðnum, rúmlega hundr-
að manns og létu þeir fögnuð sinn yfir
rokkaranum unga óspart í ljósi.
Menntaskólinn á Akureyri fékk flest
atkvæði áhorfenda í SMS kosningu, en
fyrir skólann sungu þeir Andri Már
Sigurðsson, Haukur Sigurðsson og
Ævar Þór Benediktsson „Stærra en
allt,“ við lag Backstreet Boys „Larger
than life.“
Einnig náði keppandi Mennta-
skólans við Sund, Flosi Jón Ófeigsson,
upp gríðarlegri stemmningu þegar
hann söng lagið „Ég er eins og ég er,“
af mikilli innlifun, en lagið var lag
Hinsegin daga 2003.
Rúmlega fimmtán hundruð manns
voru í áhorfendaskaranum í Kapla-
krika í Hafnarfirði og var að sögn að-
standenda frábær andi í húsinu.
Ljósmynd/Birgir Þór Halldórsson
Stúlkurnar úr MH skiluðu sínu af miklum þokka og glæsibrag og sigruðu, skóla sínum til mikillar sæmdar.
Heimir Bjarni Ingimarsson úr VMA
sótti í gamlan Moody Blues slagara.
Birgir Olgeirsson frá Menntaskólanum á Ísafirði hlaut góðar undirtektir áhorfenda og lenti í þriðja sæti.
Flosi Jón Ófeigsson frá MS þótti hafa
einkar spræklega sviðsframkomu og
uppskar gríðarleg fagnaðarlæti.
Andri Már Sigurðsson, Haukur Sigurðsson og Ævar Þór Benediktsson
úr MA nutu mikillar hylli fyrir glæsilega búninga og framkomu.
MH sigraði í söngkeppni framhaldsskólanna
Græneyg stemning í Kaplakrika
ÞAÐ mun engin ládeyða liggja
yfir kvöldinu í kvöld þrátt fyrir
að dagurinn í dag sé mánudag-
ur. Það verða nefnilega haldnir
stórir tónleikar á Gauki á Stöng
til styrktar samtökum gegn
sjálfsvígum. Þar munu fram
koma sveitirnar Noise, Man-
hattan og Tvítóla auk sigurveg-
ara Músíktilrauna í ár, Mamm-
út.
Aðgangseyrir á tónleikana er
aðeins 800 kr. og hefjast tón-
leikarnir upp úr kl. átta.
Styrktartón-
leikar gegn
sjálfsvígum
LOÐINLUBBINN King
Kong, sem fyrst birtist á hvíta
tjaldinu árið 1933 er ægileg-
asta skrímsli kvikmyndasög-
unnar að mati kvikmynda-
sérfræðinga sem breska
kvikmyndatímaritið Empire
ráðfærði sig við á dögunum.
Sló hann meðal annars við
geimskrímslinu úr myndinni
Alien, sem lenti í þriðja sæti,
grameðlunni úr Jurassic Park
og risaköngulónni Shelob úr
Hringadróttinssögu.
Í grein Empire er King
Kong sagður meistarinn.
„Aðrir uppskafningar reyndu
að steypa honum af stóli, en
lávarður Hauskúpueyju
trampar á þeim öllum. Hann
er ógnvænlegt gereyðingarafl,
en engu að síður dásamlega
mennskur,“ segir í Empire.
Peter Jackson stendur nú í
ströngu við endurgerð King
Kong á Nýja-Sjálandi og fær
hann myndarlega upphæð til
verksins.
King Kong er sannkallaður
harmleikur, en myndin fjallar
um kvikmyndaframleiðanda
sem fer í safaríferð og kemur
til baka til New York með
risaapa. Hinn stórvaxni King
Kong verður ástfanginn af fal-
legri konu og deyr að lokum
hetjudauða utan á Empire
State byggingunni.
Sló út geim-
skrímsli, gram-
eðlu og risa-
könguló
K
ing K
o
ng ó
gu
rle
gasta ó
fre
skja kvikm
yndasö
gu
nnar