Vísir


Vísir - 02.10.1981, Qupperneq 1

Vísir - 02.10.1981, Qupperneq 1
Föstudagur 2. október 1981/ 223. tbl. 71. árg. Englnn I rusli á öskuhaugunum Utreikningar Þjððhagsstofnunar: Fiskvinnsian I heiid rakln meö 2% hagnaöi . ■ ■ Að bjarga andlitinu? - Sjá bls. 12 MÁVURINN STRANDAÐI __' - ■ -. o í VOPNAFIRÐII NÓTT - sextán manna áhðfn bjargað Flutningaskipið Mávurinn strandaði á Vopnafirði i nótt. Sextán manna áhöfn er á skipinu og var öllum bjargað i land i morgun. Skipið er allmikið skemmt. Mávurinn, sem Pólarskip á Hvammstanga rekur, var að fara út þegar óhappið varð. Allhvasst var á Vopnafiröi og mikið brim og sigldi Mávurinn upp f sand i botni fjarðarins. Við strandið kom mjög mikill leki aö skipinu og var björgunar- sveitin Vopni á Vopnafirði beðinn um að aðstoða viö björgun áhafnarinnar. Þrjátiu manna björgunarliðkom á staðinn og var áhöfnin tekin i land i stól. Að sögn Péturs Olgeirssonar, formanns björgunarsveitarinnar Vopna, voru aðstæður til björgun- ar góðar og það tók aöeins klukkutima að bjarga allri áhöfn- inni i land, og varö engum meint af Skipiö er mikiö skemmt. Eins og fyrr sagði- kom mikill leki að þvi við strandiö, og nú brýtur á þvl á strandstað. —ATA - Sjá DiS. 14-15 Þjóöhagsstofnun hefur reiknaö út að fiskvinnslan i heild skili 2% hagnaði en útgeröin sé rekin með 3,2% halla, samkvæmt áreiðan- legum heimildum Visis. Þessar tölur hefur stofnunin lagt fram við ákvörðun almenns fiskverös, en nýtt verð átti að taka gildi um mánaðamótin. Staða einstakra greina innan fiskvinnslunnar er hins vegar mjög misjöfn og er frystingin þannig rekin með um 6,6% halla á Taplð á útgerðinni er 3,2% meöan saltfiskvinnslan skilar 13,1% hagnaði og skreiðar- verkunin 9,4% hagnaði. Þá er bátaflotinn samkvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar rekinn með 1,4% halla tapið á minni skuttogurum er 2,5% og tapið á stærri togurum 12%. Þessi skip koma til álita við fiskverðs- ákvörðun nú og er tapið á þeim samanlagt 3,2% eins og fyrr segir. 1 þessum útreikningum er tekið tillit til þeirra magnbreytinga milli vinnslugreina sem orðiö hafa og áætlaðrar aflaaukningar á þessu ári. Hins vegar er miöað við vaxtakostnaö árið 1979.þannig að tapið er eitthvað meira hjá togurunum vegna hærri vaxta- kostnaðar á nýjum skipum nú. Einnig er vitað- að hagur skreiðarverkunar er ekki alveg eins góður vegna lækkunar á markaðsveröi frá þvi útreikn- ingar Þjóðhagsstofnunar voru gerðir. — KS les UiDiíuna á hverrl nóllu” - Sjá blS. 18-19 Bernin fagna velrl á Akurevrl Þá er veturinn genginn I garð, hvort sem landsmönnum lfk- ar betur eða verr. Hér sunnanlands hefur hann einkum kvatt dyra með frosti og kulda, en fyrir noröan er jörð oröin alhvit. A Akureyri setti niður snjó á miðvikudaginn. Lögreglan á staðnum sagði okkur I morgun, að frekar mætti nú kalla þetta föl heldur snjó. Götur væru nú orðnar alauðar, en nokkuð bæri á hálku. Væri ekki hægt að aka um bæinn nema á sérútbúnum bilum af þeim sökum. Ekki hefðu orðið nein umferðaróhöpp, sem orð væri á gerandi vegna hálkunnar, ,,bara þetta venju- lega hnoð”, eins og viðmæiandi biaðsins orðaði það. En það er eins og fyrri daginn. Það, sem Norðlendingar kalla „föl” vilja Sunnlendingar nefna snjó. Og alla vega geta börnin á Akureyri fagnað vetri, eins og sést á meðfylgjandi mynd. JSS/Visism. GS, Akureyri. r

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.