Vísir - 01.09.1981, Page 18
18
Þriðjudagur 1. septcmber 1981
VÍSIR
Hell Drivers
koma aftur
og nú með enn
stærri sýningu
Djöfla-eklarnir, eða „Hell
Drivers” á frummálinu, vinna
nú að þvi að heimsækja Islend-
inga á nýjan leik en einsog menn
konurog börn muna,sóttu þessir
fifldjörfu kappar okkur heim i
sumarbyrjun. Framkvæmdar-
stjóri fyrirtækisins, Steve Eric-
son, er nú staddur hér á landi til
að ganga frá formsatriðum
varðandi væntanlega heimsókn
og tjáði hann Mannlifi að liklega
yrðu þeir hér á ferö i júni næsta
sumar.
„Við vorum hér á ferð i vor og
okkur likaði stórkostlega vel við
landið og fólkið og þvi langar
okkur til að koma aftur með enn
betri sýningu og stoppa lengur
við”, sagði Steve.
Já, Hell Drivers ætla að bæta
um betur frá þvi siðast, og má
búast við, að enn fleiri áhorf-
endur muni flykkjast á sýningar
ökuþóranna heldur en siðast.
Næsta sumar verður sýningar-
hópurinn mun stærri og þeim
fylgja einnig fleiri bilar.
Og siðan er það önnur rús-
sinan i pylsuendanum: heljar-
innar stór fallbyssa, sem byggð
er ofan á tveggja-hæða-strætó,
en úr henni er einum úr hópnum
skotið allt að 30 metra. Þar
koma bilar hvergi nærri heldur
er notast við dýnamit!!
Og ekki er allt búið enn, þvi hin
rúsinan er eftir. Steve sagðl að
þeir væru nú að velta fyrir sér
sérlega hættulegu atriði, sem
aðeins yrði framkvæmt einu
sinniog með þvi væri ætlunin að
slá heimsmet! Þar er um að
ræða stökk á geysilega kraft-
miklum bil yfir 40—50 aðra bila.
Ef af yrði,myndi þessi mjög svo
glæfralega tilraun fara fram á
siðustu sýningunni hérlendis.
Nú er bara að vona að allt
gangi upp hvað formsatriðin
snertir og ekki er að efa að
Landssamband akstursiþrótta-
klúbba hjálpi ötullega til i þeim
efnum þvi að sambandið mun
eins og i vor hafa milligöngu um
komu flokksins hingað næsta ár.
Þetta ætla Heli Drivers að sýna næsta sumar: griðarstór falibyssa
skýtur einum i flokknum upp f loft....
...hann svifur eina 30 metra...
...og lendir i neti...
Ekkert
stoppar
Kelly
sem er að
útskrifast úr
læknisfræði
þrátt fyrir
alvarlega
fötlun
Kelly reynir að haida sér I æfingu
með þvi að gera armbeygjur.
Þegar Kelly fæddist, árið 1957,
sögðu læknar móður hans að hann
gæti aldrei séð um sig sjálfur. En
þegar hann var 11 mánaða fundu
foreldrar hans sérhæfða stofnun,
sem var tilbúin til að hjálpa. Þar
lærði hann meðal annars að nota
gervifætur. Kelly hefur ætið haft
nægan vilja til að hjálpa sér sjálf-
ur. Hann gekk i skátahreyfinguna
og nældi sér i viðurkenningar,
meðal annars fyrir útilegu yfir
hávetur og siglingar á kanoe-bát-
Þegar Kelly Barfott var ungur
drengur fór hann i veiðitúra með
föður sinum, lék á trompet i
skólahljómsveit, tók mikinn þátt i
skátastarfi, ók dráttarvél á bú-
garöi fjölskyldunnar og hélt garð-
inum við — og allt þetta þrátt fyr-
ir að hann hafi vantaö fætur frá
fæðingu.
Kelly fæddist fótalaus og hann
vantaði tvo fingur á hægri hönd.
En 23ja ára gamall sýnir hann,
hvað I honum býr. Hann leggur nú
stund á nám i læknisfræði við
læknaháskólann I Missouri og
vonast til að útskrifast næsta vor
og þá mun rætast áralangur
draumur hans um að verða lækn-
ir.
Kelly kemst allra sinna ferða
sjálfur, annað hvort með hjálp
gervifóta og hækja eða hann þýt-
ur um á hjólabretti og ýtir sér þá
áfram með höndunum.
„Ef viljinn er nægur getur fólk
gert hvað sem er. Mig langaði
reglulega mikið til að veröa lækn-
ir og hjálpa öðru fólki og ég vona
að mér takist það,” segir Kelly.
„Ég ætla að reyna að fá stöðu i
heimahögum minum þvi ég veit
að þar er skortur á læknum. Og
fólkið þar á hjálp mina svo sann-
arlega inni.”
„Við höfum reynt að ala hann
upp án tillits til fötlunar hans,”
segja foreldrar Kellys. „Hann tók
til i herberginu sinu, hjálpaði til
við húsverkin og vann úti á ökr-
unum.”
Kelly er óhræddur við að reyna
hvað sem er. Eitt skiptið fór hann
i ferðalag ásamt vini sinum — á
puttanum og hann er sagöur efni-
legur á sjóskiðum.
Gissur Geirs
hættir
Mannlifssiðunni hefur borist eftirfarandi bréf, sem birtist hér
orðrétt:
„A siðastliðnu vori tók Hljómsveit Gissurar Geirssonar sér
sumarleyfi. Ég hef nú ákveðið að hljómsveitin hefji ekki störf að
nýju. Hún var stofnuð i kringum áramótin ’70—’71 og varð þvi fullra<
10 ára, sem er að minum dómi I þessu tilfelli mátulegur aldur.
Allir hlutir þurfa endurnýjunar við og ekki sist fyrirtæki sem
þessi.
Ég vil fyrir hönd þeirra, sem störfuðu i hljómsveitinni færa
þakkir öilum þeim sem á einn eða annan hátt áttu samskipti við
Hijómsveit Gissurar Geirssonar. Lifið heil.
í ágústlok 1981 GissurGeirsson,Selfossi.”
Gibb í
Flynn
Hvaöer likt meö Barry Gibbog Errol Flynn? Þaö er rétt: ekkert
En svo gæti samt farið aö það svar yröi rangt innan
L tíöar. Þaö er nefnilega þannig sko að United Artist
K ~ kvikmyndafirmað hefur boðiö Gibb-bróðurnum A
föf|k að leika aöalhlutverkið i endurgerö a kvik- Jm
myndinni um Kaftein Blood, en Flynn
stóö i þeim sþorum i fyrri myndinni
frá 1935. Timarnir breytast og
|k mennirnir með. A