Vísir - 02.10.1981, Síða 20
20
Föstudagur 2. október 1981
vísm
KARLAKðR REVKJAVÍKUR HELD-
UR UTAN í SðNGFERÐALAG
Karlakór Reykjavikur heldur
hinn 9. október n.k. i enn eina ut-
anferö sina og nú til Bandarikj-
anna og Kanada. Syngur kórinn
þar á 17 hijómieikum á þremur
vikum og eru hljómleikarnir allir
seldir fyrirfram.
Þetta er i fimmta sinn, sem
Karlakór Reykjavikur heldur
hljómleika i þessum löndum og að
ferðinni lokinni hefur kórinn
sungið samtals um 125 sinnum á
samkomum i Bandarikjunum og
Kanada.
Söngstjóri er Páll Pampichler
Pálsson, pianó-leikari Guðrún A.
Kristinsdóttir, en einsöngvarar
eru þau Sieglinde Kahmann og
Sigurður Björnsson, óperusöngv-
arar, og einnig syngja fjórir kór-
félagar einsöng, þeir Hilmar Þor-
leifsson, Hjálmar Kjartansson,
Hreiðar Pálmason og Snorri
Þórðarson.
Þetta er tólfta söngferö kórsins
i fjórum heimsálfum, en siðasta
feröin var til Kina fyrir nær
tveimur árum.
A mánudag og þriðjudag næst-
komandi, 5. og 6. október, heldur
kórinn hljómleika fyrir styrktar-
félaga sina i Háskólabiói og hefj-
ast þeir kl. 19.00 báða dagana.
Þess má að lokum geta, að n.k.
sunnudagskvöld mun Karlakór
Reykjavikur syngja fjörleg lög
fyrir gesti veitingahússins Hlið-
arenda, og er þetta i annað sinn
sem karlakórinn treður þar upp,
enda þótti söngur þeirra i fyrra
skiptið heppnast með afbrigðum
vel.
Karlakór Reykjavikur — á leið i 12. utanferð sina. Páll Pampichler Pálsson stjórnandi kórsins er fyrir
miðju.
NVLISTASAFNIÐ OPNAU
1 kvöld kl. 20.00 opnar Kristján
Steingrimur sýningu i Nýlista-
safninu að Vatnsstig 3, bakhúsi.
Kristján mun i tilefni opnunar-
innar flytja gjörning
(performace)meðhljóði, og er sá
gjörningur i nánum tengslum við
þau myndverk, sem hann sýnir.
Nýlistasafnið hefur nú veriö
lokað meðan endurbætur hafa
verið unnar á húsnæðinu, og er
þessi sýning Kristjáns Steingrims
fyrsta sýningin, sem þar er haldin
i haust.
-jsj.
Vince (Hjaiti Rögnvaldsson) og vinkona hans Shelly (Hanna Maria
Karlsdóttir) i Barni i garðinum.
Fáar sýningar ellir
á Rarni i garðinum
- syningin hlaut mikið lof gagnrýnenda
Á sunnudagskvöldið verður
bandariska verðlaunaleikritið
BARN 1 GARÐINUM eftir Sam
Shepard endursýnt hjá Leikfélagi
Reykjavikur, en verk þetta var
frumsýnt i lok siðasta leikárs og
vakti þá nokkra athygli enda höf-
undurinn talinn helsta leikrita-
skáld Bandarikjanna nú. Vegna
þrengsla og annarra verkefna hjá
Leikfélaginu verður þó aðeins
unnt að hafa örfáar sýningar á
verkinu og er þeim, sem áhuga
hafa á verkinu, þvi bent á að
draga ekki að sjá það. Birgir
Sigurðsson þýddi leikritið, leik-
mynd og búninga gerði Þórunn S.
Þorgrimsdóttir og leikstjóri er
Stefán Baldursson.
Leikritið gerist i sveitabýli i
Illinois i Bandarikjunum og lýsir
all furðulegri fjölskyldu, sem býr
yfir óhugnanlegu leyndarmáli.
Þangaö kemur ungur piltur
ásamt unnustu sinni og smám
saman er flett ofan af þeim at-
burðum, sem þarna hafa gerst. t
hlutverkunum eru Steindór Hjör-
leifsson, Margrét ólafsdóttir,
Hjalti Rögnvaidsson, Hanna
Maria Karlsdóttir, Þorsteinn
Gunnarsson, Siguröur Karlsson
og Guðmundur Pálsson.
Leikararnir hlutu yfirleitt
mikið lof fyrir leik sinn i vor. Jó-
hann Hjálmarsson, sagði ma. i
Mbl.: „Það er með ólikindum hve
Steindóri Hjörleifssyni tekst vel
að túlka Dodge, einkum i niður-
lægingu hans og sjúkleika. Engu
að siður verður túlkun Margrétar
ólafsdóttur á Halie það sem mað-
ur man einna best, tvibentri per-
sónunni gerir hún slik skil.” —
Magdalena Schram sagði i Visi:
„Sýningin á Barni i garðinum er
áhrifamikil og ef til vill sú mest
spennandi og skemmtilegust
þeirra sýninga sem ég hef séð hér
i vetur. Hún er jafnframt óhugn-
anleg svo að manni setur kviða
meðan leikurinn fer fram.. auk
umhverfisins er um að þakka
snjöllum leik allra leikaranna.”
Sem fyrr segir verður Barn I
garðinumsýnt i fyrsta sinn þetta
haust n.k. sunnudagskvöld kl.
20.30, og verða aðeins örfáar sýn-
ingar á þessari rómuðu sýningu.
— jsj.
Sjönvarp kl. 22.00:
Robert Mitchum
sem seln-
heppinn
einkaspæjari
1 kvöld Kl. 22.00 verður banda-
riska biómyndin „Ég kveð þig
min kæra” (Farwell My Lovely)
á dagskrá. Hún cr frá árinu 1975
og byggð á skáldsögu eftir hinn
þekkta reyfarahöfund Raymond
Chandlcr, sem á fjölmarga
aðdáendur hér á Iandi.
Myndin, sem sýnd var i Regn-
boganum fyrir nokkrum árum,
hefur það áérstaklega sér til gild-
is, að þar leiöa saman hesta sina
sú heitasta af yngri skvisunum og
sá harðasti af gömlu gæjunum,
Charlotte Rampling og Robert
Mitchum.
Philip Marlowe einkaspæjari,
sem leikinn er af Mitchum, er
ráðinn til aðfinnaWelmu nokkra,
fyrrverandi ástkonu þrjótsins
Moose Malloy. Leitin leiöir
Marlow um völundarhús morða,
eiturlyfja og lauslátra kvenna.
Gátan verður alltaf flóknari og
dularfyllri. En að lokum finna
þeir félagar Welmu, en hvort það
veröa fagnaðarfundir kemur i
ljós I kvöld.
GIsli Helgason umsjónarmaður
iþáttarins „Aö gera jörðina
mennska”
Samhygð vlnnur
að jainvægl og
Dröun mannslns
Samhygð er félagsskapur,
sem vinnur að jafnvægi og þróun
mannsins. Gisli Heigason er um-
sjónarmaður þáttar, er fjallar um
störf og hugmyndir Samhyggðar
og er hann á dagskrá kl. 21.20 i
kvöld.
1 þættinum er fjallað um nauð-
syn þess aðstaldra við og huga að
þvi hvert stefnir i daglegu lifi.
Geíin eru dæmi um það hvernig
allir geta unnið að skipulegum
breytingum á lifi sinu til hins
betra.
Hugmyndir sinar sækir
félagskapurinn i kenningar
Argentinumannsins Siló, sem
setti þær fram i bókinni „Innri
ró”. Næstkomandi laugardag er
von á Silo hingað til lands og held-
ur Samhygð fund á sunnudaginn
i Háskólabió. Þátturinn er þvi
ágætt tækifæri til að kynna sér
mannbótakenningar Siós og
félaga hans i Samhygö.
Philip Marlowe einkaspæjari heldur Moose Malloy I hæfilegri
fjarlægð.
útvarp
Föstudagur
2. október
12.00 Dagskrá . Tónleikar. Tii-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. A fri-
vaktiuui Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög
sjómanna.
15.10 „Fridagur frú Larsen”
eftir Mörthu Christensen
Guörún Ægisdóttir les eigin
þýöingu (10).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 SíödegistónleikarGideon
Kramer og Sinfóniuhljóm-
sveitin i Vinarborg leika
Fiölukonsert nr. 3 i G-dúr
(K216) eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart, Gideon Kram-
er stj./Sinfóniuhljómsveitin
i Boston leikur Sinfóniu nr. 2
i D-dúr op. 36 eftir Ludwig
van Beethoven, Erich
Leinsdorf stj.
17.20 i.agið mitt Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
bama.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvölddsins.
19.00 Fréltir. Tilkynningar.
19.40 A vettvangi
20.05 Nýtt uitdir iiálinni Gunn-
ar Salvarsson kynnir nýj-
ustu popplögin.
20.30 A fornu frægðarsetri
Séra Agúst Sigurðsson á
Mælifelli flytur fyrsta erindi
sitt af fjórum um Borg á
Mýrum.
20.55 Frá tónlistarhátlðiiuii I
Helsinki i fyrrahaust
21.20 Aö gcra jöröina mennska
ÞátUir um störf Samhygð-
ar. Höfundar og flytjendur
efnis: Helga Mattina
Björnsdóttir, Ingibjörg G.
Guðmundsdóttir, JUiius Kr.
Valdimarsson og Methú-
salem Þórisson. Umsjónar-
maður: Gisii Helgason.
22.00 Munnhörputríó Alberts
Raisners ieikur iétt lög
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 „örlagabrot" eftir Ara
Arualds Einar Laxness les
(4).
23.00 Djassþáttur Umsjónar
maður: Gerard Chinott
Kynnir: Jórunn Tómasdó
ir.
23.45 Fréttir. Dagskrárh
sjonvarp
Föstudagur
2.október
19.45 Fréltaágrip á táknniáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 A döfinni
20.50 Skonrokk Popptónlistar-
þáttur. Umsjón: Þorgeir
Astvaldsson.
21.20 Hamar og sigð Bresk
mynd i tveimur þáttum um
Sovétríki kommúnismans.
Hún var gerð í lilefni 60 ára
af mælis rússnesku
byltingarinnar. Þetta er
mynd með gömlu myndefni
og stuttum leiknum köflum .
Fyrri þáttur: Frá byiting-
unni tilokkardaga. Þýöandi
og þulur : Gylfi Pálsson.
22.00 Ég kvcð þig. mfn kæra
(Farewell My Lovely)
Bandarfsk biómynd frá
1975, byggö á skáldsögu efl-
ir Raymond Chandler. Leik-
stjóri: Dick Richards. Aðal-
hlutverk: Robert Mitchum,
CharlotteRamplingog John
lreland. Myndin fjailar um
'einhvern þekktasta einka-
spæjara reyfarabókmennt-
anna, Philip Marlowe.
Myndin gerist i Los Angeles
árið 1941 og Marlowe stenu-
ur f rammi fyrir þvi að leysa
dúlarfulla morðgátu. Þýð
andi: Þrándur Thoroddsen.
Myndin er ekki við hæfi
ungra barna.
23.30 Dagskrárlok
______J
f