Vísir - 19.09.1981, Page 14

Vísir - 19.09.1981, Page 14
14 vism Laugardagur 19. september 1981 Sælkeraferd til Luxemborgar 3. til 6. október 1981 Þriöjá Sælkeraferö Sælkera- klúbbsins veröur aö þessu sinni farin til Luxemborgar. Þaö var engin tilviljun aö Luxemborg varð fyrir valinu aö þessu sinni. Þar eru margir frábærir veit- ingastaðir, já jafnvel meö betri veitingastööum í Evrópu. I Luxemborg er rikjandi hin franska heföi matargerð, en þó gætir þýskra áhrifa. Einnig eru þúsundir ttala og Pórtúgala bú- settir i landinu eru þvi t.d. all margir italskir veitingastaöir i Luxemborg. Luxemborg er i hjarta Evrópu, það er þvi óhætt að segja aö hægt sé aö kynnast evrópskri matar- og vinmenn- ingu eins og hún gerist best. Luxemborgarar framleiða mörg frábær hvitvin og þá aöal- lega i Moseldalnum. Markmiðið meö þessari ferö er ekki bara aö snæða góöan mat, heldur einnig er þetta hvildar- og hressingarferð. Dvalist veröur á hinu ágæta hóteli „Sheraton”, sem er á mjög fógrum stað. Ekki sakar aö geta þess, að á hótelinu er ljómandi veitingastaður. Dagskráin er i grófum drátt- um þessi: Lagt er af staö til Luxemborg- ar laugardaginn 3. okt. kl. 7:45 með FI 614. Eins og áður hefur komiö fram, veröur bdiö á Aerogolf Sheraton Hotel. Dag- urinn er svo frjáls, en kjörið aö fara niður i' miöbæ Luxemborg- ar t.d. Place d’Armes og skoöa mannlifið. Um kvöldið veröur svo hópnum skipt i' tvennt og tveir frábærir veitingastaðir heimsóttir. Þaö eru veitinga- staðirnir Grimpereau og Cord- ial. Sunnudagurinn 4. okt. er svo alveg frjáls, upplagt er t.d. fyrir tvenn hjón aö leigja sér bi'l, en bilaleigubi'lar eru mjög ódýrir i Luxemborg, og skreppa til Frakklands, Þýskalands eða Belgiu. Nú, svo má nota daginn og skoöa borgina eða þá hafa það gottá hótelinu og slaka á og reyna að losna viö streituna. Um kvöldiö veröur svo hinn Islensk-Luxemborgiski veit- ingastaöur „The Cockpit —Inn” heimsóttur. Þetta er sérstakur og skemmtilegur veitingastaður cg nautasteikin hjá Sigurvin er aldeilis frábær. Enda erhráefn- ið töluvert betra en við eigum aö venjast hér heima. Mánudagsmorgun 5. okt. er upplagt aö fara i bæinn og versia. En kl. 13.30 veröur lagt af stað i ferð til Mosel. Verða vinakrarnir skoöaöir og farið niöur í nokkra vinkjallara. Einnig verður þátttakendum gefinn kostur á aö bragða á nokkrum víntegundum, en Rieslingvinin Luxemborgisku eru mörg hver frábær. Svo verður fariö í siglinu á Mosel. Eftir þessa ferð ættu menn að vera nokkru vi'sari um Luxem- borgisku hvitvinin og vi'nfram- leiðsluna. Um kvöldiöer tilvalið aö heimsækja „þjóðlega” veit- ingastaði, en i Luxemborg eru italskir, kinverskir og gri'skir veitingastaöir. Auk þess auövit- að ekta luxemborgiskir eins og t.d. l’Académie. Þriðjudagsmorgun 6. okt. er hægt að versla. Hádegismatinn er upplagt aö snæða á hótelinu en eins og áður hefur komið fram er þar ljómandi veitinga- staöur. Lagt er af stað heim meö FI 615 kl. 14.30 frá Luxem- borg og komiö til Keflavikur kl. 17.00. Þessi ferö er á mjög hagstæðu verði, en hún kostar kr. 2.461,- Allar nánari upplýsingar eru gefnar á söluskrifstofu FLUG- LEIÐA, Hótel Esju í sima 27800. Þið ykkar sem hafiö hug á aö taka þátt i þessari ferð, eruð beöin aö tilkynna þátttöku sem fyrst, þvi fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Luxemborg er kjörið land fyrir sælkera. Smáréttir Neysluvenjur tslendinga hafa breyst allverulega á siöustu ár- um. Æ færri vinna oröiö likam- lega erfið störf og viö þurfum ekki á eins mörgum hitaeining- um og forfeöur okkar þurftu. Margir boröa nú aöeins eina heita máltiö á dag. Yfirleitt fær fólk sér „snarl” I hádeginu og heita máltiö á kvöldin. Sælkera- siöan vill þó alls ekki fullyrða, aö neysluvenjur lslendinga i heild séu svona, þetta er aöeins ágiskun. Fyrir þá sem þurfá aö passa linurnar getur snarliö veriö býsna hættulegt, sérstak- lega ef um gosdrykki og sælgæti er aö ræöa. Hér kemur uppskrift aösmáréttum, sem eru sáraein- faldir I matreiöslu og hægt er aö taka þá meö sér I vinnuna. Réttur A: t hann þarf: 2 dl. kotasæla 1/2 rifiö epli 1 dl. reykt sild skorin i þunnar sneiöar paprikuduft 1 matsk. si'trónusafi. Byrjiö á þvi aö rifa niöur epl- ið. Hræriö svo sitrónusafanum saman viö epliö. Skerið svo reykta sildarflakiö niöur i þunnar sneiöar. Blandiö svo saman epiinu, kotasælunni og sildinni og kryddiö meö paprikuduftinu svona 1/3 úr teskeið. Réttur B: Þaö þarf aöeins meira fyrir þessum rétti aö hafa en hinum fyrri en i þennan rétt þarf: 100 gr. hangikjöt 1 stór banani 1 matsk. rifinn gráöostur. Byrjiö á þvi aö sjóöa hangi- kjötiö, t.d. kvöldiö áöur. Þegar kjötiö er oröiö kalter þaö skoriö niöur í litla bita á stærö viö 1/2 sykurmola. Bananinn er skor- inn niður isneiöar. Kjötbitunum og bananasneiöunum er svo blandaö varlega saman og 1 matsk. af gráöosti stráö yfir. Réttur C: Þriöja réttinn er kannski ekki auövelt aö taka meö sér i vinn- Arnarhóll: Hraöréttir ■nádeginu Veitingastaöurinn Arnarhóll býður nil upp á hraörétti I há- deginu. Amarhóll hefur þá sér- stööu á meðal islenskra veit- ingahúsa, aö hægt er aö kalla matseöilinn „frumlegan og á- hugaveröan”. Meöal hraörétta er „Skötuselskæfa meö dill- sósu” á 79.- eöa „hjúpuö svart- fuglsbringa meö rjómasoönum kartöflum” á kr. 85.-. Þeir Amarhólsmenn kappkosta aö nýta okkar góöa hráefni. Mat- seðillinn viröist fylgja árstiöun- um, þ.e.a.s. þaö hráefni sem bester á hverjum tima er uppi- staöa réttanna. Þaö er enginn vafi á þvi aö matseöill Arnar- hóls, er sá áhugaveröasti sem islenskt veitingahús bjóöa upp á i dag. Hins vegar er þaö dapur- legt að fólk skuli ekki gefa sér tima til aö boröa góöan mat, þó i hádeginu sé. Er streitan virki- lega oröinsvo mikilaöReykvik- ingar hafi ekki tima til aö njóta af góöum mat, þó þaö taki kannski 15 minútum lengri tima en t.d. að fá sér hamborgara? Sælkerasiöan getur svo sannarlega mælt meö hádegis- veröarseöli Arnarhóls. Svo virö- ist sem staðurinn sé aö komast yfirbyrjunaröröugleikana og er Amarhóll nú sennilega áhuga- veröasti veitingastaöurinn á íslandi i dag. Auöveldir smáréttir. una en það ætti þó ekki aö vera ómögulegt. I þennan rétt þarf: 1 dl. islenskur kaviar 1/4 dl. sýröur rjómi 1 matsk. flnsaxaöur graslaukur. Byrjiö á þvi aö blanda saman sýröa rjómanum og graslaukn- um. Þessi sósa er höfö meö kaviarnum, en þó ekki blandað saman viö hann. Setjiö kaviar- inn á disk og sósuna i miöjuna. Þaö er sáraauövelt aö útbúa þessa rétti og i þeim eru ekki of margar hitaeiningar. Meö þess- um rétti ölium á aö snæöa gróft brauö eöa hrökkbrauö. NU, hvaö á svo aö drekka meö þessum smáréttum? Sælkera- siöan mælir meö pilsner eða eplasafa. Einnig er sódavatn ljómandi. Ég tala nú ekki um fyrir þá sem eru i megrun. Nokkrir fróðleiks- molar um vin Samkvæmt niöurstööum kannana á áfengisneyslu tslendinga drekka landsmenn nú meira af léttum vinum en áöur. Þessi þróun er ánægjuleg, þvl svo viröist sem áfengis- vandamálum fólks hafi fækkaö nokkuö. Meö auknu frjálsræöi stjómvalda i áfengismálum hefur ástandiö I þessum efnum skánaö. En vissulega veröum viö aö vera vel á veröi, stórauka þarf alla fræðslu og þá bæöi um vin og skaösemi óhóflegrar á- fengisneyslu. Þessi fræösla þarf aö vera hlutlaus og laus viö allar öfgar. Þvi miöur veröur þaö aö segjast eins og er, aö hluti þeirrar fræöslu sem nú er boöiö upp á eru hreinar öfgar sem enginn getur tekiö mark á. Sælkerasiöan leggur til aö tek- inn veröi saman bæklingur um áhrif áfengis á mannslikamann og helstu hættur samfara áfengisneyslu. Þessi bæklingur ætti svo aö liggja frammi i á- fengisverslunum. En þaö þarf einnig aörar upplýsingar, "íi I I I I I I I I I I I I I I I I I Skúli Hansen matreiöslumeistari og Guömundur Guðmundsson matsveinn. þ.e.a.s. um vinið sjálft. Þaö ætti aö vera skylda Afengis-og tó- baksverslunar rlkisins að veita viöskiptavinum sinum upp- lýsingar um létt vin. Hér koma nokkur einftad at- riöi varöandi vin. Hvitvfn: Bestu frönsku hvitvinin koma frá Bordeaux og Bourgogne. Sauternes-vinin eru frekar sæt. Hvítvín eiga aö vera 10 til 12 C, þau má alls ekki geym a i Is- skáp ílengritlma. Þurr og hálf- þurr hvitvin passa vel meö ýmsum fiskréttum og eggja- réttum. Hálfsæt hvitvln má bera fram með fuglakjöti og sVinakjötsréttum. Agætt er aö drekka sæt hvltvin meö t.d. á- vöxtum. I heilli flösku eru u.þ.b. 6-8 glös. Ekki má gleyma Mosel og Rinarvinunum. Yfirleitt eru Rlnarvinin I brúnum háum flöskum og Moselvlnin I svip- uðum flöskum grænum. Þekkt Rlnarvin eru t.d. Riesling, Rudensheimer og Liebfraum- ildi. Þekkt Moselvin er t.d. Bernkasteler. Rósavin: Vinsælustu rósavinin hér á landi koma frá Portúgal, en Spánverjar framleiöa einnig ágæt rósavin. Ýmsir sérfræö- ingar telja þó aö bestu rósavinin séu frönsku Anjou-vinin. Hæfi- legt hitastig rósavina er 10 til 11 C. 1 hverri flösku af rósavini eru 6-7 glös. Styrkleiki rósavlna er um 11-13%. Rauðvin: Þekktustu rauðvinin eru sennilega Bordeaux og Bourgogne vinin. Hæfilegt hita- stig á t.d. Bordeaux vlnum er 18 til 20 C. Bourgogne-vlnin njóta sin best við 16-18 C og passa ljómandi með lambakjöti. Einn- ig koma ágæt vin frá ýmsum öörum löndum, svo sem ítaliu Spáni og USA. Þau rauðvin sem eru rétt aöeins sæt njóta sin berst við 12-15 C. Rauðvin er mjög viökvæm vara og skiptir þvihitastigiðmiklu máli.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.