Vísir - 03.11.1981, Blaðsíða 9

Vísir - 03.11.1981, Blaðsíða 9
Þriöjudagur 3. nóvember 1981 9 vísm 1981 (104. löggjafarþing) — 10. mál Nd. 10. Frumvarp til laga um héraðsútvarp. Flm.: Benedikt Gröndal, Ámi Gunnarsson. 1. gr. Héraðsútvarp fer fram á vegum sjálfseignarstofnana á þann hátt sem greinir í lögum þessum. Útvarpa má eingöngu á örbylgjum (FM), sem Landssími íslands leyfír. Héraðsútvarp skal háðöllum þeim ákvæðum útvarpslaga, nr. 19/1971, sem við geta átt. 2. gr. Héraðsútvarp einbeitir sér að efni, sem framleitt er í viðkomandi héraði eða snertir það sérstaklega. Það leggur áherslu á staðbundnar fréttir og auglýsingar, en má ekki flytja það efni á sama tíma og fréttir eða auglýsingar em fluttar í Ríkisútvarpinu. Héraðsútvarp má vera helgað sérstöku efnisvali, enda brjóti það ekki í bága við út- varpslög. Héraðsútvarpi er heimilt að endurvarpa eins miklu af dagskrá Ríkisútvarpsins og það óskar án endurgjalds, og skal það ekki hafa áhrif á greiðslutaxta útvarpsins fyrir efni. Ríkisútvarpinu er heimilt að útvarpa hverju því af efni héraðsútvarps, sem það óskar, án sérstaks endurgjalds. Þó skal Ríkisútvarpið greiða höfundum og flytjendum mismun á greiðslutaxta héraðsútvarps og þess sjálfs fyrir aðfengið efni. 3. gr. Stofnanir héraðsútvarps geta verið fleiri en ein á hverju sva?ði. Héraðsútvarpi stýrir héraðsútvarpsráð skipað sjö mönnum. Það fer með alla stjóm stofnunarinnar, þar á meðal dagskrárstjóm. Stjómir sveitarfélaga, sem samþykkja aðild og sendistöð nær til, kjósa sex stjómarmenn og hafa atvkæðamagn í hlutfalli við íbúafjölda. Útvarpsráð kýs cinn stjómarmann. Hér- aðsútvarpsráð kýs sér formann, varaformann og ritara. Sveitarstjómir geta falið samtökum einstaklinga rekstur héraðsútvarpsstöðvar, og gilda þá sömu ákvæði um stjóm og lög þessi að öðru leyti. Menntamálaráðherra setur reglugerð um kosningu og störf héraðsútvarpsráða. 4. gr. Sveitarstjórnir skulu á þriggja ára fresti endumýja ákvarðanir um héraðsútvarp. Sé það gert skal á ný kosið til héraðsútvarpsráðs. Berist menntamálaráðherra rökstuddar kvartanir um hlutdrægni héraðsútvarps er hon- um heimilt að veita viðkomandi stofnun áminningu. Berist ítrekaðar kvartanir og sé rök- studd ástæða til að ætla sex mánuðum síðar að gróf hlutdrægni haldi áfram getur ráðherra svipt viðkomandi stofnun útvarpsleyfi. 5. gr. Héraðsútvarpsráð ræður framkvæmdastjóra fyrir héraðsútvarp. Hann racður annað starfsfólk að fenginni umsögn ráðsins. 1 meira en fjögur ár hefur verið stööug umræöa um nauðsyn þess að bæta útvarp og sjónvarp hér á landi. Fjöldi manna hefur lagt til að útvarps- rekstur verði gefinn frjáls, og nokkrir fjölmiðlar hafa tekið undir það. Þessi krafa hefur hins vegar að mestu mætt and- stöðu hjá þeim aðilum, sem eitt- hvað geta gert i málinu. 1 haust varð hins vegar breyt- ing á. Fleiri og fleiri þingmenn og embættismenn, og jafnvel út- varps- og sjónvarpsmenn, fóru að tala um að „eitthvað” þyrfti að gera i málinu. Tvær nefndir voru settar á laggirnar önnur til að endurskoða útvarpslögin, og hin tíl að skoða vídeómálin. Frumvarp var lagt fram á Alþingi um stofnun héraðsút- varpsstöðva. Hvað olli þessari stökkbreyt- ingu? Voru fylgjendur frjáls út- varpsreksturs loksins búnir að sannfæra alla um gildi máls- staðar sins? Hafði umræðan þá borið árangur? Ekki aldeilis. öll góðu rökin og samanburðurinn við reynsluna i Utlöndum höfðu li'tið sem ekkert að segja. Mennimir sem eru réttkjörnir fulltrUar folksins til að fara með stjórn landsins, létu nauðga sér til að gera eitthvað i málinu. Þeir tóku ekki við sér fyrr en þeir sáu, heyrðu og lásu i fjölmiðl- um, að fólki i landinu ætiaði ekkert að biða eftir þeim. A skömmum tima var fólkið bUið að koma á ftít eigin kerfum til dreifingar á sjónarpsefni og dreifing á útvarpsefni eftir þessum kerfum var skammt undan. Linur voru lagðar i hús og milli húsa, og heilu bæjar- félögin voru byrjuð að skipu- leggja stór sameiginleg kerfi. Fjögurra ára umræða um nauðsyn endurskoðunar á út- varpslögunum hafði ekkert að segja. St jórnmálamennirnir tóku ekki við sér fyrr en fólkið var byrjað að framkvæma það sem þeir áttu að hafa fjallað um fyrir löngu. Fyrir st jórnmálamönnum þessa lands virðist það helst vaka að hafa yfirráð yfir sem flestum gerðum landsmanna. Meðan þeir höfðu rikisútvarpið, og sína varðhunda þar til að gæta hagsmuna, þá voru þeir- ánægðir með ástand útvarps- mála. Kröfur nokkurra manna úti ibæ um, að einokun rikisút- varpsins skyldi aflétt, þýddi aðeins minni möguleika á að geta stjórnað þeim áhrifariku fjölmiðlum, sem útvarp og sjón- varp eru. En hvað um þessa menn ilti i bæ, sem vildu gefa rekstur út- varpsstöðva frjálsan? Voru þeir aðeins að tala fyrir eigin hags- munum? Vildu þeir fyrst og fremst geta fengið að reka eigin útvarpsstöðvar, og fá þannig hlut i valdakökunni? Nei, þessir menn endurrómuðu ekki bara skoöanir fámenns hóps, heldur vilja fólksins. Þeir fundu persönulega, að útvarp og sjón- varp mátti bæta, og þeir fundu það meðal fólksins, sem þeir töluðu við. En þeir töluðu fyrir tómum eyrum. Mennirnir réttkjörnu sem starfa i umboöi almennings, heyrðu ekki radd- irnar, sem vildu taka frá þeim valdatækið. Hinir réttkjör.nu heyrðu ekk- ert og sáu ekkert, fyrr en þvi var núið um nasimar á þeim. Þá sáu þeir, sér til skelfingar, að almenningur ætlaði aö starf- rækja útvarps- og sjónvarps- stöðvar án yfirstjórnar, án af- skipta, án reglugerða, án hafta og banna, og án þess aö stjórn- málaflokkunum væri tryggð áhrif í þeim. Við svo búið var ekki hægt að una. Nefndir voru stofnaöar i hvelli, einn flokks- formaðurinn sagði, að videó- málið mundi verða eitt aöalmáliö á þingi, og nú heyrist varla sá abyrgur stjórnmála- maður sem ekki telur að einok- un rikisútvarpsins verði aflétt. Gott og vel. Hinir réttkjörnu fulltrúar þjóðarinnar hafa tekið við sér. Þeir sjá, að við svo búið gengur þetta ekki. Þeir hafa opnaö sig fyrir hugmyndum um fjölgun útvarpsstöðva, dagskrá að skapi fólksins og þjónustu- hlutverk slikra stöðva. En sú staðreynd að þeir þurftu að láta nauðga sér til að opna augun, hryggir unnendur lýöræðis. Er valdaþörfin svo mikil, að skyn- samleg umræða um aö fella niður einokun rikisins á útvarpi fær ekki hljómgrunn? Er ekki hægt að hlusta á rödd fólksins? Þarf almenningur að taka lögin i sinar hendur til að fá einhverju breytt? Enginn skyldi halda, að fulltrúar þjóðarinnar á þingi taki viö sér nú fyrst og fremst til að tryggja betra útvarp. Þeir eru fyrst og fremst að bjarga eigin skinni. Þeir eru að vinna að lagasetningu til að tryggja völd sfn yfir þessum fjöl- miðlum, og til aö bjarga andlit- inu gagnvart kjósendunum. Þeir geta ekki hugsað sér að hafa. ekki itök i þessum stöðvum. Fulltrúar þjóðarinnar á þingi eru ekki endilega vondir menn. ,/Fjögurra ára umræða um nauðsyn endur- skoðunar á útvarpslögun- um hafði ekkert að segja. Stjórnmálamennirnir tóku ekki við sér fyrr en fólkið var byrjað að framkvæma það, sem þeir áttu að hafa fjallað um fyrir löngu", segir Ólafur Hauksson meðal annars i meðfylgjandi grein, er fjallar um þær breytingar, sem eru að verða á tilhögun dreif- ingar sjónvarpsefnis og fleira. Þeir eru bara gegnsýrðir af þeim hugsunarhætti, aö hið opinbera sé betur hæft til að framkvæma eitthvað heldur en aðrir. Rikið starfrækir fjöldann allan af fyrirtækjum og stofnun- um, sem helst eiga það sam- eiginlegt að kosta skatt- greiðendur peninga. Sambæri- ,leg fyrirtæki og stofnanir i sömu starfsgreinum komast af með minni mannafla og gefa meira af sér. Rikisútvarpið er eitt af áðurgreindum rikisfyrirtækj- um. Erlendis komast sambæri- legar útvarps- og sjónvarps- stöðvar af meö minni mannafla en Rikisútvarpið, og þurfa ekki á höllum að halda undir starf- semi sina. Allar tillögur og hugmyndir stjómmálamanna umað aflétta einokun á útvarpi og sjónvarpi eru góðra gjalda verðar. En sannið til, þær eru, og verða, allar sama markinu brenndar. Þær miðast við að þessir annars mætu menn hafi töglin og hagld- irnar i þessum stöövum. Þær miðast ekki við óskir og þarfir fólksins. Þvi miður. MENNIRNIR SEM HEYRDU FtfKFRT lUS CAII EtftfERT cnncni uu ohu cimcni

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.