Vísir - 15.10.1981, Side 11

Vísir - 15.10.1981, Side 11
Fimmtudagur 15. október 1981 11 Konur í formanns- sæti verka- lýösfélaga Það hefur mjög verið tiundað undanfarið i f jölmiðlum og viðar, hversu konur eigi erfitt upp- dráttar i stjórnmálum og yfirleitt i þær stööur sem karlar hafa ein- okað til þessa. Það bar þö til tiðinda á þriðja þingi Alþýðusambands Vestur- lands, sem haldið var i Búðardal siðastliðinn laugardag, aðviðfor- mannskjör buðu sig fram tveir kvenmenn, en enginn karlmaður. Konurnarsem buðu sig fram voru þær Bjarnfriður Leósdóttir og Sigrún D. Eliasdóttir og féllu at- kvæði þannigaðSigrún hlaut flest atkvæði, eða 32 af 42 mögulegum. Sigrún hefur á undanförnum ár- um starfað hjá prjónaverksmiðj- unni Hetti i Borgarnesi. Gunnar Már Kristófersson, sem verið hefur formaður sambandsins frá stofnun þess, 1977, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þess má og geta að við stjómarkjörhjá Alþýðusambandi Norðurlands, var einnig kona kjörin f ormaður og heitir sú Þóra Hjaltadóttir sem unnið hefur á skrifstofu sambandsins þar nyrðra um árabil. Fráfarandi formaður Alþýðusa mbands Norðurlands, er Hákon Hákonar- son, en hann gaf ekki kost á sér til endurk jörs. Þessi formannskjör hljóta að þykja merkileg, ef höfð er í huga sú mikla umræða um framtaks- leysi kvenmanna i stjórnmálum og félagasamtökum, sem farið hefur fram á undanförnum mán- uðum o g árum. nauðt boitinn selfl- ur á jc flaginn JC Akranesihefur ákveðið aðá JC daginn 24. október verði hafin dreifing á „rauða boltanum”. Þetta er gert til að stuðla að auknu öryggi ef eldsvoða ber að höndum. Rauði boltinn er hringlaga lim- miði um 9 sentimetrar i þvermál með gulum eldtungum i miðju. Eldtungurnar eru meö endur- skini. Simanúmer lögreglu Akra- ness er á bakhlið limmiðans sem snýr inn i herbergið. Ef kviknar i húsi að næturlagi er rauði boltinn fyrsta visbending tii slökkviliðsmanna hvar ibúar hússins sofa. Rauði boltinn verðurseldur á 10 krónur en aðeins þarf að greiða eitt verð hvort sem ibúar þurfa einn eða fleiri li'mmiða. Þetta verðurekki f járöflun fyrirfélagið en verði einhver hagnaður af söl- unni rennur hann til slökkviliðs Akraness til kaupa á hjálpartækj- um. —KS FJÖLRITUN LJÓSRITUN VÉLRITUN STENSILL Vantar ykkur innihurðir? Þjálfað starfslið tryggir vandaða vöru á 5»r ■ verði. Greiðsluskilmálar, sem allir ráða við. Sö/uumboð: Iðnverk hf. Nóatúni 17, sími 259 Axel Eyjólfsson Smiðjuvegi 9, Kópavogi, sími 43577 Tréemlðja ]3orvaldar Olafssonar hf. Iðavöllum 6 - Keflavlk - Simi 3320 Boðsbréf til bókamanna ARNARTAK heitir nýstofnað forlag sem hefur á prjónunum að hefja menningarlegt fslenskt landnám út I veröldina með útgáfu og dreifingu islenskra bóka á ensku. Aðstandendur forlagsins fá ekki betur séð en að það sem heiminn vanti einna helst — fyrir utan svæðisbundinn og sorg- legan skort á korni — sé islenskur andi, og að ekki dugi neinir smá- skammtar. ARNARTAK mun jafnframt gefa út bækur I takmörkuöujipplagi á islensku og vanda til valsins. Fyrsta bók þess af þessu tagi er endurút- gáfa á bók Jóhannesar Helga: ,,Húsi málarans”, ódrepandi bók sem út kom fyrir réttum tuttugu árum og hefur lengi verið svo ófáanleg sem bók getur verið. ,,Hús málarans” er llfstjáning Jóns Engilberts, en Jón sameinaði i persónu sinni með einstæðum hætti stórskorna grá- glettni islenskrar alþýðumenningar eins og hún gerist römmust og við- feðm sjónarhorn manns sem þekkir heiminn, sem er blanda engri lik, enda hefur bókin lengi reynst mönnum guðsþakkarverð afþreying og hláturgjafi á svörtum dögum. Bókin, sem er 192 blaðsiður, er væntanleg I næstu viku. Ekkert hefur verið til sparað aö gera hana sem veglegasta úr garði. Hún er verulega aukin að ljósmyndum frá fyrri útgáfu, og nokkuö að máli. Bókin hefur að geyma allar ljósmy ndir sem máli skipta frá bernsku málarans og til æviloka. t bókarlok eru kveðjuorð Ragnars Jónssonar i Smára og Jóhannesar Helga daginn sem Jón var jarðsunginn fyrir tæpum tiu ár- um. Sjálfsmynd málarans I fimm litum er varanlega varðveitt I bandi bókarinnar. Upplag er takmarkað og óhagganlegt, en þau eintök sem hér er verið að bjóða i áskrift eru litill hluti upplagsins og sérunninn, með bókmerki i islensku fánalitunum, og árituð af ekkju málarans, Tove, og höfundi bókarinnar. Áritunin fór fram áður en ein- tökin fóru i plastumbúðir. Verð bókarinnar KOMIÐ í HENDUR viðtakanda, hvert á land sem er, er kr. 280. Þér getiö hvort heldur er pantaöbókina I slma 83195 milli klukkan 18 i.g 20 næstu daga, ellegar útfyllt og slegið utan um meðfylgjandi áskriftarseöil til forlagsins: Arnartak, Box 317, 121 Reykjavlk. ARNARTAK Jóhannes Helgi Box 317 Simi 83195 Rvik.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.