Vísir - 19.09.1981, Side 9

Vísir - 19.09.1981, Side 9
Laugardagur 19. september 1981 VtSlR 9 / ilii ffinii** «* J^SSSi WM m AÐ KVEÐJA KÓNG OG PREST A Kjarvalsstöðum er þessa dagana til sýnis veggfóbrið úr vinnustofu Jóhannesar Kjar- vals. Þetta er ekki venjulegt veggfóður eða hversdagsleg „decoration” eins og við þekkj- um úr stofunni heima. öðru nær, við augum blasir stórbrot- in leikmynd, „lifshlaup” snill- ingsins, eins og þeir i Klaustur- hólum hafa nefnt meistara- stykkið. Það er lofsvert framtak að halda þessu einstæða listaverki til haga, ómetanleg eign fyrir komandi kynslóðir aö sjá hvern- ig listamaðurinn bjó um sig. Sagt er ab tilboð hafi verið gert i „lifshlaupið” upp á fjórar mill- jónir nýkróna, og þykir vist eng- um mikiö. Þó er það kaldhæðni örlaganna, aö þetta verömæta veggfóður klæddi veggi vinnu- stofu listamannsins á þeim tima þegar Valtýr Pétursson þurfti að lána Kjarval fyrir VIsi! Annað lífshlaup En það eru fleiri lifshlaup til. Visir átti stórfróðlegt og skemmtilegt viðtal við Ólaf Hannibalsson, bónda i Selárdal i siðasta helgarblaði. Hans lifs- hlaup verður auðvitað ekki nefnt i sömu andrá og meistara Kjarvals og má enginn mis- skilja það. Ólafur er ekki merkilegur fyr- ir listsnilld, þaöan af siður vegna veggfóöurs, en frásögn hans höfðar engu að siður til okkar, hinna óbreyttu borgara, einmitt fyrir þá sök að hann er af okkar sauðahúsi. Hann er enn ungur maður, gekk sinn skóla- veg, útskrifaðist meira aö segja sem hagfræðingur frá erlendum háskólum. Hann geröist kontór- isti I höfuöborginni, lét að sér kveða i pólitikinni og var oröinn innsti koppur i búri hjá hinum voldugu alþýöusamtökum, ASt. En skyndilega kveður hann kóng og prest og gerist afdala- bóndi vestur á fjörðum. Þar býr hann utan við vegi, rafmagn og sjónvarp og hefur einsetu á vetrum. Ekki er þó að merkja að maðurinn sé „skritinn” eða sérvitur. Ólafur hefur einfald- lega heimt sina Paradis vestur i Arnarfirði, og leggur meira upp úr friðsemd einverunnar en asa þéttbýlisins. Hann telur mikils- veröara að vera sæll með sjálf- um sér, heldur en verða mikill af metorðum. Það mætti margur maðurinn læra nokkuð af þeirri lifsspeki, ekki sist þeir sem halda að ham- ingjan sé fólgin I hégómanum. Þeir þora aldrei að fara sinar eigin leiðir, þora aldrei að vera hreinskilnir við sjálfa sig, af ótta við hvað sé „accepterað” af almenningsálitinu. Slikt fólk lætur stjórnast af hræsni, mælir gæfu sina i stöðutáknum og flyt- ur aldrei vestur i Selárdal. Þrælahald tþróttasiðurnar bera okkur þær fréttir, að kunnur islenskur knattspyrnumaður, sem hefur að atvinnu að leika iþrótt sina i Þýskalandi, hefi verið seldur milli félaga, án þess að hafa sjálfur fengið vitneskju um það. A sama tima er okkur einnig sagt að allnokkrir islenskir knattspyrnumenn hér heima, séu á förum utan, til að skrifa undir samninga við atvinnufé- lög. Þeir fá að visu tilboð um það sjálfir, en hafa að öðru leyti enga vitneskju um hvað biður þeirra. Nú hefur sá sem þetta skrifar siöur en svo á móti þvi, aö ungir og snjallir Iþróttamenn leggist I vlking og leiti sér fjár og frama erlendis. En menn mega ekki láta meðhöndla sig sem þræla eða búa við þau fornaldarkjör aö vera keyptir og seldir eins og skynlausar skepnur. Þrælahald hefur verið afnumið með lögum og þau lög ná einnig yfir Iþrótt- irnar. Fréttastofan Ýfingar hafa átt sér stab milli útvarpsráðsmanna annarsveg- ar og starfsmanna Rikisút- varpsins hinsvegar. Af hálfu þeirra sem sitja i útvarpsráði, eru deilur ekki sprottnar af fjandskap eða illvilja. Þeir hafa hinsvegar sett fram gagnrýni, eða réttara sagt, tekiö undir gagnrýni á tiltekin atvik i störf- um fréttamanna hjá fréttastofu hljóövarps. Ekki þarf það að koma neinum á óvart. Það er beinlinis verkefni útvarpsráðs aö segja lof eða lastá dagskrá og flutningi hennar, þótt viður- kenna megi, að meira fari fyrir lastinu og þaö oft að ósekju. Fréttamenn útvarpsins eru ekki hafnir yfir gagnrýni og þeim kann að verða á i mess- unni. Þeir eiga að sýna hlutleysi i starfi og það er vandi að þræða þann hlutleysisveg, ekki síst i landi svo flokkslitaðrar afstöðu, sem okkar þjóðfélag er. Þeir verða að skilja, frétta- mennirnir, að þegar þeir eru i formlegum tengslum við stjórn- málaflokka og láta aö sér kveða innan þeirra, þá vekur það tor- tryggni. Stundum og sem betur fer er sú tortryggni ástæðulaus, en hún er til staðar engu að sið- ur. Henni veröur heldur ekki eytt, þótt framkvæmdastjórn og starfsmannafélag útvarpsins geri Egilsstaðasamþykktir gegn henni, gegn tortryggninni! //Lekinn" Mikillar viökvæmni hefur ráistjórnar pistill Eilert á.. Schram ritstiéri skritar SSSSSSSSSSMSSS gætt meðal fréttamanna, þegar nokkrir útvarpsráösmenn minntu á aö trúnaðarbrot hefði verið framið, þegar ummæli Kjartans Jóhannssonar for- manns Alþýöuflokksins i einka- samtali við fréttamann „láku út”. Þeir telja það atvinnuróg og órökstuddar dylgjur þegar sagt er frá þessum leka og hann talinn ámælisveröur. Þó hafa þessir sömu frétta- menn verið vitni að þeim yfir- lýsingum Vilmundar Gylfason- ar að hann hafi fyrrnefnt einka- samtal á segulbandsspólu i sin- um fórum og upplýst er að sam- talið hafi veriö spilað fyrir starfsmenn fréttastofunnar. Hvorutveggja liggur fyrir i skriflegum yfirlýsingum frétta- mannanna sjálfra. Maöur gæti haldið að það stæði heiðri frétta- stofunnar nær, að taka undir kröfur um að rannsókn fari fram á „lekanum”, I stað þess að dylgja um það að útvarps- ráðsmenn séu ekki starfi sinu vaxnir. Fréttamenn, sem leggja harðar og áleitnar spurningar fyrir hinn almenna borgara, fréttamenn sem halda uppi óvæginni gagnrýni á menn og málefni, verða að hafa þrek til þessaðtaka athugasemdum um þeirra eigin störf. Og það er varhugaverður hugsunarháttur i meira lagi, sem kemur fram i ályktun starfsmannafélagsins, þess efn- is, að útvarpsráö sé til óþurftar fyrir stofnunina. Starfsfólk Rik- isútvarpsins á ekki stofnunina og á aö láta af þeim hroka, að telja lýðræðiskjörna stjórn i út- varpinu til óþurftar. Halda þeir virkilega ab þjóðin telji hag al- mennings og stofnunarinnar bet- ur borgiö i þeirra eigin hönd- um? Hvers konar primadonnu- leikur er þetta eiginlega? Farsælast er auövitað, að út- varpsráö, embættismenn og abrir starfsmenn Rikisútvarps- ins sameinist um að viðhalda virðingu og trausti þessa áhrifa- mikla fjölmiðils. Otvarpsráð hefur áreiöanlega fullan vilja og áhuga á góðu samkomulagi i stað þess að talast við i bókun- um og fundarsamþykktum. Sundurlaust samstarf Kosningaúrslitin i Noregi komu ekki á óvart. Hægri flokknum hafði lengi veriö spáð mikilli fylgisaukningu og mibab við þá stemmningu sem flokk- urinn haföi með sér, veröur aö telja útkomu Verkamanna- f'lokksins allsæmilega. Fylgis- tap jafnaöarmanna var minna en búist hafði verið við. Nú stefnir allt i minnihlutastjórn hægri manna. Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig þeirri stjórn tekst til. Hægri menn hafa gagnrýnt aukin umsvif rikisins, miöstýr- ingu og skattpiningu Verka- mannaflokksins. Sama var uppi á teningnum, þegar borgara- flokkarnir komust til valda i SviþjóO fyrir nokkrum árum. Þá átti að hreinsa til eftir sósial- demókratana, en sú uppstokkun hefur látið á sér standa, ýmsum þar i landi til mikillar skap- raunar. Hvort stór orð horskra hægri manna verða að litlum efndum þegar á reynir, veröur timinn að skera úr um, en ef svo fer, gerist sú spurning áleitin, hvort rétt sé, að munurinn á stjórnmálaflokkunum á Norð- urlöndum sé óverulegur þegar til kastanna kemur. 1 þvi sambandi er það rann- sóknarefni, hvernig vinstri flokkur á Islandi getur starfað með hægri mönnum i rikisstjórn þennig aðekki falli skuggi á ein- lægt og snurðulaust samstarf. Er það tilviljun, eða eru þessir stjórnmálamenn, vinstri menn i Alþýöubandalaginu og sjálf- stæðismennirnir I rlkisstjórn- inni allir sama miðjumoðiö? Hugsjónafólkiö á vinstri væng Alþýöubandalagsins, jafnt sem aðrir stuöningsmenn stjórnar- innar ættu ab gefa sér stund til að ihuga svariö við þessari spurningu. Kannske geta þeir gengiö saman I einn „ábyrgan” flokk? Hver veit. Ellert B. Shcram.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.