Vísir - 15.10.1981, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 15. október 1981
VÍSIR
Keppnin er gjarna hörð i foikrace og iitið gefið eftir. Hér er heil hrúga af gömlum
Fólksvögnum sem ryðst inn i beygju samtimis...
...Andartaki siðar splundrast hópurinn og bilarnir stefna hver isina áttina.
Áhugamenn um
bifreiðaíþróttir á Islandi
geta átt von á nýrri
keppnisgrein næsta sum-
ar. Grein þessi er kölluð
Folkrace á Norðurlönd-
unum, eða almennings-
kappakstur.
Að sögn Ólafs Guðmunds-
sonar hjá Landssambandi
islenskra akstursiþróttamanna
er Folkrace svipað rally-cross
og keppt er á svipuðum braut-
um. Það sem gerir Folkrace
frábrugðið og aðgengilegt fyrir
alla, er að i þeirri keppni er ekið
á bilum, sem kosta sama og
ekkert. A hinum Norðurlöndun-
um er miðað við að ekki sé
meira i'bilinn lagt en fimm þús-
und krónur!
i Folkrace er raöaö I riöla likt
og i rally-cross og svo hefst 3-6
hringja kappakstur. Eftir riðla-
keppnina er efstu mönnum
raöað saman.
Eftir að keppni er lokið, er
haldið uppboö á bilunum og er
verðið á öllum bilunum það
sama, fimm þúsund krónur. Ef
tilboö berst i bil, þá verður eig-
andinn aö selja hann. A þennan
hátt er hægt að halda bilunum
öllum i svipuðum gæöaflokki,
þvi ekki borgar sig að leggja
meira i bilinn en sem svarar
fimm þúsund krónum.
Þess má geta, að öryggiskröf-
Einn biiiinn kom vitlaust inn I beygjuna og hreinlega endastlngst.
Keppandinn var njörvaður niður með bilbeltum og fékk ekki
skrámu á sig.
Allir i einum hnapp. Það skal tekið fram, að i folkrace er ekki bannað að ýta aðeins við keppinaut-
unum, svo framarlega sem ekki skapast hætta af.
Bilarnir, sem notaðir eru I folkrace, eru yfirleitt gamlir skrjóðar.
Hér springur vélin hjá einum keppendanna.
ur i Folkrace eru þær sömu og I
rally-cross, enda gengur oft
mikið á i brautunum, veltur eru
tiðar og árekstrar, en slys á
ökumönnum ákaflega fátið.
Folkrace er afar vinsælt i
Finnlandi, en Finnar voru ein-
mitt fyrstir til að hefja keppni i
iþróttinni á Noröurlöndum.
Fyrst var keppt I Folkrace fyrir
tveimur árum, en nú þegar er
þetta orðin geysivinsæl keppnis-
grein. Sviarnir tóku Folkrace á
dagskrá hjá sér I sumar, og þar
viröast vinsældirnar ætla að
verða engu minni en i Finn-
landi.
Nokkrir islenskir bifreiöa-
iþróttamenn, sem fylgdust með
Norðurlandakeppninni, i rally--
cross i sumar, sáu keppni i folk-
race i Kouvola i Finnlandi.
Þátttakendur voru 120 og var
keppnin geysihörð og skemmti-
leg. Fimmtán veltur uröu I
þessari einu keppni, en engin
slys á mönnum. Þrátt fyrir
grenjandi rigningu og leiöinda
veður, voru fjölmargir áhorf-
endur, og eftir keppnina var
boðið i bilana. 1 þessa 120 bila
bárust yfir fimm hundruð til-
boð, og sýnir það glöggt
áhugann.
„Folkrace er kjörin grein
fyrir alla þá, sem hafa áhuga á
bifreiðaíþróttum, en hafa ekki
fjárhagslegt bolmagn tii að
halda úti rándýrum tækjum.A
hinum Noröurlöndunum eru til
dæmis allir keppendurnir menn,
sem ekki hafa áður keppt i
akstursiþróttum”, sagði Ólafur
Guömundsson.
Texti Axel
Ammendrup
Aðeins einn bill komst út úr þessari beygju án þess að snúast hálfhring eða meira, enda var brautin
blaut og hál.
Keppt I
nýrri grein
akslurs-
Iprúlla
næsta
sumar?
iALMENHINGSKtrrAKSTUR
fA ÚDÝRUM BIFREIDUM