Vísir - 15.10.1981, Page 12
12
Fimmtudagur 15. október 1981
Hlý föt, hlýir litir
ylja okkur í vetur
Hlýr fatnaður og hlýir litir
eiga samleið með vetrartisk-
unni. Yfirhafnir virðast eiga að
vera efnismiklar eða fyrirferða-
miklar samanber stungnu
„vatteruðu” dúnfrakkana sem
viröast ætla að verða jafnvin-
sælir i vetur og i fyrravetur. Nú
virðast þeir samt vera enn
þykkari en i fyrra en hafa samt
þá eiginleika að vera léttir.
Stungnar vatteraðar flikur
halda þvi sinum sessi og Urvalið
eykst til dæmis eru buxur og
jakkar komnirá markaðinn lika
og þykir slikur fatnaður einkar
hentugur ferðafatnaður.
Siðar útprjónaðar kápur eða
siðar peysur verða lfka vinsælar
þóvarla getislikur fatnaður tal-
ist til yfirhafna hér á Islandi i
brunagaddi vetrarins. En hægt
að spranga i um götur á milli
húsa meöan að enn sést til sólar.
Fóðraðir regnfrakkar með
belti ætla seint að detta út af
sjónarsviðinu, hafa reyndar
áunnið sér fastan sess sem si-
gildur heilsársfatnaður. En
örlað gæti á þvi hjá einhverjum
að vilja aðeins breyta yfirbragði
gamla frakkans. Langur,
langur prjónaður trefill sem
vafin er um höfuð og háls og
öðrum enda trefilsins stungið
undir beltið eins og sóst hér á
meðfylgjandi teikningu á
siðunni, mundi breyta miklu.
Eins prjónuð slá sem klæðst er
yfirfrakkann. Hér á árum áður,
liklega uppúr 1950 voru vinsælar
úlpur hér á landi sem voru
nefndar Best-úlpur. Ekki sjáum
Umsjón
Þórunn
Gestsdóttir.
við betur en að þessar gömlu
góðu úlpur séu komnar aftur i
tisku bæði úr ullarefnum og létt-
um „dúnefnum”. Það þarf eng-
in þvi að óttast það i vetur að
vera talinn „púkó” þó hann sé
kappklæddur I peysu utan yfir
peysu eða prjónasjal yfir
kápuna þvi tiskan heimilar
hverja silkihúfuna ofan á aðra
eða flík yfir flik. —ÞG
Á þessum teikningum má sjá
hvernig breyta má regn-
frakkanum með löngum trefli
eða prjónaslá.
/
Þægilegur ferðafatnaður. Jakki úlpan sfgilda
og buxur úr þessu sama fis-
létta dúnefni og kápan.
Ctprjónuö síð peysa sem yfir-
höfn
Skástungin „vatteruö” kápa. Létt og hlý.
C-vitamin iæknar kölkun og léttir
iund segja breskir læknar.
Meira C-vítamín eykur vellíðan
Lengi hefur verið vitað að
maðurinn þarf ákveðinn skammt
af C-vitamini daglega og viður-
kenndur skammtur hefur veriö
60-80 milligrömm hvern dag. En
það er sá skammtur sem á aö
forða okkur frá þvi að fá skyr-
bjúg. Nú hafa nokkrir breskir
læknar kunngert að þeir hafi um
nokkurn tima gert tilraunir með
stærri dagskammta af C-vitamini
og er sá skammtur allt að 2-3
grömmum meiri. Telja bresku
læknarnir aö svo stór skammtur
af C-vItamlni daglega komi sér-
staklega að gagni við lækningu
tveggja sjúkdóma en það eru
kölkun og þunglyndi.
N iðurstöður á tilraunum bresku
læknanna, sem nýlega voru kunn-
gjörðar, lofa þvi góðu fyrir þá
sem þjást af hvers konar kölkun
eða þunglyndi. Auk þess sem C-
vitamineykur velliðan er það eitt
af ódýrustu lyf jum sem völ er á.