Vísir - 03.11.1981, Blaðsíða 27
Ný skáldsaga
eftir Guðmund Hagalín
Út er komin ný skáldsaga eftir
Guðmund Gislason Hagalin.
Nefnir hann þessa nýju bók sina
ÞAR VERPIR HVÍTUR ÖRN og
hittist svo á að hún kemur út rétt
um þær mundir sem 60 ár eru lið-
in frá þvi að fyrsta bók þessa
aldna ritjöfurs kom fyrir almenn-
ings sjónir, Blindsker 1921. Eru
þær orðnar nokkuð margar per-
sónurnar sem Hagalin hefur
skapað á þessum 6 áratugum og
mörgum Islendingnum er hann
búinn að skemmta á þessum tima
með sinni snjöllu og sérkennilegu
frásagnarlist.
Um þessa nýju skáldsögu
Hagalins segir svo i bókarkynn-
ingu:
„Fjörleg frásögn, snilldarleg
samtöl og umfram allt kimni eru
einkenni þessarar bókar. Hagalin
bætir enn við þann fjölskrúðuga
persónugrúa sem hann er búinn
að lýsa á 60 ára ritferli. Hér er
það Hreggviður sóknarnefndar-
formaður, kona hans Arnkatla og
skoski presturinn sem risa upp af
blaðsiðunum i fullu fjöri, og auk
þess margar aukapersónur. Sag-
an gerist á striðsárunum, fólkið
er farið að hugsa nokkuð nútfma-
lega. Hagalin er sannarlega ekki
að prédika neitt i þessari sögu, en
Jiann er að sýna. Hann sýnir hér
mynd af heilu byggðarlagi, og
það er engin þokumynd.”
Þar verpir hvitur örner 158 bls.
að stærð. Bókin er unnin i Prent-
stofu G. Benediktssonar og Fé-
lagsbókbandinu. Útgefandi er Al-
menna bókafélagið.
Stóra Bomban — bók um
söguleg og hatröm
stjórnmálaátök á ts-
landi
Bókaútgáfan örn og örlygur
h.f. hefur sent frá sér bókina
Stóra Bomban, eftir Jón heitinn
Helgason ritstjóra en hann haföi
nýlokið viö frágang bókarinnar er
hann lést.
Bókin ber sama heiti, og ein-
hver frægasta blaðagrein, sem
birst hefur á tslandi, en hana
skrifaði Jónas Jónsson frá Hriflu i
upphafi einhverra hatrömmustu
átaka, sem átt hafa sér stað i is-
lenskum stjórnmálum. Atök þau
er bókin fjallar um gerðust kring-
um 1930, en þá var Jónas Jónsson
lýstur geðveikur af Helga Tómas-
syni, þá nýskipuðum yfirlækni á
Nýja-Kleppi, og tóku fleiri læknar
undir með honum. Jónas brá við
hart og hóf gagnsókn — Jón
Helgason rekur þessa baráttu i
bók sinni Stóra Bomban og dreg-
ur þar fram i dagsljósið ýmislegt,
sem ekki hefur áður komið fram i
málinu, fjallar um orsakir og af-
leiðingar þessarar miklu deilu,
svo og áhrif hennar á islensk
stjórnmál fyrr og siðar. I bókinni
eru fjölmargar ljósmyndir af
mönnum, sem við söguna koma,
svo og teikningar úr Speglinum
frá þessum tima, en vitanlega
hafði hann sitthvað til málanna
að leggja.
Stóra Bomban er sett, umbrotin
og prentuð hjá Prentstofu G.
Benediktssonar, en bundin hjá
Arnarfelli h.f. Káputeikning er
eftir Sigurþór Jakobsson.
Salómon svarti og Bjartur
Þegar bókin um Salómon
svarta og Bjart kom fyrst út fyrir
tuttugu árum naut hún vinsælda
meðal barna og unglinga. Bókin
hefur verið ófáanleg i mörg ár, en
nú hefur hún verið endurútgefin.
Höfundur bókarinnar er hinn
k'unni barnabókahöfundur, Hjört-
ur Gislason.
I bókinni er sagt frá ýmsum
ævintýrum sem bræðurnir Fii og
Fói lenda i ásamt þeim félögum
Salómoni og Bjarti. Salómon er
hrútur en Bjartur er hrafn, hvitur
hrafn sem þeir bræöur og félagar
þeirra finna og ala upp. Viðskipti
krakkanna og dýranna við Láka
löggu eru óborganlega skemmti-
leg. Þetta er hollt lesefni, bæöi
fyrir börn og fullorðna, þvi hér er
skemmtilega sagt frá og kimnin
og lifsgleöin situr i fyrirrúmi.
Fjölmargar teikningar eftir
Halldór Pétursson listmálara
prýða bókina. Útgefandi er Bóka-
forlag Odds Björnssonar á Akur-
eyri.
Barnið í Betlehem
T~k
Sldilwn
Barnið i Betlehem
Bókaútgáfan Salt h.f. hefur sent
frá sér bókina Barnið i Betlehem.
Hefur hún að geyma endursögn á
fæöingu Jesú Krists i Betlehem.
Frásögnin er einföld og hrifandi
og margar litmyndir prýða bók-
ina.
Textinn er eftir Jenny Roberts-
son og myndirnar teiknaði Sheila
Bewley. Karl S. Benediktsson
þýddi. Bók þessi kom fyrst út i
Englandi árið 1977. tslenski text-
innersetturherlendisen bókin aö
ööru leyti prentuð i Bretlandi i
samvinnu margra þjóða.
Ætia má að hér sé um aö ræöa
bók sem öll fjölskyldan getur les-
ið saman á jólunum.
27
FREEPORTKLÚBBURINN
Opinn félagsfundur Freeportsk/úbbsins
Ný
áfengismálastefna?
Nú iiggur fyrir Alþingi að móta nýja áfengis-
málastefnu.
Freeportklúbburinn hefur fengið til að hafa
framsögu á fundinum alþingismennina/ Árna
Gunnarsson, Halldór Ásgrímsson, Helga
Seljan og Friðrik Sófusson.
Á eftir framsöguræðum verða aimennar um-
ræður og fyrirspurnir.
Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm
leyfir og hefst kl. 20.30 í Vikingasal Hótel
Loftleiða fimmtudaginn 5. nóv. n.k.
Stjórnin
verslun að
Smiðjuvegi 8
Kópavogi
Húsgögn — Innréttingar
_ _ r- Avallt eitthvað nýtt í
Nyborgá?
ÞAR SEM ALLIR URRU ÚGNARLEGA GLAÐIR
Það er að sjá eins og menn
hafi verið eitthvað rykaðir eftir
landsfundarhófið, þegar sið-
degisblöðin tóku þá taliá mánu-
dagsmorgun til að ræða viö þá
um niðurstöður kosninga á
1 a n d s f u n d i n u m . Geir
Haligrimsson var mjög glaður
að fá atkvæði tveggja þriöju
landsfundarfulltrúa. Friðrik
Sóphusson var afskapiega glað-
ur yfir að vera kosinn varafor-
maður m.a. með öllum atkvæð-
um fylgismanna dr. Gunnars
Thoroddsen. Og dr. Gunnar
Thoroddsen var sérlega glaöur
yfir að Friðrik Sophusson skyldi
ná kjöri varaformanns. Þannig
keppast menn við aö fara af
landsfundi i sem glöðustu skapi,
og er það nokkur nýlunda að lýst
skuli yfir slíkri yfirtaks mikilli
gleði allra aðila, bæði þeirra
sem eru i rikisstjórn og hinna
sem eru i stjórnarandstöðu.
„Voöalega er skemmtilegt á
Hólnum” var kveöiö i eina tið.
Þrátt fyrir þetta má vænta
þess.liegar landsfundargleöinni
lýkur, að menn vakni á nýjan
leik upp til margvfslegra
reikningsskila. Gleðin er nefni-
lega ekki eins mikil i Sjálf-
stæöisflokknum og yfirlýsingar-
arnar gefa til kynna. Það helsta
sem hefur gerst er, að stór hóp-
ur svonefndra miðjumanna,
sem veit ekki i hvorugan fótinn
þeir eiga að stiga flokknunt til
bjargar, ákvað aö framlengja
pólitiska kvöl flokksins án nokk-
urra frekari deyfilyfja en
þeirra, sem fengust I lokahóf-
inu. Þessir miðjumenn komu til
landsfundar eins og hvert annað
Steinway-pianó, sem einstakir
menn fengu að spila á aö vild.
Og það var svo sannarlega
spilað og sungið, eins og dæmin
sanna. Flokkurinn stendur jafn-
nær eftir, nema nú lifa menn i
fullri vissu þess aö Geir Hall-
grímsson var ekki felldur.
Miðjumenn unnu það afrek aö
konta manni I varaformanns-
embætti, sem dr. Gunnar
Thoroddsen kallar allt aö þvi
liðsmann sinn, eftir aö rikis-
stjórnarliðiö mærði hann
atkvæðum sinum. Sjálfur er
varaformaðurinn svo háöur
kosningasigri sínum og þeim
aðilum, sem báru hann fram til
sigurs, aö hann telur sig miöju-
mann og sáttaaðila f flokknum.
Það verður fagnaðarefni fyrir
Geir að tala gegn rikisstjórinni
úr þessu með fætur varafor-
mannsins upp i sér, ýmist
hægra eða vinstra megin — eftir
atvikum.
Auðvitað var ljóst, strax og til
landsfundar kom, að miðju-
menn mundu ráða þar flestu um
framvindu mála. Búast má við
aö Ragnhildur Helgadóttir hafi
verið með þaö miklum póli-
tiskum sönsum, að hún hafi ekki
biölaö til þeirra sérstaklega.
Það geta aftur á móti þeir, sem
eru skoöanalausir i pólitik.
En sem sagt: Þaö er voöalega
gaman i Sjálfstæðisflokknum
um þessar mundir, fyrst Geir er
ánægöur yfir að vera ekki felld-
ur, Gunnar gleðst yfir þvi að
geta setiö samtimis i Sjálf-
stæöisflokknum og rikisstjórn
og Friðrik er glaöastur allra
yfir miðjumannshlutverki sinu,
reiðubúinn til þurftaverka og
skapandi hugsjónalifs fyrir
flokkinn. Svó þarf ekki annaö en
dr. Gunnar hrökklist frá völdum
eftir að flotinn er sigldur I land
fyrirfullt og allt, niðurtalningin
er oröin að upptalningu og nýjar
gengisskráningar komnar með
veröbólguna upp i sextiu stig.
Þá kemur timi miöjumanna að
halda flokknum saman og taka
hina sáru og móðu ráðherra I
sátt. Þá verður Sjálfstæðis-
flokkurinn aftur kominn með
hið stóra höfuð og landiö getur
tekiö til við að hjarna við að
nýju — eöa hvað?
Sjálfstæöisflokknum viröist
áskapað að geta ekki losnað við
meinsemdir sinar. Hann er nú
þegar orðinn að tveimur
flokkum, en miðjumenn sjá svo
til að hann haldi áfram að halda
sameiginlega landsfundi, þótt
flokkarnir verði þrir i honum
einum.
Svarthöföi