Morgunblaðið - 05.04.2004, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
LIFANDI
VÍSINDI
Áskriftarsími 881 4060
RANNVEIG Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfja-
stofnunar, segir samheitalyf á markaði fyllilega
sambærileg við frumlyf hvað varðar gæði og
virkni lyfjanna. Samheitalyf séu skráð á þeim
forsendum að rannsóknir á þeim liggi fyrir og
þau hafi verið borin saman við frumlyfin.
„Yfirvöld líta svo á að þegar búið er að skrá
frumlyf í eitt skipti þá fær það ákveðna vernd
frá yfirvöldum í tiltekinn tíma til þess að taka
inn hagnað fyrir rannsóknum og slíku. Þegar
samheitalyf eru skráð er búið að senda inn upp-
lýsingar til yfirvalda þar sem er sýnt fram á
sömu virkni og búið að prófa lyfið og bera sam-
an við frumlyfið,“ segir Rannveig.
Hún segir að þótt ekki liggi fyrir jafn ítarleg-
ar rannsóknir á samheitalyfjum verði þau að
vera sambærileg að öllu leyti. Þau þurfi að inni-
halda nákvæmlega sama virka efnið þótt hjálp-
arefni lyfsins séu ekki þau sömu. Einstaklings-
bundið sé hvernig lyf virki á fólk og það eigi
jafnt við um frumlyf og samheitalyf.
Árni Þór Árnason, forstjóri Austurbakka,
sagði í Morgunblaðinu í gær að gæði og virkni
samheitalyfja væru síðri en frumlyfja. Hann tók
dæmi af lyfinu Cipramil sem gefið er við þung-
lyndi og sagði að hermilyf sem á eftir hefðu
komið væru ekki sambærileg og í sumum til-
vikum hefðu þau gert fólk syfjað í stað þess að
virka sem skyldi.
Rannveig segir Lyfjastofnun engar upplýs-
ingar hafa sem gefi slíkt til kynna. Vel sé fylgst
með bæði samheitalyfjum og frumlyfjum. „Við
eigum að fá tilkynningar um það ef það koma
upp einhverjar aukaverkanir vegna lyfja,“ segir
Rannveig.
Markaður í Danmörku í uppnámi
Hörður Þórhallsson, framkvæmdastjóri
Delta, segir verðmun hér á landi og í Danmörku
á blóðfitulækkandi samheitalyfinu Simvastatin
sem Delta framleiði skýrast af því að markaður-
inn sé í fullkomnu uppnámi í Danmörku. Lyfið
sé hins vegar ekki í sölu í Svíþjóð. Á Íslandi
kostar Simvastatin minnst 13 þúsund krónur án
virðisaukaskatts en í Danmörku og Svíþjóð
1.500 – 1.600 krónur.
Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, um virkniprófanir lyfja
Samheitalyf fyllilega
sambærileg við frumlyf
Sameiginlegt/10
BETUR fór en á horfðist þegar
lítilli einkaflugvél, TF-TOF,
hlekktist á skammt vestan við
Hvolsvöll laust upp úr kl. 17 í
gær.
Vélin var að fara á loft þegar
hún missti flugið og brotlenti
rétt sunnan við flugvöllinn sem
er lítill einkaflugvöllur í ná-
grenni Eystri-Rangár. Um borð
í vélinni voru tvö börn og tveir
fullorðnir. Annar hinna full-
orðnu kvartaði um bakmeiðsl.
Vélin, sem er franskrar gerð-
ar, skaddaðist allnokkuð, annar
vængur hennar fór illa og skrúf-
an brotnaði. Vélin dró á eftir
sér rafmagnsgirðingu þó nokkra
vegalengd áður en hún fór al-
veg niður við brautarendann og
fram af barði sem þar er.
Að sögn Þormóðs Þormóðs-
sonar, formanns Rannsókn-
arnefndar flugslysa, er vélin
mikið skemmd ef ekki ónýt.
Ráðgert er að taka vélina eða
hreyfil hennar til nánari skoð-
unar hjá rannsóknarnefndinni.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Hlekktist á í flugtaki
Hvolsvelli. Morgunblaðið.
Gróf líkamsárás á sextán ára dreng í
Vesturbæ Reykjavíkur á laugardag
Hlaut mjög
alvarlega
áverka á milta
SEXTÁN ára drengur, sem ligg-
ur alvarlega slasaður á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi
eftir að ráðist var á hann í heima-
húsi í Vesturbæ Reykjavíkur um
miðjan dag á laugardag, hlaut al-
varlega áverka; innvortis blæðing-
ar og áverka á milta. Drengurinn
var í lífshættu en samkvæmt upp-
lýsingum frá Landspítalanum var
ástand hans orðið stöðugt í gær-
kvöldi.
Búið er að handtaka árásar-
manninn og var í gær krafist
gæsluvarðhalds yfir honum en því
var hafnað.
Segir lögreglan í Reykjavík að
um grófa líkamsárás hafi verið að
ræða.
Málsatvik eru talin þau, að sögn
lögreglu, að drengurinn var í
heimsókn hjá árásarmanninum er
þeim sinnaðist og veittist þá hús-
ráðandi að drengnum með spörk-
um og hnefahöggum. Hann náði
að forða sér og hringdi sjálfur á
hjálp.
Pilturinn var fluttur í lögreglu-
bíl á slysadeild Landspítalans í
Fossvogi, þar sem hann var ekki
með sjáanlega útvortis áverka, að
sögn lögreglu. Á sjúkrahúsinu
kom í ljós að drengurinn var með
miklar innvortis blæðingar og
áverka á milta.
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík fer með rannsókn
málsins.
Kröfu lögreglunnar um gæsluvarð-
hald yfir árásarmanninum hafnað
Ný byggð
utan við
Akranes
BYGGINGAFYRIRTÆKIÐ Stafna á
milli ehf. hefur keypt jörðina Krossland í
Innri-Akraneshreppi og að auki gerði fyr-
irtækið bindandi samkomulag við eigend-
ur Fögrubrekku í Innri-Akraneshreppi
um kaup á jörð og húseignum. Landið
sem um er að ræða er rétt utan við bæj-
armörk Akraness.
Þorgeir Jósefsson, fjármálastjóri
Stafna á milli ehf., segir að fyrirtækið hafi
hug á því að selja lóðirnar undir íbúðar-
húsnæði. Hann telur að fáir staðir við
Faxaflóa séu ákjósanlegri fyrir íbúðar-
húsnæði.
Þorgeir segir að svæðið búi yfir „mikl-
um töfrum sem verða eftirsóttir af þeim
sem vilja búa á þessu svæði. Við erum
ekki búnir að ganga frá öllum smáatriðum
í deiliskipulaginu en það má búast við að
byggðin taki við nokkrum fjölda íbúa,
nokkrum hundruðum,“ segir Þorgeir.
Í fyrstu drögum að skipulaginu er gert
ráð fyrir grunnskóla, íþróttamannvirkjum
og félagslegri þjónustu.
Vesturland/11
Skjálftahrina
í Öxarfirði
SKJÁLFTAVIRKNI varð vart á skjálfta-
mælum Veðurstofu Íslands laust upp úr há-
degi í gær og voru upptökin í Öxarfirði um
fjórtán kílómetra vest-suðvestur af Kópa-
skeri.
Fyrsti skjálftinn varð skömmu upp úr kl.
12 en í kjölfarið fylgdi á þriðja tug skjálfta
eftir því sem leið á daginn og kvöldið.
Stærsti skjálftinn mældist 3,2 á Richter,
laust fyrir klukkan þrjú.
Að sögn Eriks Sturkell, jarðeðlisfræð-
ings hjá Veðurstofunni, voru upptök
skjálftanna á svæði þar sem skjálftar hafa
verið fremur algengir að undanförnu.
Metaregn hjá
sundkonum
SUNDKONURNAR Ragnheiður Ragn-
arsdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar og
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir frá Akranesi
voru í miklum ham um helgina og marg-
bættu Íslandsmetin í 50 og 100 m skrið-
sundi.
Ragnheiður náði Íslandsmetinu í 50
metra skriðsundi af Kolbrúnu á laug-
ardag, en þær skiptust á um að bæta
metið. Í gær var það sama uppi á ten-
ingnum er Kolbrún tvíbætti Íslandsmetið
í 100 m skriðsundi á móti í Hollandi en
Ragnheiður, sem keppti í Svíþjóð, náði
metinu af Kolbrúnu um skamma hríð í
gær, en varð að sjá á eftir því síðdegis í
gær.
Kolbrún Ýr og Ragnheiður/B1
Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir
Ragnheiður
Ragnarsdóttir
VERSLUNARMANNAFÉLAG
Reykjavíkur (VR) og Landsamband
íslenskra verslunarmanna undirrit-
uðu í gærkvöldi nýjan kjarasamning
við FÍS, Félag íslenskra stórkaup-
manna, en fyrri samningur þeirra
rann út í lok febrúar sl. Í samningn-
um er markaðslaunakerfið styrkt
enn frekar og kveðið er á um 120
þúsund króna lágmarkslaun frá og
með upphafi árs 2007. Starfsmönn-
um á launum undir 200 þúsund
krónum á mánuði er tryggð árleg
5.000 króna launahækkun, mót-
framlag vinnuveitenda í lífeyrissjóð
verður 8% árið 2007 og slysatrygg-
ingar starfsmanna verða endur-
skoðaðar.
Launaviðtalið er fest enn frekar í
sessi, tekið er á öryggismálum og
starfsmenn hafa möguleika á 30
daga orlofi. Nýlunda er að gildistími
er ótímabundinn. Samkvæmt upp-
lýsingum frá VR verður fundum fé-
lagsins við Samtök atvinnulífsins
fram haldið á morgun.
Vel miðaði í samningaviðræðum
Starfsgreinasambandsins og ríkis-
ins í gærkvöldi. Fundi var frestað í
gær og átti að taka þráðinn upp aft-
ur kl. 9 í morgun.
Björn Snæbjörnsson, formaður
samninganefndar Starfsgreinasam-
bandsins, sagði fundina í gær hafa
verið góða og árangursríka og að
allt væri að smella saman. Hann
vildi ekki spá um það hvort samn-
ingar myndu hugsanlega nást í dag,
en ítrekaði að vel gengi og engar
stórar hindranir virtust í veginum.
Verslunarmenn og FÍS skrifuðu undir nýjan kjarasamning í gær
Markaðslaunakerfið styrkt
Skrifað undir samninginn: Unnur Helgadóttir, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir og Gunnar Páll Pálsson frá
verslunarmönnum (VR og LÍV) og Páll Bragason, Pétur Björnsson og Andrés Magnússon frá FÍS.
♦♦♦
♦♦♦