Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2001, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2001, Blaðsíða 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. JANÚAR 2001 E INN AF merkustu viðburðum í sögu mannkynsins var án efa landafundirnir miklu í lok fimmtándu aldar. Þá féllu ýmsar miðaldakenningar Evr- ópu sem höfðu verið undir sterkum áhrifum kirkjunnar og ný heimsmynd tók að mót- ast. Kristófer Kólumbus hafði siglt vestur um haf haustið 1492 ákveðinn í að komast til Indlands en rakst í staðinn á land sem seinna fékk nafnið Ameríka. Það tók nokkur ár að sannreyna að Ameríka væri ekki hluti af Indlandi eða Asíu yfir höfuð, heldur land sem var með öllu ókunnugt Evrópubúum, nema kannski örfáum íbúum langt norður í hafi sem höfðu vitað um ákveðið Vínland í vesturátt. Ýmsar frásagnir og þjóðsögur, bæði frá gamla heiminum og þeim nýja, settu mikinn svip á þessa landafundi. Því var m.a. haldið fram að jarðnesk paradís og uppspretta eilífrar æsku væri að finna í æv- intýralandinu handan hafsins í vestri. Fáar þjóðsögur vöktu þó eins mikla athygli og hin leyndardómsfulla El Dorado. Evrópskir landvinningamenn sem flykkt- ust til Ameríku í leit að El Dorado voru sjaldan sammála um hvað hún merkti og hvar hennar væri að leita. Allir voru þó sannfærðir um að hún myndi færa þeim auð og sæmd, en þær voru tvær af helstu dyggðum þessara tíma. Þjóðsögunnar var mest leitað í Suður-Ameríku á stóru svæði sem í dag telst til Kólumbíu, Amazon-svæðis Brasilíu og í kringum Orinoco-ána í Venez- úela. En einnig var hennar leitað í Andes- fjöllum suður með Chile og í Argentínu svo og við landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna. Flestir þeir sem leituðu El Dorado áttu þó sjaldan afturkvæmt og þeir fáu sem sneru aftur, komu jafnan til baka með tómar hendur, niðurbrotnir og vonsviknir, andlega truflaðir og líkamlega örmagna. Þjóðsagan þótti því standa meira fyrir tálsýn og glötun en þeirra dyggða sem hún var jafnan kennd við. Gullæði En hvað var El Dorado? Sjálft orðið dor- ado kemur úr spænsku og þýðir gylltur. Það er í raun stytting á el hombre dorado, sem útleggst: hinn gyllti maður. El hombre dor- ado var ákveðin þjóðsaga úr nýja heiminum sem spænskir landvinningamenn heyrðu af er þeir sóttu inn á meginland Ameríku. Þjóðsagan segir frá trúarathöfn við vatn eitt sem heitir Guatavita en þar var gullryki blásið yfir höfðingja þjóðflokks og hann hul- inn gulli frá toppi til táar. Hann fór síðan á eintrjánungi út á vatnið og baðaði sig í því. Lega vatnsins er innan landamæra Kólumb- íu í dag en evrópskir kortagerðamenn á sextándu og sautjándu öld voru ansi dugleg- ir við að staðsetja það víðsvegar um Am- eríku og breyta þjóðsögunni um gyllta manninn í þjóðsögu um gullborg, gullfjall eða gullland sem endurómaði allar þær ólíku frásagnir sem hinir gullóðu Spánverj- ar ólu með sér. Erfitt er að segja til um hvar og hvenær hinir spænsku landvinningamenn heyrðu fyrst um El Dorado og koma upp ýmis ár- töl; t.d. 1521, þegar Hernán Cortés her- numdi Azteka-veldið. En frásagnirnar verða fleiri og trúverðugri í framhaldi af landvinn- ingum Francisco Pizarro í Perú árið 1533 með falli Inka-veldisins. Meðal þeirra fyrstu sem leituðu að El Dorado var leiðangur frá Pizarro í suðri svo og annar spænskur sem kom úr norðri inn til Kólumbíu. Báðir þessir flokkar komu inn í land muysca-indíánanna sem höfðu varðveitt söguna af trúarathöfn- inni við vatnið Guatavita. En þjóðflokknum sem stóð að athöfninni hafði verið útrýmt nokkrum áratugum áður en Spánverjarnir komu. Spánverjarnir létu hins vegar þá staðreynd sem vind um eyru þjóta og gerðu út leiðangra til að freista gæfunnar, en án árangurs. Á eftir fylgdu ýmsir aðrir leið- angrar. Þekktur er sá er Lope de Aguirre tók þátt í árið 1560. Nokkrar kvikmyndir hafa verið gerðar um þann leiðangur og Aguirre hefur bæði verið sýndur sem morð- óður brjálæðingur eða leiksoppur hillinga hinnar þrotlausu leitar að El Dorado. Eftir að hafa drepið marga af yfirmönnum sínum týndist hann um tíma í völundarhúsi regn- skóga Amazon og var seinna tekin af lífi er hann féll í hendur útsendara Spánarkon- ungs. En það voru ekki einungis menn af spænsku þjóðerni sem lögðu upp í leit að þjóðsögunni þó svo að fjöldi þeirra hafi ver- ið yfirgnæfandi. Enski sjóræninginn Sir Walter Raleigh, var kannski sá þekktasti úr þeim hópi. Hann gaf út ferðabók árið 1596, The Discovery of the Large, Rich, and Beautiful Empire of Guiana, with Relation to the Great Golden City of Manoa, wich the Spaniards call El Dorado. Þar greinir hann frá manni að nafni Juan Martínez sem sagð- ur er hafa verið búsettur í sjö mánuði í El Dorado, borg sem var þakin gulli. Eftir þann tíma ákvað hann að snúa aftur til bú- staða Evrópumanna og lagði af stað með eins mikið gull og hann gat borið sem var gjöf frá höfðingja borgarinnar. En hann var rændur á leiðinni og kom því slyppur og snauður þangað. Sagan segir síðan að það hafi reynst hægara sagt en gert fyrir Mart- ínez að fara aftur til El Dorado og ná í meira gull því fylgdarmenn hans, sem voru þjónar höfðingjans, bundu fyrir augu hans mest allt ferðalagið. Sir Walter Raleigh fann því aldrei borgina. Í ljósi þess að þjóðflokknum við vatnið Guatavita hafði verið útrýmt áður en Spán- verjarnir komu til nýja heimsins, vekur það athygli hversu víðtæk leitin var að El Dor- ado. Landvinningamenn lögðu upp í leið- angra hvað eftir annað langt fram á sautj- ándu öld, þótt öllum þeim sem á undan fóru hafi mistekist og almennt væri vitað að þjóðflokkurinn við vatnið var löngu horfinn. Hvað var það sem dreif spænsku landvinn- ingamennina áfram? Augljós skýring er auðvitað að finna í gullæði þeirra. Hverjir muna ekki eftir hinum tvíræðu orðum Hern- án Cortés er hann náði fundum við Moctez- uma, keisara Azteca: Ég og mínir fylgd- armenn þjáumst af hjartasjúkdómi sem getur einungis verið læknaður með gulli. Ástæðan fyrir þessari herskáu landvinn- ingaásókn Spánverjanna var þó öllu flóknari og ekki einungis leit að gulli og hafa ýmsir fræðimenn vakið athygli á að hina þrotlausu leit að El Dorado megi helst skýra út frá spænskri menningararfleið. Spánverjarnir sem fóru til nýja heimsins voru börn útþensluþjóðfélaga kristinna kon- ungsríkja. Þessi ríki börðust innbyrðis og þó sérstaklega við Mára sem höfðu komið frá Norður-Afríku og lagt undir sig nær all- an Iberíuskagann (Spán og Portúgal) í byrj- un áttundu aldar. Hin kristnu konungsríki á norðanverðum skaganum við rætur Pýreneufjalla sóttu jafnt og þétt suður inná lönd múhameðstrúarmanna með hernaðar- aðgerðum og fólksflutningum. Takmarkið Hermenn Pizarrós láta greipar sópa um auðæfi Perú. Myndin sýnir ekki raunverulega atburði, heldur er hún til marks um vinsamlega hluttekningu í garð indíána. En Spánverjar herjuðu gífurlega fjársjóði úr gulli út úr indíánum. Koparstunga frá lokum 16. aldar. EL DORADO Evrópskir landvinninga- menn sem flykktust til Am- eríku í leit að El Dorado voru sjaldan sammála um hvað hún merkti og hvar hennar væri að leita. Allir voru þó sannfærðir um að hún mundi færa þeim auð og sæmd, en þær voru tvær af helstu dyggðum þessara tíma. SAGAN AF GYLLTA MANNINUM E F T I R S T E FÁ N Á . G U Ð M U N D S S O N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.