Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2001, Qupperneq 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. JANÚAR 2001
E
NGUM blöðum er um það að fletta
að Hillebrandtshús er elzta hús á
Blönduósi. Það stendur á syðri
bakka Blöndu, þar sem Friðrik
Hillebrandt faktor reisti það 1877
á vegum Hólanesverzlunar. Sagn-
ir eru um að húsið sé allt að 130 ár-
um eldra og hafi þau árin staðið á
Skagaströnd. Endurgerð hússins leiddi í ljós, að
ekki er um eitt og sama húsið að ræða, en hins
vegar var Hillebrandtshús byggt úr viðum eldra
húss eða húsa að miklu leyti.
Viðskipti og ást
Blönduós varð löggiltur verzlunarstaður árið
1875. Fyrstu húsin risu við ósinn sunnan Blöndu
og þar reisti Hillebrandt útibú Hólanesverzlunar
vorið 1877. Á ljósmynd frá þeim tíma sést hús-
grindin af Hillebrandtshúsi, en nokkur hús eru
fullbyggð í kaupstaðnum, þar á meðal verzlunar-
hús Thomsens kaupmanns og íbúðarhúsið Möll-
ershús. Þau hús urðu eldi að bráð 1914 og 1913,
en Hillebrandtshús hefur lifað af og stendur nú
uppi í sparifötunum, elzta hús Blönduóss.
Upphaf verzlunar á Blönduósi var bæði harð-
vítugt og örlagaþrungið. Ragnar Arnalds hefur
skrifað um það leikritið Hús Hillebrandts, sem
Leikfélag Blönduóss sýndi í tilefni 120 ára verzl-
unarafmælis staðarins. Thomsen, sem hafði kom-
ið á Blönduós með skip og farm strax árið 1875,
varð árið eftir fyrstur til að reisa verzlunarhús á
nýja kaupstaðnum. En fleiri kaupmenn sáu sér
leik á borði og Hillebrandt Hólaneskaupmaður
kom og setti upp útibú.
En líf þessara tveggja frumherja tengdist ekki
bara gegnum viðskipti heldur tengdust þeir og
fjölskylduböndum.
Í leikriti Ragnars Arnalds er Thomsen nýkom-
inn til Blönduóss á gangi með Lucindu systur
sinni, þegar húsgrunnur verður á vegi þeirra:
„Thomsen: . . . En hvað með þennan grunn?
Ekki á ég hann?
Lucinda:Hillebrandt á hann.
Thomsen: Hillebrandt?! Hvern fjandann er
hann að vilja hér?
Lucinda: Hann keypti hús út á Skagaströnd,
hundrað og þrjátíu ára gamalt, og reisir það hér.
Thomsen: Til hvers?
Lucinda: Auðvitað til að versla!
Thomsen: Lucinda! Þú ert að stríða mér!
Lucinda: Þetta er satt Tommi minn. Hann fór
að versla hér fyrir tveimur vikum.
Thomsen reiðist heiftarlega.
Thomsen: Og ég sem er að fjárfesta fyrir tugi
þúsunda. Hann rífur frá mér hálfa verslunina. Ég
er glataður!
Lucinda: Tommi, láttu nú ekki svona!
Thomsen: Þetta er satt! Það má engu muna hjá
mér. – Nú er hann að hefna sín, helvítis beinið.
Lucinda: Auðvitað vill hann græða rétt eins og
þú. Er það einhver synd?
Thomsen: Þeir eiga hundrað sinnum meiri
peninga en ég! En nú á að kæfa mig strax í byrj-
un, ganga frá mér!
Lucinda: Þetta eru nú ýkjur!
Thomsen: Og þú tekur málstað Hillebrandts
gegn bróður þínum? En ég segi ykkur strax: fjöl-
skyldan Thomsen talar aldrei framar orð við
þann óþokka.
Lucinda: Ekki orð?
Thomsen: Ekki eitt einasta orð! Þótt við kúrum
hér hlið við hlið lengst út á hjara veraldar mán-
uðum saman í norðan stórhríð, þá yrðum við ekki
á hann. Þó hann komi til að betla mjólk út í morg-
unkaffið, þá skellum við á hann. Þekkjum hann
ekki! Frystum hann úti!“
En þótt Thomsen bæri svo þungan hug til
Hillebrandts felldu systir hans og Hillebrandt
hugi saman og gengu í hjónaband. Urðu samfarir
þeirra skammvinnar og Lucinda Thomsen dó af
barnsförum.
Þau urðu svo endalok Thomsens að hann fór í
útreiðartúr með mági sínum. Hillebrandt náði
heim útúrdrukkinn, en hestur Thomsens skilaði
sér mannlaus og fannst lík Thomsens í flæðar-
máli nokkuð upp með Blöndu.
Lánið lék ekki við Hillebrandt frekar en fyrri
daginn. Fjármálin urðu honum þung í skauti og
hjónaband, sem hann stofnaði til með auðugri
ekkju um sjötugt, Þórdísi frá Vindhæli, bjargaði
þeim ekki. En ást hennar veitti honum skjól í
Vindhæli. Þar lézt hann 41 árs.
Öldungur í byggingarsögunni
Margar sagnir herma, að Hillebrandtshúsið sé
mun eldra en frá 1877, þegar það var reist á
Blönduósi, og er í ýmsum rituðum heimildum,
m.a. lóðaskjölum Blönduóssbæjar, sagt, að húsið
hafi verið flutt frá Skagaströnd 1877, en talið
reist þar um miðja 18. öld.
Hafi Hillebrandtshús áður staðið á Skaga-
strönd og verið tekið þar niður og flutt á Blöndu-
ós er það eitt af húsum einokunarverslunar á
Skagaströnd og þá jafnframt elsta timburhús
landsins.
Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur leiðir í
grein um Hillebrandtshúsið í Árbók fornleifa-
félagsins 1992 rök að því að Hillebrandtshús sé að
stofni til sama húsið og fyrsta krambúð Félags
lausakaupmanna á Skagaströnd, byggð árið
1733.
„Þá var það eina timburhús þeirra á verslunar-
staðnum. Tuttugu árum síðar var því breytt í
„kokkhús“, þegar ný krambúð var reist. Það var
ekki fyrr en kom fram um miðja 18. öld, að vet-
urseta einokunarkaupmanna fór að tíðkast, og
var hún ekki gerð að skyldu fyrr en 1777. Varla er
því hægt að búast við að til séu eldri hús úr timbri
á Íslandi en frá fyrri hluta 18. aldar.“ Grein sinni
lýkur Hrefna svo: „Full ástæða er því til að huga
vandlega að framtíð Hillebrandtshúss. Það er
öldungur í byggingarsögu Íslendinga, minnis-
merki um langt tímabil í sögu þjóðarinnar, auk
þess að vera vísir að upphafi þéttbýlis á Blöndu-
ósi.“ Hjörleifur Stefánsson arkitekt skrifar í Ár-
bók fornleifafélagsins 1993 þar sem hann leiðir
rök gegn því að Hillebrandtshús og gamla kram-
búðin á Skagaströnd séu eitt og sama húsið.
En mitt í þessum skoðanaskiptum kvaddi
Hillebrandtshús sjálft sér hljóðs. Hjörleifur get-
ur þess í viðauka, að eftir að hann lagði grein sína
inn til birtingar hafi viðgerð á Hillebrandtshúsi
hafizt og þá komið í ljós að það er byggt úr viðum
eldra húss eða húsa að mestu leyti. Yfirgnæfandi
hluti húsgrindarinnar er tilhöggvinn viður og því
nokkuð gamall. Hluti grindarinnar er nýrri.
„Sagan um flutning hússins frá Skagaströnd
virðist af þessu geta verið sönn í sjálfu sér. Hún
hefur bara verið oftúlkuð og skilin á þann veg að
Skagastrandarhúsið hafi verið endurreist á
Blönduósi. Sú er ekki raunin (eins og segir hér að
framan) heldur var Hillebrandtshús reist sem ný-
bygging úr viðum eldra húss og svolitlu bætt við
af byggingarefni.“ Hjörleifur bendir á að Langa-
búð á Djúpavogi sé reist um 1850, en hafi verið
byggð upp úr eldri húsum og nái saga hennar allt
aftur til 1640. „Líklegt má telja að fleiri hús finn-
ist hér á landi, sem byggð séu úr viðum sér miklu
eldri húsa og séu lík þeim að stærð og lögun.“ En
þótt uppruni Hillebrandtshúss sé tvíræður er
staða þess á Blönduósi ótvíræð. Eldurinn eyddi
„SPÁI ÉG ÞVÍ, AÐ HILLEB
Mikið var um dýrðir þegar Hillebrandtshús var komið í upphaflega gerð á nýjan leik.
Hillebrandtshús var rifið
Ljósmynd/Jón Sigurðsson eftir ljósmynd Arnórs Egilssonar í Héraðsskjalasafni A-Hún.
Hillibrandtshúsið árið 1891. Ein elsta mynd sem til er af húsinu eftir að það var fullreist.
L
Þannig leit Hillibrandtshús út á
Blönduósingar hafa fært
sitt elzta timburhús,
Hillebrandtshús, til
upphaflegrar gerðar.
FREYSTEINN JÓHANNS-
SON fór á Blönduós.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Hillibrandtsh