Vísir - 19.05.1978, Síða 9
VTSIR Föstudagur
19. mal 1978
c
{ Umsjón: Guðmundur Pétursson
Belgískt fall-
hlífalið stefn-
ir til Kolwezi
Námabærinn Kol-
wezi sem uppreisnar-
menn i Zaire hafa haft á
valdi sinu, nötraði i gær-
kvöldi undan sprenging-
um frá sprengjuvörp-
um.
Stjórnarherinn hefur hinsvegar
náö flugvellinum á sitt vald, og
voru fréttamenn komnir þangaö I
gærkvöldi til aö bera vitni átök-
unum. Fóru þeir meö flugvél,
sem Mobutu Sese Seko, forseti
Zaire, flaug sjálfur til Kolwezi.
Ekki varö séö I nótt, hvort
stjórnarherinn heföi náö bænum
Ur höndum uppreisnarmanna, og
allt var í óvissu um örlög fleiri en
2000 hvitra útlendinga, sem dval-
ist hafa I Kolwezi.
Franskir og belgiskir fallhlifa-
hermenn eru á leiö til Shaba-
námuhéraösins til þess aö bjarga
útlendingunum burt.
Fréttamenn lýstu þvi svo viö
komuna á flugvöllinn i Kolwezi,
að hann bæri greinilega merki
mikilla átaka. Þar gat að lita
brak niu flugvéla og tveggja
þyrla. Flugstöövarbyggingar
höföu greinilega veriö skotmörk.
Þvi kviöa menn, aö uppreisnar-
mennirnir, sem réöust inn i Shaba
frá Angóla i siöustu viku, láti sókn
stjórnarhersins og belgisku fall-
hlifahermannanna bitna á hvitum
gislum. Mönnum er ekki úr minni
uppreisnin i Shaba 1964, þegar
uppreisnarmenn skutu um 30
hvita fanga sina til bana (þar á
meðal konur og börn) um leið og
belglskir fallhlifahermenn birtust
i Stanleyville (sem heitir nú Kis-
angani) til aö bjarga þeim.
táta til skarar
skríða aean
Rauðu
herdeildinni
Loksins er kominn
skriður á leit itölsku
lögreglunnar að félög-
um úr Rauðu herdeild-
inni, ræningjum og
morðingjum Aldos
Moros.
■ Tiu félagar úr þessum hryöju-
verkasamtökum voru hand-
teknir i gær og tveir til viðbótar
i nótt. Meöal þessara fanga er
ljóshærð stúlka, sem likist lýs-
ingu á manneskju sem sást yfir-
gefa bilinn, þar sem lik Moros
fannst falið 9. mai.
Lögreglustjóri Rómar sagði
fréttamönnum, að lögreglan
heföi á siðustu dögum fundiö tvö
fylgsni Rauöu herdeildarinnar I
Róm. Annaö var ibúð, en hitt
prentsmiðja. Meðal annars sem
fannst i þessum fylgsnum var
ritvél af sömu gerö og yfirlýs-
ingar ræningja Moros voru vél-
ritaðar á.
í gær hófust i italska þinginu
umræður um Moromáliö og tók
fyrstur til máls Guilio
Andreotti, forsætisráðherra.
Sagði hann, aö öryggislið lands-
ins væri ekki búið undir þá
hryðjuverkaskeflu, sem skolliö
heföi á landinu. Hann sagöi, aö
hryöjuverkum heföi fjölgaö um
78% I fyrra. Frá janúar og fram
i aprfl á þessu ári hefur verið til-
kynnt um 769 hryðjuverkaárás-
ir.
Andreotti kvað 616 hryöju-
verkamenn sitja i fangelsum i
dag og þar af tilheyröu 152 sam-
tökum Rauðu herdeildarinnar.
í Torino I gær var Renato Cur-
cio og Alberto Franceschini
dæmdir i 18 mánaöa fangelsi
fyrir aö segja I réttinum, að
moröiö á Moro heföi veriö „rétt-
læti byltingarinnar”. Þeir svara
þar til saka fyrir stofnun glæpa-
samtaka.
SOVÉTSTJÓRNIN
FORDÆMD FYRIR
DÓMINN YFIR
DR. YURI ORLOV
Dómurinn yfir Yuri
Orlov er „hrikaleg af-
bökun á þvi, sem þjóðir
heims viðurkenna al-
mennt, að séu mann-
réttindi”, sagði i yfir-
lýsingu bandariska ut-
anrikisráðuneytisins,
sem Carter forseti
lagði sjálfur blessun
sina yfir.
Leiðtogar Bretlands, Frakk-
lands og Vestur-Þýskalands
voru meðal þeirra, sem for-
dæmt hafa dóminn yfir dr. Or-
lov. Hann var dæmdur til sjö
ára refsivistar i þrælkunarbúö-
um.ogsiöanfimm ára útlegöar,
fyrir undirróöursstarfsemi og
áróöur.
Rúmlega 200 bandariskir
lagaprófessorar sendu frá sér
yfirlýsingu um réttarhöldin i
Moskvu yfir Orlov: „Viö mót-
mælum þessari neitun á grund-
vallarréttlæti og þessari klæm-
ingu á réttarfari og réttvisi I So-
vétrikjunum”.
James Callaghan forsætisráö-
herra Bretlanas sagöi i neöri
málstofunni I gærkvöldi, aö ekk-
ert gæti réttlætt þennan dóm, ef
hann væri fyrir þá sök eina að
hafa haft gát á mannréttinda-
brotum.
Kommúnistaflokkar Frakk-
lands og Bretlands hafa for-
dæmt dóminn.
Bresku blöðin fóru mjög hörö-
um oröum um réttarhöldin og
dómsniðurstöðuna. 1 leiöara
„The Times” sagöi i morgun:
„Þessi ferlegi dómur yfir al-
gjörlega imyndaða glæp sýnir,
hve litið réttarfarið i Rússlandi
hefur breyst frá dögum Stal-
ins”.
„Daily Telegram” skrifaöi i
sinum leiðara, aö „dómurinn
yfir Orlov væri brot á alþjóða-
samningum”. Blaöiö skoraöi á
bresku rikisstjórnina aö slíta
menningarsamskiptum viö So-
vétrikin til aö mótmæla rétt-
arhöldunum: „Ekkert Helsinki-
frelsi I Moskvu, enginn Bolshoi-
ballett I London.” — Blaöiö
leggur loks til, aö lánstraust So-
vétrikjanna i Vesturlöndum
veröi látiö haldast i hendur viö
frjálsræði I Rússlandi og
Austur-Evrópu.
Myrti kennara sinn
Þrettán ára gamall son-
ur fyrrverandi blaðafull-
trúa Lyndon Johnsons
Bandaríkjaforseta gekk
inn i kennslustofu í skólan-
um sinum i gær með rif fil í
hendi og skaut enskukenn-
arann til bana.
Annar kennari handsamaði
piltinn, þegar hnn hljóp burt úr
skólanum, sem er i Austin i Tex-
as. Náöi hann skotvopninu af
drengnum.
Drengurinn, John Christian, er
sonur George Christian, sem v.ar
blaöafulltrúi Hvita hússins 1966 til
1968 i forsetatið Lyndon Johnsons.
George Christian á tvo syni aöra
og rekur auglýsingafyrirtæki I
Austin.
John hafði komiö seint i
kennslustund og haföi engin um-
svif heldur skaut þegar i stað
þrem skotum aö enskukennara
sinum. Ekkert er vitaö um.hvaö
réö þessum geröum drengsins.
Pampers
PAPPIRSBLEIUR MEÐ
ÁFÖSTUM PLASTIKBUXUM
Undramjúkt efni PAMPERS hvílir
næst hörundinu, en rakinn dreifist í
pappirslög sem taka mikla vœtu.
Ytrabyrði er úr plasti. Rúm og ytri-
buxureru því ávallt þurr. PAMPERS
eru sem tilsniðnar fyrir barnið og
gefa mikið frelsi til hreyfinga.
Límbönd á hliðum gera ásetningu
einfalda. E17X777^,