Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2001, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2001, Blaðsíða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. JANÚAR 2001 S ÝNING á verkum þýska mál- arans Gerhards Richters verður opnuð í Listasafni Ís- lands í dag, laugardag, undir heitinu Yfirsýn. Sýningin kemur frá IFA, sem er stofn- un í Þýskalandi sem hefur með kynningar á þýskri myndlist erlendis að gera. Gerhard Richter er viðurkenndur sem einn fremsti málari sinnar kynslóðar. Hann hlaut Gullljónið á Feneyjatvíær- ingnum árið 1997 og öll stærstu söfn heims hafa haldið viðamiklar sýningar á verkum hans. Og nú eru þau komin til litla Íslands. Þegar Ólafur Kvaran, forstöðumaður Lista- safns Íslands, er spurður hvernig það gerð- ist, segist hann hafa átt fund með IFA- mönnum í fyrra þar sem ákveðið var að þessi sýning kæmi beint hingað, eftir að hafa verið frumsýnd í Stuttgart. „Ísland er fyrsti viðtökustaður sýningarinnar en síðan fer hún til margra helstu safna Evrópu,“ segir Ólafur. Ljósmyndir og málverk En hver er Gerhard Richter? „Gerhard Richter er án efa einn þekktasti listamaður sinnar kynslóðar í Þýskalandi, ásamt Polke og BaseliTz. Hann er fæddur í Dresden í Austur-Þýskalandi, árið 1932 og ólst þar upp. Richter flutti til Düsseldorf í Vestur- Þýskalandi, árið 1961, nokkrum mánuðum áður en Berlínarmúrinn var reistur. Hug- myndir Richters mótast mjög af kynnum hans af popplistinni, bæði hvað varðar spurninguna um hlutverk listamannsins og ennfremur um fjölmiðla, um fjölmiðlaímynd- ina og ljósmyndina sem efnivið listamanns- ins. Listamaðurinn vinnur ekki lengur með beina reynslu af veruleikanum, heldur með myndir af honum. Sú skoðun hefur verið sett fram í þessu sambandi að ljósmyndin hafi fyrir Richter verið eins konar myndræn „ready-made“ með skírskotun til þess sem Duchamp gerði á sínum tíma þegar hann valdi hluti úr sínu daglega umhverfi og út- nefndi þá sem list. Á sama hátt velur Richt- er ljósmyndina sem tilbúinn veruleika og vinnur með hana á margvíslegan hátt og hleður hana nýjum merkingum og tilvís- unum.“ Að skapa nýjan veruleika Ljósmyndin er einnig mikilvæg forsenda abstrakt verka hans sem eru uppistaðan í þessari sýningu, þar sem merkingarsvið þeirra felst meðal annars í þessu vinnuferli frá ljósmyndinni yfir í fullkomlega abstrakt verk – þar sem ferlið gengur meðal annars út á að brjóta niður eða má út upphafið og skapa þannig nýjan veruleika. Á sýningunni eru auk abstrakt mynda, grafík, ljósmyndir og prentmyndir. Þannig gefur sýningin mjög góða mynd af þeim fjölbreytileika sem einkennir list Richters. Þessar ólíku vinnu- aðferðir sem birtast í verkum hans, þótt það sé mikið hugmyndalegt streymi milli þess- ara ólíku aðferða, hefur orðið tilefni þeirrar fullyrðingar um list hans að hún einkennist öðru fremur af hinu sífellda stílbroti.“ HIÐ SÍFELLDA STÍLBROT Þrjár sýningar verða opnaðar í Listasafni Íslands í dag. Tvær sýninganna hafa að geyma verk í eigu safnsins, Glerregn eftir Rúrí og úrval af verkum Jóns Stefánssonar. Í sölunum á efri hæðinni verður síðan opnuð yfirlitssýning á verkum þýska myndlistar- mannsins Gerhards Richter. SÚSANNA SVAVARS- DÓTTIR kynnti sér sýningarnar og ræddi við forstöðu- mann safnsins, Ólaf Kvaran, um list Gerhards. Listamaðurinn Gerhard Richter sýnir verk sín í Listasafni Íslands. Abstrakt mynd, 1977. Betty, 1991.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.