Vísir - 22.07.1981, Blaðsíða 5

Vísir - 22.07.1981, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 22. júli 1981 5 vtsm Barist af grimmfl í Suöur-Lídanon ísraelar senda skriOdrekasvelt og dyrluflokka Skæruliðar PLO segja, að Isra- el hafi gert meiriháttar árásir á landi og úr lofti á tvö svæði i S- Libanon i morgun. Herma þessar fréttir frá hörð- um bardögum milli skæruliða og israelskrar skriðdrekasveitar skammt frá Khardali-brúnni, nærriBeufort-kastala, sem er eitt höfuðvigi PLO-skæruliða. Sömu heimildir segja, að isra- elskar vikingasveitir hafi laum- ast á land i þyrlum við Zahrani á Miðjarðarhafsströndinni, en fall- byssubátar héldu um leið uppi öflugri stórskotahrið á það svæði. Skæruliðar segjast hafa hrakið 25skriðdrekaog brynvagna aftur til baka með eldflaugum, þegar þeir réðust yfir Khardali-brúna, rétt norðan landamæranna. Telja þeir sig hafa eyðilagt tvo skrið- dreka og einn brynvagn. Eftir að Israelar hörfuðu, hófu þeir stór- skotahrið á brattann veginn upp af brúnni. PLO segist hafa eyðilagt tvo skriðdreka israelsmanna og einn brynvagn. lll árása á PLO Khardali-brúin er rétt norðan dalverpisins, sem Saad Haddad majór og hægrisinnaöir kristnir menn hafa á valdi sinu-i S-Liban- on. Brúin tengir svæðið við Naba- tiyeh-hásléttuna, þar sem skæru- liðar ráða lögum og lofum. Bardagar eru sagðir standa enn yfir við Zahrani, þar sem her- þyrlur lönduðu vikingasveitum Israela i skjóli stórskotahriðar fallbyssubáta. Af þessum fréttum að dæma virðist þetta vera mannmesta árás, sem ísraelar hafa gert inn i S-Libanon frá þvi i ágúst i fyrra, þegar 500 manna úrvalslið úr her- sveitunum á Gólnahæðum gerði innrás. Átök Israels og Palestinuaraba blossuðu upp að nýju fyrir tólf dögum. Dvinuðu þau i gær, þar til israelskar herþotur gerðu nýjar loftárásir i trássi við áskoranir Bandarikjastjórnar og Samein- uðu þjóðanna um vopnahlé. Haft er eftir Yasse Arafat, leið- toga PLO, að hann væri reiðubú- inn að gera vopnahlé, en næst stæði ísraelsmönnum, sem fyrst- ir hefðu byrjað þennan djöfla- dans, að hætta honum þá fyrstir. — I Jerúsalem sagði Begin for- sætisráðherra, að hann myndi ekki semja við PLO. Taismenn stjórnarinnar segja, að Begin sé ráðinn i aö hrekja skæruliöa frá þeim bækistöðvum i S-Libanon, sem þeir nota til árása á tsrael. Vitað er um að minnsta kosti 400 manns, sem fallið hafa i átök- um siðustu 12 daga. Flestir i loft- árás tsraelsmanna á hverfi Pal- estinuaraba i Beirút. Eru enn að finnast þar lik undur rústum. Margar verslanir i Beirút lok- uðu vegna sorgarinnar.sem þar rikir, en háværar kröfur eru um leið uppi um, að Sýrlendingar komi upp SAM-6 loftvarnareld- flaugum umhverfis Beirút eins og i Bekaa-dalnum. Enn eru menn að finna llk undir rústum, eftir loftárás tsraels- manna á dögunum. Valnið hakkaðl um Dr|á melra jnj Verkföllum afstýrl I Pöllandi Stafsmenn pólska flugfélagsins LOT hafa aflýst boðuðu þriggja daga verkfalli sinu, eftir ihlutun Jaruzelski forsætisráðherra. Segja talsmenn flugfélags- manna, að náðst hafi málamiðlun við stjórnvöld i deilunni um ráðningu forstjórans nýja, en yfirvöld höfðu ekki viljað fara að ábendingu starfsmanna um val forstjóra. Þá greindu siðustu fréttir frá þvi, að samningar væru að takast við hafnarverkamenn Eystra- saltshafnarborga, en þeir höfðu boðað verkfall á morgun. Frostspjöll á kaffiræktinnl Mikil flóð hafa verið i ám i Austurriki, Tékkóslóvakiu og Ungverjalandi eftir helli- rigningar undanfarna daga. Hafa þau kostaö einn mann lifið, en hann drukknaði i gær við björgunaraðgerðir. 1 Tékkóslóvakiu hefur vatnið i Elbu hækkað um tvo metra á siðasta sólarhring, og hefur öll skipaumferð um hana stöðvast, enda hefur verið lýst yfir neyðar- ástandi. Elba og Berounka-árnar hafa flættyfir akra, vegi, verksmiðjur og meira en 100 ibúðarhús. — tbúar Melnik, sem er hafnarbær fljótabáta ( um 35 km norður af Prag), hafa flúið bæinn. Mikið kuldakast hefur skolliö yfir sum kaffiræktarhéruð Braziliu. Sjá menn fram á miklar frostskemmdir, svo að fram- leiðsla næsta árs verði 20% lægri, en reiknað var með. Braziliumenn höfðu orðiö góðar vonir um, að þessi uppskera slyppi við frostin. Bjartsýnustu menn spáðu þvi, að framleiöslan yrði um 30 milljón sekkir (60 kg), eða meira en þriðjungur heims- framleiðslunnar. Fréttir af kuldahretinu sögðu strax til sin á alþjóðlegum mörkuðum . 1 London hækkaði tonnið af kaffi um 30% Pólskur flugræningl l Vestur-Berlín I gær var pólskri flugvél rænt og var neydd til lendingar i Vestur—Berlin. Hún var send aftur heim til Póllands i-morgun, eftir að flugræninginn, 21 árs gamáll maður, sem vildi flýja kvaöningu i herinn, gafst upp fyrir v-þýsku lögreglunni. I vélinnii tveggjahreyfla Antonow 24,voru 50 farþegar, sem fóru með henni i morgun. Flugræninginn hafði verið vopnaður skammbyssu og hand- sprengju, og ógnaði áhöfninni með þeim, þegar vélin var i innanlandsflugi, milli Katowice og Gdansk. Hann verður að öllum likindum dreginn fyrir dómstól i V-Berlin, sem i desember i vetur dæmdi annan Pólverja fyrir flugráns- sakir 1 fangelsisvist.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.