Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2001, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2001, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. JANÚAR 2001 M argmiðlunarsýningin Detox verður opnuð í Listasafni Akureyrar í dag en sýningin er eitt stærsta verkefni á sviði rafrænnar myndlistar sem ráðist hefur verið í á Norðurlöndum. Margmiðlunarsýningin er bæði tilraun og leikur en forsaga hennar er sú að árið 1999 efndi Far- andsýningarráð Noregs, Riksutstillinger, til samkeppni á sviði gagnvirkrar miðlunar og bár- ust ráðinu tugir umsókna. Alls unnu sextán norskir listamenn að gerð verkanna á sýning- unni, þar sem veruleiki nútímans er túlkaður með margvíslegum tólum og tækjum sem virkja áhorfendur til þátttöku. Detox, en orðið merkir afeitrun eða hreinsun, varpar fram mörgum aðkallandi spurningum varðandi þann sýndarveruleika og þá tækni- hyggju sem virðist ætla að tröllríða mannheim- um á komandi öldum. Nú á tímum tileinkum við okkur tækninýjungar á nær vandræðalausan og eðlilegan hátt enda annað naumast hægt, þar sem tækninýjungar koma fram á nánast hverj- um degi. Ein þeirra spurninga sem lesa má út úr sýningunni er, hvernig getum við nýtt okkur tæknina? Úti í hvaða öfgar getur tæknin leitt okkur? Þá spyrja listamennirnir um tilgang þess að hafa líkama þegar horft er til framtíðar okkar stafræna samfélags. Hvað verður um lík- amann í hjáveruleikanum? Verða upplifanir með aðstoð véla sárabót fyrir þann veruleika sem við förum á mis við? Eða er þetta bara staf- ræn víma sem gengur yfir og fjarar að lokum út? Hver verða fráhvarfseinkennin þegar raf- eindaherbergið er yfirgefið? Hver er hinn raun- verulegi veruleiki? Af þessu má sjá að spurningar þær sem varp- að er fram á Detox- sýningunni eru engan veg- inn léttvægar og varla liggja svörin í augum uppi. Ståle Stenslie er sýningarstjóri Detox og verður viðstaddur opnunina í dag. Hann segir að rafeindatæknin hafi breytt um alla eilífð hvernig við sjáum og skynjum hlutina. Sjálfur hefur Ståle áralanga reynslu af listsköpun á sviði margmiðlunar og sýndarveruleika. Hinn stafræni alheimur ,,Stafræna öldin hefur fætt af sér plastmenn- ingu vegna þess að nú er hægt að koma öllu fyrir á stafrænu formi og því er hæglega hægt að stjórna með mannshendinni og umbreyta á raf- rænan hátt. Við sjáum ekki lengur spegilmynd okkar sem huglæga og tímalausa framsetningu, heldur sem stafræna, hverfula og óstöðuga eft- irmynd. Þetta á sérstaklega við um vinsæla miðla eins MTV og tölvuleiki. Poppstjörnur MTV birtast sjaldan án eins konar stafræns geislabaugs og annarra rafrænna töfra. Í tölvu- leikjum eru eftirmyndir orðnar mannlegar, þær bregðast við og hegða sér svipað og lifandi mannverur enda orðnar gagnvirkar. Áður fyrr voru það söfn og bækur sem gáfu okkur innsýn í undraheima. En nú getum við með hraða raf- eindarinnar ferðast þangað sjálf á Netinu í öruggu umhverfi heimilisins. Ef þessi stafræna nærvera verður of köld og fjarlæg getum við rennt við á teknódansleik og fengið áhrifin beint í æð. DJ- inn og fólkið á dansgólfinu bráðna saman í orgíu af ljósum, tónlist og sjónrænu áreiti og mynda eina lífræna heild. Hinn staf- ræni alheimur er skapandi rými. Hann færir okkur ný verkfæri og tækifæri til að búa til nýj- an veruleika og reynslu. Við erum að upplifa menningarlega stökkbreytingu!“ Í tilefni sýningarinnar hefur verið gefin út bók um Detox, þar sem birtar eru myndir af verkunum og listamenninir tjá sig um þau. Eitt af því sem einkennir netheiminn að dómi Ståle er það hversu tímabundinn hann er. Ótal netsíð- ur lifa einungis stutta stund og hverfa fljótt af sjónarsviðinu. Í bókinni eru gefnar upp slóðir margra athyglisverðra síðna sem búast má við að verði innan tíðar forgengileikanum að bráð. Það sem opinberast líka í þessu er að dagar bók- arinnar eru fjarri því taldir þó nýir miðlar taki við. Bókin geymir enn upplýsingar betur en nokkuð annað sem við eigum völ á. Hún verður auðveldlega áratuga gömul og gildi hennar sem heimildar eykst ár frá ári meðan netsíður breyt- ast dag frá degi. En Ståle Stenslie kveður fast að orði þegar hann ræðir hina hefðbundnu og aldagömlu arf- leifð myndlistarinnar, málverkið og mynd- höggvaralistina. Jafnvel svo að sumum kann að þykja nóg um: ,,List er leiðinleg,“ segir hann: ,,Listamaður- inn hefur misst röddina. Hvernig getur málari eða myndhöggvari barist um athyglina við af- þreyingariðnaðinn, taumlausan myndbands- og hljómflaum MTV, gagnvirkan sýndarveruleika hröðustu tölvuleikja á borð við Quacke og óþrjótandi upplýsingaveitur Netsins? Þetta er hið formræna vandamál myndlistarinnar. Hvað innihald snertir, þá er myndlistin einnig orðin innihaldslaus. Því hvernig getur listgrein sem ekki talar lengur tungumál nútímans, skilið vandamál hans og þarfir? Hvað þá gert athuga- semdir við hann? Niðurstaða mín er sú að hefð- bundin myndlist gegnir ekki lengur hlutverki sem merkingarbær miðill í samfélaginu. En hverjum stendur svo sem ekki á sama? Því meira er meira og betra er betra. Tölvubyltingin hefur einnig gefið svigrúm fyrir persónulegar þarfir og upplifanir. Háleit, einstrengingsleg og illskiljanleg myndlist, myndlistin eins og við þekkjum hana, fullnægir ekki lengur sýn okkar á tilveruna. Hefðbundin myndlist er orðin úrelt fyrirbæri sem byggir gildi sitt að mestu leyti á handverkskunnáttu. Myndlistarmenn, sýning- arstjórar, gagnrýnendur og söfn og gallerí eru enn á handverksstiginu í sýn sinni á hlutina.“ Líkt og áður hefur verið vikið að telur Ståle að hin stafræna stökkbreyting hafi endanlega breytt skynjun okkar á heiminum. ,,Myndlistarmenn verða að taka þetta með í reikninginn. Tæknin, sérstaklega heimilistölvan gerir okkur kleift að skipuleggja lifandi kerfi sem hægt er að eiga gagnvirk samskipti við. Þessi nýja gagnvirka list er boðberi samruna notanda og listaverks. Gestir á listsýningum á borð við Detox eru ekki lengur bara áhorfendur, heldur þátttakendur sem verða að fullgera lista- verkið. Þar með er gesturinn orðinn þáttakandi í sköpun listamannsins. Þetta er allt hluti af því að listamaðurinn verður að finna nýjar aðferðir til að tjá sig í hinum rafræna heimi. Hann þarf að fá tækifæri til að endurtúlka hlutina í nýju ljósi. Ef hann tileinkar sér tæknina og nær full- um tökum á henni, verður honum þetta leikur einn. Detox- sýningin er hugsuð bæði sem til- raun og sem leikur. Verkefnið er nauðsynleg eldskírn við að kanna möguleikana sem staf- rænan býður upp á til listrænnar úrvinnslu og sköpunar. Nauðsynlegt skref til að gagnrýna og þróa samtímamenningu okkar. Ráðskast með skynjunina ,Markmiðið með Detox-sýningunni er að spegla hin nýju fagurfræðilegu viðmið. Detox er stafrænt tilraunaherbergi þar sem áhorfendur og listaverkin hafa gagnkvæm áhrif á hvort ann- að. Listaverkin á þessari sýningu eru viðkvæm- ir snertifletir, tengibúnaður milli manns og vél- ar, sem draga úr muninum á milli náttúrulegs áreitis og svokallaðar gerviupplifunar. Tölvurn- ar skapa ótal valmöguleika, þótt þær séu ekki miðpunktur sýningarinnar. Þær eru einungis tæki til að skapa tilfinningalega og líkamlega nálægð. Verkin leiða áhorfandann inn í skipu- lagt tilraunaherbergi sem einkennist af tvíbent- um tilfinningum og leit. Með því að framlengja líkamann og sviðsetja skynjanir, gerir sýningin þátttakandanum kleift að upplifa þá möguleika sem í stafrænunni felast. En eins og titillinn Detox ber með sér er hér horft á samtímann og vandamál upplýsingasamfélagsins, á gagnrýn- inn hátt. Sýningin fer ofan í saumana á mann- legu samfélagi dagsins í dag. Samtímis breytir Detox ef til vill okkar venjulegu hugmyndum um aldagamla menningu sem hefur að geyma jafnmargbreytileg svið og sjónlistir, gerninga, leikhús, dans og tónlist. Sýningin nær að sjálf- sögðu ekki að snerta allar hliðar hins stafræna veruleika, til þess höfðum við ekki fjárhagslegt bolmagn. Detox var í upphafi ekki ætlað að vera eins og vísindaskáldsaga sem er langt á undan sinni samtíð, en engu að síður hefði líklega ekki verið hægt að setja hana upp fyrir eins og fimm árum. Hinn stafræni heimur þróast svo hratt og tekur nær daglegum breytingum. En hver veit nema að sýningin birti sýnishorn af því hvernig listræn tjáning á eftir að þróast í framtíðinni. Ef við ímyndum okkur að hinn raunverulegi tilgangur listarinn- ar sé að pirra og stuða fólk, þá eru tækifærin til þess næg á sýn- ingunni. Kannski verður hlut- verk listarinnar í auknum mæli það að ráðskast með skynjunina. Hver veit?“ Ståle leggur áherslu á að öll verkin á sýningunni séu gerð með einföldum PC-tölvum, þó að einstök verk kunni að þykja tæknileg og framandi eru þau þó gerð á venjulegum heimilistölv- um. Hann leggur einnig áherslu á að sýningin ferðist út á ystu brún og skoði heima sem alla jafnan eru ekki til umfjöllunar á degi hverjum. Nútíminn eins og hann leggur sig með öllum sínum kostum og kynjum blasir við á sýningunni, þar á meðal það sem einhverjum kynni að þykja ósæmilegt eins og netsíður sem fólk ef til vill myndi veigra sér við að skoða en eru þó til og lýsa menningarafkimum sem fáir þekkja. Þarna eru hlutir sem auðveldlega má flokka undir klám eða ofbeldi, en eru þó öllum aðgengilegir á Netinu í dag. Af bókinni að dæma eru verkin fjölbreytileg og athyglisverð í meira lagi og virðast í fljótu bragði túlka vel þá ofgnótt ímynda og táknmynda sem yfir okkur ríða á degi hverjum og mörgum þykir reyndar orðið nóg um. Detox vakti mikla athygli og umtal í Noregi og aðsóknin á sýninguna var góð. ,,Ungt fólk á aldrinum 15 til 30 ára flykktist á sýninguna,“ segir Ståle Stenslie, ,,það var sama hvar við settum hana upp, hún höfðaði mjög til unga fólksins. Sýningin er þó ekki einungis fyrir ungt fólk, allir aldurshópar ættu að hafa gaman af því að skoða hana og taka þátt í henni. Ak- ureyri er síðasti viðkomustaður Detox, að þess- ari sýningu lokinni hefur Detox lifað sitt skeið. Tilgangur Detox snýst ekki aðeins um að koma á óvart, ögra og bjóða byrginn. Hér gefst áhorf- endum færi á að upplifa mörkin milli þess sem er raunverulegt og óraunverulegt. Framleiðsla fjölmiðlunarlistar mun, þegar fram líða stundir, skapa auðlind. Tilgangurinn með Detox var að gefa Norðmönnum möguleika til að auka þekk- ingu sína á nýju miðlunum og skapa þeim tæki- færi til að sýna verk sín. Detox er hluti af því mikla ferli sem nú stendur yfir við að skilgreina sambandið milli rafrænnar listar og samtíma- menningar. Þetta er tilraun til að taka þátt í þeirri skoðanamyndun og þeirri umræðu allri.“ STAFRÆN STÖKK- BREYTING Margmiðlunarsýningin DETOX verður opnuð kl. 16. í dag í Listasafninu á Akureyri af Kjell Halvorsen sendi- herra Noregs á Íslandi. ÞORVARÐUR HJÁLMARS- SON kynnti sér þessa nýstárlegu sýningu og spjallaði við sýningarstjórann, Ståle Stenslie, af því tilefni Verk eftir Kate Pendry. Verk eftir Martin Hoyem. Verk eftir Kristin Bergaust.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.