Vísir - 19.09.1981, Síða 35
Laugardagur 19. september 1981
35
VÍSIR
Bílnum var bakkað upp aödyrum og verslunni var lokað þar til lögreglan fjarlægði hann.
(Visism. ÞL)
SETTU STOLINN
FVRIR DYRNAR!
- lokuðu verslunlnni vegna dellna um
stólakaup - Iðgreglan skarst í mállð
Heldur betur sló i brýnu milli
tveggja fyrirtækja i gær vegna
stólakaupa, sem annað fyrir-
tækið átti við hitt, en vildi þá svo
ekkiþegartil átti að taka.
Forsaga þessa máls er sú, að
fyrir skömmu pantaði og stað-
greiddi fyrirtækið Skorri hf.
stóla hjá versluninni Húsgagna-
vel i Kópavogi. Þegar stólarnir
voru tilbúnir leist þeim Skorra-
mönnum ekki meira en svo á
stólana, að þeir báðu um, að
þeim yrði breytt, sem var gert.
Þegar stólarnir voru tilbúnir og
komnir i húsakynni Skorra hf,
fannst þeim stólarnir hálfu
verri og heimtuðu riftun á kaup-
unum. Húsgagnavalsmaðurinn
féllst á það gegn þvi þó, að
Skorramenn fengu innleggsnótu
i versluninni. Það gátu þeir alls
ekki sætt sig við.
1 hádeginu i gær kom svo
maöur þaðan með stólana og
bar þá inn i búðina, en Hús-
gagnavalsmenn voru fleiri
talsins svo þeir báru stólana aft-
ur inn i sendiferðabil Skorra-
mannsins. Þegar hann sá, að
þarna var við ofurefli að etja,
tók hann sig til, bakkaði bilnum
að dyrum verslunarinnar, harð-
læsti honum og hvarf á braut.
Þannig stóðu málin lungað úr
deginum i gær eða þar til Hús-
gagnavalsmenn hringdu á lög-
regluna og fengu bilinn fjar-
lægðanfrá dyrunum. Þegar svo
var komið var þeim Skorra-
mönnum sent skeyti og þeim til-
kynntumaðgerðir lögreglunnar,
svo og var höfðuð skáðabóta-
krafa á hendur þeim og viö það
situr. — KÞ
Markús vill kanna irekar
hugsanlegan hlólnað á frétlaslolunnl
Litið var rætt um fréttastofu-
málið svonefnda á fundi útvarps-
ráðs i gær og engin afstaða tekin,
enda formaöur útvarpsráðs, Vil-
hjálmur Hjálmarsson, fjarver-
andi.
Markús örn Antonsson, itrek-
aði óskir sinar að könnuð yrðu
nánar ummæli GunrarsE. Kvar-
an, fréttamanns um hugsanlegan
þjófnað á persónulegum gögnum
hans á fréttastofunni.
Gert er ráð fyrir aö á næsta
fundiráðsins, sem haldinn verður
Fjórir prestar
vígðir á morgun
Biskup tslands, herra Sigur-
björn Einarsson, vigir fjóra guð-
fræðikandidata til prestsstarfa i
Dómkirkjunni á morgun. Hefur
hann þá vigt 85 presta á sinni 22ja
ára biskupstið.
Tvær konur verða á meðal
hinna nývigðu presta, þær Agnes
M. Sigurðardóttir og Hanna
Maria Pétursdóttir. Hafa þá fjór-
ar konur hlotið prestsvigslu, þar
af þrjár á þessu ári. Agnes hefur
verið ráðin æskulýðsfulltrúi
kirkjunnar og Hanna hefur verið
settur prestur i Asaprestakalli i
Skaftártungum.
Aðrir vigsluþegar eru Guðni
Þór Ólafsson, sem gegna mun
farprestaþjónustu i Stykkishólmi,
og Kristinn Ágúst Friðfinsson, en
hann hefur verið settur prestur að
Suðureyri við Súgandafjörð.
Vigsluvottar verða séra ólafur
Skúlason, séra Árni Pálsson, séra
Tómas Guðmundsson og séra
Gisli Kolbeins. Vigslu lýsir séra
Davið Baldursson, en séra Hjalti
Guðmundsson annast altaris-
þjónustu.
— KÞ
Frtöup (Skálholli
FRIÐUR Á JöRÐU nefnist ráð-
stefna sem haldin er i Skálholti
um helgina, á vegum Kirkju-
ritsins.
Fjallað verður um íriðar-
hreyfingar samtimans, vig-
búnaöar-og afvopnunarmál, en
jólahefti Kirkjuritsins mun siðan
flytja efni frá ráðstefnunni.
Þremur fulltrúum frá hverjum
stjórnmálaílokki hefur verið
boðið til ráöstefnunnar, sem er
þriðja ráðstefnan sem efnt er til
með þessu formi. Meðal þátt-
takenda i ráðsteínunni um friðar-
mál eru alþingismenn, stjórn-
málaritstjórar, sagnfræðingar og
guðfræðingar. Ráðstefnustjórar
verða dr. Gunnar Kristjánsson og
sr. Bernharður Guömundsson.
—AS
Brotist inn lijá löggunní
Grundfirðingar nokkrir, sem
sátu að sumbli aðfararnótt föstu-
dags, bundu ljótan endi á gleð-
skapinn meö þvi aö brjótast inn i
lögreglustöðina þar i þorpinu, og
valda þar miklum spjöllum.
Þeir kveiktu þar i skjöium og
öðrum pappirum, en hentu öðru
lauslegu Uti sjó. Þá brutu þeir og
brömluðu meðal annars sjónvarp
og peningakassa. Er tjóniö ó-
mælt. Mennirnir hafa allir naðst.
—KÞ
Vísisbíó
Hugdjarfar stallsystur nefnist
gamanmynd i' litum með is-
lenskum texta sem sýnd verður i
Visisbió á sunnudag klukkan 13 i
Regnboganum.
Iscargo og Arnarllug:
Ræða samstarf í
víðasta skilningi
á þriðjudag, verði fjallað um
ályktun starfsmannafélags út-
varps og sjónvarps, þar sem út-
varpsráð var harðlega vitt fyrir
gagnrýni á fréttastofuna.
— JB
„Ástæðan fyrir þvi að við
höfum áhuga á viöræðum við
Lscargo, er fyrst og fremst sú
stefna okkar, að ná sem mestri og
hagkvæmastri samvinnu við þá
aðila sem f flugrekstri eru”, sagði
Haukur Björnsson, stjórnarfor-
maður Arnarflugs, i samtali við
Vi'si.
FulltrUar beggja fyrirtækanna
hittust á fundi á miðvikudag og
var þar aðallega verið að kanna
hvort grundvöllur væri fyrir
frekari viðræöum um hugsanlegt
samstarf i viöasta skilningi.
Að sögn Hauks, var gengið út
frá þvi á fundinum að aðilar
hittust fljótlega aftur til frekara
samráös. JB
eam
RÍKISSTJuRNIN VINNUR AÐ
LAUSN A VANDA IDNAÐARINS
neöanmóls
Þótt grein eftir Lárus Jónsson
alþm. i VIsi i gær (18/9) sé aö
sönnu nokkurt tilefni þess aö ég
bið blaöið fyrir fáeinar linur i
dálkum sinum, mun ég láta
ósvaraö grein hans sem slikri.
Greinin er ekki svaraverð.
Henni er ekki ætlað aö leysa
neitt vandamál né upplýsa al-
menning um staðreyndir mikil-
vægs málaflokks. Greinin er
ómerkilegur samtiningur sem
hefur þann eina tilgang að eigna
persónu minni tiltekna manns-
parta og sérstaka tegund af
pólitiskum áhuga og innræti.
M.ö.o.: Lárus Jónsson kýs þá
aöferð aö ráðast að persónu
pólitisks andstæðings I stað þess
að rökræöa á málefnalegum
grundvelli ágreining, sem ég
hef leyft mér að gera um form
og framkvæmd á tilteknum
fundi norður á Akureyri. At-
hugasemdir við form eru blásn-
ar upp sem andstaöa við mál-
efni.
Gagnrýni min á fundarfyrir-
komulagi er orðin að imyndun
viðkvæmra manna aö ég sjái
ekki og vilji ekki sjá hver
vandamál iönaðarins eru.
Ég er ekki einn um þessa
gagnrýni á fundinn. Alþingis-
menn, sem ég hef rætt þessi mál
við og reyndar fleiri, hafa látiö
uppi óánægju meö fundarfyrir-
komulagið, þ.e. að ekki skyldi
vera málfrelsi á fundinum.
Já, þeim uppspuna er haldiö
að fólki að ég sjái ekki hver
vandi iönaðarins er. Lárusi
Jónssyni finnst sér sæma að
halda sliku fram. Með fullri
viröingu fyrir Lárusi og áhuga
hans á velgengni samvinnu-
hreyfingarinnar þá þori ég að
fullyröa að áhugi minn á þeim
málum stenst þar samanburö.
Lárus Jónsson þarf ekki að
eigna öörum sjónleysi á augljós
vandamál. Ég sé ekki aö hann
sé neinn maöur til þess. Deilan
snýst alls ekki um þaö, hvort
rikisvaldinu beri skylda til að
leysa vanda itnaðarins aö sinu
leyti. Deilan snýst ekki um þaö
að atvinna fjölda fólks er i
hættu, ef iönaöur dregst saman.
Allir eru sammála um þessi
atriöi.
Hins vegar finn ég að þvf þeg-
ar boöaö er til fundar með opin-
berum ráðamönnum um mál-
efni atvinnulifsins, s.s. alþingis-
mönnum og bæjarstjórnar-
mönnum, aö þá skuli gestir
sviptir málfrelsi. Ég mun halda
áfram aö andmæla rangfærsl-
um eins og þeirri að rikisstjórn-
in hafi ekkert gert til hagsbóta
iðnaöinum i landinu. Ég mun
einnig vara viö þvi að sam-
vinnufélögin og aörir haldi fólki
i ótta um atvinnuleysi með
klaufalegri kynningarstarf-
semi, — ekki sist vegna þess að
sú rikisstjóm sem ég er tals-
maöur fyrir, hefur efst á stefnu-
skrá sinni að halda uppi fullri
atvinnu. Það hefur rikisstjórn-
inni tekist til þessa og það mun
hún gera framvegis.
Ingvar Gislason
//Gagnrýni mín á fund-
arfyrirkomulagi er oröin
imyndun viökvæmra
manna um að ég sjái ekki
og vilji ekki sjá hver
vandamál iðnaðarins
eru/" segir Ingvar Gisla-
son, menntamálaráð-
herra, I þessari grein sem
skrifuð er I tilefni af
grein Lárusar Jónssonar
alþingismanns I Vísi I
gær.