Vísir - 19.05.1978, Síða 1
pyrstvr
mco
«,éttir"**r
Föstudagur 19. mai 1978 — 105. tbl. 68. árgangur
m m
Sími Vísis er 86611
Dómur I máli gegn Lánasjóði islenskra námsmanna
Úthlutunarrealur
andstqeðar léaum
Dómur er fyrir
nokkru genginn i
borgardómi i máli
sem islenskur
námsmaður i Nor-
egi höfðaði gegn
fjármálaráðherra,
stjórn Lánasjóðs
islenskra náms-
m a n n a o g
menntamálaráð-
herra. Krafa
námsmannsins
var sú að tveimur
úthlutunum úr
Lánasjóðnum til
hans, haustið 1976
og vorið 1977 yrði
hnekkt.
Rökstuðningurinn var
sá að úthlutunarreglur
þær sem farið væri eftir
væru ekki i samræmi við
lög um námslán né heldur
reglugerð sem ráðherra
setti.
Námsmaðurinn bar það
fyrir sig að ekki væri tek-
ið tillit til fjölskyldu-
stærðar, en hann var
kvæntur og átti eitt barn.
Eitthvert tillit var tekiö
til barnsins við útreikning
lánsfjárþarfar en ekkert
til makans sem einnig var
við nám, er ekki var
lánshæft samkvæmt regl-
um Lánasjóðsins.
Ekki hefur reynst unnt
aö fá endurrit dómsins,
en það mun væntanlega
fást eftir helgi.
Er haft var samband
við Ragnar Aðaisteins-
son, hrl. lögmann stefn-
anda. kvaðst hann ekki
hafa séð dómsendurrit
ennþá en skjólstæðingur
sinn hefði unnið málið. þar
sem krafa hans, um að
úthlutunum tveimur væri
hnekkt, hefði verið tekin
til greina og endurúthlut-
un ætti að fara fram þar
sem tekið yrði tillit til
makans.
,,Þetta er staðíesting á
þeirri staðhæfingu að út-
hlutunarreglurnar stand-
ast ekki”, sagði Ragnar
sem reiknaði með að
þetta prófmál færi fyrir
Hæstarétt.
Er haft var samband
við Jón Sigurðsson for-
mann Lánasjóðs is-
lenskra námsmanna
kvaðst hann ekki reiðubú-
inn að tjá sig um dóminn
fyrr en hann hefði séð
dómsendurritið.
—BA.
„Spennandi og ný-
stórleg hugntynd"
— segir Ragnhildur Helgadóttir um tíllöguna
um alþingishverffi i stað stórhýsis ffyrir þingið
„Ég tel/ aö tillögur embættis húsameist-
ara séu bæði skemmtilegar og framkvæm-
anlegar"/ sagði Ásgeir Bjarnason, forseti
Sameinaðs alþingisj gær.
Tillögurnar sem nánar
er skýrt frá á fjórðu siðu
Visis i dag, fela i sér, að
byggðar verði margar
samtengdar byggingar á
lóðum Alþingis milli Von-
arstrætis, Tjarnargötu,
Kirkjustrætis og Templ-
arasunds, en horfið verði
frá hugmyndinni um
byggingu eins stórs
þinghúss.
Ragnhildur Helgadótt-
ir, forseti neöri deildar,
sagði, að sér fyndist hug-
mynd þessi bæði nýstár-
leg og spennandi, og ljóst
væri, að Alþingi þyrfti að
taka þá grundvall-
arákvörðun, hvort það
vildi hverfa frá hug-
myndinni um byggingu
eins stórs þinghúss og að
þeim hugmyndum, sem
fælust i tillögum embættis
húsameistara. Hún
kvaðst ekki hafa gert
endanlega upp hug sinn i
þessu efni.
Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, forseti efri
deildar, taldi, að þingið
yrði fyrst að taka ákvörð-
un um það grundvallar-
atriði, hvar ætti að
byggja fyrir þingið. Þess-
ar tillögur væru mjög
athyglisveröar, en hann
hefði ekki enn myndað
sér fasta skoðun um,
hvort rétt væri að fram-
kvæma þær.
—ESJ.
Frá blaöamannafundinum I gær. F.v.: FriÖjón Þóröarson, skrifstofustjóri Alþingis, Þorvaldur G. Kristjáns-
son, forseti efri deildar, Ragnhildur Helgadóttir, forseti neöri deildar, Ásgeir Bjarnason, forseti Sameinaös alþingis
og Garöar Halldórsson yfirarkitekt hjá embætti húsameistara rikisins. Vtsismynd: BH
FJÖR í SKÁKINNI
— og Friðrik gerir það
aott ó Kanarieyjum
„Þetta gekk heldur fljótt fyrir sig i
gær”, sagði Helgi ólafsson, nýbak-
aður íslandsmeistari i skák, við Visi i
morgun. Hann sigraði i gær i þriðju
einvigisskák sinni við Hauk Angan-
týsson, eftir að hafa unnið þá fyrstu
og gert jafntefli i annarri.
Helgi rifjar upp skák gærkvöldsins i morgunsáriö.
nynd: GVA.
Helgi
meistari
„Honum varð á smá-
fótaskortur i byrjuninni
og náði aldrei að jafna
eftir það”, sagöi Helgi.
Jafnframt tslands-
meistaratitlinum
tryggði hann sér rétt til
þátttöku á svæðamóti i
haust.
,,Ég veit ekki hvar
það mót verður, en ætli
maður fari ekki á það.
Annars er allt óráðið
hvað maður gerir á
næstunni — Það eru tvö
opin mót i Bandarikjun-
um i sumar, sem ég héf
dálitinn áhuga á, og i
haust er ólympiumót
euk svæðamótsins.”
Friðrik Ólafsson á
sigurvon á mótinu á
Kanarieyjum. Þegar
ein umferð er eftir er
hann hálfum vinningi á
eftir fyrsta manni, en
Friðrik vann Spánverj-
ann Sanz i gær. Tukma-
kov er efstur með 10 1/2
vinning og verður Frið-
rik að sigra Larsen i
siðustu umferð til að
eiga möguleika.
—GA
LISTIN OG LÍFIÐ
NÚ UM HELGINA
Sjú 12. og 13. síðu
iFjögurra síðna útvarps- og sjónvarpsblað í dag